Morgunblaðið - 07.12.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 07.12.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 DRAUMAEIGN Á SPÁNI Nánar á www.spanareignir.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR Aðalheiður Karlsdóttir Löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is Sími 893 2495 Ármúla 4-6, Reykjavík Karl Bernburg Viðskiptafræðingur karl@spanareignir.is Sími 777 4277 Ármúla 4-6, Reykjavík FLOTTAR EIGNIR - GÓÐAR STAÐSETNINGAR FJÖLBREYTT ÚRVAL - EITTHVAÐ FYRIR ALLA Flamenca Village, Playa Flamenca Arenales del Sol, Los Arenales Mare Nostrum, Guardamar Gala, Villamartin Muna, Los DolsesAllegra, Dona Pepa Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Grýla og Leppalúði halda upp- teknum hætti og koma við í Þjóð- minjasafninu stuttu áður en jóla- sveinarnir, synir þeirra, koma af fjöllum hver á fætur öðrum og hitta börn í safninu. Að þessu sinni mæta tröllahjónin sunnudaginn 9. desember klukkan 15. Steiney Skúladóttir úr Reykja- víkurdætrum syngur nokkur lög við píanóundirleik Guðna Franz- sonar, áður en Grýla og Leppalúði trufla skemmtunina. Fjölskyldu- skemmtunin er ókeypis, segir í til- kynningu frá Þjóðminjasafninu. Jólasveinarnir munu síðan koma hver á fætur öðrum til byggða frá og með 12. desember og heilsa upp á gesti Þjóðminjasafnsins kl. 11 daglega til og með 24. desem- ber. Sungin verða jólalög, m.a. vís- ur Jóhannesar úr Kötlum um þá bræður. Grýla og Leppalúði mæta í Þjóðminjasafnið Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Þjóðminjasafnið Á hverri aðventu birtast Grýla og Leppalúði í safninu og fara mikinn. Borgarbókasafnið ætlar að leggja sitt af mörkum og hvetja til umhverfisvænni lausna fyrir jólin. Í ár ætla söfnin í Grófinni og Kringlunni að bjóða upp á aðstöðu til innpökkunar þar sem nýttar verða afskrif- aðar bækur, tímarit, garn og alls kyns skraut. Hægt verður að pakka inn jólagjöfunum, búa til jóla- kort og merkimiða, gjafapoka og finna upp á alls kyns skemmtilegum lausnum í jólainnpökkuninni, segir í til- kynningu frá safninu. Fólk er einnig hvatt til að skoða Pinterest-síðu Borg- arbókasafnsins en þar má finna fjölda hugmynda um hvernig hægt er að gera fallega pakka úr gömlum bók- um og tímaritum. Starfsfólk Borgarbókasafns bendir gestum í miðborginni og Kringlunni á að enda jólagjafaleiðangurinn á bókasafninu og endurnýta þar gamlar bækur og afskrifuð blöð sem gjafapappír. Jólapakkainnpökkun í Borgarbókasafninu Jólapakkar í Borg- arbókasafninu. Hið árlega jóla- bað jólasvein- anna í Dimmu- borgum í Mý- vatnssveit verður á morg- un, laugardag, kl. 16. Sama dag verður markaðsdagur í Jarðböðunum við Mývatn frá kl. 14-18. Þar verður í boði ýmis- legt sem gæti ratað í jólapakkana, s.s. afurðir frá Litlu Sveitabúðinni á Hellu, rúgbrauð og silungur, fjöldinn allur af handverki af Norðurlandi, íslensk hönnun frá Halldóra design og útivistarfatn- aður. Jólasveinarnir í Dimmuborgum eru líka á fullu þennan dag að undirbúa sig fyrir jólin. En þeir ætla að gefa sér tíma til að taka á móti gestum, spjalla, syngja, segja sögur og fara í leiki, milli kl. 11-13 á Hallarflötinni í Dimmuborgum. Sveinkar í Dimmu- borgum í jólabað Jólasveinn í Dimmuborgum. Aðventuhátíð Bergmáls verður haldin í Háteigskirkju sunnudaginn 9. desember nk. kl. 15. Tónlist verð- ur flutt og sr. Sveinn Alfreðsson, sóknarprestur á Sólheimum, verð- ur með hugvekju. Bergmál er líknar- og vinafélag krabbameinssjúkra og langveikra sem rekur hvíldarheimilið Berg- heima á Sólheimum í Grímsnesi. „Allir vinir og velunnarar sem vilja næðis njóta eru hjartanlega velkomnir, enginn aðgangseyrir,“ segir í tilkynningu frá Bergmáli, en að samkomu lokinni verða veit- ingar í safnaðarheimili Háteigs- kirkju. Sólheimar Hvíldarheimilið Bergheimar. Aðventuhátíð Berg- máls í Háteigskirkju Freyr Bjarnason freyr@mbl.is „Þetta er tómt hús og það er bara synd,“ segir María B. Óskarsdóttir, sviðsstjóri menningar og samskipta hjá Seltjarnarnesbæ. Bærinn hefur auglýst til sölu fasteignina Safna- tröð 5 þar sem Lækningaminjasafn- ið átti að vera. Langtímaleiga kemur einnig til greina. Mikill styr hefur staðið um húsið. Smíði þess fór langt fram úr fjár- hagsáætlun. Heildarkostnaður þess var talinn vera um 700 milljónir króna í lok árs 2012 en þá hafði hús- næðið ekki enn verið tekið í notkun og einungis verið uppsteypt, þak komið og það glerjað. Upphaflega var gert ráð fyrir því að heildar- kostnaðurinn yrði 345 milljónir þeg- ar samið var um byggingu og rekst- ur safnhússins árið 2007. Framkvæmdir við húsnæðið sér- hannaða hófust haustið 2008 en þeim var hætt fljótlega eftir hrun. Pattstaða í langan tíma Fasteignin er alls 1.363 fermetr- ar. Húsið er fokhelt og er að mestu fullklárað að utan. Þar er engin starfsemi, að því er segir í fasteigna- auglýsingu. María greinir frá því að pattstaða hafi lengi verið uppi vegna hússins. Þess vegna hafi bærinn ákveðið að setja það á sölu til að koma málum á hreyfingu. Hún segir að íbúar og aðrir hafi kallað eftir því að húsið verði tekið til notkunar enda sé staðsetningin „dásamleg“ og „útsýnið engu líkt“. Hótel ólíklegt Lækningaminjasafn Íslands var stofnað samkvæmt stofnskrá sem byggðist á samningi Læknafélags Íslands, menntamálaráðuneytis, Seltjarnarnesbæjar og Þjóðminja- safns Íslands um stofnkostnað, byggingu og rekstur húsnæðisins. Að sögn Maríu setti Seltjarnarnes- bær um 100 til 150 milljónir króna í húsnæðið á sínum tíma. Viðræður voru uppi við menntamálaráðuneyt- ið um að það aðstoðaði við að ljúka við húsið eftir hrun en til þess þarf um 300 til 400 milljónir króna. Þær skiluðu ekki árangri. Enn er eftir að setja hita, rafmagn og vatn inn í húsið, auk þess sem önnur grunn- vinna er óunnin. „Bærinn hefur ekki 300 til 400 milljónir til að gera það sem til þarf en það hefur verið löng bið eftir því að ríkið myndi taka hús- ið yfir,“ segir hún. Í auglýsingunni kemur fram að innsend tilboð þurfi að innihalda ít- arlega greinargerð um starfsemina. Í deiliskipulagi segir að um safna- svæði sé að ræða. Að sögn Maríu er allt vestursvæðið á Seltjarnarnesi, út að og með Gróttu, friðlýst og verndað. Íbúðarhúsnæði verður ekki í húsinu og mikilvægt er að starf- semin passi inn í umhverfið. Að- spurð segir hún ólíklegt að hótel verði þar starfrækt en hugmyndir hafa verið uppi um norðurljósasafn, listasafn og ráðstefnu- eða kaffihús. Ein hugmyndin var sú að Listasafn Íslands myndi sýna þar samtímalist. Hjúkrunarheimili við hliðina Húsið stendur á svæði sem er skilgreint sem samfélagsþjónustu- svæði. Þar eru Nesstofa, Lyfja- fræðisafnið og Urtagarðurinn einnig staðsett. Verið er að ljúka við bygg- ingu hjúkrunarheimilis við hliðina á húsinu. Skammt frá eru hafnar framkvæmdir á Bygggarðasvæði bæjarins þar sem ný íbúðabyggð mun rísa í stað iðnaðarhúsnæðis, að því er kemur fram í fasteignaauglýs- ingunni. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Lækningaminjasafn Smíði hússins fór langt fram úr fjárhagsáætlun og það hefur aldrei verið tekið í notkun. „Synd að húsið sé tómt“  Lækningaminjasafnið á Seltjarnarnesi stendur enn tómt  Bærinn vill selja húsið  Smíðin fór langt fram úr áætlun 17 dagar til jóla Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.