Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Síða 2
Verður uppistand á fullveldisafmælinu? Við erum sögusafn og eitt af okkar hlutverkum er að minnast sögu- legra atburða, sem við gerum oft og reglulega með ýmsum hætti, en ég held ég geti fullyrt að við höfum aldrei minnst jafn merkilegs at- burðar og sjálfs fullveldis Íslands með uppistandi. Það er líka svo bráðhollt að halda í húmorinn og gleðina. Þótt við starfsfólk safnsins stöndum vissulega í þeirri trú að við séum bráðfyndin þá fengum við til öryggis fagmann í verkið og því mætir Ari á Árbæjarsafn laugardaginn 1. desember kl. 13. Hann ætlar að segja okkur upp og ofan um fullveldið og samband Íslendinga og Dana og fer örugglega um víðan völl eins og honum einum er lagið. Að- gangsmiði á safnið gildir inn á uppistandið og reglan verður „fyrstur kemur fyrstur fær“ en eðli málsins samkvæmt þá komast engir risahópar inn í húsin á Árbæjarsafni. Stefnið þið á að hafa fleiri uppákomur sem þessar? Við höfum alltaf augun opin fyrir nýjum tækifærum til þess að miðla fróðleik á skapandi og lifandi hátt svo já ætli ég verði ekki bara að játa því. Við brydduðum til dæmis upp á þeirri nýjung í ár að halda upp á hrekkjavöku sem vakti gríðarlega lukku og heppnaðist vonum framar. Sumir voru reyndar dálítið hissa á því að hið rótgróna Árbæjarsafn skyldi taka þátt í þessum nýja sið en þegar betur er að gáð þá er hann alls ekki svo nýr. En hvað er svo sem að því að taka upp nýja siði? Söfn mega ekki halda svo fast í hefðir að engu megi út af breyta heldur eiga þau að taka þátt í sí- breytilegu og fjölþjóðlegu samfélagi og tala við gesti á þann hátt að þeir hafi bæði gagn og gaman af. Er eitthvert eitt hús í uppáhaldi? Það er erfitt að velja eitt hús því það er bara alveg sérstakt að ganga inn í öll húsin á Árbæjarsafni og reyna að ímynda sér hvernig var að lifa við þessar aðstæður. Sum húsin eru heldri manna hús en önnur eru svo hrá og kuldaleg, lítil og óvistleg að maður skilur ekki hvernig hægt var að ala upp lítil börn eða almennt draga fram lífið við þessar aðstæður. Það er magn- að að fara í huganum aftur í tímann inni í húsum Árbæjarsafns. Hins vegar get ég viðurkennt að ég stoppa óþarflega oft við í Krambúðinni þar sem sykraðar freistingar liggja í skálum um víð og dreif. Þessar ferðir kalla ég gæðapróf því einhver þarf að taka það á sig að kanna hvort karamellurnar séu ekki örugglega ennþá mjúkar. Hverju megum við búast við fyrir jólin á safninu? Árbæjarsafn lifnar við á jóladagskránni sem hefst kl. 13 og stendur til kl. 17 sunnudagana 9. og 16. desember. Húsfreyjurnar í litlu safnhús- unum bjóða gestum upp á ilmandi hangikjöt og laufabrauð og allt heim- ilisfólk leggur kapp á það að undirbúa jólin með ýmiskonar handverki. Skósmiðir, eldsmiðir og gullsmiðir sitja að störfum og fylgjast má með því þegar kerti eru steypt upp á gamla mátann. Fjölskyldur geta sest niður og föndrað fallegt jólaskraut og börnin fá tækifæri til þess að láta teyma undir sér hest. Kaffihús safnsins er opið og þar er hægt að fá dýrindis veitingar með jólalegu ívafi. Klukkan 15 er svo fastur liður að fólk safnast saman á torginu við jólatréð og dansar og syngur saman jólalögin sem allir kunna. Jólasveinar hafa undantekningalaust ratað á safnið á þessum dögum, sennilega renna þeir á hangikjötslyktina, og þótt þeir séu ferlega hrekkjóttir þá eru þeir góðir inn við beinið og finnst gaman að tala við krakkana. ÁGÚSTA RÓS ÁRNADÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Ekkert að nýjum siðum Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Upptökur af samtali nokkurra þingmanna á krá í miðborginni sem rataðhafa í fjölmiðla eru meira en lítið vandræðalegar. Það sem sagt er ogskrafað um annað fólk veitir ákveðna innsýn í hugarheim þeirra sem tala og stemninguna sem ríkir þeirra á milli. Og eiginlega tek ég til baka að þetta sé vandræðalegt, þetta er svo miklu meira en það. Alvarlegt er betra orð. Við sem eigum börn vitum hve mikil orka og tími getur farið í það að hafa áhyggjur af öllu mögulegu. Oft eru áhyggjurnar óþarfar en ekki alltaf. Áhyggj- ur af því hvernig þau koma fram við aðra og hvernig komið er fram við þau eru hluti af því að vera foreldri. Við viljum vanda okkur og kenna börnunum að greina rétt frá röngu, og það getur tekið á. Eflaust dreymir alla foreldra um að börnin þeirra verði ekki fyrir neinu, að þau lendi ekki í stríðni eða ofbeldi, þeim þurfi ekki að líða illa. Kannski óraunhæft, en svona hugs- um við flest. Fari svo að þau verði fyr- ir aðkasti eða leiðindum þá vonum við að þau eigi vini sem styðja þau, að einhver úr hópnum taki upp hansk- ann fyrir þau og segi „Hey, svona töl- um við ekki!“ Í öðru lagi vonum við auðvitað að okkur lánist að ala þau nægilega vel upp til að þau verði ekki fólkið sem situr í hópi og talar illa um aðra, rakkar niður, kallar illum nöfnum, beitir of- beldi eða niðurlægir. Við viljum jú kenna þeim að svoleiðis gerir maður ekki, hvorki í andlitið á fólki né bakvið það. En svo er líka það þriðja, sem er að við sem foreldrar viljum ala börnin okkar þannig upp að þau verði fólkið sem stendur upp frá borðinu þegar illar tungur gerast háværar. Okkur dreymir um að upplegg barnanna okkar í bland við uppeldið, sem við flest reynum að byggja eftir bestu getu á réttsýni og mann- gæsku, skili þeim því að þau taki ekki þátt í að hafa annað fólk að háði og spotti. Að þau hafi bein í nefinu til að standa upp þegar aðrir eru dregnir niður í svaðið og segja „Hey, viltu hætta að uppnefna vin minn!“ Eins alvarlegt og það er að fullorðin manneskja sitji í hópi vinnufélaga (þing- menn vinna jú allir saman á alþingi) og kalli fjarstadda félaga „húrrandi klikk- aða kuntu“ og „helvítis tík“ þá er jafnvel enn ömurlegra að hugsa til þess að enginn hafi staðið upp frá borðinu og sagt „Hey, svona tölum við ekki“. Áhyggjur af börnunum okkar eru sem betur fer oftast ó́þarfar en það er full ástæða til að hafa áhyggjur af þingmönnum þjóðarinnar. Stundum þarf að minna börnin á að hegða sér ekki eins og fullorðna fólkið. Þeirra háttur, að vaða í drullupollum, er gáfulegri en gjörðir fullorðinna. Morgunblaðið/Styrmir Kári Af hverju sagði enginn „hey“? Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Við sem foreldrar vilj-um ala börnin okkarþannig upp að þau verðifólkið sem stendur upp frá borðinu þegar illar tungur gerast háværar. Hrönn Hauksdóttir Ég held það. Ég er samt ekki sátt við svona ólöglegar upptökur. SPURNING DAGSINS Eiga Klaustur- þingmenn að segja af sér? Aðalsteinn Jónsson Það liggur í augum uppi. Sólrún Ósk Sigurðardóttir Já. Mér finnst þeir hafa brotið gegn samþingmönnum sínum og almenningi. Sigurður R. Ragnarsson Segir það sig ekki sjálft? Orðstír hveim er sér góðan getið hefr, deyr aldregi. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson Morgunblaðið/RAX Ágústa Rós er verkefnastjóri viðburða hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.