Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Page 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Page 19
2.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 hann var drepinn. Mönnum var ekki ljóst þegar hér var komið sögu að aldauða tegundarinnar hafði borið að garði og kannski þótti ekki sjálf- sagt, af þeim sökum, að hamur fuglanna færi sömu leið og innyflin. Fuglarnir hlutu þó að hafa verið stoppaðir upp. Hvað varð um síðasta karl- fuglinn? Menn hafa getið sér til um að hamurinn hafi farið með innyflunum á leiðinni til Kaup- mannahafnar, en verið sendur áfram til Ham- borgar og þaðan til Amsterdam og að lokum til Brussel. Nú hefur tekist, með aðstoð erfðafræði, að skera úr um réttmæti Brussel-tilgátunnar. Jessica Thomas, erfðafræðingur við Bangor- háskóla í Wales, og samstarfsfólk hennar urðu sér út um sýni úr krukkunum í Kaupmannahöfn og sömuleiðis úr fimm uppstoppuðum fuglum sem helst þóttu koma til greina miðað við rit- aðar heimildir – í Bremen, Brussel, Kiel í Þýskalandi, Los Angeles og Oldenburg í Þýska- landi. Samanburður á erfðaefni fuglanna sem lýst er í tímaritinu Genes leiddi í ljós að ham- urinn í Brussel og sýnin í Kaupmannahöfn til- heyrðu sömu lífverunni. Örlög síðasta kven- fuglsins eru enn á huldu, en vænta má fregna af þeim fljótlega. Náttúrulegur og ónáttúrulegur aldauði John Wolley (1824-1859) kenndi höfuðmeins fljótlega eftir að Íslandsferðinni lauk og and- aðist árið eftir. Hann lét eftir sig risavaxið eggjasafn, sem við hann er kennt, og Geir- fuglabókina góðu sem hann ánafnaði vini sínum Newton. Alfred Newton (1829-1907) lifði lengi og markaði djúp spor í fuglafræði og fugla- vernd. Hann slasaðist ungur að árum og eftir það gekk hann við staf, hafði ekki fullan mátt í öðrum fæti. Kannski skýrði það einlægan áhuga hans á varnarlausum geirfuglum. Seint á lífs- leiðinni varð hann aftur fyrir slysi og varð að ganga við tvo stafi. Newton var varla kominn aftur til Cam- bridge eftir Íslandsferðina þegar hann hafði veður af nýstárlegum hugmyndum Charles Darwins og Alfreds R. Wallace um uppruna tegunda. Hann varð heillaður af þróunarkenn- ingu þeirra og tók fljótlega að skiptast á bréf- um við þá. Veröld fuglanna öðlaðist nýja merk- ingu. Fram að þessu höfðu fuglafræðingar verið uppteknir af flokkun tegunda og einkenn- um; nú virtist unnt að varpa skýrara ljósi á sögu og aðskilnað tegunda. Og nýjar spurn- ingar vöknuðu um framtíð tegunda og örlög. Skyldi geirfuglinn, sérkenni tegundarinnar og yfirvofandi aldauða hennar hafa borið á góma? Aldauði tegundarinnar var þó ekki „náttúru- val“ í venjulegum skilningi, heldur mannanna verk, ónáttúrulegt val, víti til varnaðar. Ekkert náttúruval hafði búið geirfuglinn undir eldgos og rányrkju mannsins. Nú stendur mörgum fuglategundum, og fjölmörgum öðrum, ógn af umhverfisbreytingum af mannavöldum. Stað- fest er að á þessum áratug hafa átta fuglateg- undir orðið útdauðar. Þótt menn séu hluti af sköpunarverki náttúrunnar, eins og geirfugl- inn, þurfa þeir ekki, eins og Alfred Newton benti á, að sitja með hendur í skauti. Sjálfur varð Newton brautryðjandi fuglaverndunar- laga. Geirfuglabók Johns Wolleys er mikilvæg heimild. Líklega eru fáar sambærilegar frá- sagnir til af endalokum tegundar. Þær opna heillandi gátt inn í aldauðann sem á fullt erindi við samtímann. Lesandi Geirfuglabókar skynj- ar þungan nið í yfirheyrslum Newtons og Wolleys, eins og í spennusögu. Og enn þann dag í dag er fólk að spyrja: „Hvaða fuglar féllu síð- ast og hverjir voru að verki?“ Þótt Newton og Wolley hafi grunað í lok ferðar sinnar að fuglinn væri allur vottar ekki fyrir ásökunum eða áfellisdómum í þessari bók. Það þurfti einfald- lega að komast að hinu sanna um örlög fuglsins. Þótt oft hafi verið vitnað í þessar Íslendinga- sögur af örlagaríkum samskiptum manna og fugla á Suðurnesjum eru þær vægast sagt van- nýtt heimild. Full ástæða er til að kalla eftir handritunum heim (alla vega stafrænu afriti), eins og öðrum handritum sem hér voru rituð á annarri söguöld en hurfu svo úr landi. Höfundur er prófessor í mannfræði við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands. Geirfuglabók Johns Wolleys, nr. 2, „rituð á Íslandi frá 22. júní til 13. júlí 1858“. ’Örlög síðasta kvenfuglsinseru enn á huldu, en væntamá fregna af þeim fljótlega. Úr Geirfuglabók Johns Wolleys, 1. hluta. Viðtal við Ketil Ketilsson. Leifar síðasta karlfugls- ins í glerkrukku í Kaup- mannahöfn, „Alca Imp- ennis, Ísland 1844“. John Wolley fuglafræðingur (1823-1859). Geir Zoëga (1830-1917). Myndina málaði Bandaríkjamaðurinn Bayard Taylor í ferð sinni til Íslands árið 1862. Bókasafn Cambridgeháskóla Library of Congress, Washingtonborg Jólabækurnar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.