Morgunblaðið - 20.12.2018, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
20% afsláttur
af jólavöru og fatnaði
Opið laugardaginn 22. des. kl. 11-18 og þorláksmessu kl. 12-18
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Umfangsmiklum viðgerðum á Fæð-
ingarkirkjunni í Betlehem er nú að
mestu lokið en þær hafa staðið yfir í
nærri eitt og hálft ár. Mósaikmyndir
frá 12. öld, sem lengi hafa verið nán-
ast huldar af sóti frá kertum sem
logað hafa í kirkjunni, blasa nú við í
allri sinni dýrð.
Áætlað er að myndirnar hafi upp-
haflega þakið um 2 þúsund fermetra
af veggjum dómkirkjunnar en
stærstur hluti þeirra hefur eyðilagst
af völdum raka, stríðsátaka og jarð-
skjálfta. Þau myndabrot, sem eftir
eru þekja um 125 fermetra og hafa
sérfræðingar unnið að því undan-
farna 15 mánuði að hreinsa þau.
Frá fjórðu öld
Fyrsta kirkjan á þeim stað þar
sem talið var að Jesús hefði fæðst í
Betlehem, var reist á fjórðu öld.
Upphaflega var talið að sú kirkja
hefði brunnið, en sérfræðingar, sem
unnið hafa að viðgerðunum nú, segja
að engin merki um eld séu sjáanleg.
Því sé líklegast að kirkjan hafi hrun-
ið í jarðskjálfta. Kirkjan var endur-
reist á sjöttu öld og krossfarar
byggðu síðan við hana.
Þrjár kirkjudeildir hafa aðstöðu í
kirkjunni, kaþólska kirkjan gríska
rétttrúnaðarkirkjan og armenska
kirkjan. Deilur milli þessara kirkju-
deilda ollu því, að kirkjunni var nán-
ast ekkert haldið við frá því um
miðja 19. öld. Árið 2002 skemmdist
kirkjan talsvert að utan þegar í
fimm vikna umsátri ísraelska hers-
ins eftir að um 100 Palestínumenn
skjóls inni í kirkjunni.
Dýrar viðgerðir
Betlehem er á Vesturbakkanum
svonefnda á heimastjórnarsvæði
Palestínumanna. Viðgerðir hófust
loks árið 2013 á vegum heima-
stjórnar Palestínumanna í samvinnu
við ítölsk stjórnvöld og með fjár-
stuðningi frá Páfagarði og fleiri ríkj-
um. Áætlað er að viðgerðirnar muni
kosta um 18 milljónir evra, jafnvirði
rúmlega 2,5 milljarða króna.
Bæði lærðir og leikir hafa lýst
mikilli hrifningu yfir myndunum
sem nú eru komnar í ljós. Asbed
Balian, prestur armensku kirkj-
unnar í Fæðingarkirkjunni, sagðist
hafa orðið orðlaus þegar hann sá
myndirnar fyrst. „Þetta hefur lyft
hugum okkar,“ sagði hann.
Auk mósaikmyndanna hafa sér-
fræðingarnir einnig gert við mál-
verk frá tólftu öld þegar auðugir
pílagrímar réðu listamenn til að
mála fjölskyldur þeirra eða dýrlinga
og hengja málverkin upp í kirkjunni.
Þessi málverk voru orðin nánast
svört af sóti og óhreinindum.
Afif Tweme, sem hefur haft eftir-
lit með verkinu fyrir hönd heima-
stjórnarinnar, segir að viðgerðirnar
muni án efa hafa jákvæð áhrif á
ferðaþjónustu í Betlehem, laða
þangað fleiri ferðamenn og vonandi
muni sá efnahagslegi ábati draga úr
brottflutningum kristinna íbúa bæj-
arins.
AFP
Mósaikmyndir Mósaikmyndir frá ofanverðri tólfu öld, á vegg Fæðingarkirkjunnar í Betlehem sem hafa nú verið hreinsaðar og lagaðar. Heimastjórn Palestínu hefur umsjón með viðgerðunum.
AFP
Hreinsun ítalskir sérfræðingar hreinsa mósaikmyndir á kirkjugólfinu.
Fornar mósaikmyndir birtast á ný
Sérfræðingar hafa undanfarna mánuði unnið að viðgerðum á Fæðingarkirkjunni í Betlehem
AFP
Fæðingarhellirinn Par situr fyrir á mynd í Fæðingarkirkjunni á þeim stað sem Jesús er sagður hafa fæðst.