Morgunblaðið - 15.12.2018, Side 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018
✝ Björn Helgasonfæddist í
Reykjavík 13. maí
1935. Hann lést 4.
desember 2018.
Foreldrar hans
voru Boghildur
Lára Thorarensen,
f. 29.9. 1913, d. 28.9.
1984, og Helgi Frið-
rik Helgason, f.
23.7. 1912, d. 2.6.
1945. Bræður sam-
feðra: Sigurður Már, f. 1940, og
Oddur Friðrik, f. 1941.
Börn Björns eru: 1) Sigurlaug
Oddný, f. 22.5. 1954, móðir
hennar Hrafnhildur Loreley
Oddsdóttir, f. 1936, d. 2018. Sig-
urlaug er gift Guðmundi Karli
Þorleifssyni, f. 1952. Börn
þeirra eru Hlynur Róbert, f.
1973, Eva Kristín, f. 1977, og
Jón Oddur, f. 1981. Björn var
giftur Elínu Guðlaugu Kröyer, f.
1937, þau skildu. Dætur þeirra
Thorarensen, sem var í raun
afasystir hans. Hildur tók Láru
móður hans í fóstur sem ung-
barn. Lára dvaldi langdvölum á
Vífilsstöðum í æsku hans, hún
fékk berkla.
Bubbi starfaði mestan sinn
starfsaldur hjá Sendibílastöð-
inni og keyrði fast hjá eftirtöld-
um fyrirtækjum: Sanitas,
Reykjalundi, Hjálpartækja-
banka Rauða krossins og í lokin
hjá Stoðtækjafyrirtækinu Öss-
uri. Árið 1968 silgdi hann á vit
ævintýranna með Sæbjörginni
til Kanaríeyja og dvaldi þar í
rúmt ár við hákarlaveiðar.
Sælureit áttu þau Bubbi og Guð-
rún í Svignaskarði í Borgarfirði
til margra ára og dvöldu þau
mestallan sinn frítíma þar í hjól-
hýsinu sínu.
Fyrir einu og hálfu ári fór
heilsunni að hraka og dvaldi
Bubbi á Hrafnistu í Hafnarfirði
þar sem hann lést aðfaranótt 4.
desember sl.
Útför Björns fór fram í kyrr-
þey að ósk hins látna hinn 14.
desember 2018.
eru: 2) Hildur, f.
4.12. 1956, d. 5.7.
2005, maki Róbert
Guðlaugsson, f.
1955. Börn þeirra
eru Björn Róbert,
f. 1979, Elín
Thelma, f. 1982, og
Tómas Darri, f.
1989. 3) Díana, f.
28.12. 1957. Börn
hennar eru Oscar
Angel, f. 1984, og
Elías Kristinn, f. 1990. 4) Lára, f.
4.7. 1962, maki Ólafur Þorkell
Pálsson, f. 1954. Börn þeirra
Smári, f. 1987, og Katla Bog-
hildur, f. 1995. Björn giftist 6.5.
1975 Guðrúnu Kristjönu Ólafs-
dóttur, f. 4.6. 1941, d. 17.10.
2017. Sonur þeirra er: 5) Gunn-
ar Friðrik, f. 22.5. 1972. Lang-
afabörn eru 12.
Björn, eða Bubbi eins og hann
var alltaf kallaður, ólst að mestu
leyti upp hjá ömmu sinni, Hildi
Elsku pabbi, þá er komið að
kveðjustund hér á jörðu og þú
kominn í sumarlandið. Það er mér
dýrmætt að hafa dvalið hjá þér
síðustu vikuna á Hrafnistu við
góða og einstaklega hlýja umönn-
un starfsfólks.
Minningar mínar frá yngri ár-
um koma nú fram og þá standa nú
upp úr dagsferðir á Meðalfells-
vatn þar sem við vorum að veiða.
Eitt sinn kallaði ég „pabbi, það er
allt fast“, en þá hafði hann útbúið
línu með þremur krókum á fær-
inu og stelpuskottið fékk þrjá
fiska í einu og átti erfitt með að
landa þeim. Eins má minnast
ferða á Reykjalund með þér, mik-
ið þótti mér gaman að koma með
þér þegar þú varst í vinnunni og
alltaf fékk ég staur í búðinni.
SÍBS var stór þáttur í lífi okk-
ar, amma Lára var umboðsmaður
Lego fyrir þá, þú varst bílstjóri
og mamma vann hjá happdrætt-
inu.
Þú talaðir oft um að þú hefðir
eignast mig tvisvar sinnum, þeg-
ar ég var svona 4-5 ára gömul var
ég veik heima og þú kíktir inn í
hádeginu og þá var ég orðin blá,
þú blést í mig lífi og þakkaðir
skyndihjálparmanninum vel fyrir
lærdóminn. Eftir að þið mamma
skilduð sigldir þú á vit ævintýr-
anna með Sigga Þorsteins og fjöl-
skyldu til Kanarí með Sæbjörg-
inni sem var gamalt varðskip. Þar
dvaldir þú í rúmt ár við hákarla-
veiðar og ævintýramennsku og
komst svo siglandi heim með
Gullfossi.
Með þessu ljóði kveð ég þig
hinstu kveðju, elsku pabbi minn.
Guð geymi þig.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Þín
Lára.
Takk afi. Takk fyrir allar fal-
legu minningarnar sem ég á um
þig. Þau voru ófá árin þar sem
maður varði stundunum með þér
og ömmu uppi í hjólhýsinu í
Svignaskarði. Það sem maður
fékk að leika lausum hala þar og
skemmta sér. Alltaf varstu tilbú-
inn að leika við mann, slást og
ærslast. Þegar maður suðaði og
suðaði að fá að fara í Ferstiklu og
kaupa kóka kóla og hubba bubba-
tyggjó var ætíð sagt já. Alltaf gat
maður hringt í Bubba afa eftir
skóla þegar manni leiddist og
fengið að sitja með í bílnum þegar
þú varst að keyra fyrir hjálpar-
tækjabankann. Mér fannst svo
merkilegt að sjá að þú einhvern
veginn þekktir alla hvert sem við
fórum og allir þekktu þig. Hvern-
ig þú fékkst alltaf alla til þess að
brosa og hlæja og lést öllum líða
vel í kringum þig. Hversu stoltur
þú varst af því að kynna afastrák-
inn þinn fyrir öllum. Þú hafðir svo
gott hjartalag og þú kallaðir alla
„elskan“ hvert sem við fórum.
Alltaf var stoppað í bláa turn-
inum til þess að fá bestu smurðu
samlokurnar, að eigin sögn.
Baunasamlokur, þær eru enn
bestar í minningunni.
Takk fyrir að hafa alltaf verið
til staðar fyrir mig þegar ég
þurfti á þér að halda, afi minn.
Þegar ég var týnd sál sem ungl-
ingur – og voru þau ófá skiptin
þar sem mig langaði ekki til þess
að lifa lengur – gat ég alltaf hringt
í hann afa minn sem var alltaf
tilbúinn að hjálpa mér og vera til
staðar þegar enginn annar var.
Aldrei dæmdir þú mig né
skammaðir þegar ég hafði komið
mér í eitthvert klandrið heldur
sýndir mér alltaf skilning og kær-
leika og lést mig finna að saman
skyldum við vinna úr þessu. Ég
veit ekki hvar ég væri ef ekki væri
fyrir þig og er ég þér ævinlega
þakklátur, afi minn, fyrir það.
Þú komst næst því sem ég get
kallað föðurímynd mína í lífinu og
er ég þakklátur fyrir það sem þú
stóðst og stendur í minningunni
fyrir og mun ég alltaf vera litli
Óskinn þinn!
Ég elska þig alltaf afi, þinn
Oscar Angel Lopez (Óski).
Björn Helgason
Rigningarsum-
arið 1955 er okkur
systrum minnis-
stætt er við flutt-
umst frá Reykjavík til Hafna-
fjarðar. Fyrir neðan Sankti
Jóseps spítala á Suðurgötu
eyddum við öllu sumrinu í stíg-
vélum og pollagöllum við hörku
stíflugerð. Geirlaug var bæði
með góða og ljúfa lund, alltaf
til í að hjálpa okkur yngri
systrunum í einu og öllu. Það
var oft mikið fjör á heimilinu
þegar Geirlaug og Auður voru
komnar á gelgjuna. Borð og
stólar voru þá færðir til í stof-
unni og við tvíburarnir fengum
þá oftast að vera með ásamt
vinkonum þeirra á rokk- og
tjútttímabilinu þar sem tónlist-
Geirlaug
Guðmundsdóttir
✝ Geirlaug Guð-mundsdóttir
fæddist 19. október
1945. Hún lést 22.
nóvember 2018.
Útför Geirlaugar
fór fram 6. desem-
ber 2018.
in var sett í botn
en það þótti okkur
ekki leiðinlegt.
Tuttugu ára fór
Geirlaug sem „au
pair“ til London en
Auður, þá átján
ára, og vinkonur
hennar fóru á síld-
arvertíð á Raufar-
höfn. Þessu ævin-
týri þeirra fylgd-
umst við tvíburarn-
ir spenntar með. Geirlaug
keypti þessar flottu nýtísku
fermingarkápur úr krulluefni
og við upplifðum okkur sko
flottastar á þeim tíma í tísku-
fötum frá útlöndum.
Elsku Geirlaug okkar, þú
fórst í Húsmæðraskóla Reykja-
víkur og lærðir þar ýmislegt
hagnýtt og meðal annars saum-
aðir þú gullfallegan skírnarkjól
sem við systurnar höfum fengið
að nota síðan fyrir börn okkar
og barnabörn.
Um þig stafaði ýmsa vegu
Eitthvað gjafamilt
Því mun hafa þungum trega
Þér til grafar fylgt
(Jakob Thorarensen)
Elsku Helgi, Hildur og fjöl-
skyldur, megi góður Guð
styrkja ykkur á þessum erfiðu
tímum.
Elsku Geirlaug, blessuð sé
minning þín og munum við
ávallt geyma þig í hjörtum okk-
ar.
Lína og Svava
Guðmundsdætur.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HELGI GUÐMUNDSSON
húsgagnabólstrari
til heimilis Berjarima 32,
sem lést fimmtudaginn 6. desember, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn
21. desember klukkan 15.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hins látna er bent á Ljósið.
Ingimundur Helgason Elín Karitas Bjarnadóttir
Þröstur Helgason Lára Birna Þorsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
HRAFNHILDUR R. HALLDÓRSDÓTTIR
svæðisstjóri hjá Heilsugæslunni,
Birkibergi 26, Hafnarfirði,
lést miðvikudaginn 12. desember.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
28. desember klukkan 13.
Benedikt Gröndal
Ragnar Þór Hilmarsson
Brynjar Hilmarsson
Elsa Margrét Hilmarsdóttir Bjørnar Kristoffersen
Sigurður Andri Gröndal
Ágúst Már Gröndal Sigrún Kristjánsdóttir
Anna Guðný Gröndal
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, vinarhug og hlýju við
andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
GEIRLAUGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hafnarfirði.
Stuðningur ykkar í gegnum árin hefur verið ómetanlegur.
Helgi Vigfússon Elín Anna Hreinsdóttir
Hildur Vigfúsdóttir Jani Pitkäjärvi
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ERNA ÓSK GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis að Mávabraut 12a,
Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
9. desember. Útför fer fram frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn 20. desember klukkan 13.
Andrea Dögg Björnsdóttir Þórólfur Gíslason
Guðmundur Þór Jónsson
Hjörtfríður Jónsdóttir
Brynja Jónsdóttir Sigurbjörn Elíasson
Ólafur Örn Jónsson Þóranna Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og systir,
SÓLRÚN HELGA HJÁLMARSDÓTTIR,
Norðurgarði 11, Hvolsvelli,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þriðjudaginn 11. desember.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju þriðjudaginn 18. desember
klukkan 13. Jarðsett verður í Langholtskirkjugarði Meðallandi
fimmtudaginn 20. desember klukkan 14.
Guðrún Ásta Lárusdóttir Guðmundur Pálsson
Vilborg Linda Indriðadóttir Jón Þór Stefánsson
Helga Björg Dagbjartsdóttir Magnús Einarsson
Vigfús Jón Dagbjartsson
Guðlaug M. Dagbjartsdóttir Björn Bragi Sævarsson
Sveinbjörg M. Dagbjartsd.
Sævar Hjálmarsson Dagný Guðmundsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN INGIMAR MAGNÚSSON,
Höfðagrund 15, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Akranesi fimmtudaginn 6. desember.
Útför fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
18. desember klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, þeim sem vilja
minnast hans er bent á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Akranesi.
Ásthildur Theodórsdóttir
Ágúst G. Ingimarsson Guðríður Sigurjónsdóttir
Brynjar Ingimarsson Unnur Eygló Bjarnadóttir
Guðún Ingimarsdóttir Einar P. Bjargmundsson
barnabörn og barnabarnabarn
Okkar elskulega
MARGRÉT ÞÓRDÍS ÁMUNDADÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
laugardaginn 8. desember. Útförin fer fram
frá Seljakirkju miðvikudaginn 19. desember
klukkan 13.
Bestu þakkir til starfsfólk Seljahlíðar fyrir hlýlegt viðmót,
stuðning og góða umönnun.
Nanna María Guðmundsd. Hörður Adólfsson
Ingigerður H. Guðmundsd. Sveinn Sveinsson
Þórunn Svava Guðmundsd.
Gunnar Örn Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn