Morgunblaðið - 07.12.2018, Page 46

Morgunblaðið - 07.12.2018, Page 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2018 Lónsöræfi Austur í Lóni leynist fjallabálk- ur einn sem kallast Lónsöræfi eða Stafafellsfjöll. Fjöllin mynda eitt stærsta verndarsvæði landsins, um 320 km2 að flatarmáli. Þau voru friðlýst árið 1977 og njóta umsjár Vatnajökuls- þjóðgarðs. Lóns- öræfi afmarkast af Skyndidal í suðri og Víði- dalsdrögum í norðri. Austan megin ná þau að Hofsjökli eystri og Jökulgilstindi en að vestan- verðu stendur Vatnajökull um þau vörð. Lónsöræfi eru eftirlæti úti- vistarfólks, bæði vegna fjölbreyttra gönguleiða og mikillar náttúrufeg- urðar. Lónsöræfi eru ekki á virka gos- beltinu. Engu að síður hafa þar orðið mikil eldgos fyrr á tíð því leifar nokkurra fornra megineld- stöðva er þar að finna. Yngsta megineldstöðin er kennd við Kollu- múla en hún var virk fyrir 4,5 milljónum ára og gaus m.a. logandi eldskýi sem steyptist niður fjalls- hlíðina og eyddi öllu sem fyrir varð, líkt og þegar Vesúvíus eyddi borginni Pompei skammt frá Nap- ólí. Eldskýið í Lónsöræfum varð að 50 metra þykku flikrubergi sem enn má sjá í Víðibrekkuskerjum. Fjölbreyttar gönguleiðir Kollumúlaskáli er fyrsti áfanga- staður þeirra sem halda inn á Lónsöræfi. Þangað er ekið yfir Skyndidalsá, fram um Kjarrdals- heiði og að Illakambi við Jökulsá í Lóni. Þaðan er um 40 mínútna gangur að skálanum. Í Kollumúla bíða fjölbreyttar gönguleiðir. Næst skálanum er stikuð leið um Gjögur að Meingili. Stórbrotin gönguleið liggur meðfram Jökulsánni vestur í Tröllakróka. Þar eru fágætar strýtumyndanir utan í þver- hníptum móbergshömrum sem eiga engan sinn líka á Íslandi. Úr Múlaskála liggur nokkurra daga gönguleið norður að Snæfelli. Gist er í skálum í Egilsseli við Kollumúlavatn og við Geldingafell. Frá Kollumúlaskála eða Illakambi í Egilssel eru um 11 km. Barátta við óblíð náttúruöfl Úr Egilsseli má gera sér dags- ferð að Grund í Víðidal, en þar var einn afskekktasti bær á Íslandi. Stefán Ólafsson byggði sér þar fyrstur manna bæ árið 1840 en gafst upp á búskapnum eftir nokk- ur ár. Árið 1847 settist að í Víðidal Þorsteinn Hinriksson ásamt konu sinni Ólöfu Nikulásdóttur og þrem- ur börnum þeirra. Rúmu ári síðar, á þrettánda degi jóla, féll snjóflóð á bæinn og fórust þá Þorsteinn og synir þeirra tveir. Ólöf hírðist í bænum ásamt dóttur sinni í hálfan annan mánuð þar til þær mæðgur gáfust upp og brutust til byggða. Árið 1883 fluttist Sigfús Jónsson í Víðidal ásamt konu sinni og bjó þar í 14 ár. Þau endurreistu bæ- inn, settu ferjukláfa bæði á Víði- dalsá og Jökulsá, slógu víðilauf og mýrastör í skepnufóður og hjuggu skóg til eldiviðar, ræktuðu tún og höfðu þar vetrarbeit. Smátt og smátt kom í ljós að landið þoldi ekki áganginn og þau neyddust til að bregða búi. Í Víðidal er tjald- stæði. Gróður og dýralíf Lónsöræfi eru eins og nafnið gefur til kynna heldur gróður- snauð. Þó bendir birki í hlíðum, jafnvel langt inni í landi, til þess að áður hafi verið blómlegt um að litast í fjöllunum. Forn örnefni vísa einnig í sömu átt. Nöfn á borð við Hellisskóg, Víðibrekku- sker og Víðidal segja sína sögu, sem og Kjarrdalur og tungur á borð við Maríutungur og Leiðar- tungur. Reynitré eru á stöku stað en einir og gulvíðir vaxa á grónum svæðum. Jöklasóley og melasól vaxa í skriðum niður undir lág- lendi. Gullsteinbrjótur og blá- klukka eru meðal einkennisteg- unda í Lónsöræfum, en þær eru algengar um allt Austurland. Hreindýrahjarðir gera sig heimakomnar í Lónsöræfum. Þar eru stundaðar hreindýraveiðar síðsumars og á haustin ganga menn til rjúpna. Mörgu fé er sleppt í friðlandið á sumrin og það hefur þýtt hnignun skóglendis. Umhverfisstofnun vill að reynt verði að stemma stigu við sumar- beit sauðfjár á Lónsöræfum til að vernda gróður. Einnig fellir sauð- féð stikur á gönguleiðum með juði og nuddi. Í Lónsöræfum er frekar lítið fuglalíf. Þar verpa þúfutittlingar, steindepill og maríuerla. Einnig hefur sést til hrafns og kjóa. Mun ríkulegra fuglalíf er við sjávarsíðuna í Lóni. Lónsfjörður er eitt mikilvægasta álftaver landsins en allt að þriðj- ungur stofnsins kemur þar saman á vorin og þúsundir álfta fella þar fjaðrir. Fjölmargar endur og gæsir hvílast einnig í Lóni um fartímann, bæði vor og haust. Akvegir Á leið inn að Kollumúlaskála þarf að aka yfir Skyndidalsá (F980) sem kemur undan Lambat- ungnajökli og fellur í Jökulsá í Lóni. Hún er óbrúuð og mjög varasöm. Vanir vatnamenn þurfa á allri sinni kunnáttu að halda í glímunni við hana. Því er ráðlegast að fara með kunnugum á vit ævin- týranna í Lónsöræfum. Handan Skyndidalsár er komið í Eskifell. Þar er bæði skáli, tjaldstæði og 95 metra löng göngubrú yfir Jökulsá í Lóni. Ef gengið er yfir brúna er bæði hægt að ganga inn að Kollumúla- skála eða niður að Stafafelli í Lóni. Frá Eskifelli liggur bílvegur um Kjarrdalsheiði inn að Kollumúla- skála. Lónsöræfi eru friðlýst svæði í umsjá Vatnajökulsþjóðgarðs. Hvorki er hægt að kaupa mat né eldsneyti á svæðinu. Nánast ekk- ert GSM-samband er í Lóns- öræfum. Hjarta Íslands Í bókinni Hjarta Íslands fjalla Páll Stefánsson og Gunnsteinn Ólafsson um allar helstu perlur há- lendisins frá Eiríksjökli í vestri til Lónsöræfa í austri; frá Jökulsárgljúfrum í norðri til Eyjafjalla- jökuls í suðri – svæðið sem gjarnan er kallað hjarta Íslands. Gunnsteinn er höfundur texta bókarinnar en Páll tók allar ljósmyndir. Ljósmynd/Páll Stefánsson Náttúrufegurð Líparít- og græntónar við Stórahnaus. Af honum hefur Stórahnausgil nafn sitt. Ljósmynd/Páll Stefánsson Lónsöræfi Birkihríslur við Nes, skammt frá skála Ferðafélags Íslands. Gunnsteinn Ólafsson Páll Stefánsson Skólar & námskeið fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 4. janúar NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir fimmtudaginn 20. desember. SÉRBLAÐ Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu valkosti sem í boði eru fyrir þá sem stefna á að auka þekkingu sína og færni. –– Meira fyrir lesendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.