Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Síða 25
Nanna fræðir gesti
sína um girnilegan
paelluréttinn.
Nanna og
Ingibjörg
Helgadóttir.
Sigríður Rögnvaldsdóttir,
samstarfskona og systir
Nönnu, Oddný S. Jóns-
dóttir, Hólmfríður Matt-
híasdóttir og Nanna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kjöthleifur með baunum
Fyrir 2-3
300 g nautahakk
4 msk. barbecuesósa
1 egg
6 msk. brauðrasp
3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
pipar og salt
100 g beikon í sneiðum
2 msk. olía
1 dós baunir, t.d. pintóbaunir
½ laukur, skorinn í geira
75 g ostur, rifinn
kóríanderlauf (má sleppa)
Hitaðu ofninn í 200°C. Bland-
aðu hakki, barbecuesósu, eggi,
raspi, hvítlauk, pipar og salti
saman í skál og mótaðu af-
langan hleif. Leggðu beikon-
sneiðarnar hlið við hlið á bretti
og láttu þær skarast ögn. Settu
kjöthleifinn ofan á og vefðu
beikoninu utan um hann. Helltu
olíunni í eldfast mót, settu kjöt-
hleifinn í það og dreifðu baun-
um og lauk í kring. Stráðu ost-
inum yfir hleifinn og bakaðu í
um 35 mínútur, eða eftir þykkt.
Stráðu kóríander í kring eftir
smekk.
2.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Fyrir 2-3 sem aðalréttur, 4-6 sem
meðlæti
Það gæti verið gott að hafa ein-
hverja sósu með þessum græn-
kerarétti til að dreypa yfir, til
dæmis steinselju-, kóríander- eða
grænkálspestó eða rautt pestó,
þynnt með ólífuolíu. Og ef sósan
þarf ekki að vera vegan mætti
hræra saman hreinni jógúrt og
rauðu eða grænu pestói eins og
hér er gert.
Um 400 g sæt kartafla, flysjuð og
skorin í teninga
½ kúrbítur, skorinn í teninga
½ paprika, skorin í bita
2 tómatar, vel þroskaðir, saxaðir
3–4 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
1½ msk. ólífuolía
1 tsk. chiliduft
1 tsk. kummin
klípa af chiliflögum
pipar og salt
1 dós svartar baunir
150 g maís, frystur eða niðursoðinn
steinselja (má sleppa)
Hitaðu ofninn í 215°C. Settu allt
nema baunir, maís og steinselju í
eldfast mót og blandaðu vel sam-
an. Settu í ofninn og bakaðu í um
20 mínútur. Blandaðu þá baunum
og maís saman við og bakaðu í 10
mínútur í viðbót. Stráðu e.t.v. sax-
aðri steinselju yfir.
Svartbaunir og maís
Fyrir 2
Það eina sem þarf að gera til að
rétturinn henti fyrir grænkera er
að sleppa parmesanostinum úr
raspþekjunni. Og svo má skipta
raspinu út fyrir saxaðar hnetur
eða fínmuldar maísflögur til að
gera hann glútenlausan.
1 blómkálshöfuð, um 1 kg
150 g strengjabaunir, frosnar
2 msk. ólífuolía
pipar og salt
½ dós baunir
2–3 tómatar, vel þroskaðir, skornir í
báta
2–3 hvítlauksgeirar, léttpressaðir
4 msk. rasp, helst pankorasp
30 g parmesanostur, nýrifinn
steinselja (má sleppa)
Hitaðu ofninn í 210°C. Snyrtu
blómkálið og skerðu það sundur í
miðju. Skerðu 2½–3 cm þykka sneið
af hvorum helmingi en geymdu af-
ganginn til annarra nota. Helltu 1
msk af olíu í eldfast mót, kryddaðu
sneiðarnar með pipar og salti og
leggðu þær í mótið. Dreifðu græn-
meti og hvítlauk í kring og dreyptu 1
msk. af olíu yfir allt saman. Bakaðu í
20–25 mínútur. Blandaðu saman
raspi, parmesanosti og saxaðri
steinselju, dreifðu á blómkálssneið-
arnar og bakaðu áfram í 10 mínútur.
Blómkálssteikur