Morgunblaðið - 12.11.2018, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2018 21
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Kraftur í KR kl. 10.30-
11.15, rúta fer frá Vesturgötu kl. 10.10 og Aflagranda kl. 10.20. Félags-
vist kl. 13. Útskurður kl. 13. Kapitólurnar kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Ganga
um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16.
Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið
fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt
á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 12.30. Vatns-
leikfimi kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Samprjón kl. 13.30-14.30. Bútasaums-
hópur kl. 13-16. Opið kaffihús kl. 14.30-15.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.10. Opin handverks-
stofa kl. 13. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10. Opin handverks-
stofa kl. 9-12. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-13.30. Handaband, skap-
andi vinnustofa með leiðbeinendum kl. 13-15.30. Söngstund við
píanóið kl. 13.30-14.15. Frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Verið velkom-
in á Vitatorg, Lindargötu 59, sími 411-9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30 / 8.15 / 15.15. Kvennaleik-
fimi Sjálandi kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ás-
garði kl. 11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl.
13. Saumanámskeið í Jónshúsi kl. 14.10. Smiðja Kirkjuhvoli opin kl.
13–16. Allir velkomnir. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með leið-
beinanda kl. 9-16. Leikfimi Maríu kl. 10-10.45. Leikfimi Helgu Ben kl.
11-11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 Jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30. Handavinna / brids kl.
13. Jóga kl. 17. Félagsvist kl. 20.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50. Við hringborðið kl.
8.50, boðið upp á kaffi. Frjáls tími í Listasmiðju kl. 9-12, byrjenda-
námskeið í línudansi kl. 10, hádegismatur kl. 11.30, myndlistarnám-
skeið hjá Margréti Zophoníasd. kl. 12.30-15.30. Handavinnuhornið kl.
13-15, félagsvist kl. 13.15. Eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir,
óháð aldri. Nánari upp. í s. 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9. Ganga frá Borgum og Grafar-
vogskirkju kl. 10, einnig inni í Egilshöll. Dans í Borgum kl. 11. Allir vel-
komnir. Prjónað til góðs kl. 13. í Borgum, allir velkomnir. Félagsvist kl.
13 í dag í Borgum. Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum. Kóræfing
Korpusystkina fellur niður í dag.
Seltjarnarnes Gler kl. 9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl.
10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga með Öldu ísalnum á
Skólabraut kl. 11. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sund-
lauginni kl. 18.40. Grill og skemmtikvöldið er nk. miðvikudag 14. nóv-
ember. (Ath. breyttur tími frá gula dagskrárblaðinu). Skráning og
uppl. hjá Kristínu í síma 8939800.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Helgistund kl. 10.10.
Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður.
Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu
frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Zumba Gold námskeið fyrir styttra komna/byrjendur
kl. 9.45. ZUMBA Gold framhald kl. 10.30. STERK OG LIÐUG leikfimi kl.
11.30. Tanya leiðir alla hópana. AÐ NÁ TÖKUM Á TÆKNINNI: tölvu-
námskeið dagana 21. og 28. nóv. 2018, innritun hafin feb@feb.is.
Sími 588-2111
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Sumarhús / Gesthús
Mjög vandað sumarhús / gesthús til
sölu, algjörlega viðhaldsfrítt, klætt
með lerki og gluggar eru áltré,
bræddur pappi á þaki. Upplýsíngar í
síma 8220023, tvt@simnet.is
Þjónusta
Snjómokstur og söltun
GÍH Vetrarþjónusta allan sólarhring-
inn. Vöktun í boði fyrir fyrirtæki og
húsfélög. Hafið samband í síma
7728040 eða á mokstur@gih.is
Ýmislegt
Sólbaðsstofa Súper sól
Enduropna Sólbaðsstofu Súper sól í
Hólmaseli 2,109 Rvk. Nýir sól- og
kollagen-bekkir beint frá Ítalíu.
Opnunartilboð: 7, 10, 11 mínútur,
aðeins fyrir 1200 kr. Allir velkomnir
frá kl. 10 til 22, sími 5870077.
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur,
fyrir veturinn
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
vík árið 1944. Að námi loknu
flutti hann til baka á æskuslóð-
irnar og tók fljótlega við versl-
unarrekstri foreldra sinna í
Vertshúsinu. Verslunin flutti
síðar í Aðalstræti 8 þar sem
hann rak ásamt konu sinni
Verslun Ara Jónssonar í 47 ár.
Ingólfur gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum á Patreks-
firði. Hann var í hreppsnefnd
Patrekshrepps í 8 ár, sat í
stjórn Eyrarsparisjóðs í 20 ár,
lengst af sem formaður stjórn-
ar. Hann var skipaður í Orku-
nefnd Vestfjarða sem lagði
grunninn að stofnun Orkubús
Vestfjarða. Ingólfur átti einnig
sæti í Sýslunefnd og Yfir-
skattanefnd Barðastrandar-
sýslu. Hann sat í skólanefnd og
sóknarnefnd og var einn af
stofnendum Lionsklúbbs Pat-
reksfjarðar.
Útför Ingólfs fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 12. nóv-
ember 2018, klukkan 13.
arisjóðs, stjórn Orkubús Vest-
fjarða og ótal öðrum nefndum og
ráðum. Hann var alla tíð virkur
og duglegur og voru viðfangsefn-
in hans ekki eingöngu bundin við
þorpið heldur náðu þau allt suður
frá Gilsfirði og norður í Arnar-
fjörð. Tími Ingólfs á Patreksfirði
var mikill uppgangstími í þorp-
inu og mikið lán fyrir samfélag
að hafa svona duglega og hæfi-
leikaríka einstaklinga í sínum
röðum. Það er nær ómögulegt að
segja frá öllum hans störfum í
stuttri minningargrein en þessu
sinnti hann öllu af samviskusemi
og dugnaði.
Fjölskyldan var Ingólfi mik-
ilvæg og hann var góður fjöl-
skyldufaðir, afi og langafi. Hann
bar mikla umhyggju fyrir sínu
fólki og alltaf var hægt að leita til
hans eftir ráðum eða stuðningi.
Ingólfur var barngóður og þægi-
legur í umgengni og alltaf var
hann áhugasamur um það sem
fjölskyldumeðlimir voru að fást
við.
Ingólfur var minnugur og ein-
staklega skemmtilegur sögumað-
ur. Ósjaldan sátum við saman
fjölskyldan og hlustuðum á hann
segja sögur frá Vertshúsinu,
æskuheimilinu, sögur af því þeg-
ar hann gerði út á litla trillu, sög-
ur af því þegar hann sem ung-
lingur aðstoðaði apótekara við að
blanda lyfin, sögur frá héraðs-
skólanum á Núpi, sögur úr Sam-
vinnuskólanum eða sögur af at-
burðum sem á daga hans höfðu
drifið á langri ævi. Sumar sög-
urnar sagði hann oft, sennilega
flestar og alltaf voru þær
skemmtilegar. Hann byrjaði
kannski á því að segja „þetta
verður nú ekki leikið eftir“, svo
kom hláturinn og oft þurfti hann
að stoppa á meðan hlegið var að
hinu og þessu og yfirleitt var það
hann sem hló mest. Í öllum þess-
um sögum var Ingólfur umtals-
góður og aldrei man ég til þess
að hann hallmælti nokkrum
manni og hann kunni þá list að
upphefja aðra og gera grín að
sjálfum sér.
Við fjölskyldan fórum í mörg
ferðalög með Ingólfi og Sjöfn um
Ísland og ógleymanleg eru ferða-
lögin þegar farið var um Vest-
firði, sérstaklega Barðastrandar-
sýslur. Stoppað var víða, skoðað,
gengið, sagðar sögur og síðast en
ekki síst borðað nesti sem Sjöfn
hafði listilega útbúið. Ingólfur
var þarna á heimavelli, þekkti
alla bæi og hverja þúfu. Við sam-
ferðafólkið nutum þessara ferða.
Ingólfur lagði upp í sitt síðasta
ferðalag á fallegum haustdegi
eftir langa og farsæla ævi. Ég
varðveiti góðar minningar um
góðan mann. Blessuð sé minning
Ingólfs Arasonar.
Guðlaugur V. Þórarinsson.
Fleiri minningargreinar
um Ingólf Arason bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
þessu yfir á mig og við höfum
ekki hætt að deila myndböndum
úr þessum heimi hvor á annan
síðan þá. Ég fór sjálfur út til
hans núna í enda júní og lærði
fallhlífarstökkið í Spa eins og
hann hafði gert árið áður. Egill
var kominn upp í 100 stökk og
var tilhlökkunin mikil að ná 200
því þar koma inn réttindi eins og
að mega taka upp stökkin á
myndband. Við vorum byrjaðir
að búa til lista yfir áfangastaði til
að stökkva á - Kalifornía, Spánn,
Dubai og Sviss voru þar meðal
annarra. En að taka stökkin upp
á myndband eða stökkva á flott-
um stöðum var ekki mesta til-
hlökkunin hjá mér heldur að fá
að stökkva með honum. Ég er
ekki kominn með leyfi til að
stökkva með öðrum þannig að
við fengum ekki að taka ferð
saman. En ef ég læt verða af því
að fara í fleiri stökk þá verður
Egill Daði alltaf með í anda.
Vigfús (Fúsi).
Elsku stóri bró. Verndar-
vængurinn. Það sem ég leit upp
til þín og vildi óska að ég gæti
verið eins skipulagður og áorkað
eins miklu og þú gerðir í því sem
þú tókst þér fyrir hendur.
Þú varst svo rólegur, yfirveg-
aður og sterkur. Sterki bróðir
minn. Mig langaði alltaf að vera
eins sterkur og þú. Ég var furðu
lostinn þegar ég sá þig dedda
meira en 200 kg með slitið kross-
band.
Það var alltaf stutt í jákvæðn-
ina hjá þér og þú sást alltaf góð-
ar hliðar. Hlutirnir voru „ekkert
mál“.
Við áttum sterkt bræðrasam-
band. Samskiptin okkar voru
rosalega góð, byggð á hreinskilni
og laus við óþarfa útskýringar.
Ég var samt sem áður litli bróðir
þinn og fékk öðru hverju að finna
fyrir því hlutverki, t.a.m. þegar
þú lést mig trúa því að ég gæti
breytt vindáttinni eins og veð-
urmaðurinn í MegaMan nin-
tendo-leiknum.
Þegar ég hafði hangið of lengi
aftan í þér þegar við vorum
krakkar, þá endaði gamanið með
nauðsynlegri gusu af Ajaxi í and-
litið á mér.
Nokkuð mörgum árum síðar
urðu aðferðirnar þróaðri. Tölvu-
kunnáttan nýttist vel þegar þú
komst fyrir trójuhesti í tölvunni
minni sem gerði þér kleift að
taka alla stjórn af mér, skrifa
„bumbumann“ á skjáinn, stjórna
músinni, opnað geisladrifið og
slökkva á vélinni.
Samskiptin minnkuðu því mið-
ur þegar þú fluttir til útlanda og
við hittumst eðlilega sjaldnar.
Það er því mikils virði fyrir mig í
dag að hafa heimsótt þig og Sif
til Brussel fyrir rúmu ári síðan.
Það var notalegt að hitta þig og
fá að halda til heima hjá ykkur.
Síðustu samskiptin sem ég átti
við þig lýsa því sem ég hef sagt
hér á undan vel. Ég var staddur
á Spáni í fjölskylduferð í október
sl. þegar Þórey þurfti að leggjast
inn á sjúkrahús þar. Þegar ég
sagði þér fréttirnar þá svaraðir
þú án frekari spurninga um mál-
ið og án þess að leggja fram
nokkrar aðrar vangaveltur: „Á
ég að koma?“ Verndarvængur-
inn. Í dag vildi ég að sjálfsögðu
að ég hefði sagt já við boðinu.
Kæri bróðir. Jólin verða skrít-
in í ár og framtíðarsýnin í huga
mér er brostin. Ég hafði alltaf
ímyndað mér okkur saman á elli-
heimilinu, tveir gamlir karlar í
hjólastól, Vigfús litli bró á
miðjum aldri, ýtandi okkur á
milli staða. Allt þetta minnir
mann harkalega á að styrkja
tengslin við sína nánustu, þau
vega svo miklu meira en tíminn
sem maður ver í þau gefur til
kynna.
Kæru vinir sem lesið þetta –
takið upp tólið, ræktið þið sam-
band við vini og ættingja. Lífið
er hverfult.
Elsku Egill. Börnin mín munu
því miður ekki fá að kynnast þér
betur og skapa með þér fleiri
minningar, en ég mun svo sann-
arlega segja þeim sögur af stóra,
sterka bróður mínum. Verndar-
vængnum.
Hvíl í friði. Þinn litli bró,
Andri.
Elsku ástin mín,
Orð eru fátækleg á svona
stundu. Ég gæfi allt fyrir að
þurfa ekki að kveðja minn besta
vin alltof snemma. Ekkert nístir
meira hjartað en að þú fáir ekki
að njóta lífsins þíns áfram.
Brosið þitt, einlægt og fallegt,
smá feiminn, það var þinn
sjarmi. Það var auðvelt að elska
þig og þann mann sem þú hafðir
að geyma. Þú varst mörgum góð-
um kostum gæddur. Þú varst
heilsteyptur, heiðarlegur og góð
manneskja. Þú vildir öllum vel
og hafðir samkennd með öðru
fólki. Þú varst alltaf þú sjálfur.
Þú varst ekki þannig gerður að
þurfa að sýnast eða reyna að
vera eitthvað annað en þú varst.
Þú varst bráðgáfaður og skein
það best í gegn í húmornum þín-
um. Þú varst orðheppinn og
spontant húmoristi, áreynslu-
laust. Þú hafðir kosti sem gerðu
þig að þeim afbragðslögfræðingi
sem þú varst orðinn. Þú varst
vinnusamur, vel lesinn, hár-
nákvæmur, hnitmiðaður, skipu-
lagður og strúktúreraður.
Við fórum í gegnum okkar há-
skólaár saman og þvílík gæfa
fyrir mig að eiga svo rólegan,
yndislegan, yfirvegaðan og hjálp-
saman lífsförunaut í gegnum
þann skóla, sem og skólann sem
lífið sjálft var síðustu tíu árin.
Tíminn fór ekki bara í að
mennta sig heldur líka í að njóta
lífsins. Við elskuðum að keyra
um og skoða heiminn saman og
höfum komið víða við. Ný borg,
nýtt land, möguleikarnir voru
endalausir. Þá nutum við góðs af
bestu jólamörkuðum í Evrópu
allt í kringum okkur og höfðum
það að markmiði að prófa nýjan
markað, helst hverja helgi. Þú
sagðir í gríni að þú værir ekki
mikið jólabarn, en þú værir mik-
ið jólamarkaðsbarn. Stundum
tókum við flugið og þá lengra og
verð ég ævinlega þakklát fyrir
ferðirnar okkar og þá sérstak-
lega þær sem þú tókst þig til og
skipulagðir fyrir okkur. Þá höf-
um við ferðast um Ísland með
fjölskyldum okkar og notið tíma í
sveitunum okkar sem okkur þyk-
ir svo vænt um, í Þingvallasveit-
inni og í Vaðnesi. Við áttum
dásamlega tíma saman sem aldr-
ei verða teknir frá okkur og lifa í
hjartanu.
Nýlega varstu farinn að
stunda fallhlífarstökk og naust
þess að stökkva á nýjum stöðum
um allan heim, hvað þá með litla
bróður þinn þér við hlið sem þú
smitaðir af bakteríunni. Þú elsk-
aðir samverustundirnar ykkar.
Brostið hjarta er hjarta sem
elskaði og var elskað. Sorgin er
yfirþyrmandi og óbærileg, en
efst í huga mér er þakklæti til
þín og fyrir þig. Þakklæti fyrir
að hafa fengið að elska þig og
vera elskuð af þér. Þakklæti fyr-
ir lífið sem við áttum saman,
hversdagsleikann, erfiðleikana
sem styrktu okkur og öll ævin-
týrin og hlátursköstin. Lífið var
fallegt, skemmtilegt, spennandi
og fyndið með þér. Við nutum
forréttinda að hafa fengið að
upplifa þessi ár sem við eigum að
baki með öllu fólkinu okkar og
hvort öðru.
Hvíldu í friði og sofðu rótt,
elsku fallegi vinurinn minn. Ég
ætla að fá að trúa því að þú, minn
besti vinur og sálufélagi, fylgir
mér í gegnum lífið og haldir
áfram að passa upp á stelpuna
þína eins og þú hefur alltaf gert.
Með virðingu, söknuði og ást.
Þín alltaf,
Sif.
Fleiri minningargreinar
um Egil Daða Ólafsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.