Fréttablaðið - 27.03.2019, Síða 20

Fréttablaðið - 27.03.2019, Síða 20
12 milljarðar króna er mark- aðsvirði hlutar Smallcap World Fund í Marel. ✿ Lán banka til ferðaþjónustu við áramót 6% Arion banki Hlutfall af útlánum 12% Íslandsbanki Hlutfall af útlánum 8% Landsbanki Hlutfall af útlánum 50 102 81 milljarðar milljarðar milljarður Heimild: Áhættuskýrslur bankanna og ársskýrslur Fari svo að f lugfélagið WOW air yrði gjald­þrota hefði það í fyrstu „mjög óveruleg áhrif“ á bankakerfið. „Helstu skuldir f lugfélaga eru við f lugvélaeigendur. Þau leigja ýmist f lugvélar eða eru með þær á kaupleigu,“ segir Harpa Jóns­ dóttir, framkvæmdastjóri fjármála­ stöðugleikasviðs Seðlabankans, í samtali við Markaðinn. „Því næst vaknar spurningin hversu hratt keppinautar bregð­ ast við því að sætaframboð hefur dregist saman. Um það ríkir óvissa. Það gæti orðið samdráttur í ferða­ þjónustu sem gæti smitast á aðrar atvinnugreinar. En reikna má með að útlánatöp banka yrðu ekki stór­ vægileg. Þeir eru vel í stakk búnir að mæta áföllum sem þessu. Bankarnir hafa há eiginfjárhlutföll og útlán til ferðaþjónustu eru um tíu prósent af útlánasafninu. Ekki er útilokað að útlánatöp myndu draga eitthvað úr arðsemi þeirra. Hafa ber í huga að jafnvel þótt færri ferðamenn sæki landið heim í ár mun engu að síður fjöldi ferða­ manna koma hingað. Áhrifin á efnahagslífið gætu minnt á af la­ brest,“ segir hún. Ásgeir Jónsson, forseti Hagfræði­ deildar Háskóla Íslands, segir að umfang útlána til ferðaþjónustu sé fremur lítið í heildarsamhengi auk þess sem íslensku bankarnir séu með mjög mikið eigið fé. Þess vegna muni útlánatöp í ferðaþjónustu ekki verða ógn við bankana jafnvel þótt mögulegt gjaldþrot WOW air hefði neikvæð áhrif á önnur fyrir­ tæki í atvinnugreininni. Framlegð þeirra af reglulegum rekstri sé hins vegar það lág að komi til útlánatapa muni þau þurrka út hagnað bank­ anna í ár. Gullgrafaraæði „Það hefur verið hálfgert gullgraf­ araæði í ferðaþjónustu og bank­ arnir hafa að einhverju leyti tekið þátt í því. Sum útlánin byggja á forsendum um tekjustreymi og vöxt sem eru augljóslega ekki að fara að ganga eftir. Undanfarin ár voru að mörgu leyti óvenjuleg. Allar stjörnur röðuðust upp okkur til heilla. Það gat ekki staðið til lang­ frama: Lágt verð á olíu og öðrum hrávörum og 30 prósent fjölgun ferðamanna á hverju ári. Á sama tíma fékk ríkissjóður gífurlegar fjárhæðir afhentar frá kröfuhöfum föllnu bankanna sem stöðugleika­ framlög. Það er því líklegt að niðursveifla í ferðaþjónustu muni bitna á rekstri bankanna. Það ferli hófst raunar á síðasta ári – eftir það tók að hægja á komum ferðamanna. Mögulegt gjaldþrot WOW air mun þyngja róðurinn verulega fyrir mörg fyrir­ tæki í greininni – sem nú þegar þurfa að glíma við þungan rekstur. Útlánatöp ógna ekki bönkunum Lánuðu 233 milljarða til ferðaþjónustu Bankarnir höfðu við áramót lánað um 233 milljarða króna í atvinnugreinina, samkvæmt opinberum gögnum. Um tíu pró- sent útlána viðskiptabankanna þriggja eru til ferðaþjónustu. Arion banki hafði lánað minnst eða sex prósent af lánasafninu. Það gerir um 50 milljarða króna, Landsbankinn lánaði um átta prósent af lánasafninu eða um 81 milljarð króna – við það bætast um tíu milljarðar króna sem bankinn lánaði Icelandair Group nýverið – og Íslandsbanki tólf prósent eða 102 milljarða króna. Hafa verður í huga að skilgrein- ing bankanna á því hvað tilheyri ferðaþjónustu kann að vera ólík. Seðlabankinn birti niður- stöður álagsprófs á bönkunum í ritinu Fjármálastöðugleika í haust. Teiknuð var upp sviðs- mynd sem spannaði þriggja ára tímabil og fól í sér mikinn samdrátt í útflutningi, veru- lega rýrnun viðskiptakjara, lækkað lánshæfismat og hærri fjármagnskostnað innlendra aðila. Þá veikist krónan veru- lega í sviðsmyndinni, verðbólga eykst, vextir hækka, fjárfesting minnkar, kaupmáttur minnkar og atvinnuleysi eykst. Samtals dregst verg landsframleiðsla saman um 6,5% fyrstu tvö árin. „Niðurstöður álagsprófsins eru á þann veg að eiginfjárhlut- föll bankanna lækka að meðal- tali um liðlega 4,5 prósent. Þar sem eiginfjárhlutföllin eru tiltölulega há myndu þeir standa slíkt áfall ágætlega af sér. Engu að síður myndu þeir þurfa að ganga á eiginfjárauka sem lagðir eru á til þess að mæta tapi vegna fjármálaáfalls,“ segir í ritinu. Ásgeir Jónsson segir að það hafi verið hálfgert gullgrafaraæði í ferðaþjónustu og bankarnir hafi að einhverju leyti tekið þátt í því. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fari svo að WOW air yrði gjaldþrota og það yrði samdráttur í ferða- þjónustu er bent á að eiginfjárhlutfall bank- anna sé hátt og útlán til ferðaþjónustu séu um tíu prósent af útlána- safninu. Fjöldi ferða- manna myndi engu að síður koma til Íslands. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Smallcap World Fund, sem er í stýringu American Funds, bætti við tæplega hálfs prósents eignarhlut, jafnvirði um 1.700 milljóna króna miðað við núverandi gengi bréfa, í síðustu viku og fer núna með um 3,3 prósenta hlut í félaginu. Frá áramót­ um hefur sjóðurinn, sem er sjöundi stærsti hluthafi fyrirtækisins, tvö­ faldað eignarhlut sinn í Marel. Gildi lífeyrissjóður hélt áfram að minnka við eignarhlut sinn í Marel og seldi um 0,25 prósenta hlut í síð­ ustu viku, sem er metinn á ríflega 900 milljónir króna, og fer nú með 5,9 prósenta hlut í félaginu. Auk Smallcap World Fund hefur evrópski vogunarsjóðurinn Teleios Capital bætt verulega við sig í Marel frá því í janúar og fer nú með 2,45 prósenta hlut í félaginu að virði lið­ lega níu milljarða króna. Hlutabréfaverð í Marel hefur hækkað um meira en 46 prósent frá áramótum. Félagið er langsamlega verðmætasta fyrirtækið í Kauphöll­ inni með markaðsvirði upp á 357 milljarða króna. Gengi hlutabréfa Marels standa í 541 krónu á hlut og hefur aldrei verið hærra. – kij Bætti við sig fyrir 1,7 milljarða króna í Marel Rútufyrirtæki og f leiri hafa til að mynda verið rekin með tapi að undanförnu. Ég geri mér hins vegar ekki grein fyrir áhrifum á fjölda ferðamanna í ár ef f lugfélagið verð­ ur gjaldþrota,“ segir hann. Fasteignir og flugvélar Fjárbinding í ferðaþjónustu liggur einkum í fasteignum og flugvélum. „Það er hætt við að boginn hafi verið spenntur of hátt. Fjárfestar hafi til að mynda haft óraunhæfar væntingar um þær leigutekjur sem húsnæði getur skilað til lengri tíma – hvort sem miðað er við verslun, veitingar eða gistingu. Nú þegar er ljóst að veitingarekstur og f leiri greinar standa vart undir núverandi leigu. Og svo bætast ýmsir aðrir liðir við – líkt og fasteignagjöld. Mögu­ lega munu bankar þurfa ganga að fasteignum í kjölfar vanskila, en fasteignirnar eru trygg veð. Ferða­ þjónustan er framtíðargrein á Íslandi – og að sumu leyti er hægari vöxtur hollari en hið mikla óðagot sem hefur verið í gangi. Fjárfesting­ arnar munu því skila arði til lengri tíma jafnvel þótt það komi tíma­ bundið bakslag,“ segir hann. Ásgeiri þykir ólíklegt að erfið­ leikar í ferðaþjónustu muni smitast yfir í byggingariðnað – að minnsta kosti ekki til skemmri tíma. Að undanförnu hafi verktakar einkum verið að reisa íbúðarhúsnæði en ekki hótel. „Það er töluverð íbúða­ þörf og því mun ekki gæta mikilla áhrifa þar svona fyrsta kastið.“ GAMMA Capital Management tapaði 203 milljónum króna fyrir skatta á síðasta ári, að því er fram kemur í lýsingu sem móðurfélagið, Kvika banki, gaf út í gær vegna skráningar fjárfestingarbankans á aðallista Kauphallarinnar. Til samanburðar hagnaðist verð­ bréfafyrirtækið um 626 milljónir króna árið 2017. Heildartekjur GAMMA voru 1.443 milljónir króna á síðasta ári og drógust saman um ríf lega 36 prósent frá fyrra ári þegar þær voru samanlagt 2.264 milljónir króna. Þá kemur fram í lýsingunni að eignir í stýringu GAMMA hafi numið 135 milljörðum króna í lok síðasta árs en þær voru tæpir 139 milljarðar króna í lok árs 2017. Kv ik a ba nk i og hlut ha fa r GAMMA skrifuðu sem kunnugt er undir samning um viðskiptin í nóvember í fyrra og lá samþykki hluthafa bankans og viðeigandi eftirlitsstofnana fyrir 6. mars síð­ astliðinn. Samanlagðar eignir í stýringu hjá Kviku og rekstrarfélögum í eigu bankans verða um 400 millj­ arðar króna í kjölfar kaupanna á GAMMA. Eins og fram kemur í lýsingunni er kaupverðið á GAMMA tæplega 2,6 milljarðar króna miðað við bókfært virði árangurstengdra þóknana hjá verðbréfafyrirtæk­ inu í lok síðasta árs en verðið getur breyst til hækkunar eða lækkunar eftir því hvernig rekstur og verð­ mæti fyrirtækisins þróast á næstu misserum. Gert er ráð fyrir að áhrif kaup­ anna á af komu Kviku fyrir skatta verði um 300 til 400 milljónir króna á ársgrundvelli. – kij GAMMA tapaði 203 milljónum í fyrra  Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA Capital Management. 2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN 2 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 7 -2 E E 0 2 2 A 7 -2 D A 4 2 2 A 7 -2 C 6 8 2 2 A 7 -2 B 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.