Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2018 HEILSA Þ að hefur mikið gengið á í flugheiminum þessa viku. Þeir sem starfa á fjölmiðlum vita að allt sem tengist þeim heimi er fréttnæmt og fólk hefur óvenju- mikinn áhuga á öllu því sem honum tengist – kannski er það gamli sjarminn sem fylgdi því að ferðast milli landa, en mögulega eitthvað annað. En um leið og allt fer á annan endann í fluginu fer allt úr skorðum hjá viðskiptablaðamanninum einnig og vaktirnar þessa vikuna hafa orðið lengri en oftast áður. Kannski hefur þetta verið svona í bankahruninu – en ég veit ekkert um það, enda ekki kominn á vettvang þegar þau ósköp gengu yfir. En meðan á átakinu hef- ur staðið hjá mér hef ég sett hlutina í annað og óvænt samhengi út frá heilsuræktinni. Og ég hef lært margt þessa viku, sem ég tek með mér inn í framtíðina. Flest tengist það auknu álagi og því hvernig best er að leysa úr slíku ástandi án þess að missa tökin á matnum og detta í hreyfingarleysi. Stressið er magnað Við þekkjum öll líkamlegt og and- legt ástand sem við kennum við stress. Það ástand myndast þegar líkaminn losar hormón sem nefnist kortisól en það verður til í nýrna- hettunum. Í grunninn gerir þetta hormón okkur kleift að bregðast við ógnum af ýmsu tagi. Þær eru færri og ekki eins lífsógnandi og á fyrri öldum en þess í stað vinnur horm- ónið í líkamanum þegar álag verður mikið. Eykur hættuna á því að maður bæti á sig Þegar líkaminn losar þetta hormón eykur það virkni lifrarinnar, sem aftur tryggir líkamanum aukna orku til skamms tíma litið. En of mikið kortisól og í of langan tíma getur haft í för með sér alvarlegar afleið- ingar fyrir fólk. Þannig segir hin fræga heilbrigðisstofnun Mayo Cli- nic á heimasíðu sinni að langvarandi stress, og þar með framleiðsla kort- isóls, geti haft í för með sér kvíða, þunglyndi, næringarvandamál, höfuðverk, hjartasjúkdóma, svefn- vandamál, þyngdaraukningu og minnis- eða athyglisbrest. Af þessu að dæma er mikið til þess vinnandi að forðast stressið og virkni nýrna- hettanna í þessu efni. Ég þekki stressið ágætlega af eigin raun en ég hef svo sem ekki lagt mig eftir því af hverju það ger- ist í hvert sinn sem það kemur yfir af miklum þunga að ég leita í mat í meiri mæli – og það helst óhollan. En skýringin á því er einföld. Þeg- ar kortisólið eykst í líkamanum og lifrin fer á fullt, þá hækkar um leið insúlínið í blóðinu sem aftur lækkar blóðsykurinn verulega. Og hvað ger- ist þá? Maður leitar í sykur, skjót- fenginn árangur af átinu. Þessi ein- falda útskýring á því af hverju ég leita meira í kex, nammi og raunar hvað sem er þegar stressið eykst, hvort sem það tengist hlutabréfa- markaðnum eða flugrekstri, gerir mér betur kleift að vinna gegn nei- kvæðum áhrifum stressins. Viðhalda blóðsykrinum Það fyrsta sem maður gerir til að vinna gegn blóðsykursfallinu og því að stressið magnast upp er að „birgja sig upp“ af mat. Lykilatriðið er að hafa mat við höndina, gul- rætur, banana, epli, poppkex – allt sem gefur hóflega næringu en dúndrar ekki blóðsykrinum upp (í þann flokk fellur því miður allt súkkulaði). Þannig felst ákveðin mótsögn í þessu viðbragði. Mikill matur er lausnin, en hann verður að vera við höndina, af réttri tegund og maður verður að maula hann jafnt og þétt. Hreyfingin skiptir máli En svo er það líka hreyfingin sem skiptir máli. Það er ekki nóg að nær- ast þó það sé fyrsta skrefið að góðri heilsu. Hæfileg hreyfing og líkam- legt erfiði er gott fyrir þann sem er að takast á við stress. Þannig vinnur hreyfingin með manni þegar stress- ið er annars vegar. Þó kannski með óvæntum hætti. Líkaminn lítur nefnilega á líkamlegt erfiði með sama hætti og stress. Hann losar því kortisól við æfingar. En með því að æfa reglubundið og byggja upp þol, dregur einnig úr losun kortisóls í stressandi aðstæðum. Líkaminn æf- ir sig með öðrum orðum í því að tak- ast á við stressandi aðstæður án þess að losa hormónið. Þess vegna dugar ekki að byrja að æfa í miðju stressinu – jafnvel þótt það veiti manni vellíðan. Þetta er langhlaup. Þess vegna var gott í vikunni, þótt báðar lyftingaæfingarnar hefðu far- ið forgörðum vegna vinnunnar, að ég komst þó á róðrarvélina heima á kvöldin. Í því fólst í raun ákveðin hvíld. Jafnvægið í ójafnvæginu Margir hætta að borða þegar þeir lenda í stressi – jafnvel gleyma því. Ég er í hinum hópnum sem leitar í sætindi þegar allt er á öðrum endanum. Það getur reynt á í viku eins og þessari – ekki síst þegar húsnæðisskipti leggjast þar ofan á. Stundum er stressið mikið. Þá þarf að bregðast við með réttu mataræði og viðhalda hreyfingunni – jafnvel þótt erfitt sé. Getty Images/iStockphoto Pistill Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR 92,9 kg 84,4 kg 84,4 kg Upphaf: Vika 11: Vika 12: 42.381 31.528 15.239 13.529 4 klst. 2 klst. HITAEININGAR Prótein 25,2% Kolvetni 38,3% Fita 36,5% Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Skinnhúfa kr. 19.800 Vargur kr. 37.000 Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Hálsmen kr. 13.900 Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Spiced Honey litur ársins 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.