Fréttablaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 45
Erum við með tilnefningarnefnd- um að þrengja að hluthafa- lýðræðinu og milliliðalausu sambandi hluthafa við stjórn? Áhugamenn um stjórnun gerðu vel í að fylgjast með hraðri þróun, einkum í skráðum félögum þar sem til­ nefningarnefndir gera tillögur um stjórnarmenn í hlutafélögum. Grunnspurningarnar eru tvær: Eru tilnefningarnefndir í hlutafélögum líklegar til að bæta stjórnarhætti í félögum, sem er hið yfirlýsta mark­ mið þeirra, og hins vegar má spyrja hvort þeirra sé þörf hér á landi ef horft er til smæðar fyrirtækjanna í alþjóðlegu samhengi. Samhliða er mikilvægt að ræða mismunandi fyrirkomulag þessara nefnda á milli félaga í Kauphöllinni. Óhætt er að segja að margt er óljóst í störfum þeirra og hvernig þeim hefur verið veitt umboð frá hluthöfum. Ekki er ofsagt þegar fullyrt er að mikið ósamræmi ráði við framkvæmdina. Gögn um tilnefningarnefndir í skráðum félögum er best að sækja á vef Kauphallarinnar eða viðkomandi félaga. Verklagið við þær er þann­ ig að tilnefningarnefnd sem valin hefur verið, oftast skipuð þremur nefndar mönnum, undirbýr næsta aðalfund með því að leggjast í tals­ verða vinnu við að greina stjórnar­ hætti, kalla eftir framboðum og eftir að hafa metið frambjóðendur leggur fram lista yfir þá sem lagðir eru til sem ráðgefandi upplegg fyrir aðalfund. Þessar skýrslur eru ítarlegar og erfitt að verjast þeirri hugsun að áherslan sé á umbúðirn­ ar. Það er vandséð að tilnefningar­ nefndir verði breytingaafl við skip­ un á stjórnum. Einnig er í mörgum félögum gert ráð fyrir aðkomu til­ nefningarnefnda þegar stjórnar­ kjör fer fram á hluthafafundum, þ.e. öðrum en aðalfundum. Verði það ofan á að tilnefningar­ nefndir festist í sessi blasir við að gott væri að samræma umgjörð þeirra eftir því sem við á. Markmið tilnefningarnefnda er að tryggja gagnsætt og faglegt ferli við tilnefn­ ingu stjórnarmanna og styðja við upplýsta ákvarðanatöku hluthafa við stjórnarkjör eins og því er lýst. Hröð þróun í átt til tilnefningar­ nefnda hérlendis má örugglega Tilnefningarnefndir í hlutafélögum Friðrik Friðriksson hagfræðingur og fjármála- stjóri Nýsköp- unarsjóðs atvinnulífsins rekja bæði til skráningar félaganna í Kauphöllinni og erlendra fjár­ festa í þessum félögum. Líklega er tilvist þeirra því fremur viðbrögð við kröfum annarra en að þörfin sé talin brýn innan fyrirtækjanna. Í stærri fyrirtækjum erlendis eru tilnef ningar nef ndir st ar fandi þannig að spurningin er því frekar hvort þeirra er í raun þörf á okkar litla markaði. Tilnefningarnefndir mynda vissa fjarlægð á milli hlut­ hafa og stjórna sem er ekki æskileg. Hluthafar velja stjórnarmenn í fyrirtækjum til að gæta hagsmuna sinna enda gegna stjórnir mikil­ vægu hlutverki í gangverki fyrir­ tækjanna. Í aðdraganda aðalfunda þinga tilnefningarnefndirnar og gefa síðan gjarnan út skýrslu um störf sín og tillögu um þá sem skipa eigi sæti í næstu stjórn. Hingað til hefur gengið ágæt­ lega að manna stjórnir hérlendis. Leitað er að reynslu, sérþekkingu og almennu hæfi frambjóðanda samhliða því að gætt er jafnréttis­ sjónarmiða. Í f lestum stærstu fyrirtækjum landsins ráða lífeyris­ sjóðir landsmanna orðið miklu og tilnefna fólk til stjórnarsetu. Þeir hafa þannig mikið um það að segja hvernig velst í stjórnir. Innan stærstu lífeyrissjóðanna eru í reynd valnefndir sem hafa það verkefni að finna gott fólk í stjórn og aðrir hluthafar hafa sama leiðarljós – að fyrirtækinu vegni vel. Stjórnir skipta síðan með sér verkum. Í þessu ljósi má spyrja: Bæta til­ nefningarnefndir mannval í stjórn­ um? Tryggja þær meiri endurnýjun í stjórnum? Hvernig eru nefndirnar sjálfar mannaðar? Hvert sækja þær umboð sitt? Hvaða verkefni er þeim ætlað? Hvernig er þeim fyrir komið í skipulagi eða samþykktum viðkomandi félags? Ef la þær eða minnka lýðræði við stjórnarkjör? Hver er kostnaðurinn af þeim? Hvað framkvæmdina áhrærir þá er margt sem er þvers og kruss við núverandi stöðu. Í stuttri grein er ekki hægt að nefna nema nokkur atriði og stikla þar á stóru. Hvert sækja tilnefningarnefndir umboð sitt? Þær ættu að sækja það í sam­ þykktir/lög félagsins þar sem ljóst er hvaða tilgangi þeim er ætlað að þjóna og starfsháttum lýst. Við lauslega athugun eru fá félög með tilnefningarnefndir í samþykktum, heldur ýmist þannig að gert sé ráð fyrir því að þær starfi sem undir­ nefnd stjórnar eða heyri beint undir stjórn. Við þær aðstæður að tilnefningarnefndir starfi sem undirnefndir stjórnar má halda því FRAMTÍÐIN ER Í ÞÍNUM HÖNDUM MBA-námið við Háskóla Íslands er tveggja ára hagný meistaranám ætlað þeim sem hafa reynslu af stjórnunar- störfum og vilja auka þekkingu sína og hæfni til að takast betur á við forystuhlutverk í viðskiptalífinu. Einstaklingar með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands starfa nú á flestum sviðum viðskiptalífsins, ýmist sem æðstu stjórnendur, millistjórnendur, sérfræðingar eða frumkvöðlar. Umsóknarfrestur er til 24. maí www.mba.is Næstu kynningarfundir: Akureyri, 2. apríl Reykjavík, 4. apríl Skráning á mba.is fram að hætta sé á að nefndin verði verkfæri stjórnar félagsins. Í f lestum nefndanna eru tveir óháðir nefndarmenn kjörnir á aðalfundi en einn tilnefndur af stjórn. Sjá má að Eik fasteigna­ félag tekur forystu á sínum aðal­ fundi með því að gera tillögu um breytingar á samþykktum í þá veru að stjórnarmenn sitji ekki í tilnefningarnefndum. Þetta virð­ ist nokkuð augljóst þegar horft er til þess að stjórnarmaðurinn í nefndinni er væntanlega að mæla með sjálfum sér til framboðs sé hann í endurkjöri. Þessu ætti að verða breytt í öðrum félögum, þótt vissulega megi færa rök fyrir því að stjórnarmaðurinn hafi betri innsýn í störf viðkomandi stjórnar. Ljóst er að þegar tilnefningarnefnd hefur stillt upp „lista“ af frambjóð­ endum þá eiga aðrir frambjóðend­ ur erfiðara uppdráttar, þegar búið er að gefa línuna. Í mörgum félag­ anna núna eru lagðar til óbreyttar stjórnir, nema að losni sæti. Erum við með tilnefningarnefndum að þrengja að hluthafalýðræðinu og milliliðalausu sambandi hluthafa við stjórn? Að síðustu er vert að vekja athygli á þeim kostnaði sem fylgir stjórnum og þeim nefndum sem þeim fylgja. Hann virðist aukast hratt . Fest i aug lýst i nok k uð nákvæmlega hvað lagt er til að greiða stjórnarmönnum og full­ trúum í nokkrum nefndum fyrir nefndarvinnu, þar á meðal í til­ nefningarnefnd. Samkvæmt til­ lögunni slagar stjórnartengd fjár­ hæðin í 50 milljónir á ári hjá því félagi. 9M I Ð V I K U D A G U R 2 7 . M A R S 2 0 1 9 MARKAÐURINN 2 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 7 -2 E E 0 2 2 A 7 -2 D A 4 2 2 A 7 -2 C 6 8 2 2 A 7 -2 B 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.