Morgunblaðið - 15.12.2018, Síða 31

Morgunblaðið - 15.12.2018, Síða 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 SÖLUAÐILAR Reykjavík: Gullbúðin Bankastræti 6 s:551-8588 Meba Kringlunni s: 553-1199 Michelsen Úrsmiðir Kringlunni s: 511-1900 Michelsen Úrsmiðir Laugavegi 15 s: 511-1900 Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10 s: 554-4320 Meba Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður: Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Vestmannaeyjar: Geisli Hilmisgötu 4 s: 481-3333 Ekkert réttlætir að deyða börn í móðurlífi nema lífsbjörg móður. Þeir sem annan boð- skap hafa eru sekir um líflát sakleysingja sem við öll þörfnumst sárlega í þjóðfélag okkar við höfum nú þegar misst of marga glæsilega einstaklinga. Við svo búið má ekki standa, þetta er skömm hins ríka íslenska þjóð- félags. Mynd sem Sigmund frá Vestmannaeyjum gerði af Íslandi sem kirkjugarði er sönn lýsing á ástandinu. Íslenska þjóð, íslenskar mæður, snúið við á ykkar vonda vegi og verið verðir munaðarleysingja sem ekkert hafa til saka unnið. Leyfið ófæddum börnum að fæðast í þenn- an heim til gagns og gleði fyrir okk- ur öll, „mamma, leyfðu mér að lifa,“ því að ég er fallegasta barn sem nokkurn tímann hefur fæðst. Alþingismenn okkar ásamt ákveðnum menntuðum ein- staklingum hafa orðið óvinir þess- ara munaðarleysingja sem ekki geta varið sig sjálfir og enn skal höggva í sama knérunn í skjóli rétt- ar kvenna til ráðstöfunar „líkama síns“. Nýyrðið þungunarrof hefur skotið upp kollinum eins og púkinn á kirkjubitanum til frekari réttlæt- ingar á illverkum þeim sem framin eru gegn hvorutveggja heilbrigðum eða fötluðum börnum í móðurlífi jafnvel allt að 22 viku. Eruð þið gengin af göflunum? Haldið þið að „fegrun“ orðs sem lýsir illum verknaði hreinsi sam- visku viðkomandi. Hvernig má það vera að læknar og aðrir menntaðir ein- staklingar fullyrði að barn í móðurlífi og móðirin sem fóstrar það yfir ca. níu mán- aða tímabil séu einn og sami líkami þótt svo að þeim sé það vel kunnugt að ekkert styður þá kenningu. Það er harla ólíklegt að barnið gæti t.d. komið að gagni sem „varahlutur“ fyrir móður sína ef á þyrfti að halda og einhver vildi gera slíkt. Þessi kenning um „lík- ama“ konu er uppspuni ruglaðs fólks til réttlætingar vondum verk- um þeirra. Er kálfurinn og kýrin einn og sami líkami, seint munu bændur samþykkja það. Eina hlut- verk móður á meðgöngu er að næra barnið. Merkur læknir sagði orðrétt í viðtali á RUV, „þið vitið, jú, að lífið byrjar við getnað“. Hann þekkti vel til því að vinna hans var að annast fyrirbura. Guð blessi hann. Fráhvarf þessarar þjóðar frá reglum Drottins, þ.e. kristni, flæðir yfir og eyðing mun fylgja í kjölfar- ið. Engin börn fædd eða óborin eru óhult fyrir hinum frjálsu „öndum“. Nánast allt er leyfilegt hvað börn varðar og konur eru sjálfum sér verstar í nafni jafnréttis. Jóga- óþverrinn, bölvun Indlands, kennd- ur í skólum án samþykkis forráða- manna af réttlausum kennurum ásamt öðrum jafnvel enn verri hlutum og menn undrast sálar- ástand barnanna sem versnar með hverju ári sem líður. Hörð barátta er rekin gegn kristni af mönnum sem einhverra hluta vegna hata Guð en fræðsla um annan átrúnað virðist vera þeim geðþekk. Ef ein- hver hefur efast um tilvist hins illa þá lítið á verk mannanna þessa lokadaga siðmenningar okkar, eyð- ing fagurrar náttúru um allan heim vegna skefjalausrar græðgi hams- lausra fjárfesta sem fara um sem engisprettufaraldur, siðlaus sam- skipti manna milli og líflát barna í móðurlífi. Mæður, kynnið ykkur hinar hryllilegu líflátsaðferðir sem eyð- ingarmennirnir nota, þið mynduð ekki óska neinum þess að deyja á þann hátt. Okkar eina von er að hverfa frá illskunni, iðrast og leita Drottins Jesú taka aftur að kenna börnum okkar kristnar reglur sem hafa verið hornsteinn íslensks þjóðfélags öllum til góðs. Hvar eru þeir sem kenna sig við Krist, há- launaðir og sællegir en þöglir? Dag einn munum við öll þurfa að koma fram fyrir dómstól Hans. Leitum ríkis hans og réttætis meðan hann er að finna og biðjum hann að fyr- irgefa okkur ranglætisverkin því að hann er miskunnsamur Guð sem fyrirgefur misgjörðir og læknar öll vor mein. Mamma, leyfðu mér að lifa Eftir Sigþór Guðmundsson » „Mamma leyfðu mér að lifa.“ Lítið kristið samfélag hafði þetta sem kjörorð í baráttu gegn því að börn væru deydd í móðurlífi. Sigþór Guðmundsson Höfundur er sölumaður. Borgarstjórinn okkar talar mikið, þrengir götur og hvetur okkur til að hjóla og/eða taka strætó. Það skiptir meira máli hvað stjórnendur gera en hvað þeir segja. Þetta þarf hann að skilja. Þetta farartæki er upplagt fyrir mann sem vill láta taka sig alvar- lega. Hann getur farið á hjóli og kolefnisjafnað en samt haldið einka- hjóla-bílstjóranum. Þetta fæst í Danmörku eins og stráin góðu við Braggann en ég mæli með að fá fyrst skriflegt verð- tilboð áður en af fjárfestingu verð- ur. Árni Þór Árnason, fyrrverandi forstjóri Austurbakka hf. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Skiptir máli hvað stjórnendur gera Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.