Morgunblaðið - 20.12.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
Beef Wellington
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Gerðu þína eigin
14999 kr.pk.
Kjötkompaní Wellington pakki
Fyrir 5
– Ungnautalund
– Villisveppasósa
– Duxelle fylling
– Parma skinka
– Smjördeig
YRSA
Reykjavík
Sjálfvinda/
automatic
herraúr Watch of
he Year 2018
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJAN ERNA
ERNA Skipholti
t
37.500 22.900
14.900
ÖSP
UNISEX
Vandað arm-
bandsúr fyrir
konur og karla
á öllum aldri
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Óvissan í íslenskri ferðaþjónustu
hefur ekki breytt áformum Marriott-
hótelkeðjunnar um uppbyggingu á
Aðaltorgi við Keflavíkurflugvöll.
Þetta segir Árni Valur Sólonsson,
eigandi Capital Hotels-keðjunnar,
en hann er sérleyfishafi fyrirhugaðs
Marriott-hótels. Það verður hluti af
Courtyard-keðju Marriott.
Fyrirtækið Aðaltorg ehf. byggir
hótelið en það á byggingarrétt upp á
tæpa 25 þúsund fermetra á lóðinni,
sem er í tveggja mínútna aksturs-
fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli.
Búið er að steypa gólfplötu og er
áformað að opna hótelið fyrir lok árs
2019. Þar verða 150 herbergi, veit-
ingastaður, fundarsalir og önnur
þjónusta. Tölvumyndir af innanrým-
um á hótelinu birtast hér í fyrsta
sinn en ViðskiptaMogginn greindi
frá verkefninu sl. sumar. Árni Valur
segir hótelið verða meðal þeirra
glæsilegustu sem byggð hafa verið í
Courtyard-keðjunni.
Hótelið verður sett saman úr full-
innréttuðum stáleiningum frá Kína.
Stáleiningum raðað saman
„Þetta eru stáleiningar sem kín-
verska risafyrirtækið CIMC fram-
leiðir. Hótelherbergin koma tvö
tilbúin í einni einingu saman. Það
kemur sérstakt skip með þessar ein-
ingar og landar farminum í Helgu-
vík. Svo mun taka 10-14 daga, eftir
veðri, að hífa upp einingarnar. Við
stefnum á að setja upp þrjár hæðir
og 150 herbergi á hálfum mánuði. Þá
er miðað við átta einingar á dag, alls
75 einingar. Herbergi sem eru beint
á móti hvort öðru eru í einni ein-
ingu,“ segir Árni Valur um þetta
púsluspil. Hann segir einingarnar
verða settar ofan á steypta jarðhæð
og að alls verði hótelið því fjórar
hæðir. Hver eining sé 16,5 metrar á
lengd og tæpir fjórir á breidd. Fram-
leiðandinn, CIMC, sé stærsti fram-
leiðandi á flutningagámum í heimi.
Samhliða framleiði fyrirtækið svona
hótel ásamt fleiri afurðum.
„Það er fjöldinn allur af slíkum
hótelum víðsvegar um heim. Þau
standast allar kröfur sem gerðar eru
um gæði slíkra bygginga. Raunar
eru þetta samskonar byggingar og
stálgrindarhús. Það eru byggð allt
að 30 hæða hótel af þessu tagi,“ segir
Árni Valur og bendir á tímasparn-
aðinn með þessari aðferð.
„Í fyrsta lagi höfum við ekki
vinnuafl á Íslandi til að byggja allt
það sem á að byggja á sama tíma. Í
öðru lagi sparar þetta tíma,“ segir
Árni Valur sem telur þessa aðferð
geta reynst vel víðar á Íslandi.
Áformað er að hefja samsetningu
hótelsins í júlí og að verklok verði í
lok októbermánaðar 2019.
Hótelið kemur með skipi frá Kína
Fyrirhugað Marriott-hótel við Keflavíkurflugvöll mun koma til landsins í stáleiningum frá Kína
Einingunum verður raðað ofan á steypta jarðhæð Verður eitt glæsilegasta Courtyard-hótelið
Setustofa Hér má sjá drög að hluta jarðhæðar hótelsins. Notagildi Gestir munu komast í tölvur og prentara. Hluti jarðhæðar Veitingarými og bar verða á hótelinu.
Árni Valur Sólonsson segir mögu-
legan og tímabundinn samdrátt í
framboði á flugi ekki mesta
áhyggjuefnið í ferðaþjónustu.
Auðvelt sé fyrir önnur flugfélög
að fylla skarðið sem WOW air skilji
mögulega eftir sig. Þá muni að-
gerðir gegn ólöglegri heimagist-
ingu skila sér til hótelanna.
Hins vegar muni hótelin ekki
standa undir þeim launahækkunum
sem krafist er í kjaraviðræðunum.
„Lágmarkslaun í Þýskalandi eru
tæpar 1.600 evrur, sem er aðeins
meira en í Frakklandi. Á Spáni eru
þau um 900 evrur. Þetta eru 223
þúsund og 126 þúsund krónur mið-
að við núverandi gengi. Til saman-
burðar eru lágmarkslaun á Íslandi
nú um 300 þúsund krónur.
Þernur sem starfa á hótelunum
okkar hafa hins vegar mun meira
en 300 þúsund krónur í heildarlaun.
Það er vegna þess að þær vinna um
helgar. Með því fara launin í 400
þúsund. Verði farið að kröfum
verkalýðshreyfingarinnar hækka
heildarlaunin í 520-530 þúsund á
mánuði,“ segir Árni Valur sem tel-
ur launin á Íslandi ekki vera vanda-
málið. Málið snúist um háan hús-
næðis- og fæðiskostnað. Eina
raunhæfa kjarabótin sé að lækka
kostnað við mat og lækka vexti.
Krefjast verkalýðsfélögin þess að
lágmarkslaunin verði komin í 425
þúsund í ársbyrjun 2021.
Árni Valur segir þetta alltof
bratt. „Við myndum lifa af fækkun
ferðamanna en að hækka lág-
markslaunin í 425 þúsund án nokk-
urra mótvægisaðgerða er annað
mál. Það er ekki fræðilegur mögu-
leiki að hótelin lifi það af. Ferða-
þjónusta getur ekki haldið áfram
að vaxa hratt ef launakostnaður
eykst svona mikið. Sá litli hagnaður
sem er á meðalhótelum í Reykjavík
yrði þá farin. Hótel úti á landi sem
skila 5% hagnaði myndu loka,“ seg-
ir Árni Valur. baldura@mbl.is
Launakröfur mesta ógnin
Meiri áhættu-
þáttur en órói í
flugstarfsemi
Teikningar/Arkís
Horft úr lofti Hér eru fyrri drög að
hótelinu. Hönnunin hefur breyst.