Morgunblaðið - 20.12.2018, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 20.12.2018, Blaðsíða 70
70 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018 Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is Hálsmen 10.900,- Hálsmen 8.900,- Hálsmen 8.900,- Hálsmen 9.900,- Hringur 8.900,- Hringur 8.900,- Hringur 8.900,- Eyrnalokkar 5.500,- Eyrnalokkar 5.500,- Íslensk hönnun Fallegt ævintýri Undir hrauni bbbbn Eftir Finnboga Hermannsson Sæmundur, 2018. 124 bls. innb. Finnbogi Hermannsson vefur marga þræði saman í heimildaskáld- sögunni Undir hrauni svo úr verður fallegt ævintýri. Stríð fyrir strönd- um, skipbrots- menn í fram- andi landi, undarleg örlög og tengingar við þjóðþekkt fólk sem setti svip á samtíð sína. Reykja- víkurstúlkan varð ástfangin af hermanni, en aðstæður hamla að samband þeirra þróist eins og þráin kallaði. Væntingar og von- brigði. Sagan er lipurlega skrifuð og upp er dregin trúverðug mynd af um- hverfi og mannlífi stríðsáranna á Ís- landi. Læsileg og spennandi Ærumissir bbbbn Eftir Davíð Loga Sigurðsson. Sögur, 2018. 232 nls. innb. Átakafýsn eða einlægur umbóta- vilji? Fólk greinir enn í dag á um hvert hafi verið ætl- unarverk Jón- asar frá Hriflu sem dóms- málaráðherra á árunum 1927- 1932. Í bókinni Ærumissir rifj- ar Davíð Logi Sigurðsson upp þekkt mál frá Jónasartímanum þegar Ein- ar M. Jónsson sýslumaður á Pat- reksfirði var tekinn niður með mikl- um látum, sakir meintra vanhalda í embættisfærslu. Ráðherrann sýndi mikla hörku og sást ekki alltaf fyrir. Heimildavinnan er góð í þessari læsilegu og spennandi bók, sem heldur athygli lesandans út í gegn. Ýmis eftirminnileg verkefni Haugseldur bbbnn Eftir Pétur Stefánsson. Elba, 2018. 458 bls. innb. Haugseldur – veraldarsaga verk- fræðings eru æviminningar Péturs Stefánssonar. Höfundurinn segir meðal annars frá æsku sinni austur á landi og fjöl- skylduhögum, námsárum í Þýska- landi og ýmsum eftirminnilegum verkefnum á starfsferli sínum og til- tekur þar hreinsun Vestmannaeyja- kaupstaðar eftir gos, gerð nýs flug- vallar á Egilsstöðum og endurbyggingu forsetaseturs- ins á Bessa- stöðum. Einnig má nefna byggingu virkjana, Vals- heimilisins að Hlíðarenda. Raunar mesti veigurinn í frá- sögnum af þessum stórframkvæmdum, í ljóm- andi góðri bók sem hefði þolað ydd- aðri stíl og framsetningu. Saltbragð á hverri síðu Níu líf bbbmn Eftir Sigmund Erni Rúnarsson. Bjartur, 2018. 312 bls. innb. Saga ævintýramannsins úr Vest- mannaeyjum Gísla Steingrímssonar, Níu líf, er alvöru. Saltbragð er á hverri síðu þar sem Gísli fer með lesendum sínum um kletta og út- eyjar og siglir um víðfeðmt verald- arhafið. Fangelsaður á Filipps- eyjum, kemst í hann krappan í Köben, gerist landnemi í Ástralíu, flytur heim og flýr Eyjagosið. Og þó er lífið ekki bara dans á rósum; bróðurmissir var mikið áfall og dag- arnir í barna- skólanum vondir og sárir. Sögumaður dregur ekkert undan og er hreinskilinn, án þess að vera með vol og víl. Lærdómsrík saga og yndisl- estur. Sig- mundur Ernir Rúnarsson vinnur vel úr skemmtilegri frásögn; spinnur og stílfærir þannig að Gísli birtist ljós- lifandi fyrir lesendum. Þeim til hægðarauka hefði mátt auðkenna betur til dæmis hvaða ár tilteknir at- burðir sem sagt er frá gerðust – þannig að einhver tímalína og til- finning myndaðist. Eins að geta þess hvar Gísli er í dag, en sögulokin á annars góðri bók eru frekar enda- slepp. Ævisögur og átök Yfirlit yfir nýútkomnar ævisögur Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ljósmynd/Bjarni Júlíusson Saga verkfræðings Í Haugseldi, sögu Péturs Stefánssonar er meðal annars birt mynd af því er varnarstífla við Þingvallavatn brast 17. júní árið 1959. Fjölskyldusaga, ættarsaga,spennusaga, draugasaga.Þessar lýsingar og ef til villeinhverjar fleiri eiga við bókina Læknishúsið eftir Bjarna M. Bjarnason. Þar segir frá rithöfundinum Steinari sem flytur aftur í Læknishúsið á Eyrarbakka ásamt eiginkonu sinni sem er ólétt að tvíburum en áður hafði hann búið þar í æsku hjá öldruðum frændum sín- um; öðrum blindum en hin- um mállausum. Eiginkona Steinars er ráðherra í ríkisstjórn Íslands á árunum eftir hrun þegar andrúmsloftið í samfélag- inu er eldfimt. Spennan í samfélag- inu, hótanir í garð ráðherra og dular- fullir atburðir sem tengjast húsinu blandast saman á áhugaverðan hátt. Sögusviðið er ekki fjarri Bjarna en hann bjó í húsinu sem drengur og síð- ar með eiginkonu sinni, sem var ráð- herra, á árunum eftir hrun. Steinar rifjar upp þegar hann bjó með frændum sínum í Læknishúsinu, þar sem undarlegir atburðir höfðu áð- ur átt sér stað. Ýmis atriði, stór og smá, sem fennt hafði yfir rifjast upp þegar Steinar býr sig undir hlutverk sitt sem tvíburapabba. Eftir að Stein- ar og eiginkona hans Magdalena setj- ast að í húsinu fer atburðarás af stað sem tengist látnum íbúum hússins, átökum í samtímanum og hælisleit- anda sem reynir að búa nýfæddu barni sínu öruggt skjól. Aðalsöguhetjurnar eru hjónin og Sigrún ráðherrabílstjóri. Þegar líður á söguna fer hlutverk bílstjórans að verða stöðugt viðameira þar sem hún verður nokkurs kon- ar sálfræðingur ráðherrans. Steinar er áhugaverður karakter en hann virkar oft hálf grun- eða kærulaus um hið slæma í náunganum, sem kemur honum næstum því í koll. Auk þess má segja að sjálft Læknishúsið sé ein af persónum sögunnar enda mætti segja að án þess væri engin saga og þá væri væntanlega auglýs- ing hér á þessum stað í blaðinu. Það er erfitt að lýsa framvindu sög- unnar nánar án þess að missa frá sér eitthvað sem gæti eyðilagt spennuna og dulúðina fyrir þeim sem eiga eftir að lesa. Þó er hægt að mæla með því að sagan sé lesin í gömlu húsi þar sem andi hinna liðnu er skammt undan. Þannig má segja að lesandinn skapi sitt eigið Læknishús. Morgunblaðið/Eggert Bjarni Bjarnason „Fjölskyldusaga, ættarsaga, spennusaga, draugasaga.“ Skáldsaga Læknishúsið bbbmn Eftir Bjarna Bjarnason. Bjartur, 2018. Innb., 159 bls. JÓHANN ÓLAFSSON BÆKUR Spenna og dulúð Tæpum 12 milljónum króna var út- hlutað í 31 styrk til þýðinga bóka á íslensku, í seinni úthlutun ársins, segir í tilkynningu frá Miðstöð ís- lenskra bókmennta. Á árinu var alls úthlutað 20 milljónum til 50 þýðingaverkefna. Fyrir þessa seinni úthlutun bárust alls 56 um- sóknir og sótt var um rúmar 47 milljónir króna. Fjölgun umsókna var jafnt í flokki skáldverka og myndríkra barna- og ungmenna- bóka. Meðal verka sem hlutu þýð- ingastyrki nú eru Great Expecta- tions eftir Charles Dickens í þýð- ingu Jóns St. Kristjánssonar; Smásögur heimsins IV – Afríka, ýmsir þýðendur; Emra’a enda nok- tat el sifr eftir Nawal El Saadawi í þýðingu Maríu Ránar Guðjóns- dóttur; Qaanaaq eftir Mo Malö í þýðingu Friðriks Rafnssonar og Lacci eftir Domenico Starnone í þýðingu Höllu Kjartansdóttur. Nú voru í annað sinn veittir styrkir til þýddra, vandaðra, mynd- ríkra barna- og ungmennabóka. Meðal styrktra verka eru The Polar Bear eftir Jenni Desmond í þýðingu Maríu S. Gunnarsdóttur, The Wiz- ards of Once. Twice magic eftir Cressida Cowell í þýðingu Jóns St. Kristjánssonar, og Mein Lotta- Leben eftir Alice Pantermüller í þýðingu Herdísar M. Hübner. Tólf milljónum úthlutað í styrki vegna þýðinga bóka Cressida Cowell Charles Dickens
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.