Morgunblaðið - 20.12.2018, Side 84

Morgunblaðið - 20.12.2018, Side 84
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 OPIÐ TIL 22:00 ALLA DAGA TIL JÓLA ALFARINN jólatréstoppur. Gyllt járn. 2.995 kr. Nú 1.797 kr. 40% AF ALLRI JÓLAVÖRU Í DESEMBER Kammerkórinn Schola Cantorum heldur jólatónleika í Hallgríms- kirkju á morgun kl. 12 undir stjórn Harðar Áskelssonar. Á efnisskránni er jólatónlist úr ýmsum áttum auk þess sem frumflutt verða verk eftir Auði Gudjohnsen og Sigurð Sæv- arsson. Einsöngvarar eru Fjölnir Ólafsson barítón, Guðmundur Vign- ir Karlsson tenór og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran. Hádegistónleikar Schola Cantorum FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 354. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. „Ef til vill varð það mér til happs að ég sleit ýmislegt í öxlinni síðasta vetur. Annars væri ég kannski ennþá að reyna að hjálpa til á ísn- um,“ segir Sigurður Sigurðsson meðal annars í viðtali við Morgun- blaðið en á laugardaginn var hann heiðraður af Skautafélagi Akureyr- ar eftir að hafa spilað tuttugu og sjö tímabil í meistaraflokki. »1 Heiðraður eftir tutt- ugu og sjö tímabil ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Hymnodia heldur tónleika í Akur- eyrarkirkju á laugardag kl. 21 undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar. Sér- stakur gestur kórsins er Atli Örv- arsson kvikmyndatónskáld. Efnis- skráin einkennist af kyrrð og friði með rótgróinni jólatónlist í bland við ný og nýleg verk ís- lenskra höfunda. Flakkað er í tíma allt aftur til endurreisnar og aftur inn í nútímann með framsæknum jóla- spuna. Tvö ný jólalög verða frumflutt, Vetrarmynd eftir Sigurð Flosason og Hljóða nótt eftir Michael Jón Clarke. Jólatónar Hymnodiu Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Nýr vefur um lifandi hefðir á Ís- landi var formlega opnaður í mennta- og menningarmálaráðu- neytinu í gær. Þar verður upplýs- ingum safnað og þekkingu um lif- andi hefðir miðlað með það fyrir augum að auka þekkingu á menn- ingararfi sem og vitund um og virð- ingu fyrir ólíkri menningu. Vilhelm- ína Jónsdóttir, verkefnisstjóri hjá Stofnun Árna Magnússonar í ís- lenskum fræðum, hefur unnið að gerð vefsins síðustu mánuði en hún segir afar ánægjulegt að hann sé kominn í loftið. „Þetta er vefur fyrir almenning þar sem fólki gefst kost- ur á að deila og miðla þekkingu sinni á lifandi hefðum, hvort sem þær eru aldagamlar eða nýjar af nálinni. Vonir standa til að með tím- anum verði þetta orðinn góður upp- lýsingabanki um þær fjölbreyttu hefðir sem stundaðar eru hérlendis,“ segir Vilhelmína. Hluti af samningi UNESCO Opnun vefsins er hluti af innleið- ingu Íslands á samningi UNESCO frá árinu 2003, um varðveislu menn- ingarerfða, en samningurinn tók gildi árið 2006. Að sögn Vilhelmínu er samningurinn m.a. svar við gagn- rýni sem UNESCO hlaut fyrir áherslu sína á varðveislu áþreifan- legra minja. „Áður en þessi samningur var gerður var m.a. til staðar heims- minjaskrá UNESCO sem varðar áþreifanleg fyrirbæri. Þar með má að einhverju leyti segja að menning þjóða og hópa sem ekki eiga til dæmis byggingar sem staðið hafa í hundruð ára hafi verið útilokuð. Það má segja að samningurinn sé að hluta til svar við þessari gagnrýni enda hefðir, venjur, þekking og ýmiskonar iðkun ekki síður mikil- væg í menningu fjölmargra hópa og þjóða,“ segir Vilhelmína og bætir við að sambærilegir vefir hafi verið opn- aðir á Norðurlöndunum. Íslenski vefurinn er enn sem komið er ein- ungis á íslensku en að sögn Vilhelm- ínu væri æskilegt ef hann yrði einnig aðgengilegur á öðrum tungumálum. „Þessi vefur er hugsaður fyrir fleiri en Íslendinga og þegar fram líða stundir verður hann vonandi á fleiri tungumálum,“ segir Vilhelmína sem telur afar mikilvægt að sem flestir hópar taki þátt í að miðla hefðum sínum. Þar skipti stærð hópsins ekki máli enda sé markmiðið fyrst og fremst að miðla hefðum sem flestra áfram. „Það er mjög mikilvægt að fólk sé viljugt til að miðla og vilji taka þátt í þessu verkefni. Hefðir geta verið stundaðar af bæði fjöl- mennum og fámennum hópum en okkar von er að sem flestir séu til- búnir að taka þátt,“ segir Vilhelm- ína. Morgunblaðið/Árni Sæberg Opnun Vilhelmína í mennta- og menningarmálaráðuneytinu við opnun vefs um lifandi hefðir á Íslandi. Vilja varðveita og miðla íslenskum hefðum  Nýr vefur um lifandi hefðir á Íslandi opnaður í gær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.