Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Page 22
Nýjasta tískan er að klæða fjölskylduna alla í stíl og ekki síst er þetta algengt hjá stjörnunum og afkvæmum þeirra. Þetta getur heppnast vel og sameinað fjölskylduna en það er ýmislegt að varast. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Fjölskyldan í stíl Nýjasta tískuæðið á heimsvísu erað klæða alla fjölskylduna í stíl,ekki síst hafa stjörnurnar sést klæða afkvæmi sín eins og þær sjálfar. Á meðal þeirra sem leiða þessa tísku- bylgju eru þær Beyoncé, Kim Kardashian West, Victoria Beckham og Chrissy Teigen sem eiga það til að klæða dætur sínar í stíl við sig sjálfar. Viðbrögð almennings við þessu hafa verið misjöfn. Þegar Kim Kardashian West klæddi þriggja ára dóttur sína North West í stíl við sig í silfurpallíett- ukjól frá Vetements fannst mörgum það óviðeigandi að klæða barn í svona fullorðinslegan kjól og móta það í sinni eigin mynd á meðan öðrum þótti þetta bara hrikalega sætt. Samkvæmt Euromonitor er markaður- inn fyrir hátískubarnaföt sífellt að stækka. Á meðal þess sem foreldrar eyða í eru 60 þúsund króna Gucci-mokkasínur bara til að fjölskyldan geti öll verið í stíl. Tískuhús á borð við Gucci, Balenciaga og Burberry eru öll með fatalínur fyrir börn, sem eru að mestu smækkaðar út- gáfur af fullorðinslínunum. Þarna er verið að spila á þessa tilhneigingu foreldra, og þá ekki síst mæðra, til að vilja klæða börn sín, oftast dætur, í stíl við sig sjálf. „Barnaföt eru að verða sífellt meiri tískuföt,“ sagði Nathalie Christen-Genty í viðtali við businessoffashion.com. Hún er stofnandi lúxusvefsíðunnar Melijoe, sem hefur verið kölluð „Net-a-Porter barna- fatnaðarins“. „Fyrir nokkrum árum snerust barnaföt um nokkur fatamerki sem voru aðeins fyrir börn og foreldrar hugsuðu fyrst og fremst um notagildi,“ sagði hún, en það þýðir að barnafötin voru tímalaus í hönnun eins og Baby Dior-línan sem var stofnuð árið 1967. Á undanförnum árum hefur ekkert þótt sérstaklega smart að vera eins og börnin því það þótti minna á sjöunda áratuginn og þegar konur saumuðu föt á sjálfar sig og nýttu síðan efnið til að sauma líka föt á börnin. Eitthvað breyttist síðan og nú þykir þetta topp- urinn í tískunni að vera eins. Þessi tíska hefur lengur verið vinsæl í Mið-Austurlöndum og Rússlandi en nýtur nú aukinna vinsælda vegna áðurnefndra áhrifa- valda. Vinkonur hafa gjarnan klætt sig í stíl en af hverju ættu fjölskyldur að gera það? Carolyn Mair, höfundur The Psychology of Fashion, hefur svarið við því í samtali við theguardian.com. Hún segir að það skapi þessa til- finningu að maður tilheyri einhverjum. „Þetta sendir jákvæð skilaboð um fjölskylduna til þeirra sem fylgjast með því það er ólíklegt að fjöl- skylda eða par sem er ekki á góðum stað tilfinn- ingalega myndi klæða sig í stíl. Sú tilhneiging að sýna að við höfum sameiginleg markmið getur sam- einað fólk. Þegar við klæðum okkur eins byrjum við að hugsa og haga okkur eins.“ Það getur verið gaman að klæða sig í stíl en það sem þarf að varast er að konur séu látnar líta út fyrir að vera barnalegar eða að það sé sett pressa á stelp- ur að líta út fyrir að vera eldri en þær eru. Það þarf því að vanda valið á fatnaðinum. AFP Chrissy Teigen klæddist þessum avókadófötum í stíl við dóttur sína á In- stagram en myndatakan var fyrir matreiðslubók hennar. Hægt er að kaupa skyrt- ur á alla fjölskylduna í verslun Next á Íslandi en þetta er úr línunni Just Like Me þar sem hægt er að kaupa ýmislegt í stíl á fjölskylduna. Next 2.790-4.990 kr. Fyrisætan Coco Rocha og dóttir hennar, Ioni Conran, sýndu föt í stíl á sýningu Jean-Paul Gaultier á hátískunni 2018 fyrr á árinu. Skínandi silfurkjóll úr smiðju Vete- ments. Kim Kardashian West og dóttir hennar, North West, klædd- ust eins kjólum og birti mamman mynd af þeim á Instagram. Þetta er auðkennandi útlit fyrir Timberland og er hægt að fá samstæð pör á alla fjölskylduna, allt frá smábörnum til fullorð- inna, með hælum eður ei. Timberland 6.990-31.990 kr. 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2018 HÖNNUN

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.