Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 15.12.2018, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2018 ICQC 2018-20 KORRIDOR Steypudýr fleiri tegundir Verð frá 6.990,- IITTALA KAASA Kertastjaki 115mm Verð frá 12.700,- KÄHLER NOBILI Kramarhús f/sprittkerti Verð frá 4.190,- Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is KAY BOJESEN Jólasveinka Verð 11.990,- stk. LUKKUTRÖLL Margar gerðir Verð frá 3.890,- KAY BOJESEN Söngfugl Verð frá 10.990,- KARTELL TAKE Borðlampi – margir litir Verð 12.900,- IITTALA Toikka PUFF- BALL CRANBERRY 7x5 cm Verð 21.900,- JUST RIGHT STOFF Kertastjaki Verð frá 5.100,- stk. MR.WATTSON LED lampi Verð 16.990,- KARTELL BOURGIE Lampi – fleiri litir Verð frá 39.900,- Jólagjöfin fæst hjá okkur TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég er nýstiginn upp úrdómnefndarstörfum fyrirKraumssjóðinn og því bú- inn að liggja yfir nálega allri ís- lenskri tónlistarútgáfu þessa árs. Því er oft fleygt að virknin í ís- lenskri tónlist sé mikil og góð og ég get barasta staðfest það. Þetta er engin rómantík eða að við séum að berja okkur á brjóst með þetta. Hér er einfaldlega á ferð ísköld staðreynd. Af þeim tæplega 350 útgáfum sem við rótuðum í voru nokkrar sem falla undir „ambient“-geirann, tónlistarform sem hefur verið þýtt sem sveim upp á hið ylhýra, þó að sú þýðing hafi aldrei náð almennilegri fót- festu. Tónlistin er ósungin, naum- hyggjuleg og bundin í flæði sem þú tekur vart eftir – og það er líka hið raunverulega inntak stefnunnar. Tónlistin á að vera, þú átt svona varla að taka eftir henni, en samt er henni ætlað að mynda stemningu og hafa áhrif. Snúið! Þessi stefna á sér langa sögu, nær aftur til píanótilrauna Satie, en í dægurtónlistarlegum skilningi er Brian Eno þekktasti fulltrúinn. Tónlistin hefur svo tekið á sig ýmsar myndir, átt skjól í ýmsum löndum og hún er furðu seig, plötur koma út stöð- ugt á þessu formi, að einhverju leyti vegna lítils tilkostnaðar við Umlykjandi sveim Hverfist Hér getur að líta umslög þriggja platna með íslensku „ambient“ listamönnunum LyteLyfe, Hyldýpi og Feather River Canyon. framleiðslu og um leið þarf ekki að vesenast með argaþrasandi hljómsveitarmeðlimi. Tölvubún- aður og notalegt svefnherbergi nægir. Ísland skilar inn sínum skammti ár hvert, þó lágt fari. Nú gefa menn út efni á hinni prýði- legu Bandcamp-síðu og hér verða þrjár plötur gerðar að umtalsefni. Ég kann engin skil á því hverjir gera þessa tónlist, enda fylgir dulúð og nafnleysi einatt þessari starfsemi. Og er það á einhvern hátt hæfandi. Hyldýpi er eins manns verk- efni Herberts Más Sigmunds- sonar, sem fer í engar felur með hver hann er og er meira að segja með ljósmynd af sér á Bandcamp-setrinu sínu. Óvana- legt. Samnefnd plata, Hyldýpi, kom út í maí á þessu ári og inni- heldur tvö þrjátíu mínútna verk sem heita einfaldlega „I“ og „II“. Þetta er sígild „ambient“, minnir á það sem Eno var að gera á átt- unda á áratugnum og jafnvel tappar eins og Klauz Schulze og Harold Budd. Heilmikið efni hef- ur komið frá Herberti á síðustu tveimur árum, hann liggur nokk- uð nálægt nýaldarpælingum (plöt- ur heita „Yfirvegun“, „Friður“ o.s.frv.) en áhrifin eru góð og hugnærandi. Feather River Ca- nyon er á svipuðu róli, og jafnvel strípaðra. „Tableux of an Ageless World“ er 25 mínútna verk sem hreyfist varla, er bara hljóð sem fyllir upp í herbergið og rétt að- eins nostrað við það eftir því sem því vindur fram. Áhrifaríkt. Lista- maðurinn LyteLyfe á bestu plöt- una af þessum þremur. Hann er búinn að dæla út efni síðastliðna tólf mánuði, af margvíslegum toga, en Journey To The Open Seas er hreint og beint „ambi- ent“-verk. Eins og nafnið gefur til kynna er þetta nokkurs konar heiðrun til þýskra meistara átt- unda áratugarins, Popol Vuh og fleiri, sem báru hippíska strauma með sér. Platan er æðisleg, með litlum hljóðbútum sem bera með sér nöfn eins og „Flying ship“ og „Floating Isles“. Orgelleikur er nokkuð áberandi, sem gefur plöt- unni himneskan blæ á köflum. Allar þessar plötur streyma nú á Bandcamp, eins og áður seg- ir. » Tónlistin á að vera,þú átt svona varla að taka eftir henni, en samt er henni ætlað að mynda stemningu og hafa áhrif. Hér verður gerð grein fyrir þremur íslenskum listamönnum sem gera út í hinum svofellda „ambient“-geira. Lista- mennirnir eru Lyte- Lyfe, Hyldýpi og Feather River Canyon og gáfu allir út plötu á þessu ári. Skrímslin í skápn- um nefnist sýning á verkum fjöllista- konunnar Skaða Þórðardóttur sem opnuð verður í Gall- eríi 78 í Suðurgötu 3 í dag kl. 16. „Til sýnis verða málverk og teikningar unnin með blandaðri tækni. Verkin á sýn- ingunni eiga það sameiginlegt að vera gerð þegar Skaði var í skápnum eða nýkomin út og var að átta sig á því hver hún væri í raun og veru. Skaði hefur haldið einkasýningar og tek- ið þátt í samsýningum bæði hér á landi og erlendis,“ segir í tilkynn- ingu. Þar kemur fram að Skaði hafi út- skrifast af list- námsbraut Fjöl- brautaskólans í Breiðholti 2011 og lokið BA-námi í myndlist frá Kon- unglega listahá- skólanum í Haag í Hollandi 2014. Um verk sín á sýning- unni segir Skaði: „Fyrir mér eiga all- ar myndirnar sína eigin tilveru og næstum sín eigin líf, þar sem allar þær fígúrur sem prýða myndirnar hafa sprottið fram af tilviljun frek- ar en af ásettu ráði. Þegar ég vinn myndirnar þá er ég í samræðum eða rifrildi við hina duldu veröld undirvitundar.“ Sýningin stendur til 2. febrúar. Skrímslin í skápnum í Galleríi 78 Vera Ein mynda Skaða á sýningunni. Vox Populi heldur jólatónleika í Grafarvogskirkju í dag kl. 16 undir yfirskriftinni JólaVox. „JólaVox er nú haldið í fjórða sinn og hefur notið mik- illa vinsælda. Voxið fagnar um þessar mundir sínu 10. starfsári og leggur því sérstaklega mikinn metnað í jóla- tónleikana að þessu sinni,“ segir í tilkynningu. Þar kem- ur fram að Kjartan Valdemarsson píanóleikari hafi út- sett alla tónlistina á tónleikunum ásamt því að flytja hana með kórnum. Auk hans koma fram strengjasveit og hrynband. Konsertmeistari er Matthías Stefánsson. Sérstakur gestur í ár er Elísabet Ormslev söngkona. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson. Að tónleikum loknum er boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur. Jólatónleikar Vox Populi haldnir í dag Kjartan Valdemarsson Klais-orgel Hall- grímskirkju var vígt 13. desem- ber 1992 og hef- ur sú hefð skap- ast að halda jólatónleika með orgelinu kring- um vígsluafmæl- isdag orgelsins. Í ár er boðið upp á jólaorgeltónleika á morgun, sunnudag, kl. 17 með Láru Bryndísi Eggertsdóttur, org- anista Hjallakirkju í Kópavogi, en hún er nýflutt aftur heim til Íslands eftir 10 ára dvöl í Danmörku við nám og störf. „Lára Bryndís gjörþekkir Klais- orgelið eftir að hafa stundað þar nám og starfað sem afleysinga- organisti en hún útskrifaðist með hæstu einkunn þegar hún lauk ein- leikaraprófi frá Tónskóla þjóð- kirkjunnar 2002, þar sem Hörður Áskelsson, organisti kirkjunnar, var kennari hennar. Hún lauk meistaraprófi í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Árósum vor- ið 2014, þar sem aðalkennarar hennar voru Ulrik Spang-Hanssen og Lars Colding Wolf. Undanfarin ár hefur hún starfað sem organisti við Sønderbro-kirkju í Horsens og semballeikari hjá barokksveitinni BaroqueAros í Árósum, en hóf störf sem organisti Hjallakirkju sl. haust,“ segir í tilkynningu. Á efnisskrá tónleikanna eru verk tengd aðventu og jólum eftir J.S. Bach, Daquien og Brahms. Miða- sala er við innganginn og á midi.is. Lára Bryndís leikur á Klais-orgelið Í tilefni af því að 50 ár eru liðin frá útkomu Kristnihalds undir Jökli eftir Halldór Laxness og 20 ár frá láti skáldsins munu sex karlar og ein kona lesa valda texta úr Kristni- haldinu í Seltjarnarneskirkju í dag milli kl. 14 og 16. „Þessir karlar hafa tekið þátt í kaffiklúbbi sem hittist í safnaðar- heimili kirkjunnar tvisvar sinnum í viku. Þetta eru karlar sem eru 67 ára og eldri. Þeir hafa verið mjög áhugasamir um þetta verkefni og hafa æft stíft síðustu vikurnar, hist og lesið upphátt þennan texta Lax- ness. Þeir báðu eina konu að vera með sér í upplestrinum sem les texta Hnallþóru. Hún hefur starfað með leiklistarfélaginu á Nesinu ásamt fleirum í þessum hópi,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Grétar G. Guðmundsson, sem verið hefur virkur í starfi leiklistar- félagsins á Nesinu, hafi stjórnað æf- ingum hópsins. Aðgangur er ókeypis. Í lestrar- hléi verður boðið upp á stríðstertur í safnaðarheimilinu að hætti Hnall- þóru Lesa upp úr Kristnihaldi undir Jökli Halldór Laxness Edda Mac og Hrafnhildur Giss- urardóttir leiða síðustu fjöl- skyldustund ársins í Menningarhús- unum í Kópavogi í formi listsmiðju í Gerðarsafni í dag, laugardag, milli kl. 13 og 15. Að þessu sinni verða jólamerkimiðar viðfangsefnið en kartöflustimplar verða notaðir og miðarnir því í takt við umhverfis- væna tíma. Aðgangur er að vanda ókeypis og allir velkomnir. Síðasta fjölskyldu- stund ársins í Gerðarsafni í dag Lára Bryndís Eggertsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.