Morgunblaðið - 02.11.2018, Qupperneq 27
vinnu í vörugeymslum skipafélag-
anna.
Troels gekk í Gaggó við Hring-
braut og síðan í Verslunarskólann og
útskrifaðist 1962. „Í skólaleyfum
vann ég hjá Vífilfelli og keyrði „kók-
bíl“, það þótti mikill heiður.“
Eftir skóla vann Troels í Herra-
fataverslun P&Ó og öðrum fataversl-
unum, en hóf að kenna í Iðnskólanum
í Reykjavík 1968, síðan í Flensborg
og Námsflokkum Hafnarfjarðar
ásamt öðrum. Hann hætti kennslu
1985. „Sumarstarf mitt til samtals 19
ára var sem leiðsögumaður við lax-
veiðiár víða um land og í öllum helstu
ám, bæði sem fastráðinn og með eig-
in hópa.“
Árið 1963 hóf Savannatríóið starf-
semi. Tríóið var ein vinsælasta
hljómsveit sem hefur komið fram á
Íslandi. Hún spilaði hvarvetna fyrir
áhorfendur og plötur sveitarinnar
seldust í stórum upplögum. „Við vor-
um saman að spila í fjögur ár, en þá
var nóg komið enda lítið framboð í
skemmtibransanum á þeim tíma.
Árið 1968 var ég beðinn um að setja
saman tríó fyrir Leikfélag Reykja-
víkur. Beiðnin kom frá Jónasi Árna-
syni, en það átti að setja upp leikritið
„Þið munið hann Jörund“ í Iðnó. Það
gekk síðan í hálft annað leikár.“ Tríó-
ið var Þrjú á palli sem naut sömuleið-
is mikilla vinsælda og plötur sveitar-
innar seldust vel.
Troels stofnaði sitt eigið fyrirtæki
1985 og hefur rekið umboðsverslun
síðan. „Meginviðskiptasambönd mín
hafa verið við Ítalíu og í byrjun voru
fyrirtæki þar ekki svo umsetin og því
nokkuð auðvelt að finna og vinna fyr-
ir bestu fyrirtækin í þeim greinum
sem ég sótti í. Þetta gaf tilefni til við-
skipta- og einkaferða. Síðan hefur
landið verið okkur hjónum nánast
draumaland.“
Troels vann hjá Sjónvarpinu og
NDR (Nord Deutsche Rundfunk) við
tökur á Brekkukotsannál og síðar
Paradísarheimt. „Ég hef verið
áhugaljósmyndari frá því í æsku og
hef m.a. haldið ljósmyndasýningu í
Norræna húsinu árið 1978, með
myndum frá töku Brekkukotsannáls
svo og fjörumyndum ú Skjólunum.
Það tókst að selja allar myndirnar.
Fyrir 12 árum eignuðumst við hjón-
in, í samvinnu við mág minn og mág-
konu, lítið sveitasetur í Danmörku,
nánar tiltekið nálægt Maribo á Lá-
landi. Þetta er gamalt og dæmigert
hús með stráþaki og byggt ca. 1854,
en að sjálfsögðu mikið endurnýjað
innanhúss.“ Þar dvelur Troels núna á
afmælinu.
Fjölskylda
Eiginkona Troels er Björg Sigurð-
ardóttir, f. 23.9. 1944, læknaritari.
Foreldrar hennar voru hjónin Sig-
urður Kristjánsson, f. 25.12. 1912, d.
13.7. 2013, tæknifræðingur og yfir-
kennari við Iðnskólann í Reykjavík,
og Mia Ruth Kristjánsson, f. 28.11.
1918, d. 10.9. 1974, húsmóðir.
Börn Troels og Bjargar eru: 1)
Kjartan Jóhannsson Bendtsen, f.
31.12. 1970, starfsmaður hjá Origo,
bús. á Seltjarnarnesi, eiginkona hans
er Ásdís Grétarsdóttir og börn þeirra
eru Tumi, Troels yngri og Teitur; 2)
Ómar Bendtsen, f. 1.8. 1972, starfs-
maður Isavia, bús. í Hafnarfirði.
Sambýliskona hans er Elín Ósk Guð-
mundsdóttir og börn þeirra eru Ása
Björg og Auður Mía; 3) Búi Bendt-
sen, f. 10.3. 1979, starfsmaður á Hót-
el Laxnesi, bús. í Reykjavík. Sam-
býliskona hans er Anna Maja
Albertsdóttir og börn hans eru Alex-
ander og Elísabet.
Uppeldissystir Troels er Berglind
Ingibjörg Bendtsen, f. 4.4. 1951, hús-
móðir í Kópavogi.
Fósturforeldrar Troels voru hjón-
in Þórunn Búadóttir, f. 25.5. 1915, d.
27.10. 1964, húsmóðir í Reykjavík, og
Bendt Bendtsen, f. 14.12. 1906, d.
4.11. 1998, verslunarmaður í Reykja-
vík.
Hálfsystkini Troels sammæðra
eru Benny Brennan, f. 1942, alt-
muligt-maður og rak m.a. dráttar-
bátafyrirtæki, bús. í Dragör, og Ann-
ette Gade, f. um 1950, endurskoðandi
í Kaupmannahöfn.
Móðir Troels var Dora Christen-
sen, f. 1920, d. 2016, húsmóðir í
Kaupmannahöfn.
Troels Bendtsen
Axel B. Bendtsen
setti upp Vöruhúsið í Reykjavík
og bjó síðar í Þórshöfn í
Færeyjum, frá Danmörku
Britta Bendtsen
húsfreyja á Íslandi og í
Færeyjum, frá Danmörku
Bendt D. Bendtsen
verslunarmaður í Rvík
Ásgeir Jónsson
bóndi á Stað
Solveig Guðmundsdóttir
húsfreyja á Stað í
austanverðum Hrútafirði
Búi Ásgeirsson
verslunarmaður í
Borgarnesi og Reykjavík
Ingibjörg Teitsdóttir
húsfreyja í Borgarnesi og Reykjavík
Teitur Jónsson
bóndi, úrsmiður,
járnsmiður og trésmiður
á Ferjubakka í Borgarfirði
og síðar í Borgarnesi
Oddný Jónsdóttir
ljósmóðir í Borgarnesi
Úr frændgarði Troels Bendtsen
Þórunn Búadóttir
húsmóðir í Reykjavík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Framleiðum allar gerðir
límmiða af mismunandi
stærðum og gerðum
Thermal
Hvítir miðar
Litamiðar
Forprentaðir
Athyglismiðar
Tilboðsmiðar
Vogamiðar
Lyfsölumiðar
Varúðarmiðar
Endurskinsmiðar
Flöskumiðar
Verðmer
Selhellu 13 • 221 Hafnarfirði • Sími 554 0500 • bodtaekni.is
kimiðar
Límmiðar
90 ára
Ásdís Ásgeirsdóttir
Hjálmar Th. Ingimundarson
Hjördís Guðbjörg Stefáns-
dóttir
Jón Sigurðsson
85 ára
Árný Þorsteinsdóttir
Guðbjörg Sumarliðadóttir
Lóa Stefánsdóttir
Ulla May V. Rögnvaldsson
80 ára
Evamarie Elsa Bauer
Valdís Vilhjálmsdóttir
Vladimir Kodmann
Örn Erlendsson
75 ára
Guðmundur Jónsson
Sveinn Sigurkarlsson
Troels Bendtsen
Vilhjálmur B. Kristinsson
70 ára
Guðríður Einarsdóttir
Hannes Jón Hannesson
Ingimar Sumarliðason
Magnea Bjarnadóttir
Ragnheiður Pálsdóttir
Steini Þorvaldsson
60 ára
Ása Bernharðsdóttir
Birgir Þór Borgþórsson
Elísabet Frímannsdóttir
Guðbjörg Ágústa Sigurð-
ardóttir
Hildur Jónsdóttir
Óðinn Gunnar Óðinsson
Vicki Marlene O’Shea
50 ára
Eyrún Thorstensen
Guðlaug F. Þorsteinsdóttir
Helga Rós V. Hannam
Jóhanna Sigrún Jensdóttir
Jóhann Víðir Númason
Kolbrún Karlsdóttir
Pétur Þór Hall Guðmunds-
son
Þorvaldur Markússon
Ævar Leó Sveinsson
40 ára
Auðbjörg Hanna Óttars-
dóttir
Auður Eiríksdóttir
Elzbieta Anna Kocot
Esther Sigurðardóttir
Ewelina Urszula Myslowski
Falasteen Abu Libdeh
Friðbjörn Oddsson
Gunnar Örn Gunnarsson
Hafsteinn Guðmundsson
Halldóra Harpa Ómarsdóttir
Helena Einarsdóttir
Helgi Karl Engilbertsson
Íris Stefánsdóttir
Jukka Kalervo Siltanen
Torfi Hjörvar Björnsson
Vita Kurenkova
30 ára
Alejandro Paderewski San
Roman
Alin Luca
Anna Kristín Jóhann-
esdóttir
Brynjar Jóhannesson
Elfar Smári Sverrisson
Florian Philipp Giesler
Helena Margrét Friðriks-
dóttir
Margrét Ína Bjarnadóttir
Ólafur Örn Halldórsson
Pétur Bjarni Pétursson
Til hamingju með daginn
30 ára Anna ólst upp á
Álftanesi en býr í Hafnar-
firði. Hún er í MEd-námi í
kennslu við HA.
Maki: Sveinn Ómar Frið-
jónsson, f. 1987, smiður
hjá Byggingarfélaginu
Sakka.
Börn: Fanney Kara, f.
2012, og Mikael Darri, f.
2016.
Foreldrar: Jóhannes Páll
Sigurðsson, f. 1972, og
Ingunn Ágústa Guð-
mundsdóttir, f. 1971.
Anna Kristín
Jóhannesdóttir
40 ára Friðbjörn er Hafn-
firðingur og flugstjóri hjá
Icelandair og er einnig
skólastj. hjá Flugskóla Ice-
landair.
Maki: Guðrún Jónsdóttir, f.
1977, MSc. í matvælafræði.
Börn: Oddur Ingi, f. 2006,
Lea Karen, f. 2009, og Ótt-
ar Elí, f. 2016.
Foreldrar: Oddur Helgi
Oddsson, f. 1950, bygg-
ingastjóri hjá ÍAV, og
Elínborg Jóhannsdóttir, f.
1951, sjúkraliði.
Friðbjörn
Oddsson
40 ára Helena er Reykvík-
ingur, grunnskólakennari í
Háaleitissk. og er MA í
afbrotafr. frá Leuven.
Maki: Jörundur Valtýsson,
f. 1974, skrifstofustj. í ut-
anríkisráðuneytinu.
Börn: Bryndís Pálína, f.
2004, Katrín, f. 2006, og
Margrét, f. 2011.
Foreldrar: Einar Erlends-
son, f. 1939, húsgagna-
smiður, og Elín Margrét
Höskuldsdóttir, f. 1943.
Þau eru bús. í Rvík.
Helena
Einarsdóttir
Jan Prikryl hefur varið doktorsrit-
gerð sína í jarðfræði við Háskóla Ís-
lands. Ritgerðin ber heitið Efnaskipti
vatns og bergs og binding CO2 og H2S
í jarðhitakerfum: tilraunir og lík-
anreikningar (e. Fluid-rock interaction
and H2S and CO2 mineralization in
geothermal systems: experiments
and geochemical modeling).
Andmælendur voru dr. Alasdair Skel-
ton, prófessor við Háskólann í Stokk-
hólmi, Svíþjóð og dr. Orlando Vaselli,
dósent við Háskólann í Flórens, Ítalíu.
Leiðbeinandi var dr. Andri Stefánsson,
prófessor við Jarðvísindadeild Há-
skóla Íslands. Einnig sátu í doktors-
nefnd dr. Sigurður R. Gíslason, vís-
indamaður á Jarðvísindastofnun
Háskólans, og dr. Bergur Sigfússon,
fagstjóri umhverfis og auðlinda-
strauma hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Efnaskipti vatns og bergs eru mikil-
væg ferli í náttúrunni, sem og í margs
konar iðnaði. Slíkum efnahvörfum má
beita til þess að binda útblástursgös
frá iðnaði, svo sem CO2 og H2S, varan-
lega í bergi í jarðhitakerfum. Til að
rannsaka jarðefnafræði slíkrar bind-
ingar voru tilraunir gerðar á rann-
sóknarstofu og framgangur efna-
hvarfa reiknaður.
Rannsóknin var
í þremur liðum: (1)
leysing frum-
steinda og glers
við gegnumflæði
vökva, og voru þá
lausnir efna-
greindar og föst
efni myndgreind;
(2) óhlutfallsbundin ummyndun frum-
stæðra steinda í CO2-ríkum lausnum,
og voru þá lausnir efnagreindar,
steindir greindar til tegundar og
magns og samsætuhlutföll mæld; (3)
steinrenning CO2 og H2S við gegn-
umflæði vökva, og voru þá lausnir
efnagreindar og steindir greindar til
tegundar og magns.
Helstu niðurstöður eru að binding
CO2 og H2S í jarðhitakerfum ætti að
vera möguleg út frá jarðefnafræðilegu
sjónarmiði. Miðað við mældan bind-
ingarhraða, bindast ~0,2-0,5 t af CO2
og ~0,03-0,05 t af H2S árlega á rúm-
metra. Þetta bendir til þess, að dæl-
ing CO2 og H2S niður í jarðhitakerfi
kunni að vera fær leið til að gera orku-
vinnslu með jarðvarma kolefnis-
hlutlausa.
Jan Prikryl
Jan Prikryl er fæddur 1987 í Tékklandi. Hann útskrifaðist með BS-próf 2010 og
MS-próf 2012 í jarðfræði frá Háskólanum í Masaryk, Brno, Tékklandi. Hann er
rannsóknar- og þróunarsérfræðingur hjá Gerosion ehf. Hann vinnur að umhverf-
isvænum lausnum og nýsköpunarhugmyndum, t.d. verðmætasköpun úr iðnaðar-
úrgagni fyrir jarðhita- og orkufrekan iðnað. Jan er giftur Margréti Rán Kjærne-
sted og sonur þeirra er Kristian Mímir.
Doktor
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón