Morgunblaðið - 07.12.2018, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 07.12.2018, Qupperneq 52
*Verð miðast við WOW Basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. Tilboðið á aðeins við ef bókað er flug fram og til baka. GRAN CANARIA FRÁ 12.999kr.* Tímabil: janúar - apríl ‘19 TENERIFE FRÁ 16.999kr.* Tímabil: desember ‘18 - maí ‘19 LAUMAÐU GLEÐISTUND Í JÓLAPAKKANN Það er alger óþarfi að klóra sér í kollinum yfir jólagjafakaupunum í ár. Við reddum þessu svo þú getir notið aðventunnar, sötrað kakó, nartað í piparkökur og haft það huggulegt. Gerðu þér auðvelt fyrir, laumaðu ljúfu fríi í jólapakkann og gerðu hátíðirnar aðeins meira WOW. Arnbjörg María Danielsen spjallar um sköpunarferlið að baki Íslend- ingasögum – sin- fónískri sagna- skemmtun í hádegisfyrirlestri tónlistardeildar LHÍ í dag kl. 12.45 sem fram fer í stofu S304 í Skipholti 31. Verkið, undir listrænni stjórn Arnbjargar, var sýnt í Eldborg Hörpu 1. desember í tilefni af 100 ára full- veldisafmæli Íslands og sjónvarpað beint á RÚV. Arnbjörg hefur um ára- bil starfað sem listrænn stjórnandi, framleiðandi, leikstjóri og höfundur og komið að margvíslegum sýn- ingum víðs vegar í Evrópu sem eiga það flestar sameiginlegt að unnið er þvert á listgreinar. Sköpunarferlið að baki Íslendingasögum rætt FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 341. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. „Ég ætla mér burt héðan þegar þessu tímabili lýkur en það er ekk- ert komið á hreint hvert ég fer og hvort það verður sem lánsmaður eða hvort eitthvert félag kaupir mig,“ sagði knattspyrnumaðurinn Orri Sigurður Ómarsson hjá Sarps- borg í Noregi við Morgunblaðið í gær. Sarpsborg keypti Orra af Val fyr- ir ári. »1 Orri vill losna frá Sarpsborg ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Benedikt Erlingsson leikstýrir ein- leiknum Ég dey eftir Charlotte Bøving sem er frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins 10. janúar. Benedikt tekur við af Bergi Þór Ing- ólfssyni sem hætti vegna anna en hann leikstýrir Matthildi sem er frumsýnd í mars. Í þessum þriðja einleik sínum skoðar Char- lotte lífið frá sjónar- hóli dauðans og dauð- ann frá sjónarhóli lífsins. Fyrri einleikir hennar, Hin smyrjandi jómfrú og Þetta er lífið – og nu er kaffen klar, skiluðu henni tilnefn- ingum til Grímunnar. Benedikt leikstýrir Ég dey í Borgarleikhúsinu Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Við erum þrjú frá Ísafirði sem ákváðum að opna jólakaffihús í Lær- dal í Sognafirði í Noregi. Við opn- uðum Nisse Café 22. nóvember og erum með leigusamning til áramóta. Það er pressa á okkur frá sveitar- félaginu, sem telur 2.200 manns, og bæjarbúum að halda áfram eftir ára- mót enda er þetta eina kaffihúsið í sveitarfélaginu,“ segir Árný Rós Gísladóttir sjúkraliði, sem rekur jólakaffihúsið ásamt Agnesi Ásgeirs- dóttur sjúkraliða og eiginmanni hennar, Snorra G. Bogasyni mat- reiðslumeistara. Öll eru þau frá Ísa- firði og líkar vel vistin í Lærdal, sem er sveitarfélag í Sognafirði í Vestur- Noregi þar sem næsta borg er Berg- en, í þriggja tíma akstursfjarlægð. „Við erum öll í fullri vinnu annars staðar og höfum verið með alls kon- ar hugmyndir í gangi. Sveitarfélagið hafði samband við Snorra í sumar þegar kaffihúsi á sama stað var lok- að skyndilega og hann hljóp í skarð- ið. Við fengum svo hugmyndina að jólakaffihúsinu og það var lítið mál að fá húsnæði hjá sveitarfélaginu,“ segir Árný og bætir við að mikil áhersla hafi verið lögð á að opna kaffihúsið fyrir jólamarkað sem haldinn er árlega í Lærdal og allt kapp sé lagt á að gera kaffihúsið sem jólalegast. Lakkrístoppar og hangikjöt „Við erum með heita súpu í hádeg- inu og svo höfum við flutt inn dansk- ísfirsku jólahefðina að bjóða upp á smurbrauð og bjór. Snorri hefur gert norska útfærslu af smurbrauði, carbonate, sem best er að lýsa sem flötum kjötklöttum, og við bjóðum upp á norsk-íslenskan jólamat. Hangikjötið og laufabrauðið er vinsælt og margir Norðmenn sem hafa heyrt um það,“ segir Árný og bætir við að gestir, bæði íslenskir og norskir, komi frá nágrannabyggðar- lögunum og helgina sem jólamark- aðurinn var opnaður hafi verið löng biðröð inn á staðinn, sem tekur 60-70 manns í sæti. „Við erum að innleiða fleiri jóla- hefðir á kaffihúsinu en smurbrauð og hangikjöt. Lakkrístopparnir eru mjög vinsælir og fólk er farið að kaupa hjá okkur lakkrískurl frá Nóa/Siríusi,“ segir Árný, sem búið hefur ásamt fjölskyldu sinni í Lær- dal í fimm ár. Hún segir að milli 30 og 40 Íslendingar búi í Lærdal. Frá Ísafirði séu sex fjölskyldur og þrjár þeirra hafi keypt sér húsnæði í daln- um. Íslendingafélag er ekki starf- rækt í Lærdal en Árný og vinkona hennar hafa fimm sinnum staðið fyr- ir Íslandsviðburðum sem opnir eru öllum bæjarbúum. Jólapeysur Árný Rós Gísladóttir, Agnes Ásgeirsdóttir og Snorri G. Bogason sem reka Nisse Café í Noregi. Íslenskt jólakaffihús opnað í Lærdal í Noregi  Ísfirðingar kynna Norðmönnum íslenskan mat og jólahefðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.