Morgunblaðið - 07.12.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018
Vegnastarfsmannafundareru
allar starfsstöðvar ríkisskattstjóra
lokaðar ídag
föstudaginn7.desember
Viðskiptavinumer bent á að
gagnlegar upplýsingar er að finna á rsk.is
Til viðskiptavina
ríkisskattstjóra
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Fjármála- og efnahagsráðherra fer
fram á 56,6 milljarða hækkun fjár-
heimilda ríkisins á yfirstandandi ári í
frumvarpi til fjáraukalaga sem lagt
var fram á Alþingi í gær. Meginhluti
fjárhæðarinnar, um 48 milljarðar
króna, er í greinargerð frumvarpsins
skýrður sem „tæknileg útgjaldamál
og framsetningarbreytingar“ sem
stafar af breyttri reikningsskilaað-
ferð. Er annars vegar um að ræða
breytingar á uppgjöri á lífeyrisskuld-
bindingum (31 milljarður) og hins
vegar breytta framsetningu vegna
afskrifta skattkrafna (18,2 milljarð-
ar). Að þessu undanskildu nemur
hækkunin 8,6 millljörðum vegna
nokkurra útgjaldamála ráðuneyta.
Sú fjárhæð nemur 1% fjárlaga þessa
árs. Innifalin í fjárhæðinni er 3,2
milljarða hækkun vegna yfirtöku á
lífeyrisskuldbindingum og sé hún
undanskilin nemur frávikið í hefð-
bundnum rekstri ríkissjóðs 0,7%, að
því er segir í greinargerðinni.
Lögum samkvæmt eru í frumvarpi
til fjáraukalaga aðeins gerðar tillögur
um breytingar á fjárheimildum til að
mæta útgjöldum ríkissjóðs sem voru
ófyrirséð við afgreiðslu fjárlaga og
teljast orðin brýn eða óhjákvæmileg.
Mest vegna fæðingarorlofs
Hækkanir vegna kostnaðar ráðu-
neyta eru mestar vegna endurmats á
útgjöldum Fæðingarorlofssjóðs, 985
milljónir kr. Aukningin skýrist fyrst
og fremst af aukinni þátttöku for-
eldra og auknum kostnaði á hvern
greiddan dag í fæðingarorlofi, m.a.
vegna launabreytinga og hækkunar á
hámarksgreiðslum. Þá er gert ráð
fyrir að útgjöld verði aukin um 784
m.kr. til að efna svokallað kirkju-
jarðasamkomulag milli ríkis og
kirkju. Aukin útgjöld til samgöngu-
mála nema 569 m.kr. Annars vegar
400 m.kr. vegna aukins kostnaðar í ár
af snjómoksttri og hins vegar 169
m.kr. vegna seinkunar á afhendingu
Vestmannaeyjaferju og viðgerðar á
Grímseyjarferju. Málefni tengd hæl-
isleitendum kalla á 500 m.kr. hækk-
un. þar sem umsóknum um alþjóð-
lega vernd hefur fjölgað. Þá þarf að
hækka framlög til rammaáætlana
ESB um menntun, rannsóknir og
tækniþróun um 491 m.kr. Stafar það
af hækkun á greiðslustuðli Íslands og
auknu umfangi verkefna og gengis-
þróunar.
Stóraukning sjúkraþjálfunar
Útgjöld sjúkratrygginga aukast
um 469 m.kr. vegna aukinnar eftir-
spurnar eftir sjúkraþjálfun í kjölfar
nýs greiðsluþátttökukerfis. Framlög
vegna vinnumarkaðar og atvinnu-
leysis hækka um 480 m.kr.. Er um að
ræða 300 m.kr. aukin framlög til At-
vinnuleysistryggingasjóðs vegna
endurmats á útgjöldum ársins og 180
m.kr. til Ábyrgðarsjóðs launa vegna
aukningar á gjaldþrotum fyrirtækja
á árinu.
Ýmsar aðrar útgjaldaskuldbind-
ingar nema samtals 1.080 m.kr. Þar
af má nefna 83 m.kr. til utanríkis-
ráðuneytisins. Af þeirri fjárhæð eru
30 m.kr. vegna þátttöku Íslands í
starfi mannréttindaráðs Sameinuðu
þjóðanna og 45 m.kr. vegna undir-
búnings og uppsetningar á áritunar-
stöðum fyrir vegabréfsáritanir og
þjónustu tengda þeim í Nýju Delhí á
Indlandi og í Washington. Þá eru 8,3
m. kr. vgna vinnu við skýrslu um
kosti og galla aðildar Íslands að
EES.
Til Ríkisútvarpsins fara 222 m.kr.
Um er að ræða leiðréttingu á lög-
bundnu framlagi. Til Þjóðleikhússins
fara 25 m.kr. vegna nýlegra kjara-
samninga. Til stjórnsýslu samgöngu-
ráðuneytisins fara 68,6 m.kr. Þar af
má nefna að 25,8 m.kr. eru til að
mæta kostnaði vegna ráðgjafar um
flugvallakosti á suðvesturhorni
landsins og 20 m.kr. vegna undirbún-
ings alþjóðlegrar stórskipahafnar í
Finnafirði.
Nær 60 milljarða fjáraukalög
Þar af eru 48 milljarðar vegna tæknilegra útgjaldamála og breyttrar framsetningar reikningsskila
Útgjöld Fæðingarorlofssjóðs kalla á nær milljarð í aukið framlag 500 milljónir vegna hælisleitenda
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Útgjöld Kostnaður vegna sjúkra-
þjálfunar hefur stóraukist.
Morgunblaðið/Hari
Alþingi Frumvarp til fjáraukalaga er borið fram til að mæta ófyrirséðum útgjöldum ríkissjóðs á þessu ári.
Í frumvarpi til fjáraukalaga eru fjögur ný heimilda-
ákvæði. Náttúruminjasafn Íslands fær heimild til að
semja við Perlu norðursins ehf. um afnot af sýningar-
húsnæði fyrir safnið í Perlunni í Reykjavík. Að ríkis-
sjóður megi kaupa fasteignina Jónstótt í Mosfellsbæ
vegna uppbyggingar Laxnessseturs. Að semja megi um
kaup á réttindum á íslenskri orðabók og eftir atvikum
öðrum sambærilegum orðabókum og fela Stofnun Árna
Magnússonar að miðla þeim rafrænt í opnum aðgangi í
því skyni að efla íslenska tungu. Loks að nýta svigrúm
sem kann að skapast vegna óreglulegra tekna ríkissjóðs
til að greiða inn á skuldbindingar vegna B-deildar Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins.
Fasteign fyrir Laxnesssetur
FJÖGUR NÝ HEIMILDAÁKVÆÐI
Halldór
Laxness
Forsvarsmenn vefsíðunnar Tekj-
ur.is hafa eytt gagnagrunni síð-
unnar. Persónuvernd hefur fengið
staðfestingu á því frá lögmanni
hennar. Forsvarsmennirnir höfðu
frest þar til í fyrradag til að eyða
gagnagrunninum og þeim upplýs-
ingum sem þeir kynnu að hafa.
Samkvæmt upplýsingum frá Per-
sónuvernd hefur ekki verið tekin
ákvörðun um hvort sekta eigi fyrir-
tækið Viskubrunn ehf. fyrir að gera
gagnagrunn með upplýsingum úr
skattskrám fyrir árið 2016 aðgengi-
legan á Tekjur.is.
Persónuvernd hóf athugun að
eigin frumkvæði eftir að vefsíðan
var opnuð 12.
október þar sem
veittur var að-
gangur gegn
gjaldi að upplýs-
ingum um tekjur
allra einstakl-
inga á árinu 2016
samkvæmt gögn-
um ríkisskatt-
stjóra. Stjórn
Persónuverndar
kvað í framhaldinu upp úrskurð um
að forráðamenn vefjarins hefðu
ekki haft heimild til að birta upp-
lýsingarnar og var þess krafist að
síðunni yrði lokað.
Gagnagrunni vefsíð-
unnar Tekjur.is var eytt
Helga
Þórisdóttir