Fréttablaðið - 27.03.2019, Qupperneq 28
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Hugbúnaðarfyrirtækið Wise sérhæfir sig í viðskipta-lausnum fyrir allar greinar
atvinnulífsins. Wise hefur um 20
ára skeið verið leiðandi í þróun
hugbúnaðarlausna fyrir fjölda
fyrirtækja hérlendis og erlendis.
Auðvelt er að aðlaga hugbúnaðinn
hverju fyrirtæki fyrir sig en sér-
lausnir Wise svo sem laun, banki,
innheimta og WiseFish eru í raun
allsherjarlausn sem notar Micro-
soft Dynamics NAV, nú í nýrri
útgáfu sem kallast Microsoft
Dynamics 365 Business Central
eða Business Central (BC).
Wise vinnur nú að því að upp-
færa núverandi viðskiptavini í
nýjustu útgáfur staðlaðra kerfa og
sérkerfa Wise. Starfsmenn Wise á
Íslandi eru yfir 80 með um 2.500
viðskiptavini um allan heim en
Wise hefur verið leiðandi í sölu
viðskiptahugbúnaðar frá árinu
1995.
Um þessar mundir er starfsfólk
Wise meðal annars að vinna að
spennandi þróunarverkefni fyrir
alþjóðlega fyrirtækið Cargill í
samstarfi við sænska hugbúnaðar-
fyrirtækið HiQ. Í verkefninu sér
Wise um að hanna vöruhús gagna
(data warehouse), Tabular teninga
og ýmsar þjónustur (API) í skýinu.
„Markmiðið er að taka saman
upplýsingar frá fiskeldisstöðvum
um allan heim til að geta borið
saman vöxt, fóðurnýtingu, áhrif
sjúkdóma o.fl. á milli svæða og
landa,“ segir Stefán Torfi Hösk-
uldsson, sviðsstjóri rekstrar- og
tæknisviðs. Viðskiptavinum Car-
gill er síðan veittur aðgangur að
þessum þjónustum eða grein-
ingum í gegnum vefsíðu sem heitir
SeaCloud.
Cargill er eitt stærsta fyrirtæki í
heimi í einkaeigu með yfir 150.000
starfsmenn og veltu yfir 14 þúsund
milljarða.
Auk þess má nefna að Omicron,
sjávarútvegsfyrirtæki í Súrínam
á norðausturströnd Suður-Amer-
íku, innleiddi WiseFish hugbúnað
fyrir þremur árum.
Innleiðing var
framkvæmd í
gegnum fjar-
tengingu. „Að
innleiða hug-
búnaðinn án
þess að þurfa
að fara á staðinn
sparaði bæði tíma
og peninga fyrir
okkur sem og við-
skiptavininn,“ segir Jón Heiðar
Pálsson, sviðsstjóri sölu- og
markaðssviðs Wise. Svo vel tókst
til við innleiðingu og framkvæmd
að annað fyrirtæki frá Súrínam,
Marisa Fisheries, er að fara í inn-
leiðingu á WiseFish.
WiseFish lausnir Wise spanna
alla virðiskeðju sjávarútvegsins frá
fiskeldi og veiðum til sölu og dreif-
ingar. „WiseFish annast utanum-
hald veiða, hversu miklu er landað
og hvaða tegundum. Einnig nýtist
forritið til að vakta kvótastöðu og
halda utan um framleiðsluferla.
WiseFish tengist öðrum kerfum á
gólfinu eins og Innova hugbúnaði
frá Marel og má tengja kerfið við
jaðartæki svo sem vogir og hand-
tölvur,“ segir Jón Heiðar.
WiseFish hugbúnaðurinn hefur
verið í þróun hér heima um áratuga
skeið og seinni ár hefur hróður
hans borist víða, m.a. til Ástralíu,
Suður-Ameríku, Noregs og Þýska-
lands. Sérfræðingar WiseFish hafa
undanfarin 15 ár unnið náið með
fyrirtækinu Euro Baltic í Þýska-
landi að þróun og uppfærslu kerfis-
ins. Euro Baltic er hluti af Parlevliet
& Van der Plas Group (P&P Group)
í Hollandi og er stærsti verkandi
síldar við Eystrasaltið. „Í næstu
uppfærslu verða allar tengingar
við framleiðslukerfin skilvirkari
og einfaldari og hún leysir af hólmi
mikinn fjölda Excel skjala sem
notuð hafa verið til að halda
utan um veiðar, löndun og sölu.
Reynslan af notkun WiseFish hjá
Euro Baltic hefur skilað því að P&P
Group hefur ákveðið að innleiða
WiseFish hjá fleiri dótturfélögum,
m.a. hjá túnfisksútgerðinni CFTO
í Frakklandi,“ segir Andrés Helgi
Hallgrímsson, sölustjóri WiseFish,
og bætir við að starfsmenn CFTO
séu spenntir að fá í hendurnar
eitt kerfi sem haldi utan um allan
ferilinn frá veiðum til sölu. „Þar
með er hægt að rekja feril hráefnis-
ins og fylgja eftir þeim gæðakröfum
sem kaupendur gera.“
WiseFish var innleitt í fyrirtæki í Súrínam, sem er á norðausturströnd Suður-Ameríku. Innleiðing var framkvæmd í gegnum fjartengingu og þannig sparaðist tími og peningar. NORDICPHOTOS/GETTY
Starfsmenn Wise á Íslandi eru yfir 80 með um 2.500 viðskiptavini um allan
heim. Wise hefur verið leiðandi í sölu viðskiptahugbúnaðar frá árinu 1995.
Kosturinn við að vera hjá Wise
l Gerir vinnslu við bókhaldið fljót-
legra, skilvirkara og skemmti-
legra.
l Tilbúnar Power BI skýrslur fylgja
stöðluðu kerfi sem sýnir mæla-
borð stjórnandans á símum,
iPad, vef hvar og hvenær sem er.
l Sjálfvirkni í móttöku og send-
ingu rafrænna reikninga með
tengingu við alla skeytamiðlara
landsins, einfaldar líf bókarans,
dregur úr villuhættu og tryggir
réttari meðhöndlun gagna.
l Bankakerfi sem annast sjálfvirka
afstemmingu bankareikninga og
sýnir raunstöðu bankareikninga
á einum stað.
l Öll vinnsla á sér stað í kerfinu og
ekki þarf lengur að skrá sig inn í
netbanka til að greiða og mót-
taka reikninga
l Tengingar við allar helstu vef-
búðir sem gerir okkur kleift að
tengja vefbúðir á skemmri tíma
en áður.
l PDF reikningar til viðskipta-
manna og frá birgjum eru sendir
og mótteknir og tengdir við
færslur þar sem við á.
l Myndir af reikningum eru
einfaldlega tengdar færslum í
ferða- og kortauppgjörum sem
sparar mikla vinnu við skráningu
kostnaðar og eykur skilvirkni.
l Office 365 er fullkomlega sam-
hæft við Micrsoft Dynamics
NAV, nú Microsoft Dynamics 365
Business Central.
l Hægt er að meðhöndla tilboð,
innkaup og reikningagerð í
Outlook.
l Reikningar, eyðublöð og útlit er
breytt og aðlagað í Word.
WiseFish teng-
ist öðrum kerf-
um á gólfinu eins
og Innova hug-
búnaði frá Marel
og má tengja
kerfið við jaðar-
tæki svo sem vogir
og handtölvur.
Jón Heiðar Pálsson
2 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RFYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
A
7
-3
D
B
0
2
2
A
7
-3
C
7
4
2
2
A
7
-3
B
3
8
2
2
A
7
-3
9
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K