Fréttablaðið - 18.03.2019, Blaðsíða 11
Breiða sáttin átti væntan-
lega að ná út í þjóðfélagið.
Það er ekki að sjá. Þvert á
móti virðist ríkja mjög breitt
ósætti.
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust™
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
Þegar ríkisstjórnin var mynduð var mikið talað um það af forsprökkum hennar
að skapa ætti breiða sátt. Um væri
að ræða ákaflega ólíka flokka og
því heyrði það til mikilla tíma-
móta að þeir skyldu hafa ákveðið
að slíðra sverðin og starfa saman
pólanna á milli, eins og kallað var.
Það er merkilegt hvað lítið hefur
orðið úr þessari breiðu sátt. Katrín
virðist kannski sátt við Bjarna og
Svandís við Sigurð. Það er gott og
blessað. Fólkið er ekki að munn-
höggvast á þingi, eins og það væri
væntanlega að gera núna ef það
væri ekki saman í ríkisstjórn. Svo
langt nær sáttin. En hún nær ekki
mikið lengra.
Mótmæli úti um allt
Breiða sáttin átti væntanlega að
ná út í þjóðfélagið. Það er ekki að
sjá. Þvert á móti virðist ríkja mjög
breitt ósætti. Hælisleitendur mót-
mæla á degi hverjum. Verkafólk er
í baráttuhug og mundar verkfalls-
vopnið af áður óþekktri löngun,
líkt og ósættið hafi soðið undir
um árabil og sé loks að gjósa upp.
Grunnskólanemar skrópa í skólum
á föstudögum og fjölmenna niður í
bæ til að mótmæla þeirri alvarlegu
staðreynd að mannkynið er að
kæfa sig sjálft í gróðurhúsaloft-
tegundum og framtíðarútlit unga
fólksins því vægast sagt dökkt.
Satt að segja veit ég ekki almenni-
lega hvort það sé hægt að finna
beinlínis manneskju á Íslandi í dag
sem er sátt. Hinn glaði Íslendingur
er vandfundinn. Manni líður
stundum eins og sá síðasti hressi
á opinberum vettvangi hafi verið
Hemmi Gunn.
Vont einkenni
Þetta er bagalegt einkenni á
samfélagi. Sérstaklega forríku
örsamfélagi norður í hafsauga. Það
ætti að vera hægt að skapa nokkuð
umfangsmikla sátt meðal hinna
sárafáu íbúa með réttum áherslum
og aðferðum. Það fer mikil orka í
það að vera ósáttur. Dæs er orku-
suga. Maður vill treysta samfélagi
sínu. Maður vill búa í samfélagi
þar sem málefnum hælisleitenda
er sinnt af mannúð og víðsýni,
en ekki piparúða. Maður vill til-
heyra þjóðfélagi sem lítur á það
sem frumskyldu að sjá til þess að
vinnandi fólk geti lifað af launum
sínum. Maður vill tilheyra þjóð
sem er í fararbroddi í umhverfis-
málum og setur allt kapp á að
vera öðrum þjóðum fordæmi. Ég
gleymi því ekki þegar ég sat á þingi
og nýkrýndur forsætisráðherra
ákvað að ýta metnaðarfullum, og
áður samþykktum tillögum um
uppbyggingu græns hagkerfis á
Íslandi til hliðar og setja fjár-
magnið í varðveislu torf bæja. Í
ræðu sinni sagði hann að fátt væri
grænna en torf bæir.
Hvað og hvernig?
Það er þetta sem ég á við. Aug-
ljósum kröfum tímans er mætt
með skætingi. Deilur eru dyggð.
Hungri er mætt með hagtölum.
Neyð með kylfum. Dómur mann-
réttindadómstóls, sem hefur það
hlutverk að vernda borgarana
gegn valdmiklum stjórnvöldum
sem ætíð hafa tilhneigingu til að
misnota stöðu sína, er mætt með
hundshaus. Spurningamerki reist
við niðurstöðuna. Lítið um auð-
mýkt.
Hvernig verður meiri sátt til?
Jú, ég held að hún verði til dæmis
sköpuð með því að ríkisstjórn sem
sagðist ætla að skapa meiri sátt fari
að íhuga af meiri þunga og alvöru
hvernig hún geti náð því mark-
miði sínu. Eitt held ég að geti verið
leiðarljós í þeirri vinnu:
Að hlusta. Til að gera eitt-
hvað af viti þarf að skilja og til að
skilja þarf að hlusta. Hlusta á tif
tíðarandans. Hlusta á fólk falla í
fátæktargildrur. Hlusta á ein-
staklinga flýja til Íslands og mygla
úr afskiptaleysi á Ásbrú. Hlusta á
leiðann sem grípur um sig þegar
ákvarðanir eru ekki réttar, þegar
viðbrögð eru röng. Hlusta á von-
brigðin sem aðgerðarleysi getur
valdið og særindin sem aðgerðir
geta valdið. Hlusta á áhyggjur ann-
arra. Hlusta á jörðina hitna. Hlusta
á framtíðina versna.
Þjóðfélagshvíslari
Góð stjórnmálamanneskja er eins
og þjóðfélagshvíslari. Hún horfir.
Hún heyrir. Hún rýnir í. Hún leitar
eftir. Hún trúir því líka — og þetta
er erfitt á stundum — að innan um
allan orðaflauminn, skoðanirnar,
hrópin, köllin, jafnvel hatrið,
birtist ætíð um síðir ákvörðun sem
er kristaltær í sannleika sínum.
Setningar verða til, aðgerðir verða
til og þær eru góðar af einni og
aðeins einni ástæðu: Þær gera
heiminn betri, núna og til fram-
tíðar. Þær auka sátt.
Ég held að fólk á þingi hafi mis-
mikla trú á því að þetta sé hægt. Ég
gruna suma um að skeyta litlu um
svona markmið. Á sumum bæjum
virðist tilgangurinn fremur að
halda völdum og skipta gæðum.
Ég veit þó líka hitt, að á meðal for-
ystufólks þjóðarinnar eru mann-
eskjur sem vita vel að markmið
stjórnmála er æðra og merkilegra
en stundargróði fárra eða gæsla
úreltra hagsmuna. Það veit vel að
stjórnmál geta verið ægifögur.
Staðreyndin er hins vegar sú að
margt af þessu fólki er upptekið
þessa stundina við að halda saman
ríkisstjórn hinnar breiðu sáttar á
meðan þjóðfélagið logar í ósætti.
Það kalla ég rangan fókus.
Breiða sáttin
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M Á N U D A G U R 1 8 . M A R S 2 0 1 9
1
8
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
3
-5
7
6
C
2
2
9
3
-5
6
3
0
2
2
9
3
-5
4
F
4
2
2
9
3
-5
3
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K