Morgunblaðið - 02.11.2018, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ótrúlega mikil hamingja færist þér í
fang svo lengi sem þú lætur ekki neikvæðar
hugsanir stöðva hana. Slakaðu svo á og
leyfðu þér að njóta augnabliksins.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ættir að gefa þér tóm til þess að
skemmta þér svolítið. Líttu á björtu hliðarnar
og þá kemur allt annað af sjálfu sér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Dagurinn hentar vel til að íhuga
gamlar hugmyndir um atvinnumöguleika. Allt
virðist ganga þér í haginn svo þú skalt bara
njóta þess.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hlutirnir fara hægt af stað en þú lifn-
arð fljótt við þegar einhver veitir þér sam-
keppni. Reyndu allt tvisvar svo þú getir slak-
að á og notið þín.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu það ekki buga þig þótt verkefni
þitt sé erfiðara en þú bjóst við. Farðu vel yfir
stöðuna og þá finnurðu hvað vantar. Mundu
að svara skilaboðum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það eru miklar líkur á töfum og bil-
unum í vinunni hjá þér í dag. Mundu að aðgát
skal höfð í nærveru sálar og fæst orð hafa
minnsta ábyrgð.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gættu þess að lenda ekki í óþarfa orða-
skaki við vin þinn eða vandamann í dag. Líttu
á björtu hliðarnar og þá sérðu að margt er í
góðu lagi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert að takast á við svo spenn-
andi verkefni, og verður stundum að stoppa
til að anda og róa þig. Hóf er best á hverjum
hlut og sönn gleði verður ekki fengin fyrir fé.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ekki leyfa þér að fara í fýlu, þá
verðurðu ánægðari og umburðarlyndari
gagnvart fólkinu í kringum þig. Ef þú frystir
aðra úti lokarðu á sjálfan þig um leið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú ert alltaf út við hliðarlínu
gæti fólk haldið að þú værir ekki þátttakandi í
leiknum. Reyndu að ná heildarsýn til þess að
þú getir vegið og metið aðstæður svo vit sé í.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er allt fullt af tækifærum í
kringum þig og segja má að þú hafir ekki við
að notfæra þér þau. Passaðu þig á því að
einblína ekki svo mikið á praktíska hluti, að
þú missir sjónar á gleði þinni og sköpunar-
gáfu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Samstarfsmenn þínir munu koma
auga á hæfileika þína og vilja njóta þeirra.
Vandaðu því framgöngu þína í hvívetna og
vertu tillitssamur.
Bragi Bergmann sendi mér línu ánetinu, – „Samkeppni úr
óvæntri átt“: „Fréttir af fyrirhug-
aðri klónun hundsins Sáms hafa vak-
ið verðskuldaða athygli. Enn og aft-
ur fetar frú Dorrit ótroðnar slóðir
og ryður brautina. Klónun er auðvit-
að ekkert annað en vísindaleg fjöl-
földun lífvera og ég sé enga ástæðu
til að láta eitt samrit duga ef þú ert
ánægð(ur) með frumritið! Sjáum til
hvað gerist í næstu lotu; þá gæti
Guðni forseti fengið samkeppni úr
óvæntri átt:
Í forundran þjóðin mín þagnar,
því næst af einlægni fagnar.
Þó klónun sé dýr
koma senn þrír:
Ólafur Ragnar, Ólafur Ragnar, Ólafur
Ragnar!“
Bjarki Karlsson segir frá því á
Boðnarmiði að hann hafi farið aust-
ur á Hlíðarenda á sunnudag til þess
að skoða haug Gunnars. Sér sýndist
úr fjarska sem haugurinn stæði op-
inn. Gunnar sat þar uppi og sá í móti
tunglinu. Hann kvað vísu og svo hátt
að Bjarki hefði mátt heyra þótt fjær
stæði:
Sárt ertu leikinn Sámur fóstri,
sorglegast víg þitt er tjóna.
Skammt verður ugglaust okkar á milli,
aldrei mun Hallgerður mjóna
hyskin og þjófótt úr hári sínu
handa mér bogstrengi prjóna.
Ó, hvað ég vildi að ég væri eins og Dorrit
sem væri þig búin að klóna.
Hjálmar Freysteinsson skrifaði á
fésbókarsíðu sína á laugardag:
„Meðan sprettur ull á ám“
og ávextirnir vaxa á trjám,
framþróun margur fagnar.
Erfðatækni er nytsamt nám,
nú er búið að klóna Sám,
en ekki Ólaf Ragnar.
Bjarni Sigtryggsson yrkir á Boðn-
armiði:
Á vísindin tóku þau trúna;
með tækni má fjölga sér núna.
En ég veit ef ég spyrði
að vinsælast yrði
að einrækta forsetafrúna.
Og Ragnar Ingi Aðalsteinsson
bætir við:
Dorrit kemst sem áður upp með alls
kyns hrekki.
Bara hún klóni Ólaf ekki.
Ólafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, fór um árabil í Sandá til lax-
veiða. Þaðan er þessi vísa runnin:
Eigðu þetta, yndið mitt,
ánni gekk ég nærri;
það er skömm að þessum titt, –
þú hefur séð ‘ann stærri.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn um klónun
og hundinn Sám
Í klípu
„ER SÁ SEM NAM ÞIG Á BROTT HÉR Í
RÉTTARSALNUM Í DAG?”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MÁ ÉG FÁ LÁNAÐ TÍMARITIÐ SEM
ÞÚ VARST AÐ LESA UPPI Í RÚMI Í
GÆRKVÖLDI?”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú finnur
„sálufélagann.“
ÞÚ SPYRÐ HVAÐ SÉ
AÐ ALHEIMINUM?
ÉG SKAL SEGJA ÞÉR HVAÐ
ER AÐ ALHEIMINUM
HANN GERIR EKKI
NÓG FYRIR MIG
BÖRNIN OKKAR ÆTTU AÐ
VITA AF ERFIÐLEIKUM ÆSKU
MINNAR!
ÞÚ GETUR SEGT ÞEIM ALLT UM ÞAÐ ÞEGAR
ÞÚ FULLORÐNAST!
HANN ER
SÁ „EINI
RÉTTI„
HÚN ER
SÚ„EINA
RÉTTI„
Víkverji er næmur og finnur velfyrir því þegar veturinn með
sinn kulda tekur í rólegheitunum yfir
haustið. Víkverji kvíðir kuldanum og
hálkunni og hefur ekki enn tekist að
venjast komu vetrarins.
x x x
Í gær hófst nóvember og íbúar sunn-an heiða þurfa ekki að kvarta yfir
veðrinu það sem af er vetri. Snjórinn
hefur lítið látið sjá sig en frostið hef-
ur látið á sér kræla. Þegar Víkverji
kvíðir vetrinum fer hann stundum í
Pollýönnuleik þar sem gleði og já-
kvætt hugarfar er lykillinn að því að
vinna á erfileikum lífsins. Víkverji
sem er fróðleiksfús komst að því í
greinasafni Morgunblaðsins að sag-
an um Pollýönnu er 105 ára gömul og
þar með jafngömul Morgunblaðinu.
x x x
Söguna um Pollýönnu samdibandaríski rithöfundurinn
Eleanor H. Porter, en Pollýanna
kom fyrst út á íslensku árið 1946 í
þýðingu Freysteins Gunnarssonar,
skólastjóra Kennaraskólans. Pollý-
anna, sagan af stelpunni sem kom
öllum í gott skap, er ein vinsælasta
barnabók allra tíma og hefur verið
talin til klassískra barnabókmennta.
Sagan um Pollýönnu hefur verið
endurútgefin að minnsta kosti sex
sinnum á Íslandi eftir því sem Vík-
verji kemst næst.
x x x
En virkar Pollýönnuleikurinn og áhann alls staðar við? Það er
spurning sem Víkverji veltir fyrir sér
en á ekki einhlítt svar við. Jákvæð
sýn á lífið og bjartsýni getur aldrei
skaðað. En í bland við gleði og bjart-
sýni þarf að vera raunsæi. Einhvern
veginn er Víkverji viss um að fæstir
séu þannig úr garði gerðir að þeir
geti alla daga, alltaf tekið öllu því
sem að höndum ber með gleði og
brosi.
x x x
Víkverji telur sig vera góðum kost-um gæddan og er bjartsýnn að
eðlisfari. Pollýönnuleikurinn virkar
ekki alltaf hjá Víkverja og mest reyn-
ir á hann þegar hitamælirinn sýnir
lækkandi hitatölur og kuldinn smýg-
ur inn að beini. vikverji@mbl.is
Víkverji
Allir vegir Drottins eru elska og trú-
festi fyrir þá sem halda sáttmála hans
og boð.
(Sálm: 25.10)