Fréttablaðið - 27.03.2019, Síða 36

Fréttablaðið - 27.03.2019, Síða 36
Við erum í raun að straumlínulaga og auka í starfsemi sem þegar var til staðar innan fyrirtækisins. Við teljum að þetta sé rétti tíminn fyrir stofnun sviðsins enda er vöxtur í þessari starfsemi og eftirspurn eftir slíkri þjónustu. Þekking hf. hefur í 20 ár sér-hæft sig í ráðgjöf og rekstri á sviði upplýsingatækni. Hjá Þekkingu starfa ríf lega 70 manns en fyrirtækið er með starfs- stöðvar á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Guðmundur Arnar Þórðarson stýrir sviðinu Viðskiptaþróun og ráðgjöf hjá Þekkingu og segir hann fyrirtækið vera að ná miklum árangri í samstarfi við viðskiptavini við að aðgreina sig á markaði og setja fókus á eigin kjarnastarfsemi. „Möguleikarnir eru margir og ótal þættir sem þarf að taka tillit til, tæknilegir, stjórn- unarlegir og mannlegir.“ Gerum flókna hluti einfalda Guðmundur segir að þrátt fyrir hraðar breytingar hafi Þekking haldið í grunngildi sín sem felast í að fyrirtækið er óháð, með skýrar áherslur og lipurð í þjónustu. „Þekking f lytur ekki inn vélbúnað né þróar hugbúnað og erum við því ekki bundin við neina lausn. Rekstur og hugbúnaðarleyfi eru oftar en ekki með stærstu kostn- aðarþáttum tölvukerfa og með því að hafa óháðan samstarfsaðila eins og Þekkingu, sem getur veitt ráðgjöf um hvaða lausnir eru að koma best út, getur viðskiptavin- urinn náð betri árangri en ella.“ Þjónusta Þekkingar er marg- þætt og tekur mið af þörfum hvers og eins viðskiptavinar. Þekking tekur m.a. að sér ráðgjöf, stefnumótun í upplýsingatækni, verkefnastýringu upplýsinga- tækniverkefna eða er tölvudeild fyrirtækja með öllu stjórnskipu- lagi sem því fylgir. „Í grunninn hefur allur rekstur upplýsinga- tækni álíka þarfir, helstu breytur eru stærð og ytri kröfur. Innri þættir varða svo m.a. stefnu- mótun, ferla og menningu sem er mjög mikilvægt að taka mið af og hafa í huga. Með öllum val- kostunum sem bjóðast í dag getur heildarmyndin oft virst f lókin og mörg fyrirtæki í upplýsingatækni keppast um athygli viðskiptavina. Ráðgjöf okkar miðast því við að koma að stefnumörkun í upp- lýsingatækni og hjálpa viðskipta- vinum okkar að finna lausnir sem eru sérsniðnar að þörfum hvers og eins. Þekking býr yfir þeirri sér- stöðu í krafti þess að vera óháð og með skýrar áherslur, þ.e. að geta unnið með f lestöllum á markaði auk þess sem við búum yfir þétt- ofnu tengslaneti fyrirtækja í upp- lýsingatækni,“ segir Guðmundur. Árangur á hagkvæman hátt Þekking hefur til margra ára sinnt rekstrarþjónustu en hefur nú stóraukið sérfræðiráðgjöf með það til hliðsjónar að taka upp nýjar lausnir og vinnuaðferðir. „Fyrirtæki eru að tileinka sér meira af skýjalausnum en einnig í auknum mæli að taka upp staðl- aðar lausnir. Þá er gott að geta leitað til sérfræðinga sem þekkja reksturinn og geta ráðlagt réttar lausnir. Við aðstoðum viðskipta- vini okkar við að ná árangri á sem hagkvæmastan hátt með snjallri nýtingu upplýsingatækni. Og þar koma óháðir sérfræðingar Þekk- ingar til sögunnar.“ Guðmundur segir það vera sífellt algengara að sérfræð- ingar Þekkingar setjist niður með stjórnendum fyrirtækja og ræði við þá um hvernig upplýsinga- tæknin yrði byggð upp ef fyrir- tækið væri að byrja með hreint borð. „Við hjálpum til við að raun- gera þá breytingu og leiðum þá að því marki.“ Útvistun í sókn Í efstu þjónustulínu Þekkingar, „Tölvudeildin þín“, leggur Þekk- ing til stjórnendur í upplýsinga- tækni. Í þeirri þjónustulínu fylgir m.a. ráðgjöf og þátttaka í verkefn- um þannig að viðskiptavinurinn fær óháða sérfræðinga sér við hlið sem hjálpa til við að nýta upp- lýsingatækni til aðgreiningar á Þekking í 20 ár Um tveggja áratuga skeið hefur Þekking þjónustað at- vinnulífið í allri almennri upplýsingatækni hér á landi. Nú hefur fyrirtækið stóraukið sérfræðiráðgjöf sína sem tekur mið af þörfum hvers og eins viðskiptavinar. Guðmundur Arnar Þórðarson stýrir sviðinu Viðskiptaþróun og ráðgjöf hjá Þekkingu. MYND/ANTON BRINK nýtingu á tíma starfsfólks. Mikil- vægt er að undirbúa útvistun vel og gera það með stefnumiðuðum hætti, en það er mjög gaman að sjá að f leiri og f leiri aðilar eru að taka slík skref og hef ég trú á að það muni aukast enn frekar.” Þungt að læsast inni Eins og fyrr segir stýrir Guð- mundur Arnar Viðskiptaþróun og ráðgjöf, en sviðinu er fyrst og fremst ætlað að ná utan um og styðja við starfsmenn og verk- efni í ráðgjöf, viðskiptaþróun og verkefnastýringu. „Við erum í raun að straumlínulaga og auka í starfsemi sem þegar var til staðar innan fyrirtækisins. Við teljum að þetta sé rétti tíminn fyrir stofnun sviðsins enda er vöxtur í þessari starfsemi og eftirspurn eftir slíkri þjónustu. Sviðið er að sinna fram- tíðarávinningi viðskiptavina með því að nýta bestu fáanlegu lausnir sem henta hverjum og einum því það er okkar bjargfasta trú að það geti reynst fyrirtækjum og stofn- unum þungur baggi að „læsast“ inni hjá einum þjónustuaðila. Lykillinn er að nýta það besta frá hverjum og einum.“ Aðspurður um dæmi um verk- efni tengd ráðgjöf nefnir hann stafræna umbreytingu (e. digital transformation) en í henni felast oft á tíðum stór umbótaverk- efni og jafnvel útskipti á stórum kerfum. „Þekking vinnur þar með mörgum aðilum og sér til þess að allt gangi upp. Mikilvægt er að hafa í huga að svona umbreyt- ingarverkefni eru aðeins að hluta tæknileg og hlutverk Þekkingar því mun víðtækara. Ég hef oft sagt að í upplýsingatækni er það mannlegi þátturinn og samskipti sem eru mun mikilvægari en tækni eða tæknileg hæfni. Má þar nefna mikilvægi samskipta og sameiginlegs skilnings. Séu slíkir hlutir ekki til staðar er hætta á að lítið þokist áleiðis með tæknina.“ Fjórða iðnbyltingin byrjuð Það er ljóst að þróunin er áfram hröð í upplýsingatækni og hefur fjórða iðnbyltingin mikið verið rædd síðustu misseri. Guðmundur segir að sem dæmi um slíkt megi nefna „róbótavæðinguna“ eða sjálfvirknivæðinguna í rekstri á upplýsingatækni. Slíkt sé orðið að veruleika. „Það er mjög mikilvægt að taka þátt í þessari þróun þar sem skortur á tæknimenntuðu fólki mun því miður aukast. Fyrir íslenskt atvinnulíf og þar með hagkerfið okkar er mjög mikil- vægt að nýta vel það starfsfólk sem við höfum í faginu og taka skynsamlegar ákvarðanir og horfa á heildarmyndina til lengri tíma. Góður árangur þar mun hjálpa íslensku atvinnulífi og þar með Íslendingum að feta sig ofar í virðiskeðjuna og auka framleiðni. Stöðnun í þessum efnum þýðir hnignun og er því til mikils að vinna,“ segir Guðmundur Arnar Þórðarson, sviðsstjóri Viðskipta- þróunar og ráðgjafar hjá Þekk- ingu. markaði, segir Guðmundur. „Sem dæmi býður Þekking nú upp á að fá leigðan upplýsingatæknistjóra, eða CIO, sem sér þá um rekstur kerfa. Með því að velja slíka þjónustu vita stjórnendur fyrir- tækja að rekstur upplýsingakerfa er í öruggum höndum sérfræðinga og geta þar með nýtt starfsfólk sitt betur í að sinna kjarnastarfsemi. Við finnum að stjórnendur eru mjög meðvitaðir um mikilvægi réttrar nýtingar upplýsingatækni og tengsl hennar við gögn, ferla, tækifæri og áskoranir fyrirtækja sinna.“ Útvistun er einnig stór liður í þessari þróun og segir Guð- mundur starfsmenn Þekkingar verða vara við vakningu í útvistun á upplýsingatækni. „Hún er líkt og sjálfvirknivæðingin, ein af þeim leiðum sem má fara til að auka sérhæfingu, fókus og betri 10 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RFYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA 2 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 A 7 -2 E E 0 2 2 A 7 -2 D A 4 2 2 A 7 -2 C 6 8 2 2 A 7 -2 B 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.