Morgunblaðið - 12.11.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2018
Þvotturinn verður barnaleikur.
Sápuskömmtun er sjálfvirk.
TwinDos með tveimur fösum.
Fyrir hvítan og litaðan fatnað.
Treystu Miele W1 þvottavélum með TwinDos
fyrir því sem skiptir þig mestu máli. Þú
verður sannarlega í góðum höndum.
Innbyggða og sjálfvirka skömmtunarkerfið
auk þvottaefnafasanna tveggja vinna
fullkomlega saman. Þetta tryggir að rétt
magn af réttri tegund þvottaefnis er
skammtað inn á réttum tímapunkti –
fyrir fullkominn þvottaárangur og án
þess að nota of mikið þvottaefni.
Fyrir allt sem þér þykir virkilega
vænt um.
Miele. ImmerBesser.
**þegar keypt
er Miele W1
með TwinDos
þangað til
8. mars 2019
Fríar hálfs árs birgðir
af þvottaefni**
Íslenskar
leiðbeiningar
Dómnefnd Samtaka ferðaþjónust-
unnar hefur ákveðið að veita Bjór-
böðunum ehf. nýsköpunarverðlaun
SAF 2018. Voru verðlaunin afhent á
viðburði sem haldinn var á laugardag
í tilefni af 20 ára afmæli samtakanna.
Nýsköpunarverðlaun SAF eru
veitt fyrir athyglisverðar nýjungar í
ferðaþjónustu og er markmiðið með
þeim að hvetja fyrirtæki innan sam-
takanna til vöruþróunar og nýsköp-
unar. Að þessu sinni barst dómnefnd
31 tilnefning og hafa verðlaunin nú
verið veitt fimmtán sinnum.
Bjóböðin voru opnuð á Árskógs-
sandi í Eyjafirði árið 2017 og vöktu
strax mikla athygli. Hefur starfsem-
in lífgað upp á ferðaþjónustuna á
svæðinu og styrkt markaðssetningu
Norðurlands sem áhugaverðs
áfangastaðar árið um kring.
Hjónin Agnes Sigurðardóttir og
Ólafur Þröstur Ólafsson stofnuðu
fyrirtækið í félagi við son sinn og
tengdadóttur en þau ráku fyrir
bruggverksmiðjuna Kalda á sama
stað. Nýta bjórböðin bjórgrugg sem
annars hefði verið hent. ai@mbl.is
Stolt Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þ. Ólafsson, eigendur Bjórbaðanna
(f.m.), ásamt Bjarnheiði Hallsdóttur, formanni SFA, og Elizu Reid.
Bjórböðin fá ný-
sköpunarverðlaun
Laða gesti til Eyjafjarðar árið um kring
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Eftir fimm ára baráttu hafði breski
uppfinningamaðurinn og frum-
kvöðullinn James Dyson betur í
slag við Evrópusambandið. Dóm-
stóll ESB í Lúxemborg komst að
þeirri niðurstöðu á fimmtudag að
evrópskt vottunarkerfi fyrir ryk-
sugur bæði villi fyrir almenningi og
mismuni framleiðendum. Ógilti
dómstóllinn vottunarkerfið en fá-
heyrt er að reglur ESB séu ógiltar
með þessum hætti.
Öllum heimilisraftækjum sem
seld eru í Evrópu þarf að fylgja
einkunn sem á að hjálpa neytend-
um að velja frekar tæki sem nota
minni orku og virka eins og til er
ætlast. Samkvæmt reglum ESB
verða allar ryksugur að gangast
undir próf og er þeim gefin ein-
kunn á skalanum A til G fyrir raf-
orkunotkun, hve mikla soggetu
þær hafa á hörðum og mjúkum
gólfum, hve mikið ryk er í út-
blæstri þeirra og hve mikill hávaði
stafar frá ryksugunum.
Væri það gott og blessað, nema
hvað að samkvæmt reglum ESB
eru ryksugur prófaðar án ryksugu-
poka, og án þess að þær séu látnar
sjúga upp ryk og önnur óhreinindi.
Líkir við dísel-svindlið
James Dyson byggði einmitt upp
mikið viðskiptaveldi í kringum hug-
vitsamlega hannaða ryksugu sem
er pokalaus og heldur óskertum
sogkrafti þó hún fyllist af ryki.
Hefur fyrirtæki Dysons bent á að
evrópska prófið gefi ekki raunhæfa
mynd af frammistöðu ryksuga við
hefðbundna notkun, og að bæði
orkuþörf og soggeta pokaryksuga
versni fljótt ef pokinn er á sínum
stað og fyllist smám saman af ryki.
Athygli vekur að ryksugupróf
ESB er gjörólíkt prófi alþjóðlegu
raftækjastaðlastofnunarinnar í
Sviss, International Electrotecnhi-
cal Commission (IEC). Þar eru
ryksugur, rétt eins og þvottavélar
og uppþvottavélar, prófaðar eins
og þær eru notaðar: með föt í
trommlunni, diska í rekkunum og
bæði poka og ryk í ryksugunni.
Þá hefur Dyson haldið því fram,
að því er FT greinir frá, að sumir
framleiðendur svindli á evrópska
ryksuguprófinu með því að láta
ryksugur sínar beina minni orku til
mótorsins við þau skilyrði sem not-
uð eru við prófun, en auka svo
kraftinn og orkunotkunina þegar
skynjarar greina að ryksugupokinn
er tekinn að fyllast af óhreinindum.
Ef lesendum þykir þetta hljóma
kunnuglega þá hefur Dyson líkt
brellum keppinauta sinna við dísel-
vélasvindl þýskra bílaframleið-
enda.
Raftækjarisar með afskipti
Ástæðan fyrir því að próf ESB er
hannað eins og það er kemur les-
endum líklega ekki á óvart: Öflugir
þýskir raftækjaframleiðendur, sem
selja ryksugur með poka, beittu
fulltrúa Evrópusambandsins þrýst-
ingi þegar reglurnar voru samdar.
Hefur sigur Dysons verið vatn á
myllu Brexit-sinna eins og breska
þingmannsins Matt Ridley sem
skrifar um dómsúrskurðinn á vef
hugveitunnar IEA og segir málið
allt til marks um þann galla ESB
að eiga það til að slá skjaldborg um
hagsmuni stórfyrirtækja á kostnað
neytenda og nýsköpunar. „Útkom-
an er sú að fólk kaupir pokaryk-
sugu með einkunnina A, en þegar
heim er komið virkar hún eins og
ryksuga í G-flokki.“
„Málaferlin hafa verið löng,
truflandi og dýr,“ sagði í tilkynn-
ingu frá Dyson-samsteypunni á
fimmtudag. „Flest fyrirtæki hefðu
ekki getuna til að berjast gegn
reglum af þessum toga, og er
hræðilegt að yfirvöld hafi, eins
lengi og raun ber vitni, lagt blessun
sína yfir reglur sem eru bæði ólög-
legar og skerða samkeppni.“
Dyson hefur ESB
undir í ryksugumáli
Aðferðir við mælingar á sogkrafti og orkunotkun ryksuga
virðast hafa verið sniðnar að þörfum þýskra framleiðenda
Óhress James Dyson segir ekki nóg með að reglur ESB mismuni framleið-
endum heldur hafi sumir keppinautar hans svindlað á ryksuguprófum.
AFP
Kínverski netverslunarrisinn Ali-
baba seldi á sunnudag, degi ein-
hleypra, varning fyrir um 213,5
milljarða kínverskra júana, jafn-
virði um 3.750 milljarða króna.
Undanfarinn áratug hefur Ali-
baba haldið mikinn útsöludag 11.
nóvember og tileinkar daginn ein-
hleypu fólki. Er dagur einhleypra
nú orðinn stærsti netverslunar-
viðburður heims og slær meira að
segja við bandarísku útsöludög-
unum svörtum föstudegi og net-
mánudegi sem haldnir eru í kring-
um þakkagjörðarhátíðina.
Alibaba hélt mikla hátíð í tilefni
af útsölunni og bauð upp á sýningu
í Sjanghæ þar sem m.a. stigu á svið
María Carey, fjölleikafólk frá Cir-
que du Soleil og japönsk Beyonce-
eftirherma.
Salan var töluvert líflegri hjá Ali-
baba í ár en í fyrra og jókst um 27%
á milli ára. Hefur þó hægt á vext-
inum því árið á undan jókst salan
um 39%. ai@mbl.is
Alibaba slær aftur
met á degi einhleypra
Salan jókst hægar en undanfarin ár
AFP
Gróði Alibaba, sem Jack Ma stofn-
aði á sínum tíma, vex enn hratt.
12. nóvember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.65 122.23 121.94
Sterlingspund 158.24 159.0 158.62
Kanadadalur 92.12 92.66 92.39
Dönsk króna 18.485 18.593 18.539
Norsk króna 14.394 14.478 14.436
Sænsk króna 13.405 13.483 13.444
Svissn. franki 120.74 121.42 121.08
Japanskt jen 1.068 1.0742 1.0711
SDR 168.25 169.25 168.75
Evra 137.91 138.69 138.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.0841
Hrávöruverð
Gull 1223.45 ($/únsa)
Ál 1975.0 ($/tonn) LME
Hráolía 70.87 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Atvinna