Morgunblaðið - 15.12.2018, Síða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018
✝ Ingibjörg Að-alheiður Sig-
tryggsdóttir fædd-
ist 24. maí 1936 á
Kamphóli, Þorkels-
hólshreppi,
V-Húnavatnssýslu.
Hún lést 6. desem-
ber 2018 á
vistheimilinu Lundi
á Hellu.
Hún var dóttir
Sigtryggs Jóhann-
essonar, f. 7. febrúar 1906 á
Þverá fremri, Torfustaða-
hreppi, V-Húnavatnssýslu, d.
10. júní 1948, bónda í Öxna-
tungu og í Þorkelshólshreppi
og í Ytri-Hraundal, og Guð-
rúnar Jónínu Pétursdóttur, f.
21. mars 1914 á Tittlingastöð-
um (nú Laufási) í Víðidal í
Þorkelshólshreppi, d. 16. nóv-
ember 1989.
Jónssyni, f. 1935, og giftist
honum í september 1955. Þau
eignuðust eina dóttur, Bjarn-
veigu Jónu Gísladóttur, f. 3.6.
1955. Ingibjörg og Gísli skildu
svo árið 1957.
Síðar kynnist svo Ingibjörg
manni sem hún giftist síðar,
eða 4. júlí 1965, Árna Hilmari
Hólm, f. 22.11. 1931, d. 4.12.
2007.
Þau tóku að sér fósturbarn,
Vilborgu Hafsteinsdóttur, f.
28.10. 1962, en hún var ekki
ættleidd.
Þau hjónin höfðu mikið
gaman af hestum og áttu
hesta í fjölda ára.
Ingibjörg var verkakona
mestan hluta af sínu lífi og
vann þá við ýmis störf. Fyrstu
störf hennar voru í dósaverk-
smiðju, á saumastofu, hjá Ála-
fossi, hjá póstinum og í slát-
urhúsi.
Síðustu 19 árin var Ingi-
björg formaður Verkalýðs-
félagsins Þórs á Selfossi.
Útför Ingibjargar fer fram
frá Selfosskirkju í dag, 15.
desember 2018, klukkan 15.
Börn þeirra:
Elst er Brynhild-
ur Aðalbjörg, f.
1934, svo Ingi-
björg Aðalheiður,
f. 1936, Ólína
Helga, f. 1937,
Jóhanna Sigríð-
ur, f. 1943, og
svo Benedikt Há-
kon Ingvarsson,
f. 1952, d. 2007.
Þegar faðir
Ingibjargar dó var hún 12 ára.
Hún flutti
til Reykjavíkur til frænd-
fólks síns og þar bjó hún
þangað til hún varð 16 ára en
þá fékk hún sér vinnu og flutti
út af fyrir sig.
Ingibjörg fór í Húsmæðra-
skólann 1953-1954, sem þá var
í Hveragerði.
Ingibjörg kynntist svo Gísla
Ingibjörg var listræn kona
og elskaði að teikna og mála og
hún elskaði náttúruna líka. Hún
var algjör snillingur við sauma-
skap og held ég að fáir geti far-
ið í hennar spor þar.
Því miður missti hún sjónina
og heyrnina að mestu rétt um
og eftir 70 ára aldur svo hennar
draumur um að mála og ferðast
um landið á sínum efri árum
brast.
Ég á margar góðar minn-
ingar um öll ferðalögin sem við
fórum í þegar ég var að alast
upp.
Hún var heilsulítil síðustu ár-
in sem hún lifði, svo nú vona ég
að hún bæði sjái og heyri og sé
laus við alla verki og sé komin
til elsku Árna síns.
Það er skrítið að geta ekki
hringt í hana lengur og bara
spjallað og að geta ekki farið í
heimsókn fyrr en í næsta lífi,
hinum megin eins og sumir
segja.
Hvíl í friði elsku mamma,
amma, langamma, systir og
frænka.
Aníta Hólm.
Elsku Inga systir. Það var
sárt að ná ekki að kveðja þig,
en ég get bara sjálfri mér kennt
um að vera bara svona ónýt að
heimsækja þig. Þó er að sumu
leyti bara betra að kveðjast
ekki – heldur hittast glaðar og
hressar seinna á yndislegum
stað eða tilveru. Ég vona að þú
sért núna laus við allt vont og
sjáir og heyrir helst alla leið
hingað. Inga mín, það er gaman
að rifja upp gömlu dagana
ungu.
T.d. þegar við ansi litlar ætl-
uðum upp í fjárhús til pabba.
Ég gef mér að við höfum verið
þá þú tveggja ára og ég fjög-
urra ára.
Ég hef nú kannski ráðið ferð-
inni þá. Við vorum komnar ofan
í skurð á túninu (það var ekki
snjór, en svona hálffölnað gras
– kannski vor?). Þú, litla/stóra
systir mín, komst ekki upp úr
skurðinum en ég gat og var
montin.
Hvernig ferðin endaði man
ég ekki. Þetta var í eina skiptið
á ævi okkar þar sem ég gat að-
eins meira en þú. Þú varst allt-
af duglegri systirin af okkur
tveimur og auðvitað öfundaði ég
þig, já, já.
Og þegar við vorum inni í
kuldanum á veturna, fengum
bara að vera uppi í rúmi undir
sæng og teiknuðum alls konar
fólk eða dýr eða t.d. tískuföt á
dúkkulísur þá var allt svo lif-
andi hjá þér en ekki mér.
Og á sumrin uppi á Stóra-
Hól (þetta var í Hraundal) var
búskapurinn miklu myndarlegri
hjá þér, húsin og dýrin og girð-
ingarnar í kringum túnin.
Svo áttir þú Georg spýtust-
rák sem þú bjóst til og málaðir í
bláum buxum, rauðri peysu og
með rautt hár. Það dróst að ég
byrjaði í skóla, man ekki af
hverju, en þegar þú byrjaðir
stuttu á eftir mér varstu strax
duglegri í námi.
Svo fannst okkur gaman á
hestunum en ekki eins að sækja
kýrnar.
Já, það var oft gaman þegar
við vorum börn. Svo kom Lóa í
heimsókn og a.m.k. ég öfundaði
hana af fínu fötunum hennar.
Og svo fæddist litla Hanna sem
gat svo lítið fyrst.
Svo stækkuðum við og þá var
líka stundum gaman. T.d. að
fara með ykkur Árna upp í
Hraundal og margar aðrar
ferðir og útilegur. Alltaf voruð
þið svo dugleg að elda og vaska
upp kannski bara í lækjum ein-
hvers staðar og gera bara svo
margt.
Og þegar þið komuð á Klung-
urbrekku oft – og ég tala nú
ekki um að Læk! Þá var gaman.
Guð geymi þig elsku systir.
Þökk fyrir allt.
Hulda.
Þá hefur Inga frænka mín
fengið hvíldina og er komin til
hans Árna síns.
Síðustu árin hafa verið henni
erfið. Bæði missti hún sjónina
og hafði slæma heyrn, ásamt
margvíslegum öðrum veikind-
um sem einangruðu hana mikið.
Oft héldum við að núna væri
hennar tími kominn, en hún
hafði alltaf betur.
Húnvetnska seiglan í systr-
unum frá Öxnatungu er mikil.
Síðast heyrði ég í Ingu fyrir um
þremur vikum þegar síminn
hringdi að kvöldlagi. Hún ætl-
aði svosem ekkert að heyra í
mér, fór eitthvað takkavillt á
símanum, en við notuðum þá
tækifærið, skiptumst á orðum
og inntum fregna.
Hún sagðist hafa það þokka-
legt og kvaddi með kveðjum til
minna. Síðast sá ég Ingu móð-
ursystur mína, sem alltaf hefur
verið hluti af lífi mínu, þegar ég
og móðir mín tókum að okkur
að koma til hennar nýjum síma
í september sl.
Hún sat á ganginum í al-
menningnum á Dvalarheimilinu
Lundi þar sem hún bjó við gott
atlæti síðustu mánuðina sína.
Þegar við komum til hennar og
áður en ég sagði nokkuð sagði
hún:
„Komdu sæl Kris mín, það er
gaman að þú komst með henni
mömmu þinni.“ Þegar ég spurði
hvernig hún vissi að ég hefði
verið að koma sagðist hún
þekkja mig á göngulaginu! Þar
urðu svo fagnaðarfundir systra.
Það var alltaf einhver vænt-
umþykja á milli okkar þótt ekki
hafi verið mikill samgangur frá
því að bernsku minni lauk. En
þegar Inga og Árni, sem oftast
voru nefnd í sama orðinu, komu
vestur í heimsókn til foreldra
okkar og okkar, þá kom sum-
arið og allir urðu eitthvað svo
glaðir í hjartanu. Sérstaklega
mamma, sem missir mikið
núna.
Einnig dvaldi ég um hríð á
heimili Ingu og fékk sætt te
með mjólk og tekex með smjöri
í kvöldkaffi við eldhúsborðið
hennar.
Þvílík hamingja. Og þar
lærði ég að lesa fimm ára.
Ég votta Anitu, Maríu, Gunn-
ari, Ingu Heiðu, Atla, Miriam,
Ramónu og fjölskyldum þeirra
alla mína samúð, sömuleiðis Vil-
borgu og Dagbjörtu og svo
mömmu, Lóu og Hönnu.
Hvíl í friði frænka mín.
Engum er ljóst, hvaðan lagt var af
stað,
né hver lestinni miklu ræður.
Við sláumst í förina fyrir það,
jafnt fúsir sem nauðugir, bræður!
Og hægt hún fer, en hún færist um
set,
þessi fylgd yfir veginn auðan,
kynslóð af kynslóð og fet fyrir fet.
Og ferðinni er heitið í dauðann.
(Tómas Guðmundsson)
Kristjana
Pálsdóttir.
Ingibjörg Aðalheið-
ur Sigtryggsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum.
Minningargreinar
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undirbúnings og
framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbús-
skiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju
að leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Ellert Ingason,
umsjón sálmaskrár
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Okkar ástkæra
GUÐLAUG INGIBJÖRG SVEINSDÓTTIR
ljósmóðir frá Egilsstöðum,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 7. desember.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 18. desember klukkan 15.
Bergþóra Helgadóttir Ómar Örn Jósepsson
Steinn Helgason Þóra Karlsdóttir
Steinunn Björg Helgadóttir Þór Vigfússon
Jóhann Þorsteinsson Þórunn Bergsdóttir
Bergljót Þorsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GRETTIR PÁLSSON,
fv. dagskrástjóri SÁÁ,
lést á lungnadeild LSH. Hann verður
jarðsunginn í Fossvogskirkju fimmtudaginn
20. desember klukkan 15.
Oddný Jakobsdóttir
Þórdís Grettisdóttir Pétur Örn Runólfsson
Gísli Grettisson Esther Eygló Ingibergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTRÚN EYMUNDSDÓTTIR
framhaldsskólakennari,
lést á Grund laugardaginn 8. desember.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
mánudaginn 17. desember klukkan 15.
Halldór Blöndal
Pétur Blöndal Anna Sigríður Arnardóttir
Eymundur Matthíasson
Þórir Bjarki Matthíasson
Ragnhildur Blöndal
Stella Blöndal Ólafur Rastrick
og fjölskyldur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
(Dúna),
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 30. nóvember.
Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 18. desember klukkan 13.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir góða umönnun.
Hrefna Kjartansdóttir
Hallur Kjartansson Bente Kjartansson
Kolbrún E. Kjartansdóttir Auðunn G. Hjaltason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HENRY ÁGÚST ÅBERG ERLENDSSON,
lést á sjúkrahúsi á Spáni 8. desember.
Jarðarför auglýst síðar.
Þóra Sigríður Sveinsdóttir
Sveinn Henrysson Kristi Jo Kristinsson
Helga Åberg Henrysdóttir Ólafur Gunnarsson
Arnþór Henrysson
barnabörn og barnabarnabörn
Kæra móðir okkar, systir, amma og
langamma,
SIGRÚN ERLA SKÚLADÓTTIR,
Vesturbrún 21, Reykjavík,
lést mánudaginn 26. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Dóra Soffía, Linda Sif, Edda Lóa
barnabörn og barnabarnabörn