Morgunblaðið - 15.12.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.12.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 Ný sending af fallegum blúndu hlýrabolum frá Rosemunde - Úrval lita! ... Tilvalið í jólapakkann verslunin.karakterkarakter_smaralindSmárlind Undirbúningur jólanna er með ýms- um hætti og sinn er siður í landi hverju. Hefð er fyrir því að helstu verslunargötur og breiðstræti stór- borganna séu fagurlega skreytt fyr- ir hátíðarnar og er breiðstrætið Nevsky Prospekt í Sankti Péturs- borg í Rússlandi nú ljósum prýtt. Víða má sjá jólasveina á stjái, einn þeirra bar fyrir augu ljós- myndara fréttastofunnar AFP í borginni Nýju-Delí á Indlandi og hafði sá stillt sér upp fyrir framan geysistóra tertu sem bökuð hafði verið í líki rauða virkisins, sem er eitt helsta kennileiti borgarinnar. Það tók sex bakara 75 daga að baka kökuna sem vó 1,6 tonn. Jólin koma líka í flóttamannabúð- irnar sem komið hefur verið upp við landamæri Mexíkó og Bandaríkj- anna. Líkan af búðunum var sett upp í verslunarmiðstöð í borginni Tegucigalpa í Hondúras og vakti það athygli drengs sem þangað kom. AFP Ljósadýrð Sannarlega er fallegt um að litast á breiðstrætinu Nevsky Prospekt í Sankti Pétursborg núna fyrir jólin. AFP Lestur Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, heimsótti börn á barnasjúkrahúsi í Washington í vikunni og las fyrir þau. AFP Á Indlandi Þessi glaðværi jólasveinn stillti sér upp fyrir fram- an köku sem bökuð var í líki rauða virkisins í Nýju-Delí. Jólaundirbúning- ur um veröld víða AFP Japan Er þetta kafari klæddur sem jólasveinn? Eða er þetta jólasveinn sem kann að kafa? Þessi rauðklæddi kafari stakk sér til sunds í sjávardýrasafni í Tókýó, höfuðborg Japans, núna í vikunni og fór vel á með honum og fiskunum. AFP Útsölur Jólin eru hátíð ljóss og friðar. Og þau eru líka hátíð kaupmanna. Víða eru afslættir og útsölur, meðal annars á Oxford-stræti í London. AFP Hondúras Líkan af flóttamannabúðum, sem komið hefur verið upp við landamæri Bandaríkjanna fyrir fólk m.a. frá Hondúras, Gvatemala og El Salvador, er til sýnis í verslunarmiðstöð í borginni Tegucigalpa í Hondúras.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.