Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 Nú eru 30 ár frá því að Jak-ob F. Ásgeirsson, rithöf-undur og bókaútgefandi,sendi frá sér bókina Þjóð í hafti (endurútgefin 2008), sígilt verk um haftatímann hér á landi. Þar er lýst þjóðlífi sem laut forræði stjórnmála- og embættismanna. Allt var í opinberum böndum. Í bókinni um Jón Gunnarsson verkfræðing (1900-1973) segir Jakob sögu ein- staklings sem var of stór í sniðum fyrir þjóð í hafti. Höfundur nálgast viðfangsefnið nú frá sjónarhóli menntaðs atorku- manns sem vann þjóð sinni gagn með aga og kröfuhörku til sjálfs sín og annarra. Í samtali við Morgunblaðið um til- efni ævisögu Jóns Gunnarssonar sagði Jakob að fyrir nokkrum árum hefði hann skrifað litla bók um Jó- hannes Einarsson verkfræðing og framkvæmdastjóra hjá Loftleiðum og Cargolux. Jóhannes starfaði um tíma með Jóni Gunnarssyni sem verksmiðjustjóri hjá Coldwater í Bandaríkjunum. Jóhannes var ósátt- ur við ýmislegt í sögu Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna (SH) og hvatti fjölskyldu Jóns til að fá Jakob til að skrifa ævisögu Jóns. „Jóhannesi fannst ótækt að saga þessa mikla frumkvöðuls í atvinnu- sögu Íslendinga hefði ekki verið fest á blað. Ég vissi ekki mikið um Jón, en hreifst mjög af honum þegar ég fór að kynna mér heimildir,“ sagði Jakob. Allt var þetta vel ráðið. Ævisaga Jóns Gunnarssonar bregður ekki að- eins ljósi á framtak hans og afrek heldur einnig á þróun atvinnulífs þjóðarinnar inn og út á við áður en höftunum var aflétt. Jón braust til mennta í heimahög- um í Húnavatnssýslu, fékk inni í Samvinnuskólanum hjá Jónasi frá Hriflu og naut stuðnings hans og hvatningar til náms í Noregi og síð- an í Bandaríkjunum þar sem hann varð verkfræðingur frá MIT. „Heimildir um Jón á námsárunum eru af mjög skornum skammti. Eng- in bréf frá honum hafa varðveist og allir sem þekktu þá til hans eru látn- ir. Sjálfur var hann jafnan fáorður um aðstæður sínar og kjör fyrr á ævinni,“ segir Jakob (35) en tekst þó að bregða upp trúverðugri og lýs- andi mynd af umgörð náms hans frá því að hann fór til Noregs 22 ára gamall og útskrifaðist 30 ára frá MIT með meistaragráðu í bygging- arverkfræði. Til Íslands sneri hann að nýju árið 1931. Hugur Jóns stóð til mannvirkja- og vegagerðar. Hann hvatti til end- urbóta á steinsteyu hér á landi og hafði aðrar skoðanir á aðferðum við vegagerð en verkfræðingar mennt- aðir í Danmörku eða Þýskalandi. Þeim var í nöp við mann menntaðan í Bandaríkjunum. „Meistarapróf í verkfræði frá MIT, virtasta verkfræðiháskóla í því landi [Banda- ríkjunum] sem var í fararbroddi tækni og vísinda í heimninum, var með öðrum orðum ekki talið full- komlega gjaldgengt á Íslandi. Jón virðist hafa fengið inngöngu í Verk- fræðingafélagið á árunum 1936- 1937,“ segir Jakob (59). Vegna skorts á verkefnum á sér- sviði sínu greip Jón til þess árið 1933 að koma á fót hænsnabúi á jörð sem hann keypti í Selási í Árbæ. Rak hann það til 1935. Fyrir utan tortryggni vegna menntunar Jóns sýndu forystumenn í Verkfræðingafélaginu honum fá- læti vegna dálætis Jónasar frá Hriflu á honum. Samstjórn Fram- sóknarflokks og Alþýðuflokks var mynduð 1934 og stjórnaði hún meðal annars Síldarverksmiðjum ríkisins (SR) á Siglufirði, stærsta fyrirtæki landsins á þessum árum. Árið 1935 réð meirihluti stjórnar SR Jón Gunnarsson, 35 ára gamlan, sem framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Þar með hófst farsæll ferill hans sem forystumanns við nýsköpun í ís- lenskum sjávarútvegi. Hér skal engu spáð um hverju Jón hefði fengið áorkað hefði hann feng- ið tækifæri til að láta að sér kveða við vegagerð og byggingarfram- kvæmdir. Hitt blasir við af lestri ævisögu hans að það var mikil gæfa fyrir sjávarútveginn og þar með þjóðarbúið allt að Jón fór til starfa fyrst hjá SR og síðan SH. Sumarið 1944 sagði Jón upp starfi sínu sem framkvæmdastjóri SR. Frá ársbyrjun 1945 var hann ráðinn af Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna (stofnuð 1942) til að opna skrifstofu í New York til að vinna að sölu á frystum fiski frá Íslandi í Bandaríkj- unum. Eftir að hann tók þetta verk- efni að sér vann Jón að framgangi þess með einstæðum árangri þar til hann tilkynnti uppsögn sína í júní 1962. Þá hafði hann ekki aðeins unn- ið stórvirki í Bandaríkjunum heldur einnig búið í haginn fyrir SH í Bret- landi og mótað áform um landvinn- inga í Hollandi til sóknar á megin- landi Evrópu. Frásögn Jakobs er hófstillt og upplýsandi. Hann gengur aldrei lengra en heimildir leyfa. Lesandinn skynjar og skilur að söguhetjan nýt- ur ekki alltaf sannmælis. Það hefur þurft langlundargeð og einbeittan vilja til að halda sínu striki hjá SR þrátt fyrir pólitísku glímuna í stjórn félagsins. Í höndum Jakobs verður saga Jóns á þessum árum jafnframt saga um hve litlu munaði að stjórnmáladeilur eða ómálefnaleg pólitísk afskipti yrðu SR beinlínis að falli. Jón skapaði sér nauðsynlegt svig- rúm í Bandaríkjunum og naut fulls trausts forráðamanna SH þegar hann markvisst lagði grunn að um- boðsmannakerfinu sem varð undir- staða markaðsárangurs Coldwater og reisti síðan fiskréttaverksmiðju félagsins. Á meðan þröngt var í búi hvíldi allur þunginn á Jóni. „Áður hafði stjórn Coldwater verið breytt úr þriggja manna ólaunaðri stjórn Jóns, eiginkonu hans og lögfræðings Coldwater, í fjögurra manna laun- aða stjórn sem ári síðar varð að átta manna stjórn og loks að tólf manna hálaunaðri bitlingastjórn,“ segir Jakob (342). Jakob F. Ásgeirsson hefur góð tök á viðfangsefninu og bregður upp skýrri mynd af Jóni, Línu, konu hans, og fjölskyldu sem bjó í Banda- ríkjunum og Bretlandi áður en hún settist að í sérinnfluttu húsi, Hrauni við Álftanesveg. Þar varð Jón bráð- kvaddur árið 1973. Bókin er vel úr garði gerð, hún er ríkulega myndskreytt á góðum pappír. Megintexta fylgja tilvísanir í heimildir, skrá yfir heimildir, myndaskrá og mannanafnaskrá. Jakob F. Ásgeirsson skráði fyrir 34 árum ævisögu Alfreðs Elíassonar og lýsti strandhöggi Loftleiðmanna í Bandaríkjunum sem stundum hafi verið kallað „stærsta ævintýrið á Ís- landi“. Í lok bókarinnar um Jón Gunnarsson segir Jakob: „Það verður […] seint sagt að ævintýraljómi leiki um framleiðslu og sölu á frystum fiski. En í þjóð- hagslegum skilningi skipti Cold- water-ævintýri Jóns Gunnarssonar, og útrás þeirra SH-manna í Evrópu- löndum, mun meira máli en Loft- leiðaævintýrið.“ (372) Þessari merku sögu eru gerð góð skil í bókinni um Jón Gunnarsson. Of stór fyrir þjóð í hafti Morgunblaðið/RAX Ævisaga Jón Gunnarsson bbbbb Eftir Jakob F. Ásgeirsson. Ugla, 2018. 400 bls. innb. BJÖRN BJARNASON BÆKUR Atorka Jakob Ásgeirs- son gerir merkri sögu Jóns Gunnarssonar góð skil að mati rýnis. Elly (Stóra sviðið) Lau 15/12 kl. 20:00 182. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas. Lau 12/1 kl. 20:00 188. s Sun 16/12 kl. 20:00 183. s Fös 4/1 kl. 20:00 186. s Sun 13/1 kl. 20:00 189. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 187. s Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Sun 30/12 kl. 20:00 25. s Fös 4/1 kl. 20:00 26. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Fös 4/1 kl. 20:00 aukas. Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 aukas. Lau 19/1 kl. 20:00 20. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Sun 6/1 kl. 20:00 15. s Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Sun 16/12 kl. 20:00 Lokas. Allra síðasta sýning! Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 15/12 kl. 13:00 7. s Lau 22/12 kl. 13:00 9. s Sun 16/12 kl. 13:00 8. s Lau 22/12 kl. 15:00 aukas. Aðeins sýnt á aðventunni. Ríkharður III (Stóra sviðið) Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s Ég, tveggja stafa heimsveldi Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Lífið er ekki nógu ávanabindandi BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fim 20/12 kl. 19:30 Fors. Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 21/12 kl. 19:30 Fors. Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Fly Me To The Moon (Kassinn) Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 16/3 kl. 15:00 15.sýn Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Insomnia (Kassinn) Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Sun 6/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00 Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.