Morgunblaðið - 07.12.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018
FjölmiðlarýnirViðskiptablaðs-
ins, Andrés Magnús-
son, gerir að umfjöll-
unarefni viðbrögð
Rúv. við því að Fjöl-
miðlanefnd sektaði
þennan „fjölmiðil í al-
mannaþágu“ fyrir
lögbrot.
Andrés segir: „ Íliðinni viku
sendi Ríkisútvarpið
frá sér fréttatilkynn-
ingu um úrskurð
Fjölmiðlanefndar,
áður en úrskurðurinn hafði verið birt-
ur. Af fréttatilkynningunni að dæma
var RÚV í toppmálum, bara með eina
pínulitla milljón króna í sekt, í engu
tekið undir gagnrýni á stofnunina og
haft eftir Magnúsi Geir Þórðarsyni út-
varpsstjóra að hann væri mjög sáttur!
Í tilkynningu Fjölmiðlanefndarkvað hins vegar við annan tón, að
úrskurður hefði fallið um að RÚV
hefði brotið reglur um kostun í að-
draganda heimsmeistarakeppni í fót-
bolta og jafnframt brotið lög með
ófullnægjandi birtingu á gjaldskrá
fyrir auglýsingar og kostun vegna
HM.
Það gengur ekki að Ríkisútvarpiðsé að senda frá sér tilkynningar
til fjölmiðla, beinlínis í þeim tilgangi
að afvegaleiða almenning. Það er
gróf misnotkun á því trausti sem fjöl-
miðillinn nýtur.“
Ríkisútvarpið er með slæma sam-visku eftir að hafa hegðað sér
eins og fíll í postulínsbúð á auglýs-
ingamarkaði og brotið lög að auki.
Það réttlætir þó ekki að ríkis-stofnun reyni að afvegaleiða al-
menning. Það er ekki gert „í al-
mannaþágu“. En í þágu hverra?
Andrés
Magnússon
Í þágu hverra er
Ríkisútvarpið?
STAKSTEINAR
Magnús Geir
Þórðarson
WOW air flaug sitt fyrsta flug til
Nýju-Delí í gær. Flogið er þangað
þrisvar í viku. Þetta er í fyrsta skipti
sem Íslendingum býðst beint áætl-
unarflug til Indlands og er jafnframt
lengsta áætlunarflug íslenskrar
flugsögu, segir í tilkynningu WOW
air.
Með um borð voru m.a. Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráðherra og
T. Armstrong Changsan, sendiherra
Indlands á Íslandi, ásamt viðskipta-
sendinefnd og fleiri gestum. Skúli
Mogensen, forstjóri WOW air, fór
ekki með til Indlands vegna samn-
ingaviðræðna við Indigo Partners.
Hann klippti hins vegar á borða í
Leifsstöð í gærmorgun, ásamt
sendiherra Indlands og Birni Óla
Haukssyni, forstjóra Isavia.
Haft er eftir Skúla að með því að
tengja Indland við leiðakerfi WOW
air til N-Ameríku muni staða Ís-
lands sem tengistöðvar styrkjast.
WOW til Indlands
Fyrsta ferð til Nýju-Delí farin í gær
Ljósmynd/WOW air
Indland Skúli Mogensen ásamt áhöfn og sendiherra Indlands á Íslandi.
Samninganefnd Samtaka fyrirtækja
í velferðarþjónustu (SFV) og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga um
rammasamning fyrir þjónustu
hjúkrunarheimila lýsir miklum von-
brigðum með þá ákvörðun stjórn-
valda og meirihluta fjárlaganefndar
að halda fast við boðaða skerðingu á
rekstrargrunni hjúkrunarheimila.
Segja þau Sjúkratryggingar Ís-
lands (SÍ) hafa nú staðfest að sú „við-
bót“ til hjúkrunarheimila, sem boðuð
var í áliti meirihluta fjárlaganefndar
við 2. umræðu fjárlaga, sé í raun
engin viðbót þegar allt komi til alls.
Um sé að ræða fjármuni til að mæta
samningsbundinni skyldu ríkisins
samkvæmt rammasamningi SÍ þess
efnis að greiðslur til hjúkrunarheim-
ila taki mið af aukinni hjúkrunar-
þyngd heimilismanna skv. svonefnd-
um RUG-stuðlum. Um þetta atriði
hafi verið samið við gerð ramma-
samnings hjúkrunarheimila 2016.
„Svo virðist sem gleymst hafi að
gera ráð fyrir þessari skuldbindingu
ríkisins í fjárlagafrumvarpinu. Á það
benti SFV í umsögn sinni við frum-
varpið og var leiðrétting gerð í
breytingartillögum meirihluta fjár-
laganefndar sem lagðar voru fram
við aðra umræðu fjárlaga. Eftir
stendur að ekki hefur verið komið til
móts við þá skerðingu sem varð á
rekstrarfé hjúkrunarheimila árið
2018,“ segir í yfirlýsingu SFV og
sveitarfélaganna.
Telja þessir aðilar að áframhald-
andi niðurskurður sé fram undan á
næsta ári. Er miklum áhyggjum lýst
af „áhugaleysi stjórnvalda á því að
bæta fjármögnun þjónustu hjúkrun-
arheimilanna og, að því er virðist,
rekstrarumhverfi hjúkrunarheimila
almennt“.
Óskað hefur verið eftir fundi með
heilbrigðisráðherra til að ræða „þá
alvarlegu stöðu sem upp er komin“.
Hjúkrunarheimilin ósátt við skerð-
ingar á rekstrargrunni heimilanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aldraðir Grund á aðild að SFV.
Boðuð viðbót
„engin viðbót“
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/