Morgunblaðið - 07.12.2018, Qupperneq 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018
Bráðum koma jólin Þessir krakkar með jólalega vettlinga á höndum spókuðu sig í miðbænum í gær, eflaust með jólatilhlökkun í maganum.
Eggert
Á hundrað ára afmæli full-
veldis er vert að rifja upp at-
burði og ferli atburða, sem
skipt hafa sköpum fyrir líf í
landinu. Fullveldi er ekki að-
eins það að hafa vald til að
ráða örlögum sínum. Fullveldi
er miklu heldur það á hvern
veg þjóð kýs að starfa og
koma fram meðal þjóða. Hug-
tök eins og fullveldi, sjálfstæði
og sjálfræði eru margþvæld.
Um margt fjalla þessi hug-
tök um það sama. Fyrir þjóð er hér um að
ræða að geta ráðið ráðum sínum og öðlast
viðurkenningu af verkum sínum og til verka.
Sumum kann að finnast það með stærri
sigrum þessarar þjóðar þegar tveir ein-
staklingar, þeir skáldið Halldór Kiljan Lax-
ness og stórmeistarinn Friðrik Ólafsson,
unnu sína glæstu sigra, hvor á sínu sviði á
alþjóðavettvangi á sjötta áratug síðustu ald-
ar. Það voru sigrar einstaklinga, en þjóðin
vildi eigna sér sigra þeirra.
Öðrum finnst það viðurkenning á sjálf-
stæði þjóðar, að fulltrúar þjóðarinnar
skyldu, fyrir hennar hönd, fá að sitja fundi
þar sem ráðið skyldi framtíðarskipan mála
að lokinni síðari heimsstyrjöldinni.
Árin milli stríða
Það kann að vera að það sé vanmat þess
er þetta ritar að á árunum milli stríða finnst
honum fátt standa eftir í alþjóðamálum
millistríðsáranna á Íslandi annað en lög um
víxla og tékka. Þessar lagasetningar eru af-
rakstur lagasamræmingar. Nú hefur vægi
víxla og tékka minnkað í fjármálaviðskiptum
en aðrir greiðslumátar tekið við. Vissulega
eru einnig hegningarlög frá 1940 ávöxtur af
sameiginlegri vinnu og samræmingu á
Norðurlöndum.
Á millistríðsárunum voru til hugsjóna-
menn, sem vildu sameina Norðurlönd í eitt
ríki. Svo virðist sem það hafi átt lítinn
hljómgrunn meðal þegna þessara landa.
Fjölskyldur þjóðhöfðingja þessara landa
voru náskyldar og það fannst
þegnunum nóg.
Stríðið
Eftir að þjóðir Evrópu höfðu
barist í fjögur ár í tilgangslitlu
stríði um stórveldadrauma á ár-
unum 1914 til 1918, þá telur sá
er þetta ritar að það hafi verið
mikil vonbrigði að aftur skyldi
reynt á árunum 1939 til 1945.
Þegar líða tók að lokum seinni
heimsstyrjaldarinnar töldu þær
þjóðir, sem voru líklegir sigur-
vegarar, rétt að ráða ráðum sín-
um á hvern veg starfsemi, sem
alla varðar, skyldi vera.
Telja má víst að stofnun Alþjóðaflug-
málastofnunarinnar árið 1944 hafi lýst mikilli
framsýni, miðað við stöðu flugmála á þeim
tíma. Í árslok 1944 höfðu verið gefin út 26
flugskírteini á Íslandi. Ráðamenn á Íslandi
töldu rétt og eðlilegt að þjóð með nýfengið
sjálfstæði sæti þar til borðs og gerðist stofn-
aðili.
Enginn efast um áhrif flugmála á íslenskt
efnahagslíf þegar liðin eru 74 ár frá stofnun
ICAO, Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Sam-
ræmingarstarfsemi hennar leggur þjóðum
heims skyldur á herðar og þær skyldur
rækja aðildarþjóðirnar.
Á sama veg var það er Íslendingum
bauðst að sitja ráðstefnu í Bretton Woods
þar sem framtíðarfyrirkomulag gjaldeyris-
mála í heiminum, og að nokkru leyti heims-
viðskipta, var ákveðið. Í stað einangrunar-
stefnu og gengisfellingarkapphlaups skyldu
tekin upp frjáls heimsviðskipti með aga í
gjaldeyrismálum. Þær þjóðir, sem fóru að
skilmálum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, upp-
skáru ríkulega. Íslendingar báru ekki gæfu
til þess að taka upp fríverslun og frjálst
flæði fjármagns fyrir en áratugum síðar. Þá
hófst hagsældartímabil í landinu.
Aðild að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Al-
þjóðabankanum og Alþjóðaflugmálastofn-
uninni átti greiða leið í þingsölum hér á
landi.
Vera má að það hafi verið vegna þess að
nýfengið sjálfstæði hafi leitt til þess að al-
þingismenn hafi enn verið í vímu ellegar
runnið á þá óráð raunveruleikans.
NATO
Lífið í landinu hélt áfram þegar seinni
heimsstyrjöld lauk. Þróun heimsmála varð
með öðrum hætti en vonir stóðu til. Svo fór
að þjóðum Evrópu stóð hernaðarógn af
Sovétríkjunum fljótlega eftir stríð. Neyðin
rak til þess að stofna varnarbandalag frjálsra
þjóða, Norður Atlantshafsbandalagið, NATO.
Í sem stystu máli var það stofnað „til að
halda Bandaríkjunum inni, Sovétríkjum úti
og Þýskalandi niðri“. Vissulega voru Banda-
ríkin ekki hluti af Evrópu. Bandaríkin áttu
rætur meðal Evrópuþjóða og Sovétríkin urðu
ógn við Bandaríkin. Stríðið hafði fært heim
sanninn um að ekki var hald í hlutleysi. Þær
þjóðir, sem lentu undir hæl Sovétríkjanna,
hlutu um síðir frelsi og gengu í NATO.
Aleksander Kwaśniewski, forseti Póllands,
taldi það ekki erfiða ákvörðun að strax eftir
inngöngu landsins í NATO hefði þurft að
taka þátt í stríði á Balkanskaga. Pólverjar
þekktu þjóðernishreinsanir af eigin raun og
þær yrði að uppræta í álfunni.
Aðild að NATO og Evrópusambandinu er
fyrir þessum þjóðum trygging fyrir frelsi og
öryggi. Varsjárbandalagið leystist upp!
EFTA
Ekki voru allar þjóðir velkomnar í undan-
fara Evrópusambandsins. Þau lönd sem
stofnuðu Efnahagsbandalag Evrópu voru 6.
Nú eru lönd Evrópusambandsins orðin 28.
Utan þess standa nokkur lýðvelda fyrrum
Júgóslavíu og EFTA-löndin 4, en það eru Ís-
land, Liechtenstein, Noregur og Sviss. Sviss
og Noregur voru meðal stofnríkja EFTA auk
6 annarra ríkja, sem gengu í Evrópusam-
bandið á árunum 1973 til 1995. Með aðild Ís-
lands að EFTA, árið 1970, hélt nútíminn inn
í íslenskt viðskiptalíf með því að fríverslun
varð almenn en þó ekki alger. Nútímavæð-
ingin átti eitt skef eftir.
Evrópskt efnahagssvæði, EES
Aðild að Evrópsku efnahagssvæði tryggir
Íslandi aðild að innri markaði Evrópusam-
bandsins. Til þess að svo megi verða eru
gerðar kröfur um samræmingu regluverks
ríkja Evrópusambandsins og þeirra ríkja
sem eiga aðild að innri markaði. Þetta er
gert með samningi um Evrópskt efnahags-
svæði.
Til þess að úrskurða í deilumálum milli
ríkja hafa verið settir á stofn sameignlegir
dómstólar.
Ísland gerðist aðili að Evrópsku efnahags-
svæði, EES, árið 1993. Eftirlitsstofnun
EFTA og EFTA-dómstóllinn senda ábend-
ingar og úrskurða í ágreiningsefnum.
Á þeim 26 árum sem liðin eru frá því Ís-
land gerðist aðili að Evrópsku efnahagssvæði
hefur kaupmáttur launa aukist um 2,37% á
ári. Það er einstakt hagsældartímabil.
Öryggi og lífskjör
Ekki er víst að aðild að NATO, EFTA og
EES hefði átt greiða leið í þjóðaratkvæða-
greiðslum. Umræður í sölum Alþingis voru
langar og erfiðar og oft með litlu viti þegar
aðildarsáttmálar voru ræddir þar.
Það kann að vera að einhverjum þyki að sá
er þetta ritar sleppi nokkru. Allt orkar tví-
mælis, sem er sagt og gert. Einhverjum
kann að þykja samstarf Norðurlandaþjóða
mikilsverðara en það sem hér er talið. Sam-
starf við þær þjóðir er í nokkrum tilfellum
undirstaða árangurs í fyrrgreindum alþjóða-
samtökum.
Öryggi og lífskjör eru mælanleg hugtök.
Mikið öryggi og góð lífskjör eru forsenda
fyrir menningarlífi og velmegun. Forsenda
öryggis og lífkjara er að deila fullveldi með
öðrum þjóðum líkt og við Íslendingar höfum
gert með þátttöku í ofangreindum alþjóða-
samtökum.
Fullveldi og alþjóðastofnanir
Eftir Vilhjálm
Bjarnason » Forsenda öryggis og lífs-kjara er að deila fullveldi
með öðrum þjóðum líkt og við
Íslendingar höfum gert með
þátttöku í ofangreindum al-
þjóðasamtökum.
Vilhjálmur
Bjarnason
Höfundur var alþingismaður.
Ég er þakklátur því grandvara
fólki, sem nú kemur fórnarlömbum
ofbeldis- og drykkjuumræðu til
varnar. Þar eru framarlega í fylk-
ingu þeir sömu fjölmiðlamenn, leik-
arar og stjórnmálamenn, sem opin-
berlega niðurlægðu mig, ötuðu mig
auri, lugu um mig, kröfðu mig um
læknisvottorð, lögsóttu mig og lögðu
í einelti mánuðum og árum saman.
Þessi hryllingur stóð yfir allt frá
„stóra vottorðsmálinu“, 29. nóv-
ember 2007, þar til lögsókn á hendur
mér lauk, 31. ágúst 2013. Að rifja
upp allan sorann og ljótyrðin, sem
komu fram í skrifum, á blaðamanna-
fundum, í bókunum í borgarráði,
Spaugstofuþáttum, áramótaskaupi
og Kastljósþáttum, tæki of langan
tíma og rými til að unnt sé að gera
það í þessari grein.
13. október 2008 birti breska stór-
blaðið Daily Mail umsögn um mig,
byggða á umfjöllun RÚV („Icelandic
National TV“), þar sem ég var sagð-
ur spilltur stjórnmálamaður,
drykkjusjúklingur og furðufugl og
væri í taugaáfalli.
Já, þeir eru grandvarir fjölmiðla-
mennirnir, stjórnmálamennirnir og
leikararnir, sem nú æpa sig hása og
telja sig hafa fundið fólk sem er
verra en þeir sjálfir!
Ólafur F.
Magnússon
Þakklátur
grand-
vöru fólki
Höfundur er læknir og fv. borgar-
stjóri.