Morgunblaðið - 20.12.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
Björn Bjarnason skrifar umKlausturmál sem snýst um
ósmekkleg og á köflum ógeðfelld
ummæli sem féllu í einkasamtali
nokkurra þingmanna en voru tekin
upp af nærstöddum
einstaklingi. Björn
bendir á að Ragnar
Aðalsteinsson, lög-
maður þess sem hler-
aði, hafi verið spurð-
ur að því hvort að
ekki sé óheimilt að
taka upp samtöl fólks
án vitundar þess.
Ragnar hafi svar-að: „Jú almennt
séð er það. En svo eru
alltaf undantekningar
frá öllum reglum. Og
þarna er um mjög sér-
stakar aðstæður að ræða. Þetta eru
lýðkjörnir þingmenn sem eru að tala
saman og þeir tala með þeim hætti
að það er spurning hvort almenn-
ingur hafi ekki átt rétt á því að vita
hvernig þeir töluðu, og um hvað þeir
töluðu. Og jafnvel spurning hvort
það hafi verið skylt, þeim sem voru á
veitingastaðnum og heyrðu þetta, að
upplýsa um það til fjölmiðla og láta
þá fjölmiðla um að taka málið áfram,
eða láta það niður falla.“
Björn bendir þá meðal annars áað Ragnar hafi „harðlega
gagnrýnt hleranir á símum stjórn-
málamanna sem ákveðnar voru af
dómurum. Nú telur hann réttlætan-
legt ef ekki beinlínis skylt að gestir
hleri „lýðkjörna þingmenn“ á veit-
ingastað“.
Annað umhugsunarvert er að sásem hleraði berst gegn því að
sýndar verði myndir úr eftirlits-
myndavélum, sem kunna að setja at-
burðarásina í nýtt samhengi.
Hvers vegna er hlerarinn á mótifyllri mynd af atburðarásinni?
Björn
Bjarnason
Hvað mælir
gegn fyllri mynd?
STAKSTEINAR
Ragnar
Aðalsteinsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hjónavígslur eru mun fleiri yfir sum-
armánuðina heldur en að hausti og
vetri. Kirkjan nýtur mikilla vinsælda
til sumarbúðkaupa, en að vetri hefur
giftingum hjá sýslumanni fjölgað.
Samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Ís-
lands er ágústmánuður stærsti ein-
staki mánuðurinn í þessu tilliti en alls
stofnuðu 714 einstaklingar til hjú-
skapar í ágúst í sumar. Júlí og júní
koma næstir, en þá stigu 586 og 501
einstaklingur þessi skref. Svipaða
sögu er að segja frá síðasta ári, en þá
var júlí langvinsælastur er 802 ein-
staklingar giftu sig. Í ágúst voru þeir
532 og 500 í júní.
Fæstir nota hins vegar tækifærið í
janúar og febrúar til að ganga í hjú-
skap, en í ár voru það 148 og 168 ein-
staklingar. Í fyrra var minnst að gera
í þessum efnum í febrúarmánuði er
112 stofnuðu til hjúskapar.
Kirkjan með 55-60%
Í blaðinu í gær var greint frá því að
í október og nóvember síðastliðnum
hefðu fleiri stigið þessi stóru skref
hjá sýslumanni heldur en hjá presti.
Yfir sumarmánuðina er þessu þver-
öfugt farið og af þeim 714 ein-
staklingum sem stofnuðu til hjúskap-
ar í ágúst í sumar leituðu 430 eða
rúmlega 60% til þjóðkirkju. Í júní,
júlí og september var þjóðkirkjan
með 55-57% af öllum hjónavígslum. Í
janúar og nóvember var þetta hlut-
fall 31 og 33%.
Í janúar og nóvember leitaði hins
vegar helmingur þeirra sem stofnuðu
til hjúskapar til sýslumanns, en það
hlutfall er lægst yfir sumarmánuð-
ina, 20-26%. Hlutfall þeirra sem gifta
sig hjá skráðu trúfélagi utan þjóð-
kirkju var hæst í maí, 20,6%, en það
var tæplega 11% af heildinni í janúar
og febrúar. aij@mbl.is
Gifta sig frekar
í kirkju á sumrin
Júlí og ágúst vinsælustu mánuðirnir
Hjónavígslur 2018
Hlutfall eftir mánuðum
60%
50%
40%
30%
20%
10%
janúar nóvember
Hjónavígsla í þjóðkirkju
Hjónavígsla hjá sýslumanni
Heimild: Þjóðskrá Íslands
Ýmsir góðir gestir hafa undanfarið
verið í fæði og húsnæði í Sæheimum í
Vestmannaeyjum. Margrét Lilja
Magnúsdóttir, safnstjóri, segir að
vonandi takist að sleppa sem flestum
þeirra fyrir jól, það sé gestunum fyrir
bestu. Síðustu vikur hafa meðal ann-
ars dvalið haftyrðlar, fýll, starri,
teista og langvía í þessari björgunar-
miðstöð fyrir fugla, auk nokkurra
lunda sem þar verða áfram.
Nýlega var komið með tvo haf-
tyrðla í Sæheima, en um leið og búið
var að hressa þá við var þeim sleppt. Í
fyrrravetur var komið þangað með
nokkurn fjölda haftyrðla. Senditæki
var á einum þeirra og hafði hann verið
merktur á Svalbarða. Haftyrðlar eru
litlir fuglar og í hvassviðri fjúka þeir
stundum upp á land og eiga þá erfitt
með að komast til sjávar. Margrét á
allt eins von á að fá fleiri haftyrðla í
Sæheima á næstu vikum.
Hún nefnir að nú sé teista í Sæ-
heimum, en vonast til að geta sleppt
henni fyrir jól.
Vanbúnir lundar
Þá eru í Sæheimum ellefu lundar,
en komið var með flesta þeirra sem
pysjur. Þeir áttu flestir erfittt upp-
dráttar og voru ýmist slasaðir, blind-
ir, olíublautir eða of smávaxnir til að
takast á við veturinn fyrir sunnan
Grænland, þar sem talið er að stór
hluti stofnsins haldi sig. Þessir fuglar
verða væntanlega ævilangt meðal
safngripa í Sæheimum. aij@mbl.is
Vill losna við flesta gestina fyrir jól
Fuglabjörgun í Sæheimum í Eyjum
Ljósmynd/Margrét Lilja
Öruggur Haftyrðill í Sæheimum.