Morgunblaðið - 02.11.2018, Page 33
Það þarf ekki háar fjár-hæðir til að búa til vand-aðar og áhrifamiklarkvikmyndir og danska
kvikmyndin Den skyldige er ein
slík. Ef ekki hefði verið fyrir ríkis-
styrk hefði hún líklega aldrei verið
gerð en hún var styrkt af New
Danish Cinema, verkefni sem
heyrir undir dönsku kvikmynda-
stofnunina, Den danske film-
institut. Og myndin sýnir enn
fremur að ekki þarf hasar og læti
til að búa til spennu.
Í Hinum seka segir af lögreglu-
manninum Asger sem settur hefur
verið á vakt hjá dönsku neyðarlín-
unni og þarf þar að svara misáríð-
andi innhringingum. Ástæðan fyr-
ir því að Asger er þangað kominn
í stað þess að framfylgja lögunum
á götum Kaupmannahafnar liggur
ekki fyrir framan af mynd, en
fljótlega kemur í ljós að hann þarf
að mæta fyrir rétt næsta dag og
félagi hans þarf að bera vitni.
Hvers vegna verður ekki gefið
upp, frekar en margt annað þegar
kemur að söguþræðinum, í þessari
gagnrýni þar sem hætt er við að
það myndi eyðileggja fyrir þeim
sem ætla að sjá myndina.
Þegar stutt er eftir af vaktinni
fær Asger símtal frá konu sem
hann heldur í fyrstu að sé ölvuð
og að fíflast í honum af því hún
kallar hann ástina sína. Hann átt-
ar sig þó fljótlega á því að kon-
unni hefur verið rænt og að mann-
ræninginn hefur leyft henni að
hringja í þeirri trú að hún sé að
tala við dóttur sína.
Asger reynir að fá eins miklar
upplýsingar og hann getur og
kemst að því hver konan er og að
börn hennar tvö eru ein heima.
Hann hringir heim til konunnar
og dóttir hennar svarar í símann.
Asger heitir henni því að mamma
hennar komi bráðum heim og
reynir það sem eftir er myndar að
standa við það loforð með símann
einan að vopni. Asger verður sí-
fellt örvæntingarfyllri í björg-
unartilraunum sínum og fer langt
út fyrir starfssvið sitt sem starfs-
maður neyðarlínunnar. Tíminn er
naumur og Asger beitir ýmsum
aðferðum í von um að geta bjarg-
að konunni.
Hinn seki tilheyrir ákveðinni
gerð spennumynda, þrillera, sem
fara fram í afmörkuðu og oft
þröngu rými. Má af slíkum nefna
Dog Day Afternoon sem leikstjór-
inn Möller mun m.a. hafa litið til
við gerð Hins seka og Buried sem
segir af manni sem hefur verið
grafinn lifandi og berst fyrir lífi
sínu inni í líkkistunni með farsíma
og kveikjara við höndina.
Jakob Cedergren er frábær í
hlutverki lögreglumannsins As-
gers og mæðir mikið á honum þar
sem hann er í mynd allan tímann
og nær alltaf í símanum. Myndin
stendur og fellur með frammi-
stöðu leikarans, raddblæ hans og
svipbrigðum.
Mótleikararnir standa sig líka
vel en þeir sjást auðvitað flestir
aldrei – fyrir utan þá sem eru
starfsmenn neyðarlínunnar – þar
sem þeir eru að tala við Ceder-
gren í síma. Ber þar sérstaklega
að nefna Jessicu Dinnage sem
leikur konuna sem hefur verið
rænt, Iben, og hina barnungu Kat-
inku Evers-Jahnsen sem er ótrú-
lega sannfærandi í hlutverki dótt-
ur Iben. Sá sem ekki kemst við af
því að hlusta á barnið grátandi í
símanum er líklega tilfinningalaus.
Handrit myndarinnar er mjög
vel skrifað og útpælt, handritshöf-
undar afhjúpa sannleikann í mátu-
legum skömmtum og beina athygli
áhorfandans listilega frá honum
þegar þörf er á. Ekki er allt sem
sýnist og ýmsum spurningum er
varpað fram, m.a. hver sé hinn
seki sem titill myndarinnar vísar í
og hvernig réttast sé að bregðast
við í aðstæðum á borð við þær
sem Asger lendir í.
Myndatakan, lýsing og tónlist
magna spennuna upp og hún nær
hámarki í seinni hluta mynd-
arinnar en dettur dálítið niður
undir blálokin. Helst til mikið er
þá gefið upp um ástæðu þess að
Asger þarf að mæta fyrir rétt
næsta dag og betur hefði farið á
því að leyfa áhorfendum að geta í
eyðurnar.
Endirinn kemur á óvart, svo
ekki sé meira sagt, og það er
ákveðið afrek út af fyrir sig. Og
ekki má gleyma einu því allra
mikilvægasta í myndinni en það er
hljóðhönnunin. Hún er fram-
úrskarandi og þau atriði þar sem
Asger hlustar þögull á það sem er
að gerast á hinum enda línunnar
eru rafmögnuð. Bíógestir héldu í
sér andanum í einu slíku og þögn-
in sem fylgdi skelfilegri uppgötv-
un var meira hrollvekjandi en
nokkurt hljóð.
Hver er hinn seki?
Taugatrekktur Lögreglumaðurinn Asger, leikinn listavel af Jakob Cedergren, í kvikmyndinni Den skyldige.
Bíó Paradís
Den skyldige/Hinn seki bbbbn
Leikstjórn: Gustav Möller. Handrit: Emil
Nygaard Albertsen og Gustav Möller.
Aðalleikarar: Jakob Cedergren, Jessica
Dinnage, Johan Olsen og Jacob Loh-
mann. Danmörk, 2018. 85 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Menningar-
félagið Druslu-
bækur og doðr-
antar, sem hefur
verið starfandi í
áratug og haldið
úti samnefndu
bókabloggi á
slóðinni bokvit.-
blogspot.com,
býður í dag til
upplestrarhátíðar í samkomusal
Hallveigarstaða, Túngötu 14. Þar
munu félagsmenn og vinir þeirra úr
rithöfundastétt lesa upp úr bókum
af ýmsu tagi: þýddum bókum og
frumsömdum, barna- og unglinga-
bókum, ljóðabókum, fræðibókum
og skáldsögum. Dagskráin hefst kl.
17 og meðal þeirra sem lesa upp
eru Þórdís Gísladóttir, Þorsteinn
Vilhjálmsson og Hildur Knúts-
dóttir.
Bækur verða til sölu á staðnum
og boðið verður upp á áritanir og
léttar veitingar.
Upplestur Druslu-
bóka og doðranta
Þórdís Gísladóttir
Bandaríski heimspekingurinn og
rithöfundurinn Martha Nussbaum
hlýtur Berggruen-verðlaunin í ár
og verða þau afhent í desember.
Verðlaunin eru veitt hugsuði sem
þykir hafa haft mikil áhrif með
hugmyndum sínum í síbreytilegum
heimi, eins og það er orðað í frétt
New York Times. Í verðlaunafé
hlýtur Nussbaum eina milljón
bandaríkjadala. Nussbaum er 71
árs og hefur skrifað yfir 40 bækur
um ýmis efni, m.a. tilfinningar,
stjórnmál og tengsl sígildra bók-
mennta við samtímann.
Nussbaum er prófessor í lögum
og siðfræði við Háskólann í Chi-
cago.
Hlýtur Berggruen-
verðlaunin í ár
Verðlaunuð Martha Nussbaum.
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Bohemian Rapsody
Kvikmynd um bresku hljómsveitina
Queen, sem segir frá sveitinni allt
frá stofnun fram að þeim tíma er
hún var orðin ein vinsælasta hljóm-
sveit heims undir forystu söngv-
arans Freddy Mercury.
Leikstjórar eru Dexter Fletcher og
Bryan Singer. Með aðalhlutverk
fara Rami Malek, Aidan Gillen og
Lucy Boynton. Metacritic: 49/100
Cold War
Ástarsaga sem gerist í kalda stríð-
inu á sjötta áratugnum í Póllandi,
Berlín, Júgóslavíu og París og segir
af karli og konu af ólíkum uppruna.
Myndin keppti um Gullpálmann á
kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrr á
árinu og hlaut leikstjórinn, Pawel
Pawlikowski, leikstjórnarverðlaun.
Aðalleikarar eru Joanna Kulig,
Tomasz Kot og Borys Szyc.
Metacritic: 90/100
The Nutcracker
and the Four Realms
Ævintýra- og fjölskyldumynd í leik-
stjórn Lasse Hallström og Joe John-
ston sem byggist að hluta á Hnotu-
brjótnum. Hin unga Clara sækist
eftir einstökum lykli sem opnað
getur kassa með ómetanlegri gjöf
frá móður hennar heitinni.
Aðalleikarar eru Mackenzie Foy,
Keira Knightley og Morgan Free-
man. Metacritic: 37/100
Blindspotting
Collin og Miles eru æskuvinir og
starfa sem flutningamenn í gamla
hverfinu sínu. Collin er á skilorði
og óvæntur atburður veldur því að
Collin brýtur útivistarbannið. Þá
reynir á vináttu þeirra Miles. Leik-
stjóri er Carlos López Estrada og
með aðalhlutverk fara Daveed
Diggs og Rafael Casal.
Metacritic: 76/100
Bíófrumsýningar
Frægð, ást, ævin-
týri og vandræði
Ástarsaga Úr pólsk-frönsku kvik-
myndinni Zimna wojna, eða Kalt
stríð eins og hún heitir á íslensku.
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira, en bara ódýrt
Fötur/Balar/tunnur/
stampar, mikið úrval
Vinnuvettlingar Pu-Flex
frá 295
R
Strákústar
frá 695
frá 395
uslatínur
Laufhrífur
frá 1.495
Lauf/ruslastampur
Laufsuga/blásari
8.985
skóflur
frá 1.995
Ruslapokar
10/25/50 stk.
Nokkrar stærðir