Morgunblaðið - 07.12.2018, Side 23

Morgunblaðið - 07.12.2018, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 Bráðum koma jólin Þessir krakkar með jólalega vettlinga á höndum spókuðu sig í miðbænum í gær, eflaust með jólatilhlökkun í maganum. Eggert Á hundrað ára afmæli full- veldis er vert að rifja upp at- burði og ferli atburða, sem skipt hafa sköpum fyrir líf í landinu. Fullveldi er ekki að- eins það að hafa vald til að ráða örlögum sínum. Fullveldi er miklu heldur það á hvern veg þjóð kýs að starfa og koma fram meðal þjóða. Hug- tök eins og fullveldi, sjálfstæði og sjálfræði eru margþvæld. Um margt fjalla þessi hug- tök um það sama. Fyrir þjóð er hér um að ræða að geta ráðið ráðum sínum og öðlast viðurkenningu af verkum sínum og til verka. Sumum kann að finnast það með stærri sigrum þessarar þjóðar þegar tveir ein- staklingar, þeir skáldið Halldór Kiljan Lax- ness og stórmeistarinn Friðrik Ólafsson, unnu sína glæstu sigra, hvor á sínu sviði á alþjóðavettvangi á sjötta áratug síðustu ald- ar. Það voru sigrar einstaklinga, en þjóðin vildi eigna sér sigra þeirra. Öðrum finnst það viðurkenning á sjálf- stæði þjóðar, að fulltrúar þjóðarinnar skyldu, fyrir hennar hönd, fá að sitja fundi þar sem ráðið skyldi framtíðarskipan mála að lokinni síðari heimsstyrjöldinni. Árin milli stríða Það kann að vera að það sé vanmat þess er þetta ritar að á árunum milli stríða finnst honum fátt standa eftir í alþjóðamálum millistríðsáranna á Íslandi annað en lög um víxla og tékka. Þessar lagasetningar eru af- rakstur lagasamræmingar. Nú hefur vægi víxla og tékka minnkað í fjármálaviðskiptum en aðrir greiðslumátar tekið við. Vissulega eru einnig hegningarlög frá 1940 ávöxtur af sameiginlegri vinnu og samræmingu á Norðurlöndum. Á millistríðsárunum voru til hugsjóna- menn, sem vildu sameina Norðurlönd í eitt ríki. Svo virðist sem það hafi átt lítinn hljómgrunn meðal þegna þessara landa. Fjölskyldur þjóðhöfðingja þessara landa voru náskyldar og það fannst þegnunum nóg. Stríðið Eftir að þjóðir Evrópu höfðu barist í fjögur ár í tilgangslitlu stríði um stórveldadrauma á ár- unum 1914 til 1918, þá telur sá er þetta ritar að það hafi verið mikil vonbrigði að aftur skyldi reynt á árunum 1939 til 1945. Þegar líða tók að lokum seinni heimsstyrjaldarinnar töldu þær þjóðir, sem voru líklegir sigur- vegarar, rétt að ráða ráðum sín- um á hvern veg starfsemi, sem alla varðar, skyldi vera. Telja má víst að stofnun Alþjóðaflug- málastofnunarinnar árið 1944 hafi lýst mikilli framsýni, miðað við stöðu flugmála á þeim tíma. Í árslok 1944 höfðu verið gefin út 26 flugskírteini á Íslandi. Ráðamenn á Íslandi töldu rétt og eðlilegt að þjóð með nýfengið sjálfstæði sæti þar til borðs og gerðist stofn- aðili. Enginn efast um áhrif flugmála á íslenskt efnahagslíf þegar liðin eru 74 ár frá stofnun ICAO, Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Sam- ræmingarstarfsemi hennar leggur þjóðum heims skyldur á herðar og þær skyldur rækja aðildarþjóðirnar. Á sama veg var það er Íslendingum bauðst að sitja ráðstefnu í Bretton Woods þar sem framtíðarfyrirkomulag gjaldeyris- mála í heiminum, og að nokkru leyti heims- viðskipta, var ákveðið. Í stað einangrunar- stefnu og gengisfellingarkapphlaups skyldu tekin upp frjáls heimsviðskipti með aga í gjaldeyrismálum. Þær þjóðir, sem fóru að skilmálum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, upp- skáru ríkulega. Íslendingar báru ekki gæfu til þess að taka upp fríverslun og frjálst flæði fjármagns fyrir en áratugum síðar. Þá hófst hagsældartímabil í landinu. Aðild að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Al- þjóðabankanum og Alþjóðaflugmálastofn- uninni átti greiða leið í þingsölum hér á landi. Vera má að það hafi verið vegna þess að nýfengið sjálfstæði hafi leitt til þess að al- þingismenn hafi enn verið í vímu ellegar runnið á þá óráð raunveruleikans. NATO Lífið í landinu hélt áfram þegar seinni heimsstyrjöld lauk. Þróun heimsmála varð með öðrum hætti en vonir stóðu til. Svo fór að þjóðum Evrópu stóð hernaðarógn af Sovétríkjunum fljótlega eftir stríð. Neyðin rak til þess að stofna varnarbandalag frjálsra þjóða, Norður Atlantshafsbandalagið, NATO. Í sem stystu máli var það stofnað „til að halda Bandaríkjunum inni, Sovétríkjum úti og Þýskalandi niðri“. Vissulega voru Banda- ríkin ekki hluti af Evrópu. Bandaríkin áttu rætur meðal Evrópuþjóða og Sovétríkin urðu ógn við Bandaríkin. Stríðið hafði fært heim sanninn um að ekki var hald í hlutleysi. Þær þjóðir, sem lentu undir hæl Sovétríkjanna, hlutu um síðir frelsi og gengu í NATO. Aleksander Kwaśniewski, forseti Póllands, taldi það ekki erfiða ákvörðun að strax eftir inngöngu landsins í NATO hefði þurft að taka þátt í stríði á Balkanskaga. Pólverjar þekktu þjóðernishreinsanir af eigin raun og þær yrði að uppræta í álfunni. Aðild að NATO og Evrópusambandinu er fyrir þessum þjóðum trygging fyrir frelsi og öryggi. Varsjárbandalagið leystist upp! EFTA Ekki voru allar þjóðir velkomnar í undan- fara Evrópusambandsins. Þau lönd sem stofnuðu Efnahagsbandalag Evrópu voru 6. Nú eru lönd Evrópusambandsins orðin 28. Utan þess standa nokkur lýðvelda fyrrum Júgóslavíu og EFTA-löndin 4, en það eru Ís- land, Liechtenstein, Noregur og Sviss. Sviss og Noregur voru meðal stofnríkja EFTA auk 6 annarra ríkja, sem gengu í Evrópusam- bandið á árunum 1973 til 1995. Með aðild Ís- lands að EFTA, árið 1970, hélt nútíminn inn í íslenskt viðskiptalíf með því að fríverslun varð almenn en þó ekki alger. Nútímavæð- ingin átti eitt skef eftir. Evrópskt efnahagssvæði, EES Aðild að Evrópsku efnahagssvæði tryggir Íslandi aðild að innri markaði Evrópusam- bandsins. Til þess að svo megi verða eru gerðar kröfur um samræmingu regluverks ríkja Evrópusambandsins og þeirra ríkja sem eiga aðild að innri markaði. Þetta er gert með samningi um Evrópskt efnahags- svæði. Til þess að úrskurða í deilumálum milli ríkja hafa verið settir á stofn sameignlegir dómstólar. Ísland gerðist aðili að Evrópsku efnahags- svæði, EES, árið 1993. Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA-dómstóllinn senda ábend- ingar og úrskurða í ágreiningsefnum. Á þeim 26 árum sem liðin eru frá því Ís- land gerðist aðili að Evrópsku efnahagssvæði hefur kaupmáttur launa aukist um 2,37% á ári. Það er einstakt hagsældartímabil. Öryggi og lífskjör Ekki er víst að aðild að NATO, EFTA og EES hefði átt greiða leið í þjóðaratkvæða- greiðslum. Umræður í sölum Alþingis voru langar og erfiðar og oft með litlu viti þegar aðildarsáttmálar voru ræddir þar. Það kann að vera að einhverjum þyki að sá er þetta ritar sleppi nokkru. Allt orkar tví- mælis, sem er sagt og gert. Einhverjum kann að þykja samstarf Norðurlandaþjóða mikilsverðara en það sem hér er talið. Sam- starf við þær þjóðir er í nokkrum tilfellum undirstaða árangurs í fyrrgreindum alþjóða- samtökum. Öryggi og lífskjör eru mælanleg hugtök. Mikið öryggi og góð lífskjör eru forsenda fyrir menningarlífi og velmegun. Forsenda öryggis og lífkjara er að deila fullveldi með öðrum þjóðum líkt og við Íslendingar höfum gert með þátttöku í ofangreindum alþjóða- samtökum. Fullveldi og alþjóðastofnanir Eftir Vilhjálm Bjarnason » Forsenda öryggis og lífs-kjara er að deila fullveldi með öðrum þjóðum líkt og við Íslendingar höfum gert með þátttöku í ofangreindum al- þjóðasamtökum. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Ég er þakklátur því grandvara fólki, sem nú kemur fórnarlömbum ofbeldis- og drykkjuumræðu til varnar. Þar eru framarlega í fylk- ingu þeir sömu fjölmiðlamenn, leik- arar og stjórnmálamenn, sem opin- berlega niðurlægðu mig, ötuðu mig auri, lugu um mig, kröfðu mig um læknisvottorð, lögsóttu mig og lögðu í einelti mánuðum og árum saman. Þessi hryllingur stóð yfir allt frá „stóra vottorðsmálinu“, 29. nóv- ember 2007, þar til lögsókn á hendur mér lauk, 31. ágúst 2013. Að rifja upp allan sorann og ljótyrðin, sem komu fram í skrifum, á blaðamanna- fundum, í bókunum í borgarráði, Spaugstofuþáttum, áramótaskaupi og Kastljósþáttum, tæki of langan tíma og rými til að unnt sé að gera það í þessari grein. 13. október 2008 birti breska stór- blaðið Daily Mail umsögn um mig, byggða á umfjöllun RÚV („Icelandic National TV“), þar sem ég var sagð- ur spilltur stjórnmálamaður, drykkjusjúklingur og furðufugl og væri í taugaáfalli. Já, þeir eru grandvarir fjölmiðla- mennirnir, stjórnmálamennirnir og leikararnir, sem nú æpa sig hása og telja sig hafa fundið fólk sem er verra en þeir sjálfir! Ólafur F. Magnússon Þakklátur grand- vöru fólki Höfundur er læknir og fv. borgar- stjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.