Fréttablaðið - 27.03.2019, Síða 30
4 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RFYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Markviss móttaka nýrra starfsmanna á vinnu-stað er talin vera eitt
af aðal atriðunum til að tryggja
hollustu þeirra og tryggð. Hún ýtir
jafnframt undir betri frammi-
stöðu starfsmanna, þeir gera færri
mistök og eru f ljótari að komast
inn í starfið. Góð móttaka nýliða
er einnig talin geta dregið úr
starfsmannaveltu, en ein af helstu
ástæðum þess að starfsmenn
hætta í starfi á fyrstu mánuðunum
er talin vera ómarkviss þjálfun og
móttaka,“ segir Harpa Björg Guð-
finnsdóttir, leiðtogi fræðslumála
hjá Rio Tinto á Íslandi, sem verður
kennari á námskeiði Endurmennt-
unar.
Hún segir ýmsar leiðir til að
taka á móti nýjum starfsmönnum.
„Það er afar mikilvægt að nánustu
samstarfsmenn séu meðvitaðir
um að nýr starfsmaður er væntan-
legur og gott fyrir þá sem taka á
móti nýliðum að styðjast við gát-
lista til að tryggja að hlutir gleym-
ist ekki. Hverja þarf nýliðinn til
dæmis að hitta, hvaða upplýsingar
þarf hann, hver á að kenna honum
starfið og hefur hann þau tæki og
tól sem til þarf?“
Harpa segir mörg stærri fyrir-
tæki vera með formlegt fóstra-
kerfi þar sem eldri og reyndari
starfsmenn taki á móti þeim nýju
og eru þeim innan handar fyrstu
vikur í starfi. „Þetta er góð leið til
að tryggja góða móttöku nýliða og
auðvelda aðlögun þeirra að nýja
vinnustaðnum.“
Innt eftir því hvort þessum
málum sé nægilega vel sinnt af
íslenskum fyrirtækjum segir
Harpa að það sé sín upplifun.
„Fyrir tæki eru alltaf að leggja
meiri og meiri áherslu á góða
móttöku nýliða. Hjá stærri fyrir-
tækjum er þessi þáttur yfirleitt
í föstum skorðum og litið á góða
móttöku nýliða sem einn af mikil-
vægum þáttum í rekstri fyrir-
tækja.“
Hvað gerist ef fólk fær ekki góðar
móttökur?
„Það skiptir okkur öll miklu
máli að tekið sé vel á móti okkur,
fyrstu kynni skipta miklu máli í
öllum samskiptum. Þegar ég spyr
fólk að því hvort það muni eftir
fyrsta vinnudeginum svara f lestir
játandi, hvort sem þeir upplifðu
góðar eða slæmar móttökur. Það
er mjög mikilvægt að aðlagast
vinnustaðnum vel, upplifa okkur
velkomin og að við séum hluti af
hópnum og einnig er mikilvægt að
við fáum f ljótt þá tilfinningu að
við völdum starfinu. Séu móttök-
urnar ekki góðar aukast líkurnar
á að við gefumst upp og hættum
í starfi. Kostnaður við starfs-
mannaveltu er gríðarlega hár og
því vilja öll fyrirtæki halda henni
í lágmarki.“
Harpa telur forsvarsmenn fyrir-
tækja áhugasama um að bæta
þennan þátt í starfseminni. „Nám-
skeið og fundir um þennan þátt
eru yfirleitt vel sóttir og greinilegt
að margir leggja áherslu á góða
móttöku og þjálfun nýliða. Þetta
er þáttur sem alltaf má bæta. Það
þarf til dæmis stöðugt að endur-
skoða innihald fræðslunnar og
hverju hún er að skila. Það verður
líka þróun í þessu eins og öðru í
fyrirtækjarekstri, æ f leiri eru til
dæmis að nýta sér leiðir í vef-
fræðslu sem er góð viðbót við
aðrar leiðir sem notaðar eru í
þjálfun.“
Harpa verður kennari á stuttu
námskeið hjá Endurmenntun
Háskóla Íslands mánudaginn
1. apríl næstkomandi. Námskeiðið
ber heitið Móttaka nýliða á vinnu-
stað og er ætlað stjórnendum,
millistjórnendum, starfsmönnum
mannauðsmála í fyrirtækjum og
stofnunum og öllum þeim sem
hafa áhuga á málefninu og vilja
tryggja góða móttöku nýliða á
vinnustað.
Á námskeiðinu verður meðal
annars fjallað um starfsánægju,
starfsmannaveltu og tengsl við
móttöku nýliða, aðlögun nýliða,
ferlið við nýliðamóttöku og fóstra-
kerfi.
Nánari upplýsingar má nálgast á
endurmenntun.is.
Góð móttaka bætir frammistöðu
Mikilvægt er að taka vel á móti nýjum starfsmönnum. Það bætir starfsánægju og frammistöðu.
Móttaka nýliða á vinnustað nefnist námskeið á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands.
Allir muna eftir fyrsta vinnudegi sínum á nýjum vinnustað. Góðar mót-
tökur geta skipt sköpum til að skapa jákvætt viðhorf. NORDICPHOTOS/GETTY
Harpa Björg Guðfinnsdóttir er með
MA-gráðu í mannauðsstjórnun og
starfar sem leiðtogi fræðslumála
hjá Rio Tinto á Íslandi.
Persónuleg og
fagleg þjónusta
Við finnum réttar lausnir fyrir þig og
þitt fyrirtæki, hvort sem um er að ræða
heimilistæki, tölvubúnað, skjá- eða
sjónvarpslausnir eða allt þar á milli.
Fyrirtækjaráðgjafi
Stefán Pétur Kristjánsson
stefan@elko.is
697 8515
nánari upplýsingar veitir
fyrirtækjaráðgjafi okkar:fyrirtækjaþjónusta
elko kynnir til leiks nýja þjónustuleið
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
A
7
-2
9
F
0
2
2
A
7
-2
8
B
4
2
2
A
7
-2
7
7
8
2
2
A
7
-2
6
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K