Fréttablaðið - 27.03.2019, Síða 26

Fréttablaðið - 27.03.2019, Síða 26
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Fiskur er ríkur af ómega-3 og gefur okkur D-vítamín sem allir þurfa á að halda hér á norðurhveli jarðar. Fiskur er sömu- leiðis góður prótíngjafi. Fiskur getur verið mikill veislumatur og hægt að matreiða hann á marg- víslegan máta. Hér eru nokkrar hugmyndir. Fiskur í kókos og karrí Þetta er bragðmikill og góður hversdagsréttur. Uppskriftin miðast við fjóra. 200 g brún hrísgrjón 800 g þorskflak 1 tsk. salt ½ blaðlaukur ½ græn paprika 2 msk. olía 4 dl létt kókosmjólk 2 msk. rautt karrímauk (curry- paste) Safi og börkur af hálfri límónu ½ rauðlaukur, smátt skorinn ½ chilli-pipar 4 msk. ferskt kóríander Hrísgrjónin eru soðin samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Skerið þorskinn í bita og kryddið með salti. Skerið blaðlaukinn í sneiðar og papriku í bita. Setjið olíu í djúpa pönnu. Steikið blað- lauk og papriku þar til mýkist. Bætið þá karrímauki á pönnuna og steikið áfram í 1-2 mínútur. Hrærið allt saman. Bætið því næst kókos- Fiskur er herramannsmatur Samkvæmt rannsóknum borðum við ekki nægilega mik- inn fisk. Hann ætti að vera á borðum að minnsta kosti tvisvar í viku enda vítamínríkur, hollur og góður. Það er hægt að framreiða fiskinn á glæsilegan máta. NORDICPHOTOS/GETTY mjólkinni við og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið malla í tíu mínútur. Loks eru fisk- bitarnir settir saman við og safi og börkur af límónu. Setjið lok á pönnuna og allt látið sjóða varlega í um það bil fimm mínútur. Bragð- bætið með salti og pipar. Dreifið kóríander yfir í lokin ásamt smátt skornum chilli-pipar. Berið fram með hrísgrjónunum. Rjómalöguð fiskisúpa Þetta er góð súpa sem einfalt er að gera og hún smakkast mjög vel. Það má vel bæta í hana fleiri tegundum af fiski, til dæmis rækjum eða kræklingi. Einnig má vel setja tómata út í eða annað grænmeti. Uppskriftin er fyrir fjóra. 2 gulrætur 6 dl fiskisoð 2 dl mjólk 2 msk. hveiti 200 g lax 200 g þorskur eða annar fiskur eftir smekk 1 dl frosnar baunir 1 dl rjómi ½ tsk. salt ½ tsk. pipar 1 msk. ferskur smátt skorinn graslaukur Sjóðið upp á fiskisoðinu í potti og setjið gulrætur í bitum út í. Látið malla í 3-4 mínútur. Blandið saman mjólk og hveiti í glasi með loki og hristið vel saman. Hellið blöndunni í fiskisoðið svo það þykkni. Látið sjóða í 5 mínútur. Lækkið hitann og setjið fiskibitana í súpuna ásamt baunum. Allt soðið áfram á lágum hita í 5 mínútur. Þá er rjóminn settur saman við og bragðbætt með salti og pipar. Setjið meiri vökva ef ykkur finnst súpan of þykk. Dreifið graslauk yfir. Berið fram með nýbökuðu brauði. Þorskur með tómat og ólífum Mjög góður réttur í tómatsósu. Passar vel með kartöflum eða hrísgrjónum. Uppskriftin er fyrir fjóra. 800 g þorskur, roðflettur 1 laukur 3 hvítlauksrif ½ kúrbítur 4 msk. ólífuolía 1 dós tómatar í bitum 1 msk. tómatmauk 1 dl vatn ½ grænmetisteningur 1 tsk. salt ½ tsk. nýmalaður pipar 12 steinlausar olífur ½ dl fersk skorin, fersk blaðstein- selja Hitið ofninn í 180°C. Skerið lauk, hvítlauk og kúrbít smátt. Hitið olíu á pönnu og steikið lauk og kúrbít þar til mýkist. Hellið því næst tómötum á pönnuna, tómatmauki og teningnum. Látið suðuna koma upp og bragðbætið með salti og pipar. Skerið fiskinn í bita og gætið að því að hann sé beinlaus. Bragð- bætið fiskinn með salti og pipar. Hellið tómatsósunni í eldfast mót og leggið fiskstykkin þar ofan á. Dreifið ólífum yfir. Setjið formið mitt í ofninn og bakið í 10-15 mínútur, eftir því hversu þykkar fisksneiðarnar eru. Takið formið út og dreifið steinselju yfir. Berið fram beint úr ofninum. Léttsaltaður þorskur með beikoni Mörgum finnst léttsaltaður fiskur mjög góður. Hægt er að bera hann fram með kartöflu- mús, steiktu beikoni og gulrót- um. Einfalt og gott. Uppskriftin miðast við fjóra. 800 g léttsaltaður þorskur 250 g beikon í litlum bitum 1 msk. smjör 200 g gulrætur Kartöflumús 1 kg mjölmiklar kartöflur 1 msk. smjör 2 dl mjólk 1 tsk. salt ½ tsk. nýmalaður pipar Skrælið kartöflurnar og sjóðið þær þangað til þær verða mjúkar. Hreinsið fiskinn og skerið í hæfi- lega bita. Sjóðið vatn og leggið fisk- bitana í og látið sjóða undir loki í 8-9 mínútur. Steikið beikonið í smjöri og setjið til hliðar. Skerið gulrætur í litla bita og sjóðið smástund í söltuðu vatni. Sigtið vatnið frá og setjið smá smjör saman við. Takið kartöflurnar upp og hellið vatninu. Maukið þær gróft og setjið smjör og mjólk saman við. Bragðbætið með salti og pipar. Hrærið kartöflurnar þar til blandan verður jöfn og fín. Bætið mjólk við ef það þarf. Berið fiskinn fram rjúkandi heitan með kartöflumúsinni. Sumum finnst gott að hafa sinnep með. GERRY WEBER - TAIFUN 25% afsláttur S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Af NÝLEGUM LÍNUM skoðið Laxdal.is/inspiring green AUKIÐ FRELSI AUKIN HAMINGJA 31. mars - 5. apríl 2019 Umsjón: Rósa Richter sálfræðingur og listmeðferðarfræðingur Verð 165.000 kr. 20 % afsláttur fyrir félagsmenn NLFR og NLFA Innifalið: Gisting, ljúengur og hollur matur Aðgangur að baðhúsi og líkamsrækt Fimm daga námskeið frá sunnudegi til föstudags. Rósa Richter sálfræðingur og listmeðferðarfræðingur Ert þú tilbúin(n) að bæta líðan þína og/eða breyta skaðlegu hegðunarmynstri með því að skoða rót vandans, vinna úr erfiðum minningum og byggja upp nýja von og framtíðarsýn? Berum ábyrgð á eigin heilsu www.heilsustofnun.is Með hjálp EMDR sem talin er áhrifaríkasta áfallameðferð sem býðst í dag, göldrum listmeðferðarinnar, mætti hugleiðslunnar og útiveru í náttúrunni býður þetta námskeið upp á raunveruleg tækifæri til sjálfskoðunar, endurnýjunar og breytinga. Þetta námskeið hentar þeim sem eru tilbúnir að: • Takast á við rót vandans, öðlast skilning á afleiðingum áfalla, meðvirkni og áhrifum tengsla í uppeldisfjölskyldu • Endurheimta bælda hluta persónuleikans sem hafa að geyma mikla orku og sköpunarkraft Þátttakendur læra að tileinka sér öflug verkfæri til að fást við erfiðar tilfinningar s.s. morgunvenjur sem auka vellíðan. Einnig er stunduð dagleg hugleiðsla, létt hreyfing og útigöngur. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R 2 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 7 -5 1 7 0 2 2 A 7 -5 0 3 4 2 2 A 7 -4 E F 8 2 2 A 7 -4 D B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.