Fréttablaðið - 27.03.2019, Page 8

Fréttablaðið - 27.03.2019, Page 8
Samkvæmt útreikn­ ingum SAF kostar hver dagur í verkfalli þau fyrir­ tæki sem um ræðir 250 milljónir króna. K JARAMÁL „Okkur hefði ekkert fundist óeðlilegt að viðsemjendur okkar tækju tillit til þessarar gríð- arlega viðkvæmu stöðu. Ef WOW fellur, þá er það auðvitað svakalegt högg fyrir greinina sem nú þegar er í vandræðum,“ segir Bjarnveig Halls- dóttir, formaður Samtaka ferða- þjónustunnar (SAF). Bjarnveig segir að það væri ábyrgðarlaust að semja um ein- hverjar launahækkanir á þessum tímapunkti. „Ég heyri miklar áhyggjur félagsmanna í öllum geir- um greinarinnar úti um allt land. Þótt verkföllin séu bundin við fyrir- tæki á höfuðborgarsvæðinu hefur þetta áhrif á alla.“ SAF hafa reiknað út að kostnaður við hvern dag í verkfalli sé um 250 milljónir króna. „Þá erum við bara að tala um þessi fyrirtæki sem verða fyrir aðgerðunum með beinum hætti en ekki öll hliðaráhrifin,“ segir Bjarnheiður. Þau hótel sem verkföllin ná til hafa lokað fyrir bókanir á þeim dögum sem aðgerðirnar taka til. Hins vegar er hægt að bóka her- bergi á ýmsum minni hótelum og í heimagistingu. Þá hafa rútufyrir- tæki fellt niður ýmsar ferðir sem venjulega eru í boði. K ristófer Oliversson, f ram- kvæmdastjóri Centerhotels, segir að komi til tveggja sólarhringa verkfalls muni það auðvitað flækja hlutina. „En við höfum enga kosti. Gestirnir eru hér á landinu og við setjum þá ekki á götuna. Ég vona að það sé ekki markmið neinna.“ Hann segir að nú sé verið að fara yfir það hvort skerða þurfi þjónust- una enn frekar frá síðasta verkfalli. „Við reynum að draga úr inn- og útritun á þessum dögum. Það er mesta vinnan í kringum það og við reynum að forðast það bara. Það var þokkalega bókað þessa daga en við verðum með færri gesti en vana- lega,“ segir Kristófer. Bjarnveig hefur ekki áhyggjur af hertri verkfallsvörslu sem boðuð hefur verið. „Okkar félagsmenn telja sig vera að fara eftir gildandi lögum og reglum þannig að ég held að menn óttist ekkert verkfalls- vörsluna sem slíka.“ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir þá óvissu sem sé uppi ekki eiga að þurfa að hafa þessi miklu áhrif á kjarasamninga. „Við losnum aldrei við að gera kjarasamninga fyrir okkar fólk. Ég hefði haldið miklu frekar að til að bregðast við mögulegum óvissu- þáttum og óstöðugleika væri frekar hagur SA að ganga frá gerð kjara- samninga þannig að atvinnulífið sé ekki í einhverju limbói út af því.“ Hann segist farinn að hallast að því að kerfisbundið sé reynt að tefja fyrir gerð samninga. „Við vitum það að atvinnulífið græðir hvern dag sem laun eru ekki hækkuð á meðan launafólk tapar,“ segir Ragnar Þór. Eins og SA hafi unnið hingað til hafi hann ekki trú á því að samn- ingsvilji þeirra aukist þótt verk- fallsaðgerðum yrði frestað. „Við munum ekki taka afstöðu til endurskoðunar á aðgerðum fyrr en við höfum í það minnsta eitt- hvað til að taka afstöðu til. Þeir vita alveg hvar þeir geta lent þessu en við fáum ekki einu sinni umræður um launaliðinn. Það er staða sem verður ekki sett á herðar neinna nema þeirra sjálfra sem kvarta hvað mest yfir stöðunni.“ sighvatur@frettabladid.is SAF vilja að VR og Efling taki tillit til viðkvæmrar stöðu Fundi Samtaka atvinnulífsins (SA) og stéttarfélaganna sex hjá ríkissáttasemjara var í gær frestað annan daginn í röð vegna óvissu um framtíð WOW air. Þá höfnuðu Efling og VR því að fresta verkfallsaðgerð um sem eiga að vera á fimmtudaginn og föstudaginn. Nýr sáttafundur hefur verið boðaður klukkan 14 í dag. STJÓRNSÝSLA Fimmtán hafa sótt um starf seðlabankastjóra. For- sætisráðuneytið birti í gær lista yfir umsækjendur en skipunartími Más Guðmundssonar seðlabankastjóra rennur út 20. ágúst næstkomandi. Hann hefur gegnt stöðunni frá árinu 2009. Hæfnisnefnd verður skipuð til að fara yfir umsóknirnar og meta hæfi þeirra sem sóttu um starfið. Á meðal umsækjenda eru Gylfi Arnbjörnsson, fyrrverandi forseti ASÍ, Gylfi Magnússon dósent, Bene- dikt Jóhannesson, fyrrverandi fjár- mála- og efnahagsráðherra, Ásgeir Jónsson, forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands, og Sigurður Hann- esson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Sérstaka athygli vekur að aðeins tvær konur sóttu um starfið, Salvör Sigríður Jónsdóttir nemi og Katrín Ólafsdóttir lektor. Tölvupósts- varnir Stjórnarráðsins komu í veg fyrir að umsókn Katrínar, sem send var fyrir lok tímafrests, bærist for- sætisráðuneytinu og því var hennar umsókn tilkynnt síðar en hinna fimmtán. Þrír núverandi starfsmenn Seðla- bankans sækja um starfið. – dfb Sextán sækja um í Seðlabankann en fáar konur sýna áhuga SAMGÖNGUR Pólska skipasmíða- stöðin Crist S.A. krefst þess að íslenska ríkið reiði fram viðbótar- greiðslu vegna smíði nýs Herjólfs. Krafan hljóðar upp á þriðjung af heildarverði skipsins. Upphaf legt samkomulag aðila hljóðaði upp á 26,5 milljónir evra eða um 3,5 milljarða króna á gengi dagsins í dag. Síðan þá var samið um viðbótarverk fyrir um hálfan milljarð í viðbót en þau fólu meðal annars í sér að skipið skyldi rafvætt. Talsverðar tafir hafa orðið á verkinu og hljóða útreikningar Vegagerðar- innar á tafabótum upp á rúmar 1,5 milljónir evra, rúmlega 200 millj- ónir íslenskra króna. „Skipasmíðastöðin gerir nú hins vegar kröfu upp á heildarverð sem nemur [38,4 milljónum] evra eða ríflega 5,2 milljörðum ísl. kr. Krafan um viðbótargreiðslu, sem ekki hefur verið nefnd fyrr en nú, hljóðar upp á um 8,9 milljónir evra eða ríflega 1,2 milljarða ísl. kr. á gengi dagsins,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni sem barst í gær. Skipasmíðastöðin ber fyrir sig að hönnun skipsins hafi breyst og það hafi falið í sér aukinn kostnað. Vega- gerðin telur á móti að krafan eigi sér alls enga stoð í samningi aðila enda hafi Crist S.A. tekið á sig „fulla og ótakmarkaða ábyrgð á hönnum skipsins“. Nýr Herjólfur er tilbúinn til af hendingar og hefur verið um nokkurt skeið. Hann fæst hins vegar ekki af hentur fyrr en greitt hefur verið úr þeirri f lækju sem upp er komin. – jóe Krefjast þriðjungi hærri greiðslu en lagt var upp með fyrir Herjólf Gylfi Arnbjörnsson. Sigurður Hannesson. Ásgeir Jónsson. Formenn Eflingar og VR, Sólveig Anna Jónsdóttir og Ragnar Þór Ingólfsson, ræða málin í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON RAFORKUMÁL Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, styður innleiðingu á þriðja orkupakkan- um og telur hann vera til bóta fyrir íslenskan raforkumarkað. Frá árinu 2003, þegar ný raforku- lög tóku gildi, hafa verið innleidd ákvæði tilskipana ESB í orkumál- um. Markmiðið var að þróa markað með raforku þannig að samkeppni tryggi lægsta verð til neytenda. Einnig hafa frekari reglur verið settar um raforkumarkaðinn til að verja hag neytenda á markaði. „Frekari þróun á þessari löggjöf, sem jafnan er nefnd þriðji orku- pakkinn, felur í sér aukið sjálfstæði eftirlitsaðila, frekari kröfur um aðskilnað milli sérleyfisþátta og samkeppnisþátta og þar með að efla raforkumarkaðinn,“ segir í ályktun Samorku. – sa Samorka vill orkupakkann REYK JAVÍK Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi Samfylkingar og fulltrúi í skipulags- og samgöngu- ráði, segir endurreisn verkamanna- bústaðakerf isins í Reykjavík í fullum gangi með að veita Bjargi, íbúðafélagi, lóðir til byggingar um 630 íbúða í borginni. Borgin sam- þykkti í síðustu viku að úthluta íbúðafélaginu lóðir til að byggja 124 íbúðir í Bryggjuhverfinu sem fara í langtímaleigu til félagsmanna ASÍ eða BSRB. Bjarg starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir og starfar þannig að það leigir íbúðirnar til félagsmanna sinna. Fréttablaðið greindi frá því í síð- ustu viku að hússjóðurinn Brynja, íbúðafélag á vegum öryrkjabanda- lagsins, hefði á sama tíma fengið neitun um stofnstyrki til að kaupa hús fyrir sína félagsmenn. – sa Bjarg byggir en Brynja má ekki kaupa hús Hjálmar Sveinsson. Nýr Herjólfur fæst ekki afhentur en er tilbúinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 7 -4 C 8 0 2 2 A 7 -4 B 4 4 2 2 A 7 -4 A 0 8 2 2 A 7 -4 8 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.