Morgunblaðið - 12.11.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2018
Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686
GLÆNÝJAR LÚÐUSNEIÐAR
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn
SÍLDIN FRÁ
DJÚPAVOGI ER KOMIN
KLAUSTUR-BLEIKJA
GLÆNÝ LÍNUÝSA
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Landgræðsla ríkisins hefur samið
við Þ.S. Verktaka ehf. á Egils-
stöðum um að gera varnargarð í
Jökulsá á Fjöllum við Skjálftavatn í
Kelduhverfi. Varnargarðurinn verð-
ur 430 metra langur og er tilgangur
hans að verja vesturbakka árinnar
fyrir landbroti. Verkinu skal að
fullu lokið 1. mars 2019.
Getur stofnað í hættu grónu
nytjalandi og ræktun
Landgræðslan hefur frá árinu
2000 byggt fimm varnargarða við
vesturbakkann og er þessi sá sjötti
í röðinni og líklega sá síðasti, sam-
kvæmt upplýsingum Sigurjóns Ein-
arssonar, verkefnastjóra hjá Land-
græðslunni.
Varnaraðgerðir Landgræðsl-
unnar hafa einkum beinst að því að
hindra að Jökulsá nái að streyma
inn í Skjálftavatnið. Jökulsáin hefur
verið að sækja í austurátt og brjóta
úr vesturbakkanum. Nái hún að
brjóta sér leið inn í vatnið stofnar
það í hættu grónu nytjalandi og
ræktun bæja vestan og sunnan
vatnsins, auk þess sem vegir, girð-
ingar og jafnvel önnur mannvirki
kynnu að vera í hættu, að sögn Sig-
urjóns.
Efnið í garðinn, síulagið, verður
tekið úr farvegi árinnar nærri legu
garðsins. Grjót hefur verið sprengt
í nágrenninu og afgangsgrjót frá
Vegagerðinni verður einnig nýtt í
garðinn.
Þ.S. Verktakar ehf., Egilsstöðum
buðust til að vinna hinn nýja varn-
argarð fyrir 30,1 milljón króna.
Fyrirtækið Ístrukkur ehf., Kópa-
skeri, bauð 39,2 miljónir. Áætlaður
verktakakostnaður var 24,7 millj-
ónir. Vegagerðin annaðist útboðið
fyrir hönd Landgræðslunnar.
Myndaðist við landsig í skjálft-
unum miklu 1975-76
Fram kemur á vef Náttúrustofu
Norðausturlands að Skjálftavatn í
Kelduhverfi hafi myndast við land-
sig í jarðskjálftunum miklu vetur-
inn 1975-1976. Þar sem vatnið ligg-
ur nú var áður misvel gróið
sandlendi og var meginhluti þess
innan sandgræðslugirðingar.
Skjálftavatn er um 4 m² að flat-
armáli en grunnt. Í það kemur vatn
úr uppsprettum sem renna í lækj-
um í vatnið og úr því rennur Litlaá
sem er gjöful veiðiá.
Því var spáð að Skjálftavatn gæti
orðið frjósamt og gjöfult veiðivatn,
enda berst í það mikið af næring-
arefnum. Þessi spá gékk eftir og
þar er góð silungsveiði. Fjöldi
vatnafugla verpir við vatnið og gæð-
ir það lífi.
Varna því að Jökulsá renni í Skjálftavatn
Landgræðslan
hefur byggt 5
varnargarða
frá árinu 2000
Varnargarðar við Skjálftavatn
Húsavík Skjálftavatn
Jökulsá á
fjöllum
Öxar-
fjörður
Li
tla
á
KELDUHVERFI
Núverandi varnargarðar
Nýir varnargarðar
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Kópasker
Ljósmynd/Landgræðslan
Varnargarðar Jökulsá á Fjöllum hefur verið að sækja í austurátt og brjóta
úr vesturbakkanum. Á að hindra að hún nái að streyma inn í Skjálftavatnið.