Morgunblaðið - 12.11.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2018
Styrmir Gunnarsson bregst viðumræðu um þriðja orkupakk-
ann sem fram fór í þættinum Þing-
völlum á K100 í gærmorgun: „Á
mbl.is, netútgáfu Morgunblaðsins, í
dag er að finna frétt um umræður
á K100, útvarpsstöð Morgunblaðs-
ins, í morgun um orkupakka 3. Þar
er haft eftir Björtu Ólafsdóttur,
einum stjórnanda
viðkomandi þáttar,
að „erfitt hefði ver-
ið að fá viðmæl-
endur frá Sjálfstæð-
isflokki í þáttinn,
þrátt fyrir að ráð-
herrar úr röðum
flokksins … færu
fyrir málinu.“
Hvað veldur?Er nú svo
komið að forystu-
menn Sjálfstæðis-
flokksins þori ekki
að ræða þetta mál?!
Brynjar Níelsson, alþingismaðurSjálfstæðisflokksins, hafði þó
kjark til þess og sagði:
„Ég vil reyna að komast hjá því í
lengstu lög, ef það er hægt, að inn-
leiða þennan orkupakka.“
Ef það er hægt?
Brynjar ræður sjálfur atkvæðisínu á Alþingi.
Varla tekur hann við fyrir-
mælum frá Brussel.“
Þetta er þörf ábending. Íslander, enn sem komið er að
minnsta kosti, ekki í þeirri stöðu
að lúta Brussel í einu og öllu.
Á 100 ára afmæli fullveldisins ergott að minnast þess. Það
gildir um fullveldið eins og sagt
hefur verið um frelsið; það tapast
sjaldnast allt í einu.
Styrmir
Gunnarsson
Atkvæðið á Alþingi
STAKSTEINAR
Brynjar Níelsson
Sementsflutningaskipið Fjordvik er
í höfn í Keflavík og verður þar um
sinn. Verið er að þétta skipið og
stefnt er að því að loka sem flestum
innstreymisopum þess svo hægt
verði að draga það annað. Skipið var
dregið á föstudagskvöld frá Helgu-
vík, þar sem það strandaði aðfara-
nótt laugardags fyrir rúmri viku.
Aðgerðin gekk eins og í sögu, að
sögn Halldórs Karls Hermanns-
sonar, hafnarstjóra í Reykjaneshöfn.
,,Það var mjög fagmannlega
að öllu staðið“
„Þetta gekk mjög vel. Þessi fram-
kvæmd held ég að sé lýsandi fyrir
þetta fyrirtæki sem tók þessa aðgerð
að sér. Það var mjög fagmannlega að
öllu staðið,“ segir Halldór í samtali
við Morgunblaðið. Aðgerðin tók um
eina og hálfa klukkustund. „Þeir
vissu greinilega alveg hvað þeir voru
að gera,“ bætir Halldór við.
Það er rúm vika síðan skipið
strandaði og á ýmsu hefur gengið
síðan þá. Meðal annars var 15
manns bjargað úr því fyrstu nóttina.
Þá var vindasamt á strandstaðnum
fyrst um sinn og olli það erfiðleik-
um.
Nú er þess beðið að hægt verði að
draga skipið einhvern spotta til ítar-
legri viðgerðar annars staðar. Hafn-
arfjörður hefur verið nefndur sem
viðgerðarstaður. snorrim@mbl.is
Fjordvik í Keflavíkurhöfn um sinn
Verið er að þétta skipið og loka innstreymisopum til að hægt verði að draga það
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Skipið Fjordvik í Keflavíkurhöfn.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Jón R. Hjálmarsson,
fyrrverandi fræðslu-
stjóri, lést á Landspít-
alanum í Reykjavík síð-
astliðinn laugardag, 96
ára að aldri. Hann
fæddist 28. mars 1922 í
Bakkakoti, Vesturdal í
Skagafirði, sonur
þeirra Hjálmars Jóns-
sonar og Oddnýjar Sig-
urrósar Sigurðar-
dóttur. Hann lauk
búfræðiprófi frá Hólum
1942, stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á
Akureyri 1948, cand.
mag.-prófi í ensku, þýsku og sögu
frá Óslóarháskóla 1952 og cand.
philol.-prófi í sagnfræði frá sama
skóla árið 1954.
Eftir nám gerðist Jón skólamaður
og var skólastjóri Héraðsskólans í
Skógum undir Eyjafjöllum 1954-
1968 og frá 1970-1975 og skólastjóri
við Gagnfræðaskólann á Selfossi
1968-1970. Hann var síðan fræðslu-
stjóri á Suðurlandi frá 1975 til
starfsloka árið 1990. Jón og fjöl-
skylda hans bjuggu um árabil á Sel-
fossi en síðastliðin fimmtán ár í
Reykjavík.
Um árabil sinnti Jón leiðsögn með
erlenda ferðamenn og Íslendinga
raunar líka og fór í slíkar ferðir,
meðal annars með eldri borgara, al-
veg fram á síðastliðið
ár. Þá fékkst hann við
margvísleg ritstörf og
eftir hann liggja marg-
ar bækur, meðal ann-
ars kennslurit og bæk-
ur um sagnfræði og
þjóðlegan fróðleik af
ýmsum toga. Fyrr á tíð
sá hann meðal annars
um útvarpsþætti og
tók viðtöl við fólk sem
síðar komu út í bókar-
formi. Síðustu árin
skrifaði Jón leiðsögurit
með ýmsum fróðleik úr
byggðum landsins, síð-
ust þeirra bóka var Landnámssögur
við þjóðveginn, sem kom út fyrr á
þessu ári. Þá var Jón með Þórði
Tómassyni, safnverði í Skógum, um
langt árabil ritstjóri og útgefandi
Goðasteins, héraðsrits Rangæinga.
Einnig ritstýrði Jón Rotary Norden
af Íslands hálfu. Jón hlaut riddara-
kross hinnar íslensku fálkaorðu árið
1983 og var sæmdur Paul Harris
Fellow-orðu Rotaryhreyfingarinnar
1986 og 1996.
Hann kvæntist Guðrúnu Ó. Hjör-
leifsdóttur 25. september 1954 og
börn þeirra eru Halldóra, Hjálmar
Andrés, Hjörleifur Rafn, Oddný Sig-
urrós og Guðrún Helga. Barnabörn
hans eru níu talsins og eitt langafa-
barn.
Andlát
Jón R. Hjálmarsson