Fréttablaðið - 27.03.2019, Qupperneq 38
Ólíkt því sem flestir halda, þá er skýið almennt talið öruggara heldur en að vera
með gögnin á sínum eigin búnaði.
Upplýsingafyrirtækið Sensa hefur
sérhæft sig í að flytja skrifstofuum-
hverfi fyrirtækja í skýjaþjónustur.
Sensa er með mikla reynslu þegar
kemur að því að flytja fyrirtæki
upp í skýið en fleiri þúsund not-
endur eru á vappinu um Microsoft
skýið á þeirra vegum í dag. „Raunin
er sú að erlendu skýjaþjónustu-
aðilarnir, þessir risar úti í heimi
með sína ógnarstóru vélasali, eru
að vinna samkvæmt ströngustu
mögulegu öryggisskilyrðum.
Almennt eru flestir hættir að ótt-
ast skýið en margir vita kannski
ekki alveg hvert gögnin þeirra
fara,“ segir Þröstur Sigurjónsson,
rekstrarstjóri skýjalausna hjá
Sensa.
Þröstur segir að skýið uppfylli
allar helstu kröfur og vottanir
sem fyrirtæki þurfi á að halda. Og
sökum stærðar sé hægt að bjóða
upp á verð sem hafi ekki sést áður.
„Þessir stóru aðilar eru að bjóða
upp á öryggi og verð sem hefur
ekkert verið í boði áður,“ bætir
Grétar Gíslason, tæknilegur leið-
togi skýjalausna, við. Sensa hefur
flutt hundruð fyrirtækja upp í
skýið og er kominn mikil þekking
og reynsla innan fyrirtækisins.
„Við erum orðin mjög reynd í þess-
um bransa. Við höfum rekist á alls
konar veggi og byggt þannig upp
mikla þekkingu um hvernig best
sé að standa að svona flutningum,“
segir Ívar Hákonarson, sölustjóri
hýsingar-, rekstrar- og skýjalausna,
hjá Sensa og heldur áfram:
„Okkar nálgun er að byrja á
þarfagreiningu sem er grund-
völlurinn að því sem gerist í
kjölfarið. Því næst veljum við réttu
leyfin þannig að kúnninn sé ekki
að ofgreiða eða kaupa leyfi sem
hann þarf síðan ekkert á að halda.
Svo veitum við aðstoð við að setja
umhverfið upp og tryggjum öryggi
þess. Í kjölfarið er hjálpað að
kortleggja gögnin og upplýsingar
og hvað eigi að fara upp í skýið.
Að lokum leggjum við áherslu á
kennslu og samstarf til framtíðar.“
Fyrirtækið er gullvottaður sam-
starfsaðili Microsoft í svokölluðu
Cloud Productivity. „Þetta þýðir
að Microsoft er búið að votta fyrir-
tækið og okkar tæknimenn sem
aðila sem eru búnir að sérhæfa sig í
að ná virði úr lausnum þeirra. Við
erum búin að sækja okkur ákveðin
réttindi til að geta kallað okkur
gullvottaðan samstarfsaðila,“ segir
Ívar.
Fræðsla og undirbúningur
skiptir töluverðu máli ef fyrirtæki
ætlar að ná því mesta út úr þessum
lausnum. Þetta segja þau vera
breytt vinnubrögð sem krefjist
kennslu ef vel á að fara. „Þarna
eru kominn tæki og tól sem flestir
kannast jafnvel ekkert við,“ segir
Sigurborg, sérfræðingur í skýja-
lausnum hjá Sensa. „Allir þekkja
tölvupóst og drifin sem skjölin eru
vistuð á en nú eru komnar lausnir
sem eru verkefnadrifnar og bjóða
upp á öfluga samvinnumöguleika
hvort sem um er að ræða innan eða
utan fyrirtækis. Þetta eru hóp-
vinnulausnir sem fyrirtæki hefur
verið að dreyma um lengi og nú
eru til og þrepi ofar en flestir þorðu
að vona. Þarna geta allir verið inni
í sama skjalinu að vinna á sama
tíma sem er mikill munur frá því
sem áður var,“ segir hún.
Nálgun Sensa í hnotskurn:
l Greina þarfir og velja réttu
leyfin.
l Uppsetning umhverfis og
öryggis þess.
l Hjálpum þér að skipu-
leggja gögnin/upp-
lýsingarnar þínar í skýinu.
Tölvupóstur, heimadrif og önnur
skjöl, spjallið o.fl.
l Kennum á nýjar lausnir.
l Samstarf til framtíðar.
Skrifstofan í skýið
Sensa hefur sérhæft sig í að flytja upplýsingar fyrirtækja
í skýjaþjónustur á borð við Microsoft 365. Fyrirtækið er
gullvottaður samstarfsaðili Microsoft og vottaður sam-
starfsaðili Amazon Web Services svo eitthvað sé nefnt.
Grétar Gíslason, Sigurborg Gunnarsdóttir, Ívar Hákonarson og Þröstur Sigurjónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Einfalt, öruggt, aðgengilegt
Grétar Gíslason, tæknilegur leiðtogi skýjalausna, segir að öryggið sé númer eitt, tvö
og þrjú. Sensa leiði alla vinnu við
öryggi og þegar aðgengið er orðið
svo mikið sé nauðsynlegt að stíga
skref til að herða öryggið til muna.
Eitt það einfaldasta, en jafnframt
öruggasta sem fyrirtæki geta
gert er að vera með tveggja þátta
auðkenningu. Þá er ekki nóg að
komast yfir notandanafn og lykil-
orð heldur þarf notandi einnig að
auðkenna sig gegnum símtæki sitt
sem dæmi. „Í skýinu er gervigreind
sem heldur utan um notandann og
greinir notkun hans. Ef viðkom-
andi hagar sér almennt á vissan
hátt en byrjar allt í einu að haga sér
öðruvísi þá greinir gervigreindin
það og kemur með öryggis-
meldingu. Við getum þá látið loka
á viðkomandi sem dæmi. Örygg-
ið og rekjanleikinn er orðið það
svakalegt í skýinu. Microsoft ætlar
að eyða einum milljarði dollara í
öryggislausnir árlega næstu fimm
árin, sem ekkert íslenskt fyrirtæki
getur keppt við.
Skýið er orðið töluvert betra en
flesta óraði fyrir.“
Ívar Hákonarson, sölustjóri
hýsingar-, rekstrar- og skýjalausna
hjá Sensa, bætir við að oftar en
ekki sé það fjárhagslegt hagræði
að fara upp í skýið. „Þessir aðilar
eru af þeirri stærðargráðu að þeir
ná að bjóða verð sem hafa ekki
þekkst áður. Margir eru þegar
farnir eingöngu með tölvupóstinn
í skýið, en við það opnast hellingur
af tækifærum sem allt of fáir eru að
nýta sér.
Við erum ekki bara að flytja nýja
aðila yfir í lausnir Microsoft 365,
heldur einnig að hjálpa þeim sem
eru þegar komnir af stað að inn-
leiða og fá eitthvað út úr því sem
þeir eru jafnvel þegar að greiða
fyrir.“
Sensa er ekki sama
Okkur er ekki sama er mottó Sensa og það sem drífur
fyrirtækið áfram í að
veita framúrskarandi
þjónustu með hag
viðskiptavinarins að
leiðarljósi.
„Við erum ekki að
ráðleggja neinum að
gera neitt eða fara í neitt
sem er ekki rétt fyrir við-
skiptavininn. Það er það sem
við stöndum fyrir,“ segir Ívar.
„Ef það þýðir að við-
skiptavinurinn sé að fara
í lausnir sem lækka
reikninginn til okkar
en það henti við-
skiptavininum betur
þá gerum við það.
Skýjavegferðin er
gott dæmi um það. Við
viljum ná árangri í því
sem við erum að gera og
okkur er ekki sama.“
Sérfræðingar í Microsoft 365
Sensa er gullvottaður sam-starfsaðili Microsoft í Cloud Productivity – vottað í að
hjálpa fyrirtækjum að ná virði úr
skýþjónustum. Fyrirtækið hefur
flutt hundruði fyrirtækja upp í
Microsoft 365.
Sensa hefur búið til staðlaða
nálgun á að kortleggja heildar-
upplýsingar fyrirtækja sem að það
kallar upplýsingakort. Þetta er ein-
föld vinnustofa sem skilar korti af
upplýsingum fyrirtækja og tillögu á
flutning þeirra upp í Microsoft 365.
Sensa getur boðið upp á staðl-
aðar og sérsniðnar lausnir og er
framþróunin stöðug. Öll ný þróun
hugbúnaðarframleiðandanna
fer fram í skýjaþjónustum. Flow,
Teams, Planner, Delve o.fl. eru
dæmi um lausnir frá Microsoft sem
eru eingöngu í boði í skýinu.
Sensa sérhæfir sig í ráðgjöf og
sérfræðiþjónustu á:
lHýsingu og rekstri
lSkýjalausnum
lÖryggislausnum
lSamskiptalausnum
lNetkerfum
12 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RFYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
7
-4
2
A
0
2
2
A
7
-4
1
6
4
2
2
A
7
-4
0
2
8
2
2
A
7
-3
E
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K