Morgunblaðið - 07.12.2018, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
„Þegar Mozart setti sig í sérstakar
stellingar varð útkoman ávallt ein-
stök. Við höfum ætíð haft eina af
blásaraserenöðum Mozarts á efnis-
skránni hjá okkur og þessi er sú
stærsta og tignarlegasta. Þetta er
kóróna blásaraserenaðanna,“ segir
Einar Jóhannesson klarínettuleikari
um verkið Gran Partita eftir W.A.
Mozart sem Blásarakvintett Reykja-
víkur leikur ásamt félögum í Frí-
kirkjunni í Reykjavík í kvöld kl. 20,
en um er að ræða árlega jólatónleika
Blásarakvintetts Reykjavíkur undir
yfirskriftinni Kvöldlokkur á jóla-
föstu.
„Ekki er vitað fyrir víst af hvaða
tilefni Mozart samdi þetta verk, en
hugsanlega var þetta brúðargjöf til
Constanze eiginkonu hans,“ segir
Einar og bendir á að blásara-
serenöður hafi notið mikilla vinsælda
á 18. öld. „Þær voru leiknar fólki til
skemmtunar, bæði aðlinum við hirð-
ina og almenningi utandyra í lysti-
görðum,“ segir Einar og rifjar upp að
óperur, óperettur og vinsæl hljóm-
sveitarverk hafi verið útsett fyrir litla
blásarahópa sem þýddi að almenn-
ingur gat notið tónbókmenntanna.
„Þetta eru ekki lúðrasveitir heldur
tréblásarasveitir með hornum sem
gefa bæði styrk og hljómbotn.“
Að sögn Einars er augljóst að Moz-
art vandaði sig mikið við smíði Gran
Partita. „Yfirleitt voru sex eða átta
manns í hverju verki þar sem tveir
léku á hvert hljóðfæri, þ.e. óbó, klar-
ínettu, fagott og horn. Mozart bætir
við basset-hornum sem eru alt-
klarínettur sem Mozart hafði mikið
dálæti á. Einnig bætir hann við
tveimur hornum, þannig að þau verða
samtals fjögur. Alls eru þetta því 13
blásarar auk kontrabassa. Þetta er
því miklu stærri sveit en tíðkaðist,
sem gefur til kynna að tilefnið hefur
verið mjög sérstakt,“ segir Einar og
bendir á að Mozart hafi einnig fjölgað
köflum verksins úr hefðbundnum
fjórum í sjö. „Þetta er því miklu
lengra og stærra verk en venjulega,“
segir Einar og tekur fram að margir
þekki einkum hæga þáttinn úr verk-
inu en hann var notaður á ógleyman-
legan hátt í kvikmyndinni Amadeus.
Í ljósi þess að Kvöldlokkur á jóla-
föstu fara í ár fram í 38. sinn liggur
beint við að spyrja hvort tónleikarnir
séu orðnir fastur liður í jólaundir-
búningi meðlima Blásarakvintetts
Reykjavíkur. „Við reynum alltaf að
halda tónleikana snemma á aðvent-
unni, bæði til að koma okkur í rétta
gírinn og mörgum af okkar fastagest-
um gegnum árin. Öll búum við til
okkar venjur í sambandi við jólin og
við viljum ekki missa af þessu – né
okkar fylgjendur.“
„Þetta er kóróna
blásaraserenaðanna“
Kvöldlokkur Blásarakvintetts Reykjavíkur í 38. sinn
Morgunblaðið/Eggert
Fjölmenni Blásarakvintett Reykjavíkur og félagar á æfingu í Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Suspiria
Endurgerð hrollvekju Darios Arg-
ento frá árinu 1977. Íslensku dans-
ararnir Halla Þórðardóttir og
Tanja Marín Friðjónsdóttir leika og
dansa í myndinni og var Halla einn-
ig aðstoðardanshöfundur og dans-
þjálfari aðalleikvennanna. „Svart-
nættið er altumlykjandi í
hringamiðju heimsþekkts dans-
stúdíós, sem mun gleypa listræna
stjórnandann (Tilda Swinton), ung-
an metnaðarfullan dansara (Dakota
Johnson) og syrgjandi sálfræðing
(Lutz Ebersdorf). Sumir munu bug-
ast af martröðinni, á meðan aðrir
vakna loksins til lífsins,“ segir um
myndina á vef Bíós Paradísar. Leik-
stjóri er Luca Guadagnino.
Metacritic: 64/100
The Sisters Brothers
Vestri í leikstjórn Jacques Audiard
með John C. Reilly, Joaquin Phoe-
nix og Jake Gyllenhaal í aðal-
hlutverkum en Jóhannes Haukur
Jóhannesson fer með lítið hlutverk.
Myndin gerist á tímum gullæðisins í
Kaliforníu og segir af bræðrum
sem leita manns sem á að hafa rænt
skjólstæðing þeirra.
Metacritic: 78/100
Roma
Nýjasta kvikmynd Óskarsverð-
launaleikstjórans Alfonso Cuarón
segir af ungri þjónustustúlku á
heimili fjölskyldu í miðstéttar-
hverfinu Roma í Mexíkóborg.
„Cuarón notfærir sér bernsku sína
til að skapa ljóslifandi og tilfinn-
ingaríka frásögn af heimiliserfið-
leikum og félagslegri valdaskipt-
ingu á 8. áratug síðustu aldar, og
sendir um leið listrænt ástarbréf til
kvennanna sem ólu hann upp,“ seg-
ir á vef Bíós Paradísar um mynd-
ina. Með aðalhlutverk fara Yalitza
Aparicio, Marina de Tavira, Marco
Graf, Daniela Demesa, Carlos Per-
alta og Nancy García.
Metacritic: 96/100
Að lokum skal nefnd sérstök söngs-
ýning á kvikmyndinni Bohemian
Rapsody í Smárabíói í kvöld kl.
19.40. Gefst bíógestum þá kostur á
að syngja lög Queen fullum hálsi.
Bíófrumsýningar
Hrollvekja, vestri og
listrænt ástarbréf
Lofsungin Kvikmyndin Roma hefur
hlotið einróma lof gagnrýnenda.
Finnski hljómsveitarstjórinn Esa-
Pekka Salonen tekur við sem list-
rænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveit-
arinnar í San Francisco árið 2020,
þegar núverandi stjórnandi, Michael
Tilson Thomas, lætur af störfum.
Síðan Salonen hætti sem aðalstjórn-
andi Los Angeles-hljómsveitarinnar
fyrir níu árum hafa fulltrúar margra
virtra hljómsveita falast eftir starfs-
kröftum hans enda er hann ein
skærasta stjarna klassíska tónlist-
arheimsins og þekktur fyrir að fara
óhræddur nýjar og frumlegar leiðir
að tónlistinni. En Salonen sagði allt-
af nei og sagðist ætla að einbeita sér
að því að semja tónverk og koma að-
eins fram sem gestastjórnandi –
hann var meðal annars ásamt Daníel
Bjarnasyni stjórnandi íslensku tón-
listarhátíðarinnar í Los Angeles í
fyrra og stýrði einnig flutningi ís-
lenskra verka í Elbphilharmonie-
salnum í Hamborg. Ákvörðun hans
nú um að taka við stöðunni í San
Francisco vekur því mikla athygli og
umtal í tónlistarheiminum, að sögn
The New York Times. Fullyrt er að
ráðningin styrki stöðu vesturstrand-
arinnar sem miðstöðvar framsæk-
innar og tilraunakenndrar tónlistar-
sköpunar í Bandaríkjunum.
Salonen stjórnar hljómsveitinni í
San Francisco á nokkrum tónleikum
strax í janúar og á efnisskránni eru
verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur,
Sibelius og Strauss.
Athylgi vekur að Salonen hefur
sóst eftir kröftum nokkurra ólíkra
tónlistarmanna og tónskálda sem
verða einskonar ráðgjafar hans, en
meðal þeirra má nefna tónskáldið
Nico Muhly, flautuleikarann Claire
Chase, djassbassaleikarann og söng-
konuna Esperanza Spalding, píanó-
leikarann og tónskáldið Nicholas
Britell, fiðluleikarann Pekka Kuus-
isto og Bryce Dessner, gítarleikara
The National, sem samdi tónlistina
við No Tomorrow, dansverk Ragn-
ars Kjartanssonar og Margrétar
Bjarnadóttur.
Esa-Pekka Salonen tekur
við San Francisco-sveitinni
Ljósmynd/Katja Tähjä
Hljómsveitarstjórinn Esa-Pekka
Salonen þykir einn sá besti í faginu.
Finnski hljóm-
sveitarstjórinn
Osmo Vänskä til-
kynnti í fyrradag
að hann myndi
láta af störfum
sem aðalstjórn-
andi Minnesota-
hljómsveit-
arinnar í Banda-
ríkjunum árið
2022. Þá hefur hann leitt sveitina í
19 ár og gert hana, svo vitnað sé í
bandaríska fjölmiðla, að einni bestu
hljómsveit landsins. Vänskä var
aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands á árunum 1993 til
1996, hefur stýrt hljómsveitinni
mörgum sinnum síðan og varð heið-
ursstjórnandi hennar í fyrra.
Hljóðfæraleikarar Minnesota-
hljómsveitarinnar áttu fyrir nokkr-
um árum í harðvítugri deilu um
kaup og kjör við rekstraraðila
sveitarinnar og lá starfsemi hljóm-
sveitarinnar niðri í 16 mánuði af
þeim sökum. Mikla athygli vakti að
Vänskä tók ákveðna afstöðu með
hljóðfæraleikurunum í deilunni og
sagði upp í stuðningi við þá; hefur
honum verið þakkað fyrir að flækj-
an leystist á endanum, en hann
gerði meðal annars þá kröfu að
nokkrir lykilstjórnendur sem komu
að fjármálastjórn hljómsveitar-
innar myndu hætta.
Minnesota-sveitin vann fyrir
nokkru Grammy-verðlaun fyrir
disk með flutningi verka eftir Sibe-
lius, undir stjórn Vänskä.
Vänskä boðar starfslok í Minnesota
Osmo Vänskä