Morgunblaðið - 20.12.2018, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 20.12.2018, Blaðsíða 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018 Bryndís Björgvinsdóttir er höf- undur texta bókarinnar. Hún er þjóðfræðingur að mennt og kennari við Listaháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Hún hlaut íslensku bók- menntaverðlaunin 2015. Svala Ragnarsdóttir tók mynd- irnar í bók- inni. Hún býr og starfar í London þar sem hún hef- ur unnið til verðlauna fyr- ir ljósmyndir af bygginga- framkvæmdum í íslenskri náttúru. Tilvísunum er sleppt í köflunum sem hér birtast. Álfaklettur við Merkurgötu Við Merkurgötu er stór álfaklett- ur eða álfasteinn sem við fyrstu sýn virðist standa úti á miðjum akvegi. Vegurinn sveigist hins vegar og þrengist við steininn áður en hann breiðir úr sér aftur. Sagan segir að til hafi staðið að brjóta klettinn nið- ur árið 1937 vegna framkvæmda en að það hafi verið hægara sagt en gert þar sem í honum bjó hulduvera sem hugsaði sér ekki til hreyfings. Járnkarl sem notaður var til verks- ins festist í klettinum og „mikil ógæfa helltist yfir vinnumenn þá sem áttu að fjarlægja hann“. Járn- karlinn situr enn á sínum stað og kletturinn nýtur nú hverfisverndar sökum „fegurðar og mikilvægis“. Á sjöunda áratugnum var rætt að nýju um staðsetningu álfaklettsins. Þá stóð til að malbika Merkurgötu og „kom upp sú umræða að taka ætti eitthvað af þessum álfakletti til að breikka götuna“, segir Anna Vala Arnardóttir, íbúi við götuna. Sú umræða fór fram þegar Anna Vala var barn að aldri og tók hún þá þátt í að stofna Álfaklettafélag með öðrum börnum úr hverfinu. Þau héldu fundi þar sem mótmæla- bréf voru rituð og tombóla haldin svo kaupa mætti málningu á kröfu- spjöld. Þótt félagið hafi nú lagt upp laupana segist Anna Vala enn bera mikla virðingu fyrir steininum. Hafnarfjarðarbær virðist deila skoðun hennar því steininn má nú finna inni á deiliskipulagi en sam- kvæmt lögum um skipulagsmál er hægt að vernda menningarsögulega staði vegna menningarlegs gildis. Slík svæði eru skilgreind sem hverf- isvernduð svæði án þess að um lög- formlega friðun sé að ræða. Í dag nýtur steinninn slíkrar verndar en þó má nefna að eitthvað hefur eðli klettsins vafist fyrir höfundum skipulagsins því þar er hann kall- aður „álfaklettur“ – innan gæsa- lappa. Um klettinn við Merkurgötu gild- ir sama regla og um aðra íverustaði álfa og huldufólks; honum má ekki raska á nokkurn hátt. Fjölmargar sagnir eru til af hulduverum búsett- um í steinum og klettum sem segja frá afdrifum þeirra manna sem standa að framkvæmdum við íveru- staði þeirra með ólukkulegum ár- angri: endurtekin slys verða á fólki og undarlegar bilanir eða skemmdir gera vart við sig í tækjabúnaði. Stundum er um að ræða vegafram- kvæmdir en húsbyggingar og aðrar smærri framkvæmdir koma einnig við sögu. Í öllum þessum tilvikum eiga breytingar sér stað á fyrra skipulagi eða fyrra samkomulagi álfa og manna. Að Merkurgötu ber járnkarlinn í steininum vitni um til- raunir mannsins til breytinga á um- hverfi sínu og sögnin sem fylgir minnir ekki aðeins á bannhelgina heldur einnig ógæfuna sem á það til að hellast yfir menn sem virða hana að vettugi. Hamarinn I Ef litið er til gamalla og nýrra sagna frá Hamrinum í Hafnarfirði er þetta helsta kennileiti bæjarins hvorki meira né minna en álfahöll. Nágrannar Hamarsins hafa talið sig sjá þar hávaxna og glæsilega hvít- klædda huldukonu eða jafnvel: álfa- drottningu. Stundum fylgir sögunni að hún skarti fögru silfurbelti. Mið- illinn Margrét Thorlacius á Öxna- felli bjó um tíma við Hamarinn en hún sagðist hafa flutt í Hafnarfjörð og við Hamarinn eftir að hafa feng- ið vitrun. Lýsingar hennar á íbúum Hamarsins eru þó aðeins lág- stemmdari en margra annarra: „Ég sá inn í þessa hæð og klettinn, Hamarinn, eins og hann er nefndur. Álfaborgin er í klettinum – þar er öllu heldur huldufólk. Það er alveg eins og við.“ En hvort sem Ham- arinn hýsir álfahöll og drottningu eða fábrotnari huldufólksbyggð þá er engum blöðum um það að fletta að Hamarinn er þekktasta álfa- byggð Hafnarfjarðar og að flestar álfasagnir bæjarins tengjast hon- um. Halldóra Pálmarsdóttir ólst upp að Brekkugötu 7 undir Hamrinum. Hún varð vör við ferðir álfadrottn- ingarinnar í Hamrinum þegar hún var 11 ára að aldri, á níunda áratug síðustu aldar. „Tilfinningin var næstum því ólýsanleg,“ segir Hall- dóra um þessi óvæntu kynni: „Það er eins og tíminn hafi hægt á sér og ég lít upp, sný höfðinu hægt og rólega til hægri og horfi fram í skæra birtuna sem myndast hefur í forstofuherberginu. Hún er hávaxin og glæsileg. Klæðist síðum hvítum kjól og með grátt liðað hár niður fyrir axlir. Hún hefur langar og fallegar hendur, grannt andlit. Beinaber. Hún gengur tignarlega um forstofuna og inn í eldhúsið. Hún lítur ekki á mig eitt augnablik. … Ég hef heyrt talað um hana og veit að hún býr í Hamrinum. Hvaða erindi hún á við mig í kvöld hef ég ekki hugmynd um.“ Í dag setur Halldóra þessa und- arlegu upplifun í samhengi við sinn eigin ótta en þetta tiltekna kvöld hafði hún verið ein heima í fyrsta skipti. Hún segist hafa verið upp- tekin af þeirri staðreynd og haft áhyggjur af eigin myrkfælni áður en heimsóknin átti sér stað. Hall- dóra varð skelfingu lostin þegar hún sá veruna – en á sama tíma fann hún fyrir aðdáun og lotningu. Árið 2016 fór Halldóra á stúfana og skoðaði reynslusögur annarra íbúa við Brekkugötu en hún vann þá að BA-ritgerð um álfasagnir undir Hamrinum. Hún komst að því að flestar sagnirnar þaðan fjalla um heimsóknir álfa í mannabústaði þó ein sögn hafi varðveist um heim- sókn bónda nokkurs í Hamarinn. Í skrifum sínum bendir Halldóra jafnframt á að álfar séu álitnir vera framandi en á sama tíma dvelja þeir í túnfætinum eða aðeins rétt til hlið- ar við okkar nánasta umhverfi. Álf- arnir í Hamrinum eru því að segja má nágrannar þeirra sem við hann búa og geta sem slíkir reynst vel. Í því samhengi má minnast á þá hjátrú sem lifir undir Hamrinum að þar slasist börn ekki við leik því álf- arnir gæti þeirra. Álfaklettafélag og huldukona með silfurbelti Bryndís Björgvinsdóttir og Svala Ragnarsdóttir velta fyrir sér álfatrú á okkar tímum í bókinni Krossgötum – álfatrú, álfabyggðir og bannhelgi á Íslandi sem Bjartur gefur út. Í bókinni segja þær frá álfasteinum, huldufólksklettum, dvergasteinum og öðrum bannhelgum stöðum um allt land í máli og myndum. Ljósmynd/Svala Ragnarsdóttir Álfabyggð Hamarinn í Hafnarfirði er eitt helsta kennileiti bæjarins og hvorki meira né minna en álfahöll. Álfaklettafélag Við Merkurgötu er stór álfaklettur og í honum járnkarl sem sat svo fastur í klettnum 1937 að nið- urbrotsmenn urðu frá að hverfa. „…sögnin sem fylgir minnir ekki aðeins á bannhelgina heldur einnig ógæfuna …“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.