Morgunblaðið - 07.12.2018, Side 12

Morgunblaðið - 07.12.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Lionsstarf í heiminumstendur á traustum fótumog hreyfingin er ein fárrasjálfboðaliðasamtaka í heiminum þar sem þátttakendum fjölgar. Ég hef á síðustu misserum farið víða um heim og kynnst því hvað starf okkar skiptir miklu máli. Í sumum löndum til dæmis í Afríku, þar sem innviðir og velferðarkerfi er tæpast til hefur framlag Lions skipt sköpum,“ segir Guðrún Björt Yngvadóttir sem í júlí sl. tók við embætti alþjóðaforseta Lions. Lionshreyfingin starfar nú í alls 210 þjóðlöndum og á undan- förnum árum, fyrst sem varaforseti, hef- ur Guðrún komið til margra þeirra. Slíkt er raunar skylda heimsforseta; það er að kynna sér Lions- starfið í hverju landi og funda með for- ystumönnum þjóða. Alls eru Lions- klúbbar í heiminum í dag 46 þúsund og félagsmenn um 1,4 milljónir. Á frímerki í Sri Lanka Í síðustu viku var Guðrún Björt stödd hér heima í stuttri heimsókn, hvar hún fundaði með forystusveit Lionsfólks og það svo sameiginlega með Guðna Th. Jó- hannessyni, forseta Íslands. Síðast- liðinn mánudag var heimsforsetinn svo kominn til Sri Lanka og hitti þar forseta landsins, Maithipala Sir- isena, og veitti viðtöku fyrsta- dagsfrímerki þar sem hún sjálf er myndefnið. Þetta gerir póststjórnin í landinu til þess að vekja athygli á starfi Lions, auk heldur sem kjör Guðrúnar markar tímamót að því leyti að í aldarlangri sögu samtak- anna er hún heims- forseti fyrst kvenna. „Þegar ég tók við forsetaembættinu sagðist ég mundu næsta árið heimsækja 80 lönd. Þegar hef ég farið til allra heims- álfa og til dæmis farið víða um Afríku og Asíu. Ferðirnar til Indlands eru til dæmis orðnar fjórar,“ segir Guðrún sem nú í haust var í Strasbourg í Frakklandi. Þar átti hún fundi með ýmsum ráðamönnum á vettvangi Evrópu- ráðsins, sem hefur aðsetur þar í borg. Megintilgangur heimsóknar- innar til Strassborgar var þó að taka á móti þátttakendum í hlaupi sem Lions í Evrópu efndi til undir yfirskriftinni We Run – We Serve. Þar voru hlaupnir 1.000 km frá Pól- landi til Strasbourg til að afla fjár til Lionsverkefna í Evrópu. Var efnt til hlaupsins til þess að fagna því að öld var liðin frá lokum síðari heims- styrjaldar. „Fyrir skömmu var ég svo í Lissabon í Portúgal þar sem Lions opnaði athvarf fyrir fjölskyldur krabbameinssjúkra barna og hleypt var af stokkunum fjársöfnun vegna þess verkefnis. Það var meðal ann- ars stutt af þeirra vinsælasta söngv- ara Tony Carreira, sem gekk í Lions við þessi tímamót. Svona gæti ég lengi haldið áfram,“ segir Guð- rún sem ætlar að gera víðreist um Evrópu í vor. Sykursýki efst á blaði Aldarafmæli Lions í heiminum var fagnað fyrr á þessu ári alþjóða- þingi hreyfingarinnar í Las Vegas í Bandaríkjunum og þar tók Guðrún Björt formlega við embætti heims- forseta. Áður hafði hún verið vara- forseti um tveggja ára skeið og fékk með því undirbúning. Í alþjóða- stjórn Lions átti hún sæti 2010- 2013. „Um leið og við fögnuðum ald- arafmæli fórum við í stefnumótun fyrir næstu ár. Þar var ákveðið að leggja enn meiri áherslu en verið á baráttuna gegn sykursýki, sem nú nálgast að vera heimfaraldur. Í dag eru um 450 milljónir fólks í heim- inum með þennan sjúkdóm stað- festan og álíka margir án þess að vita um. Sykursýki getur haft hræðilegar afleiðingar; fólk getur af þessum sökum getur misst sjón, út- limi eða orðið fyrir annarri skerð- ingu á lífsgæðum. Við látum okkur þetta varða,“ segir Guðrún Björt. - Önnur áherslumál Lions í heiminum eru sjónvernd, stuðningur við krabbameinsveik börn, barátta gegn hungri og umhverfismál. Taka skal þá fram að þetta eru megin- stefin; í hverju landi um sig nálgast klúbbarnir þessi verkefnum eins og best hentar þar. Vilja leggja lið „Hvar sem það er í veröldinni kemur fólk inn í Lionsstarfið af því það vill leggja lið í góðum félags- skap; kynnast góðu fólki og víkka sjóndeildarhring sinn. Fá leiðtoga- þjálfun og vaxa að visku,“ segir Guðrún Björt sem er mikið í Chi- cago í Bandaríkjunum, en höfuð- stöðvar samtakanna eru þar í borg. Alls starfa um 300 manns þar, en al- þjóðahreyfingin veltir um 100 millj- ónum Bandaríkjadollara á ári af fé- lagsgjöldum og hjálparsjóðurinn veitir um 50 milljónum dollara styrki á ári eða ríflega 6 milljarða íslenskra króna. Vöxtur og viska Guðrún Björt Yngvadóttir fer um allar álfur sem heimsforseti Lions, fyrst kvenna. Baráttan gegn sykursýki er áherslumál hreyfingarinnar sem sinnir lærdómsríku þjónustustarfi í 210 löndum. Umhverfið Plantað í grænum lundi með Lionsfólki austur í Kína. Póstur Lionsforsetinn á frímerki í Sri Lanka sem var að koma út. Velferð Guðrún Björt með fötluðu barni á vistheimili í Austurlöndum fjær. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Forsetinn Kynnast góðu fólki og víkka sjóndeildarhring sinn, segir Guðrún Björt um þátttöku í Lions. Þar sem innviðir og velferðarkerfi er tæpast til hef- ur framlag Lions skipt sköpum. „Þegar líða fer á ævina breytast viðmið okkar og lífssýn,“ segir Guðrún Björt. „Framinn skiptir ekki sama máli og áður og marg- ir vilja stíga út fyrir þæginda- rammann til þess að hjálpa öðr- um. Þetta starf hefur gefið mér afar mikið; hvort sem verkefnin eru aðgerðir gegn sykursýki í Indlandi, umhverfismál í Kína, aðstoð við heimilislausa og hungraða í Madagaskar eða sjón- vernd í Afríku. Mér finnst gaman að leggja mitt af mörkum.“ Guðrún Björt er sjötug að aldri. Hún er lífeindafræðingur að mennt og starfaði lengi sem slík, vann síðan lengi í mennta- kerfinu meðal annars sem aðstoðarforstöðumaður Endur- menntunar Háskóla Íslands um langt árabil. Guðrún Björt er í Lions- klúbbnum Eik í Garðabæ. Eigin- maður hennar er Jón Bjarni Þor- steinsson, læknir og Lionsmaður, og eiga þau tvö uppkomin börn og 6 barnabörn. Ég legg mitt af mörkum VIÐMIÐIN OG LÍFSSÝN BREYTIST MEÐ ÁRUNUM Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.