Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
ONEPLUS 6T
Fæst nú í Thunder Purple lit:)
109.990
FRÍTT
SENDUM
ALLAR VÖ
RUR
ALLT AÐ
10kg
ALLA DAGATIL JÓLA
OPIÐ10-19
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Mér finnst svo yndislegt að gleðja aðra og
mér hlýnar um hjartarætur að sjá bros á vör
og blik í augum barna og eldra fólks sem
sumt hvert verður aftur börn þegar þau
koma í álfa- og jólagarðinn minn. Þegar börn-
in ganga brosandi garðinn, tala við álfana og
gera athugasemdir ef þeir eru ekki á sama
stað og í fyrra þá er tilganginum náð,“ segir
Birna Sigmundsdóttir blómaskreytir sem
gleður ungviði og eldra fólk í nágrenni við
heimili sitt Dragaveg 5 sem hún keypti fyrir
sex árum og byrjaði á að setja niður blóm í
garðinn sem hún hafði útbúið.
„Ég vildi gleðja börnin og setti álfa í garð-
inn en svo vatt þetta upp á sig og við bættust
kusur, endur, hænur og gosbrunnar. Álfarnir
eru nú um 400. Ég þurfti að byggja bílskúr til
þess að koma dótinu fyrir með góðu móti og
raða eftir kúnstarinnar reglum. Það tekur
mig allt að tvo og hálfan mánuð að þurrka og
ganga frá álfagarðinum,“ segir Birna sem
byrjar um leið og álfarnir eru frágengnir að
setja upp jólagarðinn.
„Ég er allt árið að huga að jólagarðinum og
leita að einhverju nýju sem gleður unga og
aldna. Ég fann til dæmis í góða hirðinum fal-
legar dúkkur frá 1957. Þær vantaði föt svo ég
keypti litla jóladúka til þess að sauma úr
þeim fínustu jólaföt, skó og veski. Þetta kost-
ar auðvitað sitt en ég tel það ekki eftir mér,
er hagsýn og nýti mér tilboð og útsölur,“ seg-
ir Birna sem byrjar fyrstu viku nóvember að
fara út með fyrsta jólaskrautið.
„Ég er ekki lengur á vinnumarkaði, er orð-
in 65 ára gömul og get því gefið mér þann
tíma sem þarf til að setja upp garðana. Ég
hef enga hjálp þegið því ég vil gera allt sjálf
og eftir mínu höfði, skipuleggja, hanna og
hafa þetta fallegt,“ segir Birna sem gladdist
þegar hluti jólaskrautsins fauk á hliðina um
daginn að fá bréf frá fólki í nágrenninu sem
bauðst til þess að hjálpa til við að koma garð-
inum í lag.
Að sögn Birnu koma bæði hópar barna úr
leikskólum og frá dagmömmum að skoða
garðana og fylgjast með uppsetningu á þeim.
Einnig eldra fólk á göngu í nágrenninu og frá
Fríðuhúsi. Hún segir töluverða bílaumferð
oft í götunni og dýrin og dúkkurnar heilli
mest í jólagarðinum. Á miðnætti á þrett-
ándanum byrji hún að taka niður jólaskrautið
og þurrka inni í húsi. Það klárist í byrjun
mars og þá hefjist undirbúningu álfagarðsins.
Kusur og álfar í hengirúmum
„Ég þurfti að byggja bílskúr til þess að
koma skrautinu og álfunum fyrir. Það þarf
allt að vera í röð og reglu því börnin gera at-
hugasemdir ef álfarnir fara ekki á réttan
stað. Þar sem kusurnar liggja þarf að vera
álfur í hengirúmi,“ segir Birna sem leyfir
börnunum að ganga um álfagarðinn og líka
jólagarðinn en segir að snúrur í honum geti
reynst litlum fótum hættulegar. „Börnin
detta stundum inn í álfaheim og tala við álf-
ana. Mér finnst yndislegt þegar ég er spurð
af hverju þessi álfur sé að lesa en ekki hinn.
Hvað þessi sé að gera og svo framvegis,“ seg-
ir Birna sem auk þess að vera blómaskreytir
starfaði sem útfararstjóri og sjúkraliði.
„Mér er í blóð borið að hjálpa og gleðja og
finnst ekki veita af því í allri neikvæðninni
sem ríkir í samfélaginu. Ég lifi fyrir að gleðja
fólk,“ segir Birna sem lætur sér garðana ekki
nægja til að gleðja fólk heldur býður eldra
fólki í nágrenninu til sumarhátíðar.
„Það koma um 70 manns á sumarhátíðina.
Ég býð upp á heitt súkkulaði og rjómapönnu-
kökur sem ég baka og auðvitað er líka
sherrýstaup í boði. Það er boðið upp á söng
og hafa félagarnir, Davíð Ólafsson, Stefán
Helgi Stefánsson og Gissur Páll Gissurarson
sungið fyrir gesti,“ segir Birna sem býður
einnig upp á söng og dans með undirspili
harmónikkuleikara.
Morgunblaðið/Eggert
Jólagarður Birna Sigmundsdóttir í góðum félagsskap með dúkkum í fötum sem hún hefur
saumað á þær. Birna skreytir garðinn sinn til þess að gleðja börn og fullorðna í nágrenninu.
Ljósmynd/Úr einkasafni
Ævintýri Í álfagarði Birnu, er ýmislegt að finna. Álfar sem sinna ýmsum verkefnum, snúrur fyrir
fötin þeirra, kusur, fuglar, englar og blóm sem mynda ævintýraheim þar sem allir eru velkomnir.
Jóladúkkur og 400 álfar á Dragavegi
Vinnur að uppsetningu álfa- og jólagarða allt árið Sumarhátíð fyrir eldri borgara í nágrenninu
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Almennt er mjög gott hljóð í fólki enda gengur vel í
verslun þegar kaupmáttur er sterkur. Ég get hins veg-
ar ekki svarað því hvernig ástandið er í hverri verslun
fyrir sig,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri
Samtaka verslunar og þjónustu.
Athygli hefur vakið að margar stórar verslanir aug-
lýsa afslætti og tilboð um þessar mundir. Það hefur alla
jafna ekki tíðkast þegar jólaverslunin á að vera í há-
marki og landsmenn keppast við að strauja kredit-
kortin. Þannig mátti í Morgunblaðinu í gær til að
mynda sjá auglýsingu frá Pennanum/Eymundsson þar
sem svokallað skattfrí var boðað um helgina og leik-
fangaverslunin Toys R Us auglýsti 25% aflátt af flest-
um vörum.
Andrés segir að jólaverslunin hafi breyst nokkuð síð-
ustu ár vegna tilkomu stórra alþjóðlegra verslunardaga
sem rutt hafi sér til rúms hér á landi. Þar vísar hann til
svarts föstudags, netmánudags og dags einhleypra.
„Þessir þrír dagar hafa allir verið mjög öflugir hér síð-
ustu þrjú árin. Svarti föstudagurinn var til að mynda
eins og Þorláksmessa. Þetta skilar sér þannig að stærri
hluti jólaverslunarinnar en áður fer fram í nóvember.
Við rekjum það beint til þessara þriggja daga.“
Jólaverslun fyrr á ferðinni
Verslanir auglýsa tilboð og afslætti á óvenjulegum tíma
Morgunblaðið/Hari
Jólaverslun Sífellt fleiri kaupa jólagjafir í nóvember.
Fulltrúar Minja og sögu sem er vina-
félag Þjóðminjasafns Íslands munu í
dag afhenda safninu að gjöf blýants-
mynd af Árni Thorsteinssyni (1828-
1907) landfógeta. Myndin sem er frá
árinu 1858 er eftir Sigurð Guð-
mundsson (1833-1974) málara, sem
fyrstur manna á Íslandi sinnti skipu-
lagðri söfnun gamalla muna. Það
starf varð rótin að Þjóðminjasafni
Íslands. Myndin af fógetanum og þá
einkum höfundarverkið hafa því
sterka tilvísun í sögu safnsins.
Félagið Minjar og saga var stofn-
að 1988 og á þeim tíma hefur það
fært Þjóðminjasafninu ýmsar gjafir,
en slíkt er eitt af meginmarkmiðum
starf þess.. Myndin af Árna Thor-
steinssyni nú er gefin safninu í tilefni
af 30 ára afmæli félagsins og svo ald-
arafmæli fullveldisins.
Að sögn Stefáns Einars Stefáns-
sonar, formanns Minja og sögu,
fregnuðu forsvarsmenn félagsins
fyrir nokkrum misserum að myndin
af Árna væri föl og að stjórnendur
Þjóðminjasafnsins teldu hana hafa
gildi fyrir safnið. Félagið keypti því
myndina og varði til m.a. ágóða af
menningar- og fræðsluferðum til
Ísraels og á slóðir Winstons Church-
ill í Lundúnum.
Aðalfundur Minja og sögu verður
haldinn í húsi Þjóðminjasafnsins í
dag, laugardag, og hefst kl. 15. Allir
eru velkomnir. Afhending myndar-
innar, sem Margrét Hallgrímsdóttir
þjóðminjavörður veitir viðtöku er
meðal aðalfundarstarfa. sbs@mbl.is
Mynd af Árna amtmanni
Teikning/Sigurður Guðmundsson
Amtmaðurinn Árni Thorsteinsson
Minjar og saga afhenda Þjóðminjasafni Íslands merka gjöf Hæstiréttur hafnað á fimmtudag-inn beiðni ríkissaksóknara um að
dómstóllinn taki Aurum Holding-
málið svo nefnda fyrir. Málið hefur
í fjórgang verið tekið fyrir af dóm-
stólum frá því það hófst fyrst fyrir
sex árum.
Landsréttur sýknaði í október
alla þrjá sakborningana málinu, þá
Lárus Welding, fyrrverandi for-
stjóra Glitnis, Magnús Arnar Arn-
grímsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
bankans, og Jón Ásgeir, sem var
aðaleigandi bankans í gegnum
eignarhaldsfélagið FL Group.
Aurum Holding ekki
til Hæstaréttar