Morgunblaðið - 07.12.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
IC
E
8
81
5
4
12
/1
8
GEFÐU FRÍ UM JÓLIN
með gjafabréfi Icelandair
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum ekki á móti meðferðar-
úrræðinu sem slíku heldur því sem
fylgir í kjölfarið. Það er ýmislegt bú-
ið að ganga á hér í hverfinu og þess
vegna eru íbúar hræddir,“ segir
Arna Hrönn Aradóttir, stjórnar-
maður í Íbúasamtökum Norðlinga-
holts.
Á föstudaginn síðasta var sett lög-
bann á starfsemi nýs stuðningsheim-
ilis fyrir börn á vegum Barnavernd-
arstofu að Þingvaði 35. Það voru
íbúar í götunni sem fóru fram á lög-
bannið en nutu fulltingis íbúa-
samtakanna og umboðsmanns
borgarbúa, að sögn Arndísar.
„Við fengum úrskurð frá skipu-
lagsfulltrúa borgarinnar um að þessi
starfsemi stenst ekki deiliskipulag.
Hún hefði þurft að fara í kynningu
fyrir íbúum og umsagnarferli,“ segir
Arndís. Hún segir að íbúar í götunni
og hverfinu hafi óttast ónæði sem
kynni að hljótast af stuðningsheim-
ilinu.
„Þetta var bara illa unnið af
Barnaverndarstofu. Yfirmenn þar
hefðu átt að vinna meira með íbúum
í götunni. Þegar fólk fær mismun-
andi svör hjá þremur yfirmönnum
um það hvernig starfsemi þetta á að
vera þá verður það hrætt um hvern-
ig úrræði þetta verði.“
Halldór Hauksson, sviðsstjóri hjá
Barnaverndarstofu, segir í samtali
við Morgunblaðið að lögbannið sé
fyrst og fremst vonbrigði fyrir þau
börn sem áttu að njóta góðs af þessu
úrræði.
„Okkur þótti þetta mjög leiðin-
legt. Við teljum að svona starfsemi
fyrir ungmenni sem hafa náð ár-
angri og vilja aðlagast samfélaginu
eigi að geta átt heima hvar sem er og
erum raunar sannfærð um að þannig
verði það fljótlega. Ef fólk óttast
svona í nágrenni sínu þá er það
byggt á vanþekkingu á starfsem-
inni.“
Í kynningu fyrir íbúafund sem
haldinn var í sumar kom fram að
stuðningsheimilið væri fyrir börn
sem ættu ekki afturkvæmt heim og
þyrftu stuðning og aðlögun að sam-
félaginu eftir að hafa lokið meðferð á
vegum Barnaverndarstofu. Skilyrði
fyrir búsetu á heimilinu væri að vera
án vímuefna, stunda skóla eða vinnu
og fara eftir reglum heimilisins.
„Mikið verður lagt upp úr öryggi og
vernd og verða ávallt 2 til 3 starfs-
menn á vakt m.a. í þeim tilgangi að
gera nærumhverfið öruggara,“ sagði
í kynningunni.
Halldór segir að það starfsfólk
sem ráðið hafði verið á stuðnings-
heimilið hafi verið í þjálfun og af-
leysingum á Stuðlum vegna tafa á
opnun þess. Því bjóðist að starfa þar
áfram svo lögbannið kemur ekki nið-
ur á starfsfólkinu. Hann segir að
Barnaverndarstofa muni nú leita að
öðru heppilegu húsnæði. „Við gæt-
um látið reyna á réttmæti þessa lög-
banns en það tekur marga mánuði
og þar sem eigandi hússins hefur
ákveðið að selja það á næstunni þá
eru ekki forsendur til að láta reyna á
það.“
Íbúar í Norðlingaholti hafa lýst
áhyggjum af þessari starfsemi. Ótt-
ist þið ekki að það sama verði uppi á
teningnum annars staðar?
„Við munum láta á það reyna, það
er það eina sem við getum gert. Það
eru mörg fordæmi fyrir svona
rekstri í hverfum borgarinnar. Hvað
varðar ótta íbúa við að þarna sé ungt
fólk í neyslu er rétt að ítreka að ef
fólk er í neyslu þá fer það á meðferð-
arheimili. Ef það hefur lokið með-
ferð og er búið að ná stöðugleika þá
fer það á stuðningsheimili eins og
þetta. Þarna á ekki að vera fólk í
neyslu. Þarna er verið að búa til nýj-
an hlekk í þjónustukerfinu þar sem
ungmenni gætu búið fram til 20 ára
aldurs. Við munum bjóða þeim
krökkum sem þarna áttu að fara inn
allan annan stuðning meðan þau
bíða eftir þessu úrræði. Ef þau kjósa
að bíða eftir því.“
Fengu lögbann á stuðningsheimili
Íbúar í Norðlingaholti komu í veg fyrir að opnað yrði stuðningsheimili fyrir ungt fólk sem lokið
hefur meðferð Starfsemin stenst ekki deiliskipulag Vonbrigði, segir Barnaverndarstofa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þingvað 35 Ekkert verður af því að þarna verði opnað stuðningsheimili.
Íbúðarhús við Vesturgötu í Reykja-
vík er illa farið eða jafnvel ónýtt eftir
að eldur kom upp í því síðdegis í gær.
Ekki urðu slys á fólki en einn var
fluttur á slysadeild í öryggisskyni
vegna gruns um reykeitrun, sam-
kvæmt upplýsingum slökkviliðsins á
höfuðborgarsvæðinu.
Tilkynnt var um eld í húsinu sem
er lágreist bakhús við stærra íbúðar-
hús við Vesturgötu, á fimmta tím-
anum í gærdag. Aðkoman var þannig
að þeir slökkviliðsmenn sem fyrstir
komu á vettvang óskuðu eftir því að
slökkviliðsmenn frá öllum stöðvum
liðsins yrðu sendir þeim til aðstoðar.
Upptök eldsins rannsökuð
Húsið var rýmt og einnig nær-
liggjandi hús, til öryggis. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn en áfram
þurfti að slökkva í glæðum og voru
slökkviliðsmenn við störf á staðnum
fram á kvöld.
Í gærkvöldi var ekki vitað um upp-
tök eldsins. Lögreglan tók við stjórn
vettvangs og vinnur að rannsókn
málsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íbúðarhús mikið skemmt
Eldur kom upp í bakhúsi við Vesturgötu Ekki urðu nein slys á fólki
Bruni Bakhúsið við Vesturgötu er mikið skemmt eftir að eldur kom upp í því síðdegis í gær.
Evrópska rannsóknarverkefnið Sound of Vision sem vís-
indamenn Háskóla Íslands hafa haft forystu um hlaut
fyrstu verðlaun í flokknum „Tækni fyrir samfélag“ í úr-
slitum nýsköpunarverðlauna framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins 2018. Rúnar Unnþórsson, prófessor við
iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild
Háskóla Íslands tók við verðlaununum í Vín í gær.
Unnið hefur verið að Sound of Vision-verkefninu í þrjú
ár en á árinu 2015 hlaut það alls fjögurra milljóna evra
styrk úr rannsóknaráætlun ESB, Horizon 2020.
Markmið þess er að þróa hátæknibúnað til þess að
hjálpa blindum og sjónskertum að skynja umhverfi sitt.
Meðal búnaðar sem þróaður hefur verið er skynbelti sem
sett er utan um mitti notandans þar sem það nemur upp-
lýsingar úr umhverfinu og miðlar þeim til notanda fyrir
tilstilli lítilla mótora sem titra, hver með sínu lagi. Beltið
nýtist einnig þeim sem einhverra hluta vegna geta ekki
notað hefðbundin skynfæri tímabundið. Það getur átt við
starfsfólk í reykköfun eða öryggisgæslu í hávaða, svo
dæmi séu nefnd. Búnaðurinn hefur verið þróaður í góðu
samstarfi við blint og sjónskert fólk hér á landi.
Mörg þúsund verkefni voru rýnd í nýsköpunarkeppn-
inni. Sérfræðingar völdu Sound of Vision í 1. sæti flokks
verkefna sem hafa góð áhrif á samfélög og líf fólks.
Góð áhrif á samfélög og fólk
Vísindamenn HÍ fá fyrstu
verðlaun í keppni ESB
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Viðurkenning Rúnar Unnþórsson prófessor fer fyrir
hópi vísindamanna sem vinna að rannsókninni.
Lögmaður Péturs Óskarssonar,
fyrrverandi varafulltrúa Bjartrar
framtíðar í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðarbæjar, hefur sent bænum
kröfu um greiðslu skaðabóta vegna
þess sem hann telur ólögmæta
brottvikningu hans úr nefndum
bæjarins í apríl sl., áður en kjör-
tímabilinu lauk.
Eftir deilur í röðum Bjartrar
framtíðar bar Guðlaug Kristjáns-
dóttir, oddviti BF og forseti bæjar-
stjórnar, fram tillögu um að skipta
um fulltrúa framboðsins í nokkrum
nefndum. Pétur var til að mynda
settur út úr skipulags- og bygging-
aráði og úr stóli varamanns í hafn-
arstjórn. Var það samþykkt af
meirihluta bæjarfulltrúa.
Lögmaðurinn telur að staðið hafi
verið að ákvörðuninni með ólög-
mætum hætti og vísar meðal ann-
ars til álits sveitarstjórnarráðu-
neytisins þar um og að ekki hafi
verið málefnalegar ástæður fyrir
brottvikningunni eins og krafist sé.
Krefst hann fyrir hönd Péturs
nefndarlauna út kjörtímabilið og
kostnaðar, alls kr. 636 þúsund
króna.
Brottvikinn fulltrúi
BF krefst launa
út kjörtímabilið