Fréttablaðið - 18.03.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 18.03.2019, Blaðsíða 2
Að ætla sér að færa vandann yfir á íbúa Reykjavíkur er ekki lausn. Það er ósvífni. Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins 匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㄀㈀ ∠ ㄀㄀  刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㄀㔀㄀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀 䔀爀 樀攀瀀瀀椀渀渀 爀愀昀洀愀最渀猀氀愀甀猀 㼀 猀琀愀爀琀 昀礀爀椀爀 樀攀瀀瀀愀渀渀  瘀攀琀甀爀嘀攀氀搀甀 爀甀最最琀 䴀氀甀洀 ∠ 匀欀椀瀀琀甀洀 ∠ 吀爀愀甀猀琀 漀最 昀愀最氀攀最 ︀樀渀甀猀琀愀 Besti vinur mannsins Hugtakið „besti vinur mannsins“ sannaði sig enn og aftur í gær, en mikið var um dýrðir á hundasýningu Hundaræktendafélags Íslands og Garðheima. Fólk og ferfætlingar nutu samverunnar og félagsskaparins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI S 5-13 m/s en hægt vaxandi SA-átt suðvestantil. Sunnan 8-13 undir miðnætti og bætir í úrkomu á Suður- og Vesturlandi. SJÁ SÍÐU 20 SKIPULAGSMÁL Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, vill að fjarskiptabúnaður sem settur hafi verið upp í óleyfi á Úlfarsfelli „verði fjarlægður tafarlaust“. Borgarráð tók fyrir á fimmtudag tillögu borgarinnar og fyrirtækis- ins Sýnar að deiliskipulagi fyrir 1,3 hektara  svæði á toppi Úlfarsfells vegna 50 metra hás fjarskiptamast- urs fyrir loftnet og tækniskýli með útsýnispalli. Vigdís Hauksdóttir bókaði að Miðflokkurinn legðist alfarið gegn þessum framkvæmdum „á einum vinsælasta útsýnisstað borgar- innar“. Að sögn Vigdísar hefur Reykja- víkurborg gengið hart fram í mál- inu og  þvert gegn vilja íbúa Úlf- arsárdals, Grafarholts sem og íbúa borgarinnar almennt. „Að reisa 50 metra hátt stálmast- ur hlaðið tækjabúnaði sem sendir frá sér slíka geislun að búnaðurinn var tekinn niður í Kópavogi vegna nálægðar við íbúahverfi er for- kastanlegt. Að ætla sér að færa vandann yfir á íbúa Reykjavíkur er ekki lausn. Það er ósvífni,“ bókaði Vigdís. Um væri að ræða hagsmuni einkafyrirtækis en ekki íbúa. „Þessari aðför verður að ljúka hér og sú gríðarlega andstaða sem fram kemur í aðsendum athugasemdum í kjölfar auglýsingar um fyrirhug- aðar framkvæmdir verði virt,“ segir áfram í bókun Vigdísar. Borgarráðsfulltrúar meirihluta- f lokka Samfylkingarinnar, Við- reisnar, Pírata og Vinstri grænna bókuðu hins vegar að mikið hafi farið fyrir hræðsluáróðri og rang- færslum í tengslum við málið. „Er slíkum dylgjum og rangfærslum vísað á bug,“ bókaði meirihlutinn og kvað staðreyndir tala sínu máli. Toppur Úlfarsfells sé góð stað- setning fyrir umræddan búnað og Skipulagsstofnun segi áætlanir um útsýnispall og notkun náttúrulegs efnis mikilvæga áherslu á útivistar- gildi svæðisins. „Þá skal ítrekað að rannsóknir sýna að geislun frá mastri af þessu tagi eru langt undir öllum viðmið- unarmörkum og af þeim stafar engin heilsufarsógn,“ bókuðu meiri- hlutafulltrúarnir og  sögðust „fagna því að loks verði fullnægjandi útvarps- og fjarskiptaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu tryggð með nýju mastri“. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- f lokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins en lögðu fram bókun ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins: „Sjálfstæðisf lokkurinn leggur áherslu á að vernda græn svæði eins og kostur er og hlúa að útivistarsvæðum. Úlfarsfellið er eitt mest vaxandi göngusvæði borgar- búa og aðdráttarafl útivistarfólks.“ gar@frettabladid.is Vigdís óttast geislun af mastri á Úlfarsfelli Mjög vinsæl gönguleið er upp á Úlfarsfell.FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Meirihlutinn í borgar- ráði Reykjavíkur fagnar því að fjarskiptaþjón- usta verði loks tryggð með fullnægjandi hætti með nýju deiliskipulagi á Úlfarsfelli. Fulltrúi Miðflokksins óttast áhrif geislunar á íbúa í nágrenninu. Meiri- hlutinn vísar á bug „hræðsluáróðri, rang- færslum og dylgjum“. KJARAMÁL VR vill leita allra leiða til að forðast verkföll. Deilan við Samtök atvinnulífsins (SA) sé vel leysanleg en boltinn sé sem stend- ur hjá viðsemjendum þeirra. Þetta segir Ragnar Þór Ingólfsson, for- maður VR. „Við köstuðum boltanum út í liðinni viku og vonumst eftir því að komast aftur að borðinu en það er undir SA komið hvenær það getur orðið. Það er of boðslega knappur tími til stefnu og ef menn ætla að forða verkföllum þá þarf að setjast niður,“ segir Ragnar Þór. Atkvæðagreiðslu um verkfalls- boðun í hópferðafyrirtækjum á félagssvæði VR, svo og í gisti- þjónustu á höfuðborgarsvæðinu og Hveragerði, lauk á þriðjudag. Rétt rúmur meirihluti samþykkti boðunina. Ragnar Þór segir að sem stendur stoppi allt á vinnutíma- breytingum sem SA hefur lagt til. „Ég leyfi mér að vona, þó staðan sé svört, að þetta fari eins og árið 2015. Þá var þetta klárað á þremur dögum þegar menn voru tilbúnir að taka stöðuna alvarlega, setjast niður og semja. Það blasir við mér að þetta er leysanlegt verkefni og samnings- vilji er sannarlega til staðar,“ segir Ragnar Þór. – jóe Verkefnið ekki óyfirstíganlegt Ég leyfi mér að vona, þó staðan sé svört, að þetta fari eins og árið 2015. Þá var þetta klárað á þremur dögum. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR Fleiri ljósmyndir er að finna á +Plússíðu Frétta- blaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs-app- inu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS SK AGAFJÖRÐUR Forvarnarteymi Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur óskað eftir því við Sveitarfélagið Skagafjörð að það beiti sér fyrir því að þorrablót sem haldin eru í húsnæði í eigu sveitarfélagsins séu aðeins ætluð einstaklingum sem orðnir eru lögráða. Félags- og tómstundanefnd sagð- ist taka undir þetta sjónarmið og nú hefur sveitarstjórnin sjálf gert það sömuleiðis. Má því reikna með að í framtíðinni verði engir undir átján ára á þorrablótum sem haldin eru í húsnæði í eigu Sveitarfélagsins Skagafjarðar. – gar Aðeins lögráða inn á þorrablót  Þorramatur þykir mörgum lostæti. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. 1 8 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 8 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 9 3 -5 7 6 C 2 2 9 3 -5 6 3 0 2 2 9 3 -5 4 F 4 2 2 9 3 -5 3 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.