Morgunblaðið - 20.12.2018, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
Krossgátubók ársins 2019 er komin
í verslanir en bókin kemur út ár
hvert fyrir jólin. Þetta er 36. ár-
gangur bókarinnar.
Krossgátubókin er 68 síður og
eru gáturnar bæði fyrir nýliða í
fræðunum og þá sem lengra eru
komnir.
Lausnir annarrar hverrar gátu
eru aftast í bókinni. Forsíðumyndin
er að venju eftir Brian Pilkington
teiknara. Hún er af Ragnari
Bjarnasyni söngvara.
Krossgátubók ársins 2019 fæst í
helstu blaðsölustöðum landsins. Út-
gefandi er sem fyrr Ó.P.-útgáfan
ehf., Auðbrekku 16, Kópavogi, en
aðaleigandi hennar er Ólafur Páls-
son. Prenttækni ehf. prentaði.
Krossgátubók árs-
ins 2019 komin út
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Stéttarfélagið VR gefur ekki upp
kostnað vegna auglýsingaverkefna.
Þetta kemur fram í skriflegu
svari Stefáns Sveinbjörnssonar,
framkvæmda-
stjóra VR.
„Auglýsinga-
stofan Hvíta hús-
ið vinnur okkar
auglýsingar og
semur við leikara
og framleið-
endur,“ skrifaði
Stefán sem tjáði
sig að öðru leyti
ekki um málið.
Tilefnið er
annars vegar gagnrýni Samtaka
verslunar og þjónustu (SVÞ) á aug-
lýsingar VR. Nánar tiltekið varð-
andi auglýsingar þar sem Jón
Gnarr, fv. borgarstjóri, er í hlut-
verki Georgs Bjarnfreðarsonar sem
rekur verslunina Georgskjör. Telur
SVÞ auglýsingarnar gefa ranga
mynd af samskiptum launþega og
atvinnurekenda. Hins vegar hefur
umfang auglýsingaherferðanna
vakið athygli. Fara þær fram í sjón-
varpi, á netinu, á auglýsingaskiltum
og með hinum ýmsu birtingar-
leiðum.
Vísaði á framkvæmdastjóra
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, vísaði á Stefán varðandi um-
rædda fyrirspurn. Sjálfur hefði
hann þessa kostnaðarliði ekki á tak-
teinum. Var spurt um kostnað við
auglýsingarnar í Georgskjöri og
varðandi kulnun. Þá var m.a. spurt
um laun aðalleikara í auglýsingum
um Georgskjör.
Ragnar Þór segir kynningar- og
útbreiðslumál hluta af starfsemi
VR. Félagið haldi meðal annars
fundi, gefi út VR-blaðið og skipu-
leggi auglýsingaherferðir.
Með fjölbreyttar herferðir
„Núna í ár vildum við vekja at-
hygli á réttindum félagsmanna. Svo
erum við með kulnunarherferðina
og herferðina [með Jóni Gnarr].
Þetta er eins og herferðirnar sem
við höfum verið með í gegnum árin.
Við höfum til dæmis verið með jafn-
launavottunina en það er alltaf eitt-
hvað nýtt og nýjar áherslur.
Margar þessar herferðir hafa
farið undir ratsjána en aðrar hafa
vakið athygli eins og Georgskjör.
Miðað við athyglina sem þetta er að
fá reikna ég með að þetta sé klár-
lega ódýrasta herferð sem VR hef-
ur farið í frá upphafi,“ segir Ragnar
Þór og bætir því við að vel sé fylgst
með kostnaðinum við herferðirnar.
„Ég get bara svarað fyrir stjórn-
ina. Við leggjum fram kostnaðar-
áætlanir og áætlanir almennt. Það
eina sem við förum fram á við skrif-
stofuna er að þeim áætlunum sé
fylgt. Við höfum hingað til alltaf
verið á áætlun, eða undir áætlun,
með þessa liði sem snúa að mark-
vissum kynningarmálum.“
Án aðkomu stjórnarinnar
„Ég hef ekki tekið stöðuna ein-
mitt núna en mér skilst að hún sé
eftir þeim áætlunum sem stjórnin
hefur sett í gegnum samþykktar
rekstraráætlanir. Auglýsingastofan
okkar sér um að semja við
framleiðslufyrirtækin og við leikara
og ýmislegt án þess að við í stjórn-
inni komum þar nálægt,“ segir
Ragnar Þór.
Hann segir aðspurður að eftir á
að hyggja hafi auglýsingarnar í
Georgskjöri reynst réttur leikur.
Til upprifjunar fór Jón Gnarr
með hlutverk Georgs í Næturvakt-
inni, Dagvaktinni, Fangavaktinni og
kvikmyndinni Bjarnfreðarson.
Kvikmyndin var sýnd 2009 en
eftir hana snéri Jón sér að stjórn-
málum og varð borgarstjóri kjör-
tímabilið 2010-2014.
„Ódýrasta herferð“
VR frá upphafi
Formaður VG segir auglýsingar í Georgskjöri hitta í mark
Framkvæmdastjóri VR segir kostnað við þær trúnaðarmál
Ljósmynd/Hvíta húsið
Georgskjör Jón Gnarr leikur kröfuharðan verslunareiganda. Auglýsingin
er hluti af herferð VR um réttindi félagsmanna. Auglýsingin er umdeild.
Tvö tilboð bárust í fornleifaupp-
gröft við Stjórnarráðshúsið við
Lækjartorg í Reykjavík en tilboð
voru opnuð í vikunni.
Hellur og lagnir ehf. buðust til
að vinna verkið fyrir 115,2 milljónir
króna og Fornleifastofnun Íslands
ses. bauð 123,4 milljónir. Bæði til-
boðin voru yfir kostnaðaráætlun,
sem var 101,3 milljónir. Þetta kem-
ur fram á vef Framkvæmdasýslu
ríkisins. Tilboðin eru nú í yfirferð
hjá stofnuninni.
Á næstu árum er gert ráð fyrir
að hús rísi á baklóð stjórnarráðs-
hússins Lækjargötu 1 í Reykjavík,
en úrslit í verðlaunasamkeppni
voru kunngjörð fyrir skömmu.1.
verðlaun hlutu arkitektar hjá
KURTOGPÍ. Samkvæmt áætlunin
verður húsið um 1.200 fermetrar að
stærð og mun hýsa starfsemi for-
sætisráðuneytisins. Húsið mun rísa
á reit, þar sem nú eru bílastæði
ráðuneytisins.
Verkið, sem nú var boðið út, felst
í fornleifagreftri, rannsóknum og
greiningu á fornminjum. Annars
vegar er um að ræða rannsókn á
rótuðum mannvistarlögum undir
núverandi yfirborðslögum og hins
vegar rannsókn á eldri mannvistar-
leifum sem kunna að leynast undir
rótuðu mannvistarlögunum. Verk-
inu skal vera að fullu lokið eigi síð-
ar en 31. október 2019.
sisi@mbl.is
Tölvumynd/ KURTOGPÍ
Lækjartorg Viðbyggingin rís á bíla-
stæði á baklóð Stjórnarráðsins.
Tvö fyrirtæki vilja
leita að fornleifum
Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík
Sími 588 0488 | feldur.is
SKJÓL
leðurhúfa/refaskinn
35.800
HRÖNN
refaskinnsvesti
79.000
Jólagjafir
sem ylja
EIR
úlpa m/refaskinni
158.000
MÓA
prjónahúfa
11.900
BELGINGUR
mokkahanskar
6.200
BJÖRG
mokkakápa-
279.000
BLÍÐA
refaskinnslyklakippa
3.500
Opið til kl. 22
fram að jólum
Fallega jólaskeiðin
frá ERNU
Bakhlið
Hönnuður
Ragnhildur Sif Reynisdóttir
Verð kr. 21.500
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
ERNA
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJA
Allt um
sjávarútveg
Ragnar Þór
Ingólfsson