Morgunblaðið - 20.12.2018, Blaðsíða 44
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2018
www.nordicstore.is
CanadaGoose
fæst í Lækjargötu
Í Nordic Store Lækjargötu 2 er mesta úrval af
Canada Goose vörum fyrir herra og dömur á landinu.
Opið til kl. 22.00 alla daga.
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
TORMEK T-4
Vinsæla brýnsluvélin
49.500kr.
Okkar verð
Ef svo fer fram sem horfir er líklegt að rúm 200 ár líði
þar til efnahagslegur kynjaójöfnuður í heiminum heyr-
ir sögunni til, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Al-
þjóðaefnahagsráðsins um stöðuna í jafnréttismálum í
149 löndum heims. Ráðið telur að það taki um 107 ár að
eyða pólitískum kynjaójöfnuði í löndunum sem skýrsl-
an nær til ef þróunin verður eins og hún hefur verið
síðustu árin.
Ísland er í fyrsta sæti tíunda árið í röð á lista ráðsins
yfir lönd þar sem kynjajöfnuður mælist mestur. Fullur
jöfnuður samkvæmt mælikvörðum ráðsins er 1,0 stig
og Ísland fær 0,858 stig, eða tæp 86% af fullum jöfnuði.
5
6
8
140
141
147
142
148
149146
144
145
143
7
1
2
10
9
3
4
Kynjaójöfnuðurmældur
Heimild: Skýrsla Alþjóðaefnahagsráðsins, World Economic Forum (WEF).
1 = Jöfnuður
0 = Ójöfnuður
Staðan eftir löndum
+ frá 0,8
0,7 - 0,8
0,6 - 0,7
0 - 0,6
Ísland
Noregur
Namibía
Níkaragva
Rúanda
Svíþjóð
Finnland
Nýja-
Sjáland
Filippseyjar
Írland
Líbanon
Sádi-Arabía
Írak
Íran
Pakistan
JemenSýrland
A-Kongó
Tsjad
Malí
Alþjóðaefnahagsráðið hefur mælt kynjaójöfnuð í 149 löndum út frá fjórum þáttum: aðgengi að heilbrigðis- og
félagsþjónustu, aðgengi að menntun, efnahagslegri stöðu og þátttöku í stjórnmálum. Ísland er í 1. sæti á lista
ráðsins yfir lönd þar sem kynjajöfnuður er mestur
Gögn vantar
Brasilía
95
Kína
103
Ástralía
39
Rússland
75
Bandaríkin
51
Kanada
16
Indland
108
Japan
110
Ójöfnuðinum eytt eftir 200 ár?
Brussel, London. AFP. | Fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
samþykkti í gær áætlun um ráðstaf-
anir sem gera á ef Bretland gengur
úr Evrópusambandinu 29. mars
næstkomandi án þess að fyrir liggi
samningur um tengsl landsins við
sambandið. Markmiðið með áætlun-
inni er að koma í veg fyrir að út-
ganga Bretlands, brexit, valdi rösk-
unum á mikilvægum sviðum, svo
sem fjármálaþjónustu, vöruflutning-
um, flugsamgöngum og tollgæslu.
Framkvæmdastjórnin hét því að
breskir ríkisborgarar, sem starfa í
ESB-löndum, héldu réttindum sín-
um þar að því gefnu að stjórnvöld í
Bretlandi vernduðu réttindi ríkis-
borgara ESB-landa.
Samkvæmt áætluninni geta fjár-
málafyrirtæki í Bretlandi haldið að-
gangi að mörkuðum ESB-ríkja í eitt
ár eftir brexit. Bresk flugfélög geta
einnig boðið upp á flug til og frá
ESB-löndum en ekki milli flugvalla
innan Evrópusambandsins. Breskir
vöruflutningabílar geta farið til ESB
landa í níu mánuði eftir brexit án
þess að þurfa að sækja um leyfi til
þess.
Framkvæmdastjórnin segir að
ráðstafanirnar séu allar tímabundn-
ar og þeim ljúki án samráðs við
stjórnvöld í Bretlandi. Hún kveðst
vona að ekki þurfi að grípa til að-
gerðanna og segir að markmiðið með
þeim sé að koma í veg fyrir að út-
ganga Bretlands án samnings valdi
efnahagslegu tjóni.
Reynt að afstýra vöruskorti
Daginn áður hafði ríkisstjórn
Theresu May forsætisráðherra sam-
þykkt sérstaka fjárveitingu til þess
að hjálpa ríkisstofnunum að búa sig
undir þann möguleika að Bretland
gengi úr ESB án samkomulags
vegna óvissu um hvort þingið sam-
þykki brexit-samning stjórnarinnar
við sambandið. Stjórnin samþykkti
einnig áætlun um ráðstafanir til að
koma í veg fyrir að útgangan leiddi
til skorts á lyfjum og öðrum varningi
og efnahagslegs óstöðugleika.
Stjórnin hefur sent 140.000 fyrir-
tækjum bréf til að hvetja þau til að
búa sig undir útgöngu án samnings.
ESB býr sig
undir brexit
án samnings
Vill draga úr efnahagslega tjóninu
AFP
Heit umræða Theresa May svarar
spurningum í neðri deild þingsins.
Sakaður um vanvirðingu
» Jeremy Corbyn, leiðtogi
Verkamannaflokksins, var sak-
aður um að hafa sýnt Theresu
May forsætisráðherra vanvirð-
ingu með því að tauta orðin
„heimska kona“ þegar hún
svaraði spurningum í neðri
deild breska þingsins í gær.
» Þingmenn Íhaldsflokksins
sögðu að Corbyn hefði orðið
sér til skammar með ummæl-
unum.
Washington. AFP. | Bandaríkja-
stjórn hyggst kalla alla hermenn
sína í Sýrlandi heim, að sögn banda-
rískra embættismanna í gær, eftir
að Donald Trump forseti lýsti því
yfir að Bandaríkin hefðu „sigrað“
Ríki íslams, samtök íslamista.
Trump lýsti yfir sigri á Ríki ísl-
ams í tísti á Twitter og sagði starf-
semi hryðjuverkasamtakanna vera
einu ástæðu þess að bandarískir
hermenn væru í Sýrlandi.
Bandarísku embættismennirnir
tilgreindu ekki nein tímamörk en
sögðu að allir bandarísku hermenn-
irnir í Sýrlandi yrðu fluttir þaðan
eins fljótt og mögulegt væri.
Um 2.000 bandarískir hermenn
eru í Sýrlandi. Flestir þeirra hafa
gegnt því hlutverki að þjálfa vopn-
aða hópa Kúrda og vera þeim til
ráðgjafar í baráttunni gegn liðs-
mönnum Ríkis íslams sem hafa
misst mestan hluta yfirráðasvæða
sinna en hafa enn nokkur þorp á
valdi sínu. Bandaríska herliðið í
Sýrlandi hefur einnig verið álitið
mikilvægur þáttur í því að hindra að
íranska klerkastjórnin auki áhrif sín
í landinu.
Sögð til marks um skammsýni
Lindsey Graham, repúblikani í
öldungadeild Bandaríkjaþings,
sagði að ákvörðunin um að kalla
herliðið heim væri til marks um
skammsýni, græfi undan tilraunum
til að halda írönsku klerkastjórninni
í skefjum og stefndi bandamönnum
Bandaríkjahers, Kúrdum, í hættu.
Charles Lister, sérfræðingur í
baráttunni gegn hryðjuverkastarf-
semi í Mið-Austurlöndum, sagði að
ákvörðun Trumps væri „barnaleg
og til marks um ótrúlega skamm-
sýni“. „Þetta er ekki aðeins drauma-
staða fyrir Ríki íslams, heldur einn-
ig fyrir stjórnvöld í Rússlandi, Íran
og Sýrlandi sem hafa öll verulegan
hag af brotthvarfi bandaríska her-
liðsins,“ sagði hann.
Herliðið kallað heim
Bandarískir hermenn verða fluttir frá Sýrlandi
Þýska vikublaðið Der Spiegel
skýrði í gær frá því að einn blaða-
manna þess, Claas Relotius, hefði
falsað fréttir árum saman. Relotius
hafði fengið fjölda verðlauna fyrir
rannsóknarblaðamennsku, til að
mynda sæmdi fréttasjónvarpið
CNN hann titlinum blaðamaður
ársins 2014. Fyrr í mánuðinum var
hann valinn fréttamaður ársins í
Þýskalandi fyrir frétt sem hann
skrifaði um sýrlenskan pilt.
Der Spiegel sagði að Relotius
hefði falsað fréttir og búið til við-
mælendur í a.m.k. fjórtán greinum
sem hann skrifaði fyrir vikublaðið
eða fréttavef þess. Blaðamaðurinn
hefur játað brot sín og sagt af sér.
ÞÝSKALAND
Verðlaunablaðamaður falsaði fréttir