Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2018, Qupperneq 36
Líklega er best fyrir Sögu okkar að snúa bara aftur heim til Svíþjóðar. ZDF Saga úr sögunni Hver gat búið sig undir þá örlagaríku rás atburða sem hrint var af stað í njósnadramanu Undir sama himni á mánudagskvöldið var? Þjóðverjar kunna greinilega ekki með norrænar kvenhetjur að fara. Svei þeim! Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sú fékk aldeilis til tevatnsinshún Saga okkar í þýskanjósnadramanu Undir sama himni sem Ríkissjónvarpið sýnir á mánudagskvöldum um þessar mundir. Íslenska þjóðin hlýtur að vera harmi slegin vegna þeirra voða- legu atburða enda Saga henni sem dóttir. Sjálfur man ég ekki eftir að hafa brugðið svona illilega síðan glæsimennið Matthew McCon- aughey sprengdi Ólaf Darra í loft upp í True Detective-þáttunum vest- ur í Ameríku um árið. Saga, sem heitir víst réttu nafni Sofia Helin, leikur hlédræga ein- stæða móður í þáttunum sem starfar fyrir bandaríska herinn í Vestur- Berlín árið 1974 og er táldregin af svonefndum Rómeó-njósnara Austur-Þjóðverja sem sendur er yfir járntjaldið til að freista þess að afla upplýsinga um óvininn. Njósnarinn, sem er vart af barns- aldri, kveikir bál í brjósti Sögu og í seinasta þætti innsigluðu þau sam- band sitt með æsilegum kynmökum, þar sem Saga tapaði kúlinu um stund og kvaðst elska njósnarann, sem hún hefur auðvitað ekki hug- mynd um að sé njósnari. Þeirri senu var ekki fyrr lokið og njósnarinn horfinn út í morguninn en aumingja Saga fékk heilablóðfall á heimili sínu. Hneig niður í eldhúsinu. Áður hafði raunar verið gefið til kynna að hún væri líklega ekki heil heilsu. Saga lifði áfallið af en var næst sýnd liggja í dái á spítala og tvísýnt um framhaldið. Yfirmaður unga njósnarans, keðjureykjandi eldri njósnari með blæti fyrir hamborg- urum og flatbökum, tók þó enga sénsa í þeim efnum enda réttnefnt rysjumenni. Skyndilega stóð hann við sjúkrabeð Sögu og hleypti úr henni lífinu, að því er virtist. Alltént gengur maður ekki út frá því að sjá hana aftur í téðum þáttum. Sem er synd. Góð kona, Saga. Og aumingja sonurinn munaðarlaus sem er alltaf vont, jafnvel þótt hann sé illa hald- inn af unglingaveiki. Auðvelt yrði að móðgast Auðvelt yrði að móðgast af þessu til- efni og hætta að horfa á Undir sama himni (byrja til dæmis bara að horfa aftur á Undir sama þaki í staðinn) en ég er samt að hugsa um að gefa þættinum áfram séns enda er eitt- hvað kauðalega krúttlegt við árið 1974. Og svo er HM í fullum gangi. Úr því Saga er úr leik verður Axel Lang nýja uppáhaldspersónan mín, Langi-Seli þeirra Þjóðverja. Hann er samkynhneigður kennari í Austur-Berlín sem fer sinna ferða ýmist á skellinöðru eða forkunnar- fögru Rúgbrauði. Alltof fá Rúgbrauð á götunum í seinni tíð. Og svo ku líka þægilegt að elskast í þeim. Einnig verður spennandi að fylgj- ast áfram með hinum stórbeinótta Tobiasi, kunningja Langa-Sela, sem er í óða önn að grafa jarðgöng, og unglingsstúlkunni með bringuhárin. Án Sögu verður þó ekkert eins. Rómeó-njósnarinn Lars er stíliseraður í drasl í Undir sama himni. ZDF 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2018 LESBÓK MÁLMUR Úkraínska dauðamálmbandið Jinjer hefur í mörg horn að líta um þessar mundir en Tatiana Shmailyuk söngkona staðfesti í samtali við mexíkósku sjónvarpsstöðina MB Live að EP-plata væri væntanleg í janúar næstkom- andi og fljótlega eftir það hæfist vinna við næstu breiðskífu. Síðasta plata Jinjer, King of Everything, kom út 2016. Shmailyuk er jafnvíg á hreinan og óhreinan söng og viðurkennir að Randy Blythe, söngvari Lamb of God, sé fyrirmynd hennar þeg- ar hún rymur en margir málmvísindamenn hafa einmitt spyrt þau saman. Þegar Shmailyuk hreinsar röddina upp minnir hún hins vegar meira á Svölu Björgvins en okkar konu er þó hvergi getið í viðtalinu enda ólíklegt að þær stöllur viti yfirhöfuð hvor af annarri. Maður veit þó aldrei. Blytheandi Svala Tatiana í essinu sínu. Metalitalia.com HEILSA Guns N’ Roses þurfti að hætta í miðjum klíðum á tónleikum í Abu Dhabi um síðustu helgi vegna veikinda söngvarans, Axl Rose. Kappinn komst við illan leik gegnum tuttugu lög áður en hann örmagnaðist og hafði Duff McKagan bassaleikari á orði á Twitter eftir giggið að hann hefði ekki í ann- an tíma orðið vitni að slíkri hörku á fjörutíu ára ferli. Gítarleikari sveitarinnar, Slash, tók í svipaðan streng á sama miðli og þakkaði áhorfendum fyrir góðan stuðning við erfiðar aðstæður. Ekki liggur fyrir hvað amaði að Rose en fram kom á tónleikunum að hann hefði kallað grimmt á Eyjólf fyrr um daginn. Axl Rose kallaði grimmt á Eyjólf Axl Rose var hress á tónleikum í Laugardalnum. Morgunblaðið/Valli Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ———

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.