Morgunblaðið - 07.12.2018, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 7. D E S E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 288. tölublað 106. árgangur
17 dagartil jóla
Jóladagatalið er á
jolamjolk.is
GÖTUSTRÁKUR
OG HÁLFGILDINGS
ÚTIGANGSMAÐUR
JÓRUNN VAR
STÓRMERKI-
LEG KONA
FRAMLAG LIONS
SKIPTIR MIKLU
UM VÍÐA VERÖLD
ERLA DÓRA OG EVA ÞYRI 40 GUÐRÚN BJÖRT 12SAFNRIT ÓSKARS ÁRNA 40
Veiðistjórnun endurskoðuð
Íslenska ríkið dæmt skaðabótaskylt vegna þess að makrílkvóta var ekki ein-
göngu úthlutað eftir veiðireynslu skipa Skaðabótakröfur geta numið milljörðum
Hagnaðarmissir útgerðanna hef-
ur verið metinn á rúma 2,6 millj-
arða króna fyrir þessi fjögur ár.
Hæstiréttur telur að við úthlutun
aflaheimilda hafi verið skylt að
ákvarða aflahlutdeild á grundvelli
veiðireynslu. Þáverandi sjávarút-
vegsráðherra tók hluta kvótans og
úthlutaði til frystiskipa og annarra
skipa. Útgerðir sem ekki höfðu afl-
að veiðireynslunnar fengu því hlut-
deild. Útgerðirnar tvær eru Ísfélag
Vestmannaeyja og Huginn. Þeim
voru ekki dæmdar skaðabætur og
þurfa því að krefja ríkið um þær
eða fara í skaðabótamál. Vinnslu-
stöðin í Vestmannaeyjum og Eskja
á Eskifirði höfðuðu einnig samskon-
ar mál en samkomulag var um að
láta þau bíða niðurstöðu hinna mál-
anna, að sögn Sigurgeirs Brynjars
Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra
Vinnslustöðvarinnar. Hann segir
ljóst að sama niðurstaða verði í
þeim.
Stefán A. Svensson, lögmaður út-
gerðanna, segir að sér sýnist dóm-
arnir hafa fordæmisáhrif vegna
seinni tíma úthlutana, það er að
segja eftir það tímabil sem dóm-
arnir taka til.
Helgi Bjarnason
Þór Steinarsson
Kristján Þór Júlíusson sjávarút-
vegsráðherra segir að endurskoða
þurfi veiðistjórnun makrílveiða í
kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar sem
dæmt hefur íslenska ríkið skaða-
bótaskylt gagnvart tveimur útgerð-
arfélögum vegna úthlutunar á mak-
rílkvóta á árunum 2011 til 2014. M Íslenska ríkið ... »15
Jólalegt er um að litast á Ingólfstorgi á aðvent-
unni. Þar er ljósum skreytt skautasvell og básar
í kring þar sem gestir geta fengið sér hressingu.
Fjöldi barna var þar á ferð síðdegis í gær. Ekk-
ert kostar inn en áhugasamir gestir geta tekið
skauta á leigu þannig að enginn fari fýluferð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Börnin nýta sér jólasvellið á Ingólfstorgi
Fulltrúar Miðflokksins í sveitar-
stjórnum standa almennt við bakið á
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, for-
manni flokksins, þrátt fyrir þátttöku
hans í umræðunum á veitingastaðn-
um Klaustri. Fáir vilja tjá sig efnis-
lega um málið í samtölum við Morg-
unblaðið en enginn sem í náðist telur
málið hafa áhrif á stöðu formannsins.
Viðar Freyr Guðmundsson, for-
maður Miðflokksfélags Reykjavíkur,
gerir greinarmun á þátttöku Sig-
mundar Davíðs og þeirra tveggja
þingmanna sem hafa tekið sér leyfi
frá þingstörfum, sérstaklega um per-
sónu Lilju Daggar Alfreðsdóttur,
menntamálaráðherra. Hann vill að
Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór
Ólason segi af sér þingmennsku
vegna málsins.
Óeining er í stjórnarandstöðunni
vegna málsins og hafa nokkrir þing-
menn lýst því yfir að þeir muni ekki
vinna með Klausturþingmönnum og
muni ganga út úr þingsal þegar þeir
taka til máls. Ólafur Þ. Harðarson,
prófessor í stjórnmálafræði við HÍ,
segir að eina dæmið sem hann kunni
um slíka frystingu sé þegar þingmenn
kommúnista voru einangraðir eftir að
þeir neituðu að fordæma innrás
Rússa í Finnland á árinu 1939.
»4 & 6
Standa við
bakið á
Sigmundi
80 ár síðan þing-
menn voru „frystir“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stuðningur Miðflokksfólk á kosn-
ingavöku í Reykjavík sl. vor.
Ekki liggur ljóst fyrir hvað verður
um þær fjórar breiðþotur af gerð-
inni Airbus a330-900neo sem WOW
air samdi um að taka í flota sinn á
síðasta ári. Leigusalinn er sama fyr-
irtæki og WOW air upplýsti að það
hefði skilað tveimur breiðþotum í
liðinni viku. Upphaflega var stefnt
að því að fyrstu tvær þoturnar yrðu
teknar í gagnið í ár en nú virðist
ljóst að ekki verði af afhendingunni í
ár. Þá fást ekki skýr svör frá félag-
inu um hvort og þá hvenær vélarnar
komist í notkun. Það eina sem félag-
ið gefur upp er að endurskoðun
standi nú yfir á flugvélaflota þess og
að meðan á þeirri vinnu standi verði
frekari upplýsingar ekki veittar.
Nokkra athygli hefur vakið að
fyrstu tvær vélarnar, sem bera áttu
einkennisstafina TF-BIG og TF-
MOG hafa nú þegar verið málaðar í
hinum auðþekkjanlega einkennislit
félagsins, fjólubláum. Nýlegar
myndir sem náðust af fyrri vélinni,
sem máluð var í apríl sl., sýna þó að
málningin var skafin að nýju af
skrokki vélarinnar. Í október veittu
forsvarsmenn WOW air þær skýr-
ingar á útliti vélarinnar að mistök
hefðu verið gerð í málningarvinn-
unni hjá Airbus. Félagið vill hins
vegar ekki svara því hvort vélin hafi
verið máluð að nýju. ses@mbl.is »18
Ljósmynd/Lars Hentscel
Vél Mynd Lars Hentschel af TF-BIG á flugvellinum í Toulouse. Í október
veitti WOW air þá skýringu að mistök hefðu verið gerð í málningarvinnunni.
Óljóst hvort verður af afhendingu véla
Samningur gerður við sama aðila og
nú hefur fengið tvær vélar WOW í fangið