Morgunblaðið - 07.12.2018, Síða 32

Morgunblaðið - 07.12.2018, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 ✝ GuðfinnaBjörk Krist- jánsdóttir fæddist á Sólvangi í Hafnarfirði 14. júlí 1968. Hún lést á Líknardeildinni í Kópavogi 27. nóv- ember 2018. Foreldrar henn- ar eru Kristján Sigfússon, kennari, f. 7.10. 1942, og Guðfinna Inga Guðmundsóttir, kennari, f. 13.5. 1943. Guðfinna Björk var áður gift Gunnari Jónssyni, bifvélavirkja. Þau eignuðust þrjá syni: Kristin Gunnarsson, f. 27.2. 1992, d. 1.3. 1992, Kristján Andra Gunn- arsson, f. 25.12. 1994, og Stefán Gunnarsson, f. 26.7. 1996. Stef- án er trúlofaður Evu Láru Einarsdóttur, f. 7.7. 1996. Eiginmaður Guðfinnu frá árinu 2012 er Sigurjón Örn Sigur- jónsson, verkfræðingur, f. 24.8. 1977. Systkini Guðfinnu eru Svein- borg Lára Krist- jánsdóttir, félags- ráðgjafi, f. 15.6. 1965, eiginmaður hennar er Lárus Ársælsson, verk- fræðingur, og Sig- fús Kristjánsson, prestur, f. 10.12. 1975, eiginkona hans er Arndís Friðriksdóttir, sér- kennari. Guðfinna var með BA í stjórnmálafræði, viðbótar- menntun í hagnýtri fjölmiðlun og MPA í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hún var auk þess með mastersgráðu í alþjóðlegri mannauðsstjórnun frá Birmingham City Univers- ity. Guðfinna starfaði lengst af sem upplýsingastjóri hjá Garða- bæ og var virkur þátttakandi í Soroptimistaklúbbi Hafnar- fjarðar og Garðabæjar. Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ, í dag, 7. desember 2018, klukkan 13. Systir okkar, Guðfinna Björk, var alltaf kölluð Ninna. Hún var í miðjunni af okkur systkinunum og hafði mörg ein- kenni þess sem barn. Hún var hljóðlát, hógvær og vildi gera öllum til hæfis. Hún átti alltaf mjög auðvelt með nám en það mátti alls ekki hafa hátt um það þegar hún kom heim með níur og tíur úr öllum prófum. Þessi eiginleiki fylgdi henni alla tíð, hún var afburðagreind og fór létt með margt sem okkur hin- um reyndist erfitt. Skýrar minningar frá barn- æsku eru flestar ljúfar og góð- ar, m.a. árleg jólamyndataka af okkur systkinunum. Þá var oft erfitt að fá alla til að brosa og horfa í myndavélina á sama tíma, sérstaklega úti í nístings- kulda. Það var líka alltaf mikilvægt fyrir mömmu að systurnar væru í eins jólakjólum og að hafa Sigfús herralegan. Minn- ingar úr sumarfríum eru um sumarbústaðaferðir í Munaðar- nes þar sem alltaf var gott veð- ur og við systkinin að leika okkur á tjaldstæðinu í Laug- ardalnum þar sem pabbi okkar vann í mörg sumur. Við systkinin fórum öll í Melaskóla, Hagaskóla og MR. Þaðan lá leið okkar í Háskóla Íslands. Ninna fór í stjórnmála- fræði og hagnýta fjölmiðlun. Það blundaði nefnilega lengi í henni fréttamaður enda vann hún á tímabili bæði við blaða- mennsku hjá Tímanum og við útvarp hjá Bylgjunni. Síðar bætti hún við sig mastersgráðu í opinberri stjórnsýslu og ann- arri mastersgráðu í alþjóðlegri mannauðsstjórnun. Á fullorðinsárum þróaðist samband okkar þannig að við gátum alltaf treyst hvert á ann- að. Þrátt fyrir að við systkinin töluðum ekki saman á hverjum degi, þá var samband okkar traust og alltaf mikil vinátta og stuðningur. Systkinahlutverk- inu fylgdu ýmis verkefni og prófarkalas Ninna t.d. nokkrar ritgerðir um guðfræði fyrir bróður sinn þó áhugi hennar á efninu hafi verið takmarkaður. Við héldum nánu sambandi árið sem Ninna og Sjonni dvöldu við nám og störf í Birm- ingham. Þá voru endalausir tölvupóstar, fésbókin auðvitað, myndasendingar og svo dásam- legar heimsóknir til þeirra þar sem margt skemmtilegt var brallað. Við systkinin áttum margar dásamlegar stundir, líka eftir að hún veiktist. Göngutúrar eins langir og úthaldið leyfði í hvert sinn voru þá í uppáhaldi og oftast var endað í kaffispjalli eða á rauðvínstári … af því það er nú svo hollt. Ninna lagði alltaf mikinn metnað í það sem hún tók sér fyrir hendur, ekkert var gert með hálfkáki, hvorki nám né vinna. Síðastliðin átján ár vann Ninna hjá Garðabæ, þar sem hún eignaðist góða samstarfs- félaga og vini. Ninna var einstök mann- eskja, eldklár og vel að sér, hún var húmoristi og oft pínu kald- hæðin og með sterkar skoðanir á mörgum málefnum. Hún elsk- aði syni sína, Kristján Andra og Stefán, og manninn sinn Sjonna út af lífinu og naut þess að lifa lífinu með þeim. Þegar við, systkini Ninnu, lítum yfir farinn veg þá blasa við okkur minningar um gleði á góðum stundum, samstöðu í gegnum erfiðleika og vináttu og traust sem aldrei mun gleym- ast. Við þökkum fyrir að hafa fengið að deila svo miklu með Ninnu og erum stolt af því að kalla hana systur. Sveinborg (Bogga) og Sigfús. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag og nú hefur elsku tengdadóttir okkar lokið því ferðalagi allt of snemma. Við kveðjum hana í dag með sorg og söknuði. Við verðum að viðurkenna að okkur brá aðeins fyrst þegar Sjonni okkar sagði okkur frá Ninnu. Hún var fráskilin ein- stæð móðir tveggja táninga og níu árum eldri en hann, en strax við fyrstu kynni við Ninnu urðum við afar sátt. Hún var lágvaxin og fíngerð, með fallega krullað hár og falleg augu. Hún var mjög róleg í fasi og með fágaða framkomu, hafði sterkar skoðanir, sem hún lá ekkert á í samræðum, bóka- ormur og femínisti. Síðast en ekki síst var hún yfir sig ást- fangin af syni okkar og hann af henni. Það gat ekki farið fram hjá neinum. Þau voru mjög samrýnd og þeim nægði oft að vera aðeins tvö saman. Þau gerðu mikið af því að fara í göngutúra og helgarferðir í sumarbústað, og fóru gjarnan saman í líkamsræktina. Þau nutu þess að borða góðan mat og fóru því oft út að borða en höfðu einnig unun af því að elda saman heima. Sjonni okkar hef- ur yndi af klassískri tónlist og lagði Ninna sig fram við að samlagast honum í því áhuga- máli. Sóttu þau reglulega tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar auk alls kyns annarra tónlistar- viðburða. Ninna hafði orð á því að henni þætti yndislegasti tím- inn á haustin þegar hún væri búin að kveikja á kertum, væri að huga að eldamennsku og Sjonni sæti við flygilinn og spil- aði fyrir hana. Hún var vel met- in á vinnustað sínum og naut virðingar samstarfsmanna. Þegar Ninna átti kost á að fá árs leyfi frá störfum ákvað hún að nýta sèr það til þess að afla sér meiri menntunar erlendis. Hún fékk inni í báðum þeim skólum sem hún sótti um og varð Birmingham City Univers- ity fyrir valinu. Með stuðningi yfirmanna var Sjonna gert kleift að vinna sín verkefni í fjarvinnu og þannig rættist draumur Ninnu um meira nám. Áttu þau yndislegan tíma sam- an í Bretlandi. Og svo er það aftur þetta með tilveruna sem er svo und- arlegt ferðalag. Í ársbyrjun 2017 greindist elsku Ninna okk- ar með krabbamein þess eðlis að útlitið var ekki gott. Hún fór í meðferð sem gerði henni mik- ið gagn og gerði það að verkum að þau Sjonni gátu notið ynd- islegra samverustunda. Þau komu tvisvar með okkur til Flórída, fóru til Spánar, fóru í brúðkaup vinar Sjonna í Amst- erdam og í indverskt brúðkaup skólasystur Ninnu frá Birming- ham-árinu, en það brúðkaup var haldið í Róm. Í ágúst sl. fór hins vegar vá- gesturinn aftur af stað og lést Ninna okkar á líknardeildinni að kvöldi 27. nóvember með Sjonna sinn hjá sér haldandi í hönd hennar. Við biðjum Guð að hugga elsku Sjonna, Kristján og Stef- án, syni Ninnu, og Evu Láru, kærustu Stefáns. Einnig biðj- um við huggunar foreldrum og systkinum Ninnu og fjölskyld- um þeirra. Englaskari hlýtur að hafa tekið á móti þessari yndislegu tengdadóttur okkar. Far í friði, elsku Ninna. Sjöfn Hjálmarsdóttir og Sigurjón Arnlaugsson. Það var á hafnarbakkanum á Húsavík fyrir allnokkrum árum sem fíngerð og dökkhærð kona vatt sér að mér og spurði hvort ég væri systir hans Sjonna. Þetta voru fyrstu kynni mín af Ninnu en þá hafði bróðir minn ekki enn sagt mér að þau væru að draga sig saman. Ninna og strákarnir hennar voru kær- komin viðbót í okkar litlu fjöl- skyldu. Foreldrar og systkini Ninnu tóku Sjonna sömuleiðis opnum örmum og þar eignaðist hann aðra fjölskyldu sem er einstak- lega hlý og samheldin. Það var öllum ljóst sem þekktu Ninnu og Sjonna sem par að á milli þeirra ríkti djúp og einlæg ást. Þau sáu ekki sól- ina hvort fyrir öðru. Þau voru líka dugleg að rækta sam- bandið, fóru mikið saman í göngutúra, elduðu saman, fóru saman í sumarbústaði og á tón- leika. Það gilti einu hvort um var að ræða skemmtun og til- breytingu eða hversdaginn, þau nutu félagsskapar hvort ann- ars. Ég er Ninnu ævarandi þakk- lát fyrir þá hamingju sem hún færði bróður mínum. Hún kenndi honum hvað ást er. Ninna var eldklár, hafði sterkar skoðanir og var ekki feimin við að tjá þær. Stundum notaði hún hárbeitta kímnigáfu til að koma þeim á framfæri. Réttlætiskennd hennar var sterk og jafnrétti var henni hugleikið. Stundum fannst mér Ninna hafa á sér tvær jafnvígar hlið- ar; þá sterku og ákveðnu og þá mjúku og tilfinninganæmu. Hún fór vel með hvort tveggja. Þegar Ninna veiktist fyrir tæp- um tveimur árum komu þessar tvær hliðar á henni vel í ljós. Greiningin varð henni mikið áfall og tilfinningarnar báru hana ofurliði. En fljótlega náði baráttuvilj- inn yfirhöndinni. Það kom aldr- ei til greina að gefast upp og hún beitti öllum þeim leiðum sem hún kunni til að vinna bug á sjúkdómnum illvíga sem tek- ur alltof marga frá okkur. Ninna hélt í þennan báráttu- vilja allt til hinstu stundar. Við fjölskyldan á Laxamýri kveðjum Ninnu okkar með sorg í hjarta en erum jafnframt þakklát fyrir allar þær góðu minningar sem við eigum. Við biðjum Guð að styrkja Sjonna, Kristján Andra, Stefán og unn- ustu hans, Evu, í sorg sinni. Einnig biðjum við hann að styrkja foreldra Ninnu, systkini og ástvini hennar alla. Hvíl í friði, elsku Ninna. Ingibjörg Sigurjónsdóttir. Okkur langar að minnast Ninnu vinkonu okkar með örfá- um orðum. Þetta var ekki ferðin sem við höfðum í huga þegar við hitt- umst vinkonurnar, einu sinni sem oftar, á kaffihúsi í sumar. Umræðuefnið var hvert við ætl- uðum að fara til að fagna sam- an þessu ári þegar við urðum allar jafn gamlar, eins og reyndar alltaf, en að þessu sinni var talan svo falleg að það var ástæða til að halda sér- staklega upp á hana. Það var einmitt um þetta leyti sem við höfðum hugsað okkur að skreppa til Parísar eða Barce- lona eða jafnvel Mílanó. Ekki að fylgja einni úr hópnum í sína hinstu ferð. Leiðir okkar lágu saman í Menntaskólanum í Reykjavík og síðan þá höfum við fylgst að gegnum súrt og sætt í yfir 30 ár. Við erum þakklátar fyrir ómetanlega vináttu og óteljandi gleðistundir. Eftirminnilegust eru ferðalögin okkar saman, nú síðast heimsóknin til Ninnu og Sigurjóns þegar þau bjuggu í Birmingham. Þar var Ninna að bæta við sig enn einni háskóla- gráðunni, stóð sig með glæsi- brag auðvitað eins og henni var lagið og naut þess í botn að kynnast nýju umhverfi og eign- ast nýja vini. Þannig var Ninna, hún kunni að lifa og njóta og hafði metnað til að takast á við nýja hluti, læra, upplifa og reyna sjálfa sig. Ninna var frábær vinur, með stórt hjarta, einstaklega já- kvæð, hnyttin og skemmtileg og alltaf til staðar fyrir fjöl- skyldu og vini. Ninna var líka stríðnispúki sem hafði gaman af því að ná upp heitum umræðum um menn og málefni. Fyrir tæpum tveimur árum snérist tilvera vinkonu okkar á hvolf þegar hún greindist með illvígan sjúkdóm. Hún tók á öllu sínu í þeirri meðferð sem reynd var, en þó fór sem fór. Í gegnum veikindin kenndi hún okkur að lífið er núna og náði sem betur fer að njóta vel þess tíma sem hún fékk til umráða. Lifum, njótum og munum Ninnu okkar á sínum bestu stundum. Elsku bestu Sigurjón, Krist- ján, Stefán og fjölskyldan öll. Mikill er missir ykkar og við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Minningin um yndislega vinkonu mun lifa. Bryndís, Heiða, María, Sig- ríður Mjöll og fjölskyldur. Við hófum spjall okkar í pásu vestur í Háskóla Íslands haust- ið 2003, stjórnmálafræðingur, leikskólakennari og lögfræðing- ur, nýbyrjaðar í meistaranámi samhliða starfi. Þetta var upp- haf vináttu okkar og samstarfs í gegnum námið. Guðfinna svo hæversk, talaði lágt en af visku og þekkingu um efnið. Oftar en ekki lagði hún grunninn að efn- istökum. Litir leikskólakennar- ans sulluðust inn í umræðuna um efnið og teygðu sig út fyrir rammann sem lögfræðingurinn reyndi svo að koma böndum á. Við vorum gott teymi. Okkur rennur seint úr minni langur laugardagur við lærdóm þegar Guðfinna á sinn þolin- móða og húmoríska hátt kenndi okkur að diffra. Hjálpi mér hvað við vorum tregar en Guð- finnu tókst þetta. Svo dæmigert fyrir Guðfinnu að vera með stærðfræði frá menntaskólaár- um á hreinu. Til þess að hjálpa okkur að skilja greip hún til praktískra húsráða, við áttum að nálgast þetta eins og köku- uppskrift. Já, hún var ráðagóð hún Guðfinna. Hún varð fyrst okkar til að ljúka náminu en lét ekki þar við sitja. Nokkrum ár- um síðar rættist draumur henn- ar um að sækja sér menntun í útlöndum og við bættist önnur meistaragráða, nú frá Birming- ham City University. Við áttum saman margar gleðistundir, bæði meðan á náminu stóð og síðar. Prófum og verkefnaskilum fögnuðum við að sjálfsögðu saman. Eftir útskrift fundum við okkur tíma fyrir stutta „lönsa“ í amstri dagsins. Það var einmitt í ein- um slíkum sem Guðfinna sagði okkur, aðeins feimin en ljóm- andi, frá Sjonna sínum. Við héldum matarboð með köllun- um okkar og nutum lífsins. Við þrjár vorum líka hluti af stærri hópi vinkvenna úr náminu sem hélt áfram að hittast eftir út- skrift. Það er sárt að þurfa að kveðja Guðfinnu og teymið okk- ar er laskað. Það er sárt að hugsa til þess að hún og hann Sjonni hennar skyldu ekki fá fleiri ár saman. Hugur okkar er hjá honum og strákunum. Minning um einstaka konu lifir áfram. Hafdís og Margrét Vala. Fallinn er frá mikill kven- skörungur, Guðfinna Björk Kristjánsdóttir. Ég varð þeirr- ar gæfu aðnjótandi að vera í bekk með Ninnu í Menntaskól- anum í Reykjavík. Fljótlega var stofnaður „saumaklúbbur“ á þeim árum og hittumst við nokkrar bekkjarsysturnar reglulega undir því yfirskini á kvöldin. Í byrjun var reyndar eitthvað um hannyrðir, en lang- mest var skrafað og snætt sam- an. Þetta voru ákaflega góðir tímar og við áttum svo sann- arlega lífið fram undan. Ninna var ákaflega hnyttin og skemmtileg strax á þessum ár- um, afar jákvæð að eðlisfari og gríðarlega dugleg. Kraftmikil og ákveðin til allra verka og kom það því ekki á óvart að hún fór síðar í bæjarstjórnar- mál eftir háskólanám. Ninna var sú okkar sem ávallt hafði flottustu hárgreiðsluna og ég lopapeysustúlkan dáðist alltaf að þeim eiginleika hennar að geta raðað saman alls konar töff fatnaði og vera síðan óað- finnanleg í útliti. Við saumaklúbbfélagarnir í 6. M urðum stúdentar árið 1988 og þá tók við háskólanám hjá okkur öllum. Hittumst þó reglulega áfram og í dag er ég mjög þakklát fyrir minningarn- ar sem ég á meðal annars af ut- anferðum okkar gömlu bekkj- arsystranna til Heiðu vinkonu í Georgíu. Ekki kom það mér á óvart síðar að Ninna var sú okkar gömlu vinkvennanna sem skellti sér fyrst í enn meira há- skólanám, þótt á fimmtugsaldri væri. Hún vildi bæta við sig meiri þekkingu á sínu sviði og fluttist því búferlum til Birmingham ásamt Sigurjóni eiginmanni sín- um. Ninna var áræðin og hikaði ekki við hlutina. Mér finnst svo stutt síðan útskriftarveisla Ninnu var haldin í Ásbúðinni. Ég man ennþá þegar ég hitti Sjonna og Ninnu eitt sinn sam- an af tilviljun á förnum vegi, talsvert áður en þau fluttust tímabundið til Bretlands. Þarna voru þau tvö gersam- lega geislandi af hamingju og hreysti í gönguferð saman hátt uppi í Esjuhlíðum. Fyrir nokkrum vikum hitti ég þau aftur saman af tilviljun, ég var þá stödd í Kringlunni með Þór- hildi systur og Evu sex mánaða frænku, en Ninna var þar með Sjonna sínum. Hún hafði lokið síðasta skiptinu í geislameðferð þá fyrr um morguninn. Ninna sagðist vera orðin dálítið slöpp eftir alla geislana. Það er svo lýsandi fyrir skapgerð hennar að finna samt einhvern auka- orkuneista innra með sér og fara í búðarferð með Sjonna í kjölfar erfiðrar geislameðferð- ar. Ég heimsótti Ninnu síðan í nóvember þegar hún lá á krabbameinsdeildinni. Hún komst þá að því að dætur mín- ar hefðu dálítinn áhuga á Birm- ingham-ballettinum. Þá kom undireins fram þessi innri eld- móður hjá Ninnu vinkonu. Hún var farin að plana hvar þær tvær gætu leigt í Birmingham ef þær færu þangað í ballett- nám og svo framvegis. Bauð mér auk þess þarna á spít- alanum upp á forláta konfekt og kaffi með því, svona eins og forðum þegar hún hélt vinkon- ukvöld. Alltaf að passa upp á alla í kringum sig og einfald- lega alger hetja af manneskju að vera. Harmurinn og sorgin er svo mikil yfir að Ninna hafi fallið frá svona í blóma lífsins og ég votta Sjonna, Kristjáni Andra, Stefáni og öllum aðstandendum Ninnu svo innilega samúð mína. Halldóra K. Þórarinsdóttir. Dagurinn í febrúar á síðasta ári þegar Guðfinna sagði okkur samstarfsfélögum á Bæjar- skrifstofum Garðabæjar frá því að það hefði greinst mein í höfði hennar sem hún þyrfti nú að takast á við er okkur í fersku minni. Við fylgdumst vel með henni í veikindum hennar sem hún tókst á við af miklu raunsæi, dugnaði og með að- stoð góðrar fjölskyldu og vina. Það var ánægjustund í des- ember í fyrra þegar Guðfinna kom aftur til starfa í hlutastarf á meðan hún tókst enn á við veikindin. Á árinu sem leið sáum við hvernig góðar fréttir um minnkandi mein léttu lund og Guðfinna deildi með okkur sög- um úr skemmtilegum ferðalög- um hennar og Sjonna í vor og sumar. Guðfinna vildi lifa lífinu í dag og njóta hverrar stundar. Við samglöddumst henni þegar hún hélt upp á fimmtugsafmæli sitt í sumar í faðmi fjölskyldu sinnar í góðri ferð til Hollands. Okkur samstarfsfélögum Guðfinnu var öllum brugðið þegar hún greindist með nýtt mein í byrjun hausts og líklega höfum við sjaldan upplifað jafn sterkt hversu ósanngjarnt lífið getur stundum verið. Á þessari stundu eru það minningarnar, sorgin og sökn- uðurinn sem tengja okkur við Guðfinnu. Sorgin og gleðin ferðast saman og við grátum vegna þess sem var gleði okk- ar. Guðfinna var sannur gleði- gjafi. Hún gaf af sjálfri sér um- hyggju, náungakærleik, góða nærveru og félagsskap. Hún gaf okkur líka af tíma sínum, hug sinn og kraft. Guðfinna hóf störf á bæj- arskrifstofum Garðabæjar vor- ið 2000 er hún tók við nýju starfi upplýsingastjóra. Það Guðfinna Björk Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.